Dagur - 07.12.1968, Síða 2
2
HANDKNATTLEIKSMÓT ÍSLANÐS - ÖNNUR DEILD:
Víkingur sigraði KA auðveldlega 27:18
SL. LAUGARDAG lék KA sinn
fyrsta leik í íslandsmótinu, 2.
deild, í íþróttaskemmunni á
Akureyri og mættu Víking úr
Reykjavík. KA-liðið lék án
Matthíasar Ásgeirssonar og var
sóknarleikur liðsins ekki sann-
færandi, það vantaði greinilega
mann til að stjórna leik liðsins.
Tvísýn keppni í báð-
uin flokkum hjá I>A
'ÞRIÐJA umferð í sveitakeppni
Bridgefélagsins var spiluð sl.
þriðjudagskvöld. Úrslit í meist-
araflokki urðu þau að:
Mikael J. — Hörður S. 8—0
Soffía G. — Bjarni J. 8—0
Guðm. G. — Baldvin Ó. 8—0
Halldór H. — Jóhann J. 6—2
Sveit Mikaels Jónssonar er
efst í mfl. með 24 stig, sveit
Soffíu Guðmundsdóttur 18 og
■sveit Halldórs Helgasonar 17.
í fyrsta flokki urðu úrslit þau
að:
!Páll P. — Gunnar F. 8—0
Óðinn Á. — Kristján Ó. 8—0
Jónas K. — Valdimar H. 8—0
Skarphéð. H. — Ólaíur Á. 7—1
Árni G. — Stefán R. 7—1
Pétur J. — Helgi J. 5—3
Sveit Páls Pálssonar er efst í
'l. fl. með 24 stig, sveit Óðins
Árnasonar 23 stig og sveit Pét-
urs Jósefssonar 21 stig.
Fjórða umferð verður spiluð
n. k. þriðjudagskvöld að Bjargi.
Dregið befur veiið -
Gerið skil sem fyrst
FRÁ Happdrætti Framsóknar-
flokksins. Dráttur hefur farið
fram og vinningsnúmerin inn-
sigluð hjá Borgarfógetaembætt-
inu í Reykjavík. Allir sem ekki
hafa nú þegar gert skil eru vin-
samlegast beðnir að bregðast vel
við og gera það hið fyrsta til
skrifstofu flokksins — Hafnar-
stræti 95 — eða liringja í síma
2-11-80. Opið alla daga kl. 4—7.
Vinningsnúmerin verða birt
eftir 10. des. □
- Starfsemi SNE
(Framhald af blaðsíðu 8).
ihæð, byggt úr timbri og sements
asbestplötum og vel einangrað
og allt hið snyrtilegasta og mjög
þægilegt að vinna þar við svína
ræktina. í þessu húsi eru nú
um 340 svín á öllum aldri og er
gott rúm fyrir 500. Vernharður
Sveinsson mj ólkursamlagsstj óri,
stjórnarformaður SNE, gekk
með mér um stöðina alla, en
blaðið leitaði einnig upplýsinga
hjá bústjóranum, Óskari Eiríks
syni og Jónasi Kristjánssyni
fyrrv. samlagsstjóra, sem hafði
umsjón með nýbyggingunni fyr
ir svínaræktina.
Mér hefur oftar en einu sinni
verið tjáð, að bændur gerðu
ekki tíðreist í Lund eða Rangár
veli til að fylgjast með því, sem
þar fer fram. Undrar mig það,
svo merkilegar tilraunir eru þar
gerðar og svo fjái'hagslega þýð-
ingarmiklar geta þær verið, að
vart verði að fullu metið þegar
vel tekst. E. D.
Gísli Blöndal veldur ekki því
hlutverki. Víkingsliðið lék hratt
og skemmtilega á köflum, en
mér fannst leikur þess of ein-
hæfur, svo til ekkert línuspil.
Aldrei var um skemmtilega
viðureign að ræða. Víkingar
komust í 4:0, en þá skoraði Gísli
úr víti, og mestur var munurinn
7 mörk í fýrri hálfleik, en KA
tókst að minnka hann í 4 mörk.
í leikhléi var staðan 13:9.
I síðari hálfleik byrjaði KA
allvel og minnkaði bilið í 3
mörk, og Gísli Blöndal hafði
möguleika til að minnka bilið
enn, en brást bogalistin í víta-
kasti. Víkingar tóku nú öll völd,
og lauk leiknum með stór-sigri
þeirra 27:19.
Beztur hjá Víking var Jón
Hjaltalín, en hann er einn bezti
handknattleiksmaður landsins í
dag.
Mörk KA skoruðu: Gísli 8, (3
úr víti), Þorleifur 4 (1 úr víti),
Ragnar 3 og Björn Blöndal 3.
Um leik KA-liðsins er það að
segja, að varnarleikurinn er all-
(Framhald af blaðsíðu 1).
kostnaðarverði og raunverulegu
má ætla að sé 9—10 millj. kr.
Húsið kemur þá til með að kosta
aðeins _% af-_þeirri upphæð, sem
,i fyrstityvaf ’áætlað. Áætlunin
var. gerð í lök árs 1966 í sam-
ræmi við kostnaðarverð ný-
byggðra skóla árþeim tíma.
Arkitektar hússins eru Stefán
Jónsson og Þorvaldur S. Þor-
valdsson. Byggingarverkfræð-
ingur var Viihjálmur Þorláks-
son. Hitalögn teiknaði Kristján
Flygenring og raflögn Jón Á.
Bjarnason. Aðalverktaki var
Byggingafélagið Hlynur h.f. á
Sauðárkróki, meistari Björn
Guðnason. Aðrir verktakar: Tré
smiðjan Borg h.f. á Sauðárkróki
og Vélaverkstæði Kaupfélags
Skagafjarðar. Múrarameistari
Jón D. Jóhannsson. Málarameist
ari Haukur Stefánsson. Raf-
virkjameistarar Þórður P. Sig-
hvots, Erlendur Hansen og Birg
ir Dýrfjörð. Járnalagnir annað-
ist Kári Hermannsson. Eftirlits-
maður byggingarinnar f. h. Sauð
árkróksbæjar var Jóhann Guð-
jónsson, byggingafulltrúi.
Geta má þess, að byggingin er
að heita má að öllu skagfirzk
framleiðsla, bæði hvað fram-
kvæmd og húsagerðarlist snert-
ir.
Sérstök skólaborð voru gerð
fyrir nemendur og kennara, og
eru þau nokkuð frábrugðin
þeim borðum, sem hingað til
'hafa verið notuð. Þau eru teikn-
uð af arkitektum skólans.
í þeim hluta fyrsta áfanga,
sem óbyggður er, er ætlað að
koma fyrir verknámi skólans,
og því mikil nauðsyn á því að
byggja þann hluta serri allra
fyrst.
í bygginganefnd skólans eru:
Hákon Torfason formaður, sr.
Þórir Stephensen, Stefán Guð-
mundsson, Jónas Þór Pálsson
og Magnús Bjamason.
Með tilkomu þessa nýja gagn-
fræðaskóla má ætla að hylli und
ir skynsamlega lausn skólamála
hér.
Þegar ríkisvaldið staðsetur
menntastofnanir hlýtur það að
meta þann gífurlega mun til
góður, en sóknarleikurinn er
langt frá því að vera sannfær-
andi, og er alltof þunglamaleg-
ur. Það vantar „heilann11 bak
við leik liðsins. Það vantar Matt
hías, og án hans er liðið eins og
vængbrotinn fugl. Þorleifur var
beztur og línuspilið jákvætt, en
sóknaraðgerðir voru fálmkennd
ar og hraða og skipulag vantar
algjörlega. — Vonandi tekst
KA-mönnum að laga þetta í
næstu leikjum sínum, þetta eru
mest ungir og efnilegir menn,
en það er mín skoðun að án
Matthíasar Ásgeirssonar takist
það ekki. Þá fannst mér ein-
kennilegt, að Halldóri Rafnssyni
var haldið utan vallar mestan
hluta leiksins, en hann hefur átt
góða leiki í vetur.
N. k. laugardag, 7. des., kl. 4
e. h. leika KA og Kaflvíkingar
í íþróttaskemmunni á Akureyri
í íslandsmótinu 2. deild, og er
þetta annar leikur KA í deild-
inni.
Sv. O.
lækkunar á byggingakostnaði
sem sannast hér. Ekki má held-
ur gleyma jarðhitanum hér né
legu Sauðárkróks og hinum
góðu samgöngum.
Því er nú brýnt að hafist verði
handa um undirbúning að bygg
ingu heimavistarhúss, með til-
liti lil þess, að oft hefir um %
hluti nemenda Gagnfræðaskól-
ans átt heima utan bæjarins.
Oll rök hníga að því að hér
verði reistur Iðnskóli fyrir Norð
urlandskjördæmi vestra sam-
kvæmt nýju iðnfræðslulöggjöf-
inni. Bæjarstjórn Sauðárkróks
hefir þegar ætlað iðnskólanum
rúmgóða og glæsilega lóð, í
næsta nágrenni Gagnfræðaskól-
ans. St. G.
- SKILYRRI
(Framhald af blaðsíðu 4).
innan skamms tíma og um
leið hinu stjórnarfarslega.
Ævintýramennska í heimi
stjórnmálanna er orðin þjóð-
inni dýr á síðari árum, enda
er almenningur í liálfgerð-
um uppreisnarhug, svo sem
sjá mátti í forsetakosningun-
um í s umar og við mörg
önnur tækifæri. I»ví miður
er þess ekki að vænta, að nú-
verandi valdhafar breyti í
nokkru um stefnu og verða
aðrir að neyða þá til betri
vegar, þangað til þjóðin kýs
sér nýja forystu. □
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
eyri eru þau flest í eigu ungl-
inga, en slíkir gera aksturinn
að íþrótt og skemmtun. Stund-
um fara skellinöðru-unglingar í
hópum um bæinn og eru þá
fremur leiðir vegfarendur og
hávaðasamir, sumir ógætnir og
hafa tvö slys orðið á ökumönn-
um þessara farartækja með
stuttu millibili.
- BYGGING SKÓLAHÚSS Á SAUÐÁRKRÓKI
Jólatré og greinar
LANDGRÆÐSLUSJÓÐS
verða að venju seldar í Hafnarstræti á Akureyri
(milli Amaro og Drífu).
Salan hefst e. h. mánudaginn 16. desember.
Pantanir má gera í síma 1-25-37.
SXÓGRÆKTARFÉLAG EYFIRÐINGA.
Drengj a-liattar
Drengja-húfur
Herra-hanzkar
Loðfóðraðar - Verð aðeins kr. 341,00
HERRADEILD
Að gefnu tilefrii skal ítreka eftirfarandi reglur,
sem gilda um áhafnagjaldeyri skipverja á togur-
um og öðrum fiskiskipum, er sigla með afla eða
aðrar sjávarafurðir til sölu upp úr skipi á erlend-
um markaði. Ná þessar reglur til allra söluferða,
einnig veiðiskipa, sem enu á veiðum á fjarlægum
miðum og sigla þaðan með afla á erlendan mark-
að.
a. Skipverjar á skipum, sem sigla með ísfisk eða
saltfisk, mega mest fá 35 sterlingspund í sölu-
ferð eða samsvarandi fjárhæð í öðrum gjald-
eyri, en skipstjórar á sama hátt mest 45 sterl-
ingspund. Gengið er út frá því, að söluferðir
falli ekki tíðar en einu sinni í mánuði.
b. Skipverjar skipa, er landa afla erlendis tíðar en
einu sinni í rnánuði skulu fá í gjaldeyri, sem
nemur £ 18-0-0, eða samsvarandi fjárhæð í
öðrum gjaldeyri, en skipstjórar á sama hátt
£ 23-0-0 fyrir hvern hálfan mánuð í úthaldi.
c. Skipstjórum og úrgerðarmönnum er bent á,
að óheimilt er með öllu að ráðstafa gjaldeyri
af söluverði selds afla erlendis, nema til naiuð-
synlegra útgjalda vegna heimferðar eða næstu
veiðiferðar skips, svo sem til vista, veiðarfæra
og útbúnaðar, sem óhjákvæmilegt reynist að
endurnýja í söluferð. Á það skal sérstaklega
bent, að öll tollvöruúttekt skipverja skal
greidd með þeim gjaldeyri, sem þeim er ætl-
aður eftir reglum skv. a. og b. hér að ofan.
d. Útgerð skips og skipstjóra ber skylda til að sjá
um, að reglum þessum sé fylgt. Ber þessum að-
ilum að gera gjaldeyriseftirliti Seðlabankans
grein fyrir greiðslum og gjaldeyrisskilum sem
fyrst eftir lok ferðar og síðast innan tveggja
mánaða frá því að sala á sér stað.
Reglur þessar hafa verið settar á grundvelli 17.
gr. reglugerðar nr. 79/1960 um skipan gjaldeyr-
is- og innflutningsmála.
Reykjavík, 2. desember 1968.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Gjaldeyriseftirlit.