Dagur - 13.11.1968, Blaðsíða 7

Dagur - 13.11.1968, Blaðsíða 7
7 - MERKÍS-ÁRSRIT KVEÐUR (Framhald af blaðsíðu 1). flutti í Stokkhólmi laugardaginn 10. des. 1955, í veizlu þeirri hinni 'miklu, er haldin var í Ráðhúsi borgarinnar til heiðurs Nóbels- verðlaunahöfum það ár, en hann var, eins og víðkunnugt er, sæmdur bókmenntaverðlaunum Nóbels á því ári. Mælti skáldið þá, meðal annars, þessi eftir- minnilegu orð um bókmennta- lega arfleifð vor íslendinga: „Það er skáldi mikið ham- ingjulán að vex-a borinn og barn fæddur í landi, þar sem þjóðin hefur verið gegnsýrð af anda skáldskapar um aldaraðir og ræður fyrir miklum bókmennta auði frá fornu fari. — Og þá skyldi heldur engan furða, þó hugur minn hafi séð aftur í aldir til fornra sagnamanna, þeirra sem skópu sígddar bókmenntir íslenzkar, þessara skálda, sem svo voi'U samsamaðir þjóðdjúp- inu sjálfu, að jafnvel nöfn þeirra hafa ekki varðveitst með verk- um þeirra. — Aðeins standa hin •óbrotgjörnu verk þeirra í aug- sýn heimsins með jafnsjálfsögð- um hætti og landið sjálft. — Um langar, myrkar aldir sátu þessir ónafngreindu menn umhverfðir snauðasta landi heims, í húsa- kynnum, sem höfðu svip stein- aldar og settu bækur sarnan án þess að þekkja hugmyndir shk- ar sem laun, verðlaun, frama, frægð. — Ég hygg, að í margri kytru, þar sem þessir menn sátu, hafi ekki einu sinni brunn ið eldur, svo að þeir gætu ornað sér á loppnum fingrum í and- vökunni. — Samt tókst þeim að skapa bókmenntamál svo ágæt- legt, að sá listrænn miðill mun torfundinn í heiminum, sem gef ur rúm fleiri tilbreytingum, hvort heldur er í því, sem kallað er útsmogið, ellegar hinu, sem kennt er til tíguleika. — Og þeim tókst að semja á máli þessu bækur, sem teljast til sí- gildra bókmennta heimsins. — Þó að þessum mönnum væri kannski stundum kalt á fingr- um, þá lögðu þeir ekki frá sér pennann, meðan þeim var heitt um hjartað.“ Halldóra Bjarnadóttir varð hálftíræð að aldri 14. október í haust. Þessi grein um Hlín, sem er þó eigi nema eirrn merkis- þátturinn í fjölþættu ævistarfi þessarar einstæðu konu, má því skoðast sem afmæliskveðja til hennar, og um leið ofurlítill þakklætisvottur fyrir allt hið mikla og merka, sem hún hefir unnið í 'þágu ættjarðar vorrar, og fyrir virkan vinaxhug hennar í garð vor Vestur-Islendinga. Að málslokum vil ég svo gera að mínum orðum eftirfarandi „Skeyti til'Halldóru níutíu ára“, sem vinur minn Árni Óla, xút- höfundur, sendi henni 14. októ- ber 1963: Eins og algrænt á svelli ódauðlegt sortulyng, steypturðu æsku og elli í órofá sameining. - SAMBÖND SVEIT- ARFÉLAGA (Framhald af blaðsíðu 4). komnir á og stofna samband norðlenzkra sveitarféaga, annað hvort eitt samband fyrir allt Norðurland eða tvö sambönd, annað austan en hitt vestan Öxnadalsheið- ar. Enginn vafi er á því, að slík sambönd eru til þess fall- in að skapa og efla nauðsyn- lega forystu hér á Norður- landi — forystu, sem hin gömlu landssamtök sveitar- félaganna, sem hafa aðal- stöðvar sínar í höfuðborg- inni, geta ekki af skiljanleg- um ástæðum haft með hönd- um á sama hátt. □ r r - íslendingur-ísafold (Framhald af blaðsíðu 1). framkvæmdastjóri, Ragnar Steinbergsson hæstaréttai'lög- maðux', Pjálmi Jónsson bóndi, Jónas Pétursson fv. tilrauna- stjóri og Pétur Bjarnason verk- fræðingur. Framkvæmdastjóri- er Oddur C. Thorarensen. Ritstjóri- „íslendings—fsafold- ar“ er Herbert Guðmundsson, en auk hans vinna við blaðið og í prentsmiðju tveir fastráðnir starfsmenn og sá þriðji bætist við um áramót. ( Fr éttatilkynning ) •fr & & s ý' •<- ý' * & i Ég pnkka innilega fyrir gjafir og heillaóskir, sem mér bárust á 60 ára afmœli mmu 4. nóvember 196S. Svo og allan pann hlýhug og vinsemcL, er ' ég varð aðnjótandi frá vinum og vandamönnum. Guð blessi ykkur öll. HELGI JÓNSSON, Ósi, Glerárhverfi, Akureyri. Kvenfélagið Tilraun, Svarfaðardal. Beztu pakkir fyrir heimboðið og áncegjulega ■ kvöldstund. Megi gœfan ávallt fylgja ykkur og störfum ykkar. KVENFÉLAGIÐ ÍIVÖT. í f t Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og jarðarför eiginmanns míns og föður okkar KJARTANS STEFÁNSSONAR frá Holti. Sérstakar þakkir til Karlakórs Reykdæla og Kirkjukórs Skútustaðakirkju. Indíana Ingólfsdóttir. Ásmundur Kjartansson, Stefán Kjartansson. Iðgjöld samlagsnranna eru nú öll fallin í gjald- daga. — Varist réttinda- missi, greiðið iðgjöldin, sem allra fyrst. Þeir, sem ekki hafa valið sér heimilislækni fyrir næsta ár, eru minntir á að gera Jrað svo fljótt, sem verða má. Samlagsstjórinn. DÖMUSKAUTAR (fóðraðir skór) Verð frá kr. 988,00 HERRASKAUTAR (með svörtum skóm) Verð frá kr. 1018,00 PÓSTSENDUM BRYNJÓLFUR SVEINSSON H.F. gefur glæra plasihúð sem í senn er falleg og slitsterk Fæst í næstu búð St.\ St.\ 596811137 — Frl.\ VHI IOOF — 1501115814: . Tiln. I.O.O.F. Rb. 2 — 11711138y2 — FRA AKUREYRARKIRKJU. Minnzt vei'ður tuttugu og átta ára afmælis kix-kjunnar n. k. sunnudag 17. nóvember. Mess að verður kl. 2 e. h. Sálmar: 416 — 431 — 305 — 612 — 675. Að lokinni messu efnir Kven- félag Akureyi'ax'kirkju til kaffisölu og bazars að Hótel KEA. Þess er vænst að sóknar fólk fjölmenni til messunnar og til styi'ktar kvenfélaginu, sem lagt hefir í mikinn kostn- að með endui'bótum á kirkju- bekkjunum. — Sóknarpi-estar. DRENGJAFUNDUR að Sjónar- hæð n. k. mánudagskvöld kl. 5.30. GLERÁRHVERFI! Sunnudaga- skólinn kl. 1.15 í skólahúsinu. Oll börn hjartanlega velkom- FILADELFfA, Lundargötu 12. Almenn • samkoma hvern sunnudag kl. 8.30 e. h. Biblíu- lestur hvem fimmtudag kl. 8.30 e. h. — Sunnudagaskóli hvern sunnudag kl. 1.30 e. h. Öll börn velkomin. Sauma- fundur fyrir telpur hvern mið vikudag kl. 5.30 e. h. Allar telpur velkomnar. — Fíladel- fía. AÐALDEILD. Fundur kl. 8 á fimmtudags- kvöld. Sei’a Jón Bjar- man æskulýðsfulltr. og Unnur Halldórsdóttii' safnað- arsystir úr Reykjavík koma í heimsókn á fundinn. Helgi- stund, skemmtiati'iði, veiting- ar. — Stjórnin. SUNNUDAGASKÓLI Akur- eyrarkirkju er á súnnudaginn kemur kl. 10.30 f. h., fyrir yngri börn í kapellunni og eldri börn í kirkjunni. — Sóknax'prestar. KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION. Sunnudaginn 17. nóv. Sunnu- dagaskóli kl. 11 f. h. Öll börn velkomin. Almenn samkoma kl. 8.30 e. h. Benedikt Amkels son guðfræðingur og Gunnar Sigui'jónsson guðfræðingur tala. Allir velkomnir. KOMINN HEIM. Sæmundur G. Jóhannesson. FRÁ Þingeyingafélagmu, Akur- eyri. Annað spilakvöld félags ins verður að Bjai'gi laugar- daginn 16. nóv. n. k. og hefst kl. 20.30. Kvöldverðlaun, skemmtiatriði. Mætið vel og stundvíslega. — Nefndin. BARNAGÆZLA! Skátastúlkur taka að sér að gæta barna á kvöldin og uin helgar. Pantanir teknar í síma 1-15-76 og 1-20-72, eftir kl. 16,00. NÚ ER TÆKIFÆRIÐ að láta niála, áð’ur en kaupið hækkar. Guðvarður Jónsson, málarameistari, Aðalstræti 10, Akureyri, sími 1-24-63. SAMKOMA á Sjónarhæð. Biblíulestur kl. 5 e. h. n. k. sunnudag. Allir velkomnir. FATNAÐAR- og KÖKU- BAZAR heldur kvenfélagið Baldursbrá að Bjargi surmu- daginn 17. nóv. kl. 3 e. h. — Einnig verður kaffisala. Allur ágóði í'ennur til Sólboi'gar- hælisins. Komið og styrkið gott málefni. — Nefndin. I.O.G.T. stúkan Brynja nr. 99. Fundur fimmtudaginn 14. nóv. n. k. kl. 8.30 e. h. í Al- þýðuhúsinu. Fundarefni: Vígsla nýliða — Rætt um ár- gjöld, síðari umx-æða — Hag- nefndaratriði — Önnur mál. Eftir fund: Kaffi og kvik- mynd. — Æ.t. LIONSKLÚBBUR llAKUREYRAR Fundur í Sjálfstæðis- húsinu fimmtudaginn 14. nóv. kl. 12. — Stjórnin. SKOTFÉLAGAR. Æfing á föstu dagskvöldið kl. 9.15—10.45. SJÚKRABIFREIÐ Rauða kross ins og brunatilkynningar í síma 1-22-00. FRA HAPPDRÆTTI Blindra- vinafélags íslands. Dregið hef ur verið í happdrættinu. Vinn ingurinn, sem er sjónvarps- tæki með uppsetningu, kom á m'. 1916. NÆSTKOMANDI sunnudag 17. nóv. hefir Kvenfélag Akur- eyrarkirkju sinn ái'lega bazar og kaffisölu að Hótel KEA kl. 3 e. h. Á bazarnum eru kökur, ásamt mörgum góðum munum hentugum til jóla- gjafa. Með kaffinu rjóma- pönnukökur og annað heima- bakað brauð. KVÖLDSKEMMTUN. Iðja, fé- lag verksmiðjufólks á Akur- eyri, heldur kvöldskemmtun að Bjargi föstudaginn 15. nóv. kl. 8.30 e. h. Til skemmtunar: 1. Bingó, margir góðir vinn- ingar. Stjói'nandi Páll Garð- arsson. 2. Dans. Hljómsveitin Nemó leikur. 3. Kaffi, sem félagskonur sjá um. Ágóðinn fer í Menningar og styrktar- sjóð félagsins (vei'kfallssjóð- ur). Aðgöngumiðar seldir við innganginn. Fjölmennið. —■ Skemmtinefndin. SKEMMTIKLÚBBUR templara Spilað og dansað í Alþýðu- húsinu á föstudaginn. Hefst kl. 8.30 og dansað til kl. 1. Templarar og aðrir velkomn- ir. Skemmtið ykkur án áfeng- is. MEÐ V HALSMALI GOLFTREYJUR MEÐ BELTI TÖSKUR (SPÁNSKAR) einnig fyrir telpur, lientug- ar til jólagjafa MARKAÐURINN SÍMI 1-12-61

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.