Dagur - 07.12.1968, Blaðsíða 7
7
— Bœndahöfðingi í Hörgárdal
(Framhald af blaðsíðu 4).
dr. Kristinn Guðmundsson þá í
framboð, sem kunnugt er. Ég
hefði held ég aldrei orðið flokks
þræll og ekki altaf greitt at-
kvæði á þann veg, er foringj-
arnir vildu. Ég fyrirlít flokks-
agann á Alþingi, eins og hann
virðist vera nú. Mín grundvall-
arskoðun í pólitíkinni hefur ver
ið þjóðernislegs eðlis og er það
ennþá. Mér er sagan á ýmsan
hátt vel kunn og á hún að vera
leiðarvísir manna að nokkru.
Ég var á móti Keflavíkursamn-
ingnum og illa var mér við
Marshall-aðstoðina. Mig hryllir
blátt áfram við ölmusugjöfum.
Á móti þeim tekur enginn ein-
staklingur og ekki heldur þjóð,
nema í hreinum neyðartilfellum,
sem ekki hafa verið hér á síð-
ustu tímum. Og svo fréttist nú,
eftir alla velgengnina og góð-
ærin mörgu, að verið sé að und-
irbúa aðstoð á vettvangi er-
lendra samtaka. Heiðarlegir
menn og þjóðir þiggja ekki gjaf
ir þegar ekki stendur verr á, en
hjá okkur.
Hvað finnst þér um síðustu
aðgerðir „viðreisnarinnar11?
■ í einu orði sagt, er það alveg
óhrekjandi, að hin mikla gengis
felling staðfestir fyrst og fremst
stjórnleysi undangenginna ára.
Strax og ofurlítið blæs á móti
ætlar allt að hrynja í rúst, varla
einu sinni með aðdraganda. Það
hefði einhverntíma þótt lítt beis
inn búskapur að uppgefast og
biðja um hjálp þótt eitt áfallaár
kæmi. Það var hreinn afglapa-
háttur stjórnarinnar að álíta, að
metár og markaðsgóðæri yrði
endalaust. Sagan sýnir, að þetta
gengur í bylgjum og hlaut svo
að verða nú. Stjórnin virtist
ekki átta sig á að þessi endur-
tekning sögunnar mundi enn
verða, en treysti bara á eitt eða
fleiri metár til viðbótar hinum
íyrri. Allt þetta finnst mér hvert
mannsbarn hljóti að skilja.
Þú hefur ekki verið talinn
mikið gefinn fyrir höfðingja?
Jú, sanna höfðingja kannski.
En framan af ævi hafði ég eitr-
aða skömm á svokölluðum höfð
ingjum og heldri mönnum þ. e.
fína fólkinu, sem kallað var. Á
síðari árum hefur mér skilist
það, að fína fólkið er líka
manneskjur. En vænna þykir
mér alltaf um alþýðuna.
Nóg að starfa í ellinni?
Meira en það. Ég skrifa mér
til gamans og svo þykir maður'
fullgóður til ýmsra starfa, þegar
maður er orðinn gamall og vit-
laus. Mér leiðist ekki og kemst
ekki yfir helming þess, sem ég
vildi, af því, sem nefna má eins-
konar fræðistörf eða grúsk.
Ertu hættur að drekka?
Nei, en það eru mörg ár síðan
ég varð ölvaður. Ég hefi drukk-
ið í 60 ár en svo hætti ég að
drekka mig fullan og get hætt
þegar ég vil og áður en ég finn
á mér. Ég get líka geymt vín
tímum saman heima hjá mér.
Það er ólíkt skynsamlegra að
fara þannig með vín, en eins og
ég áður gerði. Því miður get ég
ekki predikað bindindi, — er
þess ekki umkominn. En skyn-
samlega notkun ætti ég nú að
geta predikað, vegna reynsl-
unnar.
Mörgu hefur farið fram á
þinni löngu ævi, Eiður?
Næstum öllu hefur farið fram
og mörgu fleygt fram — já, öllu
nema mannfólkinu. En fólkið er
þó mest um vert. Ég skal þó
strax taka skýrt fram, að fólk
er nú mildara og nærgætnara,
einkum við þá, sem bágt eiga,
en áður var. Fyrrum var talið
sjálfsagt, að menn væru heiðar-
legir í viðskiptum. Því hefur
hrakað mikið. Menn skömmuð-
ust sín fyrir ef út af bar með
orðheldni, hvort sem var í smáu
eða stóru. Framtalssvik voru að
vísu fyrrum. En sá var munur-
inn, að menn skömmuðust sín
fyrir þau, en nú hæla menn sér
af þeim og það hefi ég sjálfur
heyrt. Þegnskap okkar fer
hnignandi.
Vildir þú e. t. v. segja eitthvað
um uppeldismál?
Á síðari tímum tíðkast það í
vaxandi mæli, að konur vinni
utan heimilis. Það mun vera
kölluð þjóðarnauðsyn að nýta
vinnuaflið. Þetta tel ég í mörg-
um tilfellum mjög varhugavert.
Þetta var annað hér áður fyrr í
sveitum. Þar gengu húsfreyjur
á engjar og höfðu smábörnin
með sér. Þetta var stundum
erfitt fyrir konurnar, en það var
gott fyrir börnin og er það enn,
að fylgja foreldrum sínum til
starfs. Mæðumar skildu börnin
ekki eftir á götunni, eins og nú
ber við.
Ferðu ineð bænir á kvöldin?
Nei, og ég les fremur Sturl-
ungu en Biblíuna.
Varstu myrkfælinn strákur?
Það vildi svo til er ég var sjö
ára eða þar um bil, að nætur-
gest bar að garði á Þúfnavöll-
um. Foreldrar mínir voru ekki
heima. Þessi næturgestur var
gáfaður umrenningur og ræfill.
En hann kunni þá list að segja
sögur. Hann sagði svo mergj-
aðar sögur, að ég fékk tauga-
áfall og varð vitlaus í myrk-
fælni. Síðan hef ég verið myrk-
fælinn fram á þennan dag. Auð-
vitað hefi ég ekki látið þann
veikleika ráða för. Aðeins þegar
ég var drukkinn eða var að fara
á kvennafar, því ég var kven-
hollur maður nokkuð, fann ég
ekki til myrkfælni. Ég trúi
hvorki að draugar séu til, eða
annað, sem kalla má dularfullt.
Neita heldur engu, og nú má
ég ekki vera að þessu lengur.
Dagur þakkar viðtalið og send-
ir kveðju í Hörgárdal. E. D.
Tilboð óskast í
FORD SENDIFERÐA-
BIFREIÐ,
árgerð 1956, ógangfær.
Ennfremur til sölu tvö
NÝ DEKK,
650/670x15 og
500/525x16.
Uppl. í síma 1-29-63.
VIL KAUPA
AFTURHÁSINGU
með drifi — af Fiat 1100,
árgerð 1954 — eða
ÓGANGFÆRAN BÍL
af sömu gerð.
Árni Ólason, Hauganesi.
Baniaíatnaðiir
NÆRFÖT - UNDIRKJÓLAR - SOKKA-
BUXUR - NÁTTFÖT - NÁTTKJÓLAR
VETTLINGAR - VASAKLÚTAR
VEFNAÐARVÖRUDEILD
& , $
.t Innilega þakka ég börnum, barnabörmim og *
^ tengdabörnum og öðrum œttingjum og vinum, §
sem glöddu mig með gjöfum og heimsóknum á X
afmœlisdagmn minn, 30. nóvémber síðastliðinn. ©
Guð blessi ykkur öll. *
| GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR,
I KotL 1
$
Þakka innilega auðsýnda sannið og vinarhug við
andlát og útför konu minnar
NÝBJARGAR ÞORLÁKSDÓTTUR.
Beztu þakkir fyrir minningargjafirnar.
F. h. aðstandenda,
Kjartan Sigurtnggvason.
Alúðar þakkir til allra þeirra er auðsýndu sannið
við andlát og útför
SIGMARS JÓHANNESSONAR,
Mógili,
og heiðruðu minningu hans á einn eða annan
hátt.
Helga Sigmarsdóttir, Kjartan Magnússon,
Gerður Sigmarsdóttir, Árni Bjarnarson.
FRA KVENFÉLAGI Akure>Tar
kirkju. Jólufundurinn verður
í kirkjukapellunni, miðviku-
daginn 11. des. n. k. kl. 8.30
e. h. — Stjórnin.
FRÁ MÆÐRASTYRKSNEFND
Úthlutun á fatnaði verður í
Kaupvangsstræti 4 (uppi) dag
ana 11., 12. og 13. desember
frá kl. 16—22. Æskilegt að
konur komi sjálfar. — Mæðra
styrksnefnd.
fiFRA SJALFSBJÖRG.
Jólabazar félagsins
verður í Bjargi sunnu-
daginn 15. des. n. k.
Þeim sem hafa tök á
því að gefa muni á bazarinn,
vinsamlega komi þeim í Bjarg
mánudagskvöldið 9. des. eftir
kl. 8 og laugardaginn 14. des.
síðdegis. Með fyrirfram þakk-
læti. — Föndurnefndin.
Ungfrú Hjördís Guðrún
Haraldsdóttir og Þorlákur
Aðalsteinn Aðalsteinsson
verkamaður. Heimili þeirra
verður að Aðalstræti 14, Akur
eyri.
Ljósmyndastofa Páls.
Ungfrú Hugljúf Lín Ólafs-
dóttir og Ingólfur Arnar Guð
mundsson rafgeymaviðgerðar
maður. Heimili Áshlíð 8, Akur
eyri.
FILMAN, ljósmyndastofa.
NYLON
Jakkakjólar
Ungfrú Helga Sigurbjörg
Gunnarsdóttir frá Hauganesi
og Ellert Kárason blikksmið-
ur. Heimili þeirra er að Þór-
unnarstræti 106, Akureyri.
Ljósmyndastofa Páls.
Ungfrú Elín Valgerður
Berg og Þorsteinn Fossberg
Kjartansson skrifstofumaður.
Heimili þeirra verður að
Skarðshlíð 9 D, Akureyri.
Ljósmyndastofa Páls.
dóttir sjúkraliði og Halldór
Sævar Antonsson málari. —
Heimili þeirra verður að Ása_
byggð 18, Akureyri.
Ljósmyndastofa Páls.
LEIÐRÉTTIN G. 1 brúðhjóna-
frétt í síðasta blaði var rang-
hermt að Ingólfur Arnar Guð
mundsson sé iðnverkamaður.
Hann er rafgeymaviðgerðar-
maður.
SJÚKRABIFREIÐ Rauða kross
ins og brunatilkynningar í
síma 1-22-00.
ENSKIR
Greiðsluslcppar
MIKIÐ ÚRVAL
MARKAÐURINN
SÍMI 1-12-61
- HAGNYTING
(Framhald af blaðsíðu 1)
Marteinn Friðriksson, Sauð-
árkróki, Sigvaldi Þorleifsson,
Ólafsfirði, Jón Stefánsson, Dal-
vík, Guðjón Björnsson, Húsa-
vík og Sigurður Sigurjónsson,
Þórshöfn.
(Fréttatilkynning)