Dagur


Dagur - 13.11.1968, Qupperneq 6

Dagur - 13.11.1968, Qupperneq 6
6 Húseigendatryggin g NÝ TRYGGING SAMVINNUTRYGGINGA EFTIR reynslu Samvinnutrygg- inga og almennings af Heimilis- tryggingum á undanförnum ár- um hefur verið í undirbúningi önnur trygging, sem snertir mjög hinn almenna borgara, þ. e. Húseigendatrygging. Hún er að því leyti svipuð Heimilis- tryggingunni að hún felur í sér margar áhættur, en er hins veg ar bundin við húseignina ein- göngu, eins og nafnið bendir til, en Heimilistrygging er fyrst og fremst trygging á almennu inn- búi fólks. 7 tryggingar í einu skírteini. Húseigendatrygging er raun- ar sameining á sjö tryggingum, en nokkrar þeirra hefur verið hægt að fá áður, hverja fyrir sig, en með sameiningu þeirra í eitt skírteini er stefnt að því, að tryggingin sé einföld, hag- kvæm og ódýr. Hægt er að tryggja heil hús og er það ódýrast, en ekkert er til fyrirstöðu, að hver einstakur íbúðareigandi í fjölbýlishúsum tryggi sína íbúð. Iðgjaldið mið- ast við brunabótamat alls húss- ins eða eignarhluta tryggingar- taka. Hér fara á eftir upplýsingar inn þessar sjö tryggingar, sem innifaldar eru í tryggingunni: 1. Vatnstjónstrygging. Vatnstjónstrygging tryggir hina tilgreindu húseign eða eign axhluta tryggingartaka gegn tjónum, sem orsakast af tilfall- andi leka úr: a) vatnsleiðslum hússins, b) vatnssalernisskálum, handlaugum, baðkerum, vösk- um, þvottavélum o. þ. h., c) mið stöðvar kerfi, d) frárennslis- leiðslum, e) vatnskrönum, sem gleymzt hefur að skrúfa fyrir. Þó bætir félagið ekki tjón á sjálfum pípunum. 2. Glertrygging. Tryggingin nær til brota á glerinu eftir að það er ísett, inn greypt eða því er á annan hátt endanlega komið fyrir á þeim stað, er því er ætlað að vera á, og gildir tryggingin svo lengi, sem glerið er á sama stað. Bæta skal skemmt gler ásamt ísetn- ingu annað hvort með nýju gleri að sömu stærð og gæðum eða í peningum. 3. Foktrygging. Tryggingin nær til tjóns, er verður á húseign eða eignar- hluta tryggingartaka, af völdum ofsaroks. Bætur greiðast fyrir allt það tjón, er af þessu leiðir, svo sem ef þak eða hluti þess eða gluggar fjúka o. s. frv. Tjón á lofnetstöngum, loftnetum og fánastöngum bætast ekki. 4. Brottflutnings- og húsaleigu- trygging. Hafi hið tryggða íbúðarhús- næði skemmzt af eldi, vatni eða öðrum bótaskyldum tjónsatburð um og sé viðgerðin svo umfangs mikil, að óhjákvæmileg nauð- syn sé að flytja úr húsnæðinu, greiðast bætur, sem nema sann anlegri leigu hinnar skemmdu íbúðar, í allt að 6 mánuði. Mán- aðarleiga verði þó aldrei hærri en 6%0 af brunabótamati íbúðar innar. 5. Innbrotstrygging. Tryggingin bætir skemmdir, sem verða á hinu tryggða hús- næði vegna innbrots eða inn- brotstilrauna. Það telst innbrot, þegar farið er í heimildarleysi inn í hús með því að brjóta upp læsingu eða ef notaður er falsk- ur eða stolinn lykill svo og ef farið er inn um glugga eða op, sem ekki er ætlað til inngöngu. 6. Sótfallstrygging. Tryggingin bætir tjón á hinni tryggðu fasteign vegna skyndi- legs og ófyrirsjáanlegs sótfalls frá kynditækjum eða eldstæð- um, enda fáist tjónið ekki bætt úr brunatryggingu fasteignar- innar. 7. Ábyrgðartrygging húseigenda. Félagið tryggir gegn þeirri skaðabótaskyldu, sem fellur á tryggingartaka samkvæmt ís- lenzkum lögum eða réttarvenj- um, sem eiganda húseignar þeirrar eða húseignarhluta, er skírteinið greiðir. Tjón geta aðeins orðið bóta- skyld, að þau baki tryggingar- taka fébótaábyrgð sem eiganda hússins eða sameiganda þess með öðrum og þá í réttu hlut- falli við eignarhluta hans. Há- marksbætur vegna hvers ein- staks tjóns eru sem hér segir: Heildarupphæð kr. 1.250.000.00 fyrir hvem einstakling kr. 600.000.00, fyrir tjón á munum kr. 200.000.00. Lægri skattar. Samkvæmt ákvörðun Rikis- skattanefndar er heimilt að færa til frádráttar á skatt- skýrslu, undir liðirm „kostnaður við húseignir" 9/10 hluta af ið- gjaldi Húseigendatryggingar. Með þessu lækka skattar þeirra, sem trygginguna taka og ið- gjaldagreiðslur verða raunveru lega mun ægri en sýnt er í þess um bæklingi. Iðgjaldagreiðslur. Hægt er að tryggja einstakar íbúðir, húshluta eða heil hús, og miðast iðgjaldið við brunabóta- mat hússins eða eignarhluta tryggingartaka. Iðgjald eru sem hér segir: Steinhús (heil hús) 1.6%c. Steinhús (einstakar íbúðir eða húshlutar) 2.0;(c. Timburhús (heil hús) 1.75%c. Timburhús (einstakar íbúðir eða húshlutar) 2.2(/c. Hækkun tryggingarupphæða. Samkvæmt landslöginn eru öll hús á landinu brunatryggð og breytist tryggingarupphæð þeirra samkvæmt byggingar- visitölu. Þar sem tryggingarupp hæðir í Húseigendatryggingunni fara eftir brunabótamati munu þær hækka á sama hátt. Þegar tjón verður. Ef þér verðið fyrir tjóni, sem þér teljið, að Húseigendatrygg- ing nái til, þá hafið samband við Aðalskrifstofuna eða næsta um- boðsmann. Allt kapp er lagt á fljótt og sanngjarnt uppgjör tjóna. Samvinnutryggingar hafa færa eftirlitsmenn, sem leið- beina um viðgerðir og endur- byggingar. Tekjuafgangur. Tekjuafgangur félags eða fyr- irtækis rennur venjulega í vasa eigendanna. Þetta gildir að sjálf sögðu einnig um Samvinnu- tryggingar. Frá 1949 hefur fé- lagið greitt tekjuafgang til eig- enda sinna, hinna þryggðu, eftir afkomu hverrar tryggingagrein- ar. Samtals nemur endurgreidd ur tekjuafgangur kr. 64.724.236 krónum. Reykjavík, 16. sept. 1968. (Fréttatilky rrning) ELDRI DANSA KLÚBBURINN heldur dansleik í Al- þýðuhúsinu laugardag- inn 16. nóv. Hefst kl. 9 e. h. Húsið opnað fyrir miðasölu kl. 8 sama kvöld. Stjómin. 2ja til 3ja herbergja ÍBÚÐ ÓSKAST til kaups, nú þegar eða urn áranrót — ný eða ný- l€g. Uppl. í síma 1-25-76, eft- ir kl. 7 á kvöldin. FOKHELD ÍBÚÐ! Til sölu er fjöguiTa her- bergja íbúð í keðjuhúsi. 117 fermetrar, ásamt'24 fermetra bílgeymslu. — Húsið er að Akurgerði 9. — Upplýsingar gefnar hjá Smára h.f., Furuvöll- urn 3, sími 2-12-34. Heimasímar 1-11-45 og 1-29-88. Til sölu notuð RAFHA ELDAVÉL í góðu lagi og bamastóll. Uppl. í síma 1-21-62. FATASKÁPUR til sölu. Sími 1-25-76, eftir kl. 7 e. h. TIL SÖLU: SEM NÝ STRAUVÉL (Rotalux). — Verð krón- ur 4000,00. Uppl. í síma 1-27-89. NÝKOMIÐ Herra- náttföt Herra- sloppar Mjög falleg vara HERRÁDEILD DÖMU- undirfatnaður í mjög fjölbreyttu úrvali VERZLUNIN DRÍFA Drengjapeysur MEÐ V-HÁLSMÁLI HNEPPTAR VERZLUNIN ÁSBYRGI 1 resmiðirl Sérfræðingur frá S/A SOMMER verksmiðjunum í Frakklandi sýnir lagningu og meðferð á gólfefnum og veggdúkum fimmtudaginn 14. þ. m. kl. 1 e. h. í Skátaheimil- inu Hvammi. AÐALUMBOÐ: PÁLL JÓHANN ÞORLEIFSSON, heildverzlun, Reykjavík. UMBOÐ Á AKURLYRI: KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA BYGGINGARVÖRUDEILD Sýningar: fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag. SÍÐUSTU SÝNINGAR. Leikfélag Akureyrar. AKUREYRINGAR! - NORÐLENDINGAR! Kaupið Nylon-húðuð FRÁ STÁLIÐN H.F. Framleiðum einnig o margs konar hluti úr járni og stálí svo sem magasleða, blómagrindur, sjón- varpsfætur og m. fl. STÁLIÐN H.F„ NORÐURGÖTU 55 AKUREYRI

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.