Dagur


Dagur - 21.12.1968, Qupperneq 8

Dagur - 21.12.1968, Qupperneq 8
8 SMÁTT & STÓRT Á Luciuhátíð í Akureyrarkirkju. (Ljósm.: Mattliías Gestsson) Sérstaklega ánœgjideg Luciuhá- tíð í A kureyrarkirkju KARLAKÓR AKUREYRAR efndi til Luciuhátíðar í Akur- eyrarkirkju 13. desember. Að- sókn var mjög mikil og var há- tíðin endurtekin næstu tvö kvöld við ágæta aðsókn og al- menna ánægju. Hér var um að ræða söng kórsins og fimm ein- söngvara hans undir stjórn Guð mundar Jóhannssonar en undir leik annaðist Dýrleif Bjarna- dóttir. KAUPFELAG VOPN- FIRÐINGA 50 ÁRA Vopnafirði 17. des. Fimmtíu ára afmælis Kaupfélags Vopnfirð- inga var minnzt 16. des. eða í gær. Var kaffisamsæti í félags- heimilinu Miklagarði og margar ræður fluttar og sungið. En að lokum var dansað. Kaupfélagsstjóri er Halldór Halldórsson, formaður kaupfé- lagsstjórnar er Friðrik Sigur- jónsson í Ytri-Hlíð og með hon um í stjórn þeir Kjartan Björns son símstöðvarstjóri og Þórður Pálsson bóndi á Refstað. Snjóföl er á jörðu og frostið 16 stig í gær. Góða tíðin hefur sparað okkur mikil hey. Atvinna er mjög lítil í kaup- túninu. Eh ráðgert er, að Brett- ingur og Kristján Valgeir leggi hér upp afla í vetur og eru miklar vonir við það bundnar. Margir munu nú fara á vertíð syðra. Þ. Þ. FUNDARÁLYKTUN FUNDUR í Bændafélagi Fljóts- dalshéraðs haldinn 14. des. 1968, mótmælir harðlega framkomnu stjómarfrumvarpi á Alþingi er varðar ráðstöfun á gengishagn- aði landbúnaðarvara. Fundurinn krefst þess að þessi hagnaður gangi allur inn í verðlagið og Framleiðsluráð landbúnaðarins hafi ráðstöfunar rétt á þessum hluta andvirðis varanna sem öðrum. Samþykkt með öllum atkvæð um. □ Þórunn Ólafsdóttir, hér áður kunn og mjög góð söngkona, kom fram í gervi Santa-Luciu, eða Glódísar hinnar góðu, sem sumir nefna svo hér. Aðrir ein- söngvarar voru: Eiríkur Stefáns son, Hreiðar Pálmason, Jósteinn Konráðsson og Ingvi Rafn Jó- hannsson, og gerðu þeir hlut- verkum sínum hin beztu skil. Blaðinu er sérstök ánægja að þvf, fyrir hönd margra við- staddra í Akureyrarkirkju 13., 14. og 15. desember, er þess hafa óskað, að færa Karlakór Akur- eyrar beztu þakkir fyrir ánægju leg kvöld í Akureyrarkirkju. SPARNAÐUR Sparnaður einstaklinga og stofn ana er lífsnauðsyn um þessar mundir. Þetta skilja allir, jafnt ungir, sem aldnir. Nokkrar lífs- venjubreytingar í spamaðarátt er e. t. v. mál málanna nú, þeg- ar gjaldeyri vantar til að kaupa vörur erlendis, skuldir við út- lönd eru orðnar geigvænlegar og að kreppir á flestum sviðum. En hið opinbera á að ganga á undan í þessu efni, þá munu margir á eftir koma. Því miður fréttist ekki enn að almenning- ur njóti þeirrar forystu. HVERJIR FA LAUNIN? Þegar við kaupum útlendar iðn- aðarvörur, greiðum við um leið erlendu verkafólki vinnulaun. Ef sambærilegar innlendar vör- ur fást, og við veljum þær, er- um við um leið að greiða inn- lendu verkafólki vinnulaunin. í því efni virðistt vandalítið að velja og hafna, ef framanskráð er haft að leiðarljósi. Þetta leið- arljós hefur, því miður, ekki log að skært í almenningsálitinu að undanförnu. Tími er til þess kominn, að þar verði breyting á. Muii aðeins næst bezti snjóblás- arinn keyptur til Norðurlands? f HAUST fóru utan þeir Baldur Sigurðsson framkvæmdastjóri Brjóts h.f. á Akureyri og Edgar Guðmundsson verkfræðingur á Dalvík til að athuga um kaup á kröftugum snjóblásara til að halda opnum vegum á mið- Norðurlandi. í Noregi athuguðu þeir sérstaklega snjóblásara þann, sem að undanförnu hefur verið notaður til að halda opinni hraðbrautinni Osló — Bergen — Kristiansund með góðum árangri, enda öflugasti snjóblás- ari þar í landi. Tæki þetta nefnist P. W. 1400 S. og kostar, að hjólatækjum meðtöldum 6.2 millj. ísl. króna. Akureyrarbær, Ólafsfjörður, Siglufjörður, Árskógsstrending- ar og Svarfdælingar buðust til að leggja fram nokkurt fjár- magn ásamt Baldri Sigurðssyni, móti Vegagerð ríkisins, ef til kæmi. Baldur ætlaði t. d. að greiða hjólatækin, sem kosta 2.7 millj. kr. Verksmiðja sú í Noregi, sem framleiðir þessa snjóblásara áætlaði að geta framleitt snjó- blásara fyrir Norðlendinga fyr- ir næstu áramót, og mun um- boðsmaður verkstniðjunnar hér á landi eflaust hafa pantað hann samkvæmt framanskráðu. Þessi P. W. 1400 S.-snjóblás- ari tekur meters djúpan snjó með 20 km. hraða og blæs hon- um 20—25 metra. Hann getur líka tekið snjóskafla, allt að 2.80 m. þykka, einnig hjarnfönn og er útbúinn öryggjum, þar sem um stærra grjót er að ræða en 50 kg. steina. Hann hreinsar 2.90 m. breiðan veg. Það síðasta, sem heyrzt hefur af þessum málum, er það, að vegamálastjóri hafi sjálfur farið til Noregs nokkru síðar en áður nefndir menn og afráðið að kaupa P. W. 1300, sem er bæði minni og með helmingi kraft- minni vél til snjóblásturs. Hann kostar hálfri annarri millj. kr. minna en sá stóri. Þegar þess er gætt, að sveitar- og bæjarfélög hér nyrðra ætluðu að greiða mis muninn og Baldur Sig. auk þess hjólatækin, sýnist þessi ákvörð- un vegamálastjóra furðuleg. Þeir Baldur Sigurðsson og Edgar verkfræðingur sáu hina stóru snjóblásara og kynntu sér þá rækilega og umsögn þeirra manna, sem stjórna verki við áðurnefnda vegi og innkaupa- stjóra norsku vegamálastjórnar- innar. Því er haldið fram, að íslenzki snjórinn sé erfiður viðfangs og snjóa verstur fyrir snjóblásara. Vera má, að þetta sé rétt vegna mikilla umhleypinga. Sé svo, er nauðsynlegt að kaupa öflugustu fáanleg tæki, ef þau eiga að skila því verki, sem ætlast er til. Tala algjörra áengis- sjúklinga er um 2300 Áfengisneyzlan jókst um 48% á sex árum Sumarfæri er nú á Hólsfjöllum Grímsstöðum 17. des. Aðeins er föl á jörð. Ágætt er í högum og hefur svo verið það sem af er í vetur og ekkert búið að gefa sauðfénu. En nú er verið að taka fé í hús. Hins vegar hefur þurft að gæta fjárins. Tófan var slæm við okkur í haust og drap hún nokkrar kindur á Víðihóli og hér á Grímsstöðum. Og því mið ur hafa þessi bitdýr ekki náðzt. Hér er nær engin umferð á vegum en sumarfæri bæði aust ur og vestur. Jólin eru nú að koma til okk- ar og fögnum við þeim, eins og ætíð áður. Hér er nóg að bíta og brenna og hér er það hangi- kjöt og laufabrauð, sem verður aðal jólamaturinn, því rjúpurn- ar brugðust. K. S. KRISTINN STEFÁNSSON áfengisvarnarráðunautur ríkis-- ins, sagði á þingi Landssam- bandsins gegn áfengisbölinu, að ástand í áfengismálum væri mjög versnandi hér á landi, enda hefði drykkja aukizt um 48% á síðustu sex árum pr. mann að meðaltali (2.38 lítrar á mann árið 1967 miðað við 100% áfengi). Ráðunauturinn sagði, að hér á landi væru 2300 algerir áfeng- issjúklingar, þar af konur að einum tíunda. Hjónaskilnaðir væru flestir af völdum áféngis. Tölur þessar sýna, hve áfengis- vandamálið er alvarlegt orðið og tala algerra áfengissjúklinga geigvænleg þótt ekki sé fleira rakið af völdum áfengisneyzl- unnar, svo sem glæpir og hvers- konar slys. Þjóðfélagið sjálft selur áfeng- ið og hagnast vel á því. Ekki er yfir því að kvarta, en skylt er því þá jafnframt, að veita marg fallt meiri fræðslu um áfengi og einnig að framfylgja áfengislög- gjöfinni betur en gert er. Það er alltof dýrt að eyðileggja 2300 mannslíf, hamingju þúsunda heimila og tefla gæfuríkri fram- tíð ungs fólks í tvísýnu með sið- lausri drykkjusízku, eins og hún er um þessar mundir. Þing Landssambandsins gerði m. a. þessar ályktanir: 1. Að skora á heilbrigðisstjórn ina að framfylgja lögum um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra, en til þess vant- aði mjög aukið fé og aukið sj úkr ahúsrými. 2. Að skora á öll yfirvöld ríkis og sveitarfélaga að leggja niður áfengisveitingar í samkvæmum sínum. 3. Að tryggja betur að fram- fylgt sé lögum og reglum um áfengisvarnir. 4. Að beina því til dómsmála- ráðherra og lögregluyfirvalda að herða löggæzlu á samkomum og auka eftirlit með vínveitinga- húsum. 5. Að Landssambandið vinni að því að auka erindaflutning og sjónvarpsþætti um áfengismál og áfengisvarnir. 6. Að vinna að aukningu á fræðslu um áfengismál með út- gáfu fræðsluefnis, svo og í skól- um og víðar. 7. Að aðildarfélögin verði enn virkari í baráttunni gegn áfeng- isbölinu. (Framhald á blaðsíðu 5) NÚ SKAL FÆKKA BÆNDUM! Það vekur athygli, að Bragi Sigl urjónsson flutti á Alþingi í vik- unni frumvarp um breytingu á framleiðsluráðslögum og er þar lagt til, að útflutningsuppbætur á landbúnaðarvörur verði frá 1. jan. 1970 lækkaðar um helming eða megi ekki fara fram úr 5% að verðmæti landbúnaðarfram- leiðslunnar í stað 10% í gildandi lögum. Þessi tillaga á líklega að vera fyrsta ráðstöfunin til að fram- kvæma bændafækkunina, sem formaður Alþýðuflokksins boð- aði á fundi Verzlunarráðsins í Reykjavík. En formælendur bændafækkunar hafa kannski ekki gert sér grein fyrir því, að það er bóndinn einn, sem fram- leiðir þær mjólkur- og kjötvör- ur, sem neytendur kaupa í mat vörubúðum. Það sem oft er kall aður milliliðakostnaður eða dreifingakostnaður, er að miklu leyti vinna, sem lögð er fram við vöruna, frá því bóndinn skilar henni á bíl til flutnings í mjólk- ursamlag eða sláturhús, þannað til hún er aflient við búðarborð. í mjólkurbúum, sláturhúsum, í kjötfrystihúsum og verzlunum hefur fjöldi manns atvinnu, svo og við flutningana. Ef framleiðslan dregst samara hjá bændastéttinni og bændum fækkar, þýðir það minnkandi at vinnu í þéttbýlinu. NÝIR SKATTAR? Bragi Sigurjónsson flytur líka frumvarp um að leggja skatt á hey, kjarnfóður og tilbúinn áburð, og á þetta skattgjald að renna í Hagtryggingarsjóð, enda leggi hið opinbera fram fé á móti í sjóðinn. Úr sjóðnum á aðí greiða bændum bætur vegna tjóns af völdum tíðarfars og náttúruhamfara. Þörf er á slík- um bótum, en orka mun skatt- lágning tvímælis. Sagt er, að hún muni nema um 5 þús. kr. á vísitölubú og kemur til frá- dráttar á persónulegum tekjum bóndans, samkvæmt frumvarp- inu. RÁÐHERRA TEKINN TIL BÆNA Við fyrstu umræðu á Alþingi um frumvarp Framsóknar- manna um greiðslufrest á skuld um bænda s.l. miðvikudag, flutti Stefán Valgeirsson ítar- lega framsöguræðu, þar sem hann tók þá ráðherranaí Gylfa Þ. Gíslason og Ingólf Jónsson allrækilega til bæna út af frammistöðu þeirra og hlálegum kenningum hins síðarnefnda um landbúnaðarmál. Nokkrum dögum áður hafði Stefán frestað ræðunni, vegna þess að hvorugur ráðherra var viðstaddur og tókst forseta ekki að fá þá á fundinn. Þegar ræðara var flutt, var Ingólfur viðstadd- ur, en Gylfi kom sér hjá að með taka sína hirtingu. Umræðum var frestað, en mun fram haldið er þingið kemur saman á ný, eftir áramótin. Ingólfur tók til máls á eftir Stefáni og bar sig að vanda borginmannlega. En, hann sneiddi að mestu leyti hjá þeim málsatriðum, sem Stefán hafði einkum gert að umtalsefni og var það athyglisvert. RÁÐHERRAKVEÐJA Þegar þetta blað var nær full- búið til prentunar, var blaðið íslendingur—fsafold lagt hér inn með kveðju til Dags frá fjár málaráðherra. Það vill nú svo til, að leiðari Dags í dag fjallar um sama mál og ráðherra víkur að. Er þar að finna það, sem blaðið hefur um Sanamálið að segja að þessu sinni.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.