Dagur - 14.06.1969, Blaðsíða 4

Dagur - 14.06.1969, Blaðsíða 4
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: • JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Björnssonar hJ. Grundvallarafriði iðnþróunar í ÁLYKTUN iðnaðarráðstefnu Framsóknarmanna, sem haldin var á Akureyri um sl. helgi, um grund- vallaratriði iðnþróunar er m. a. bent á, að í kapphlaupinu um batnandi lífskjör verði að leggja höfuðáherzlu á eflingu iðngreina, þar sem fram- leiðni einstaklingsins er sem mest og byggist á þekkingu. Slík þróun taki langan tíma og verði að hefjast hið fyrsta og þar þurfi til að koma mark- viss forusta hins opinbera um að efla undirstöðuatriði iðnþróunarinnar. I ályktun þessari, er svo talið upp í 10 liðum, það sem lögð er áherzla á að opinberir aðilar hafi m. a. for- ustu um. Þessir liðir eru svohljóð- andi: 1. Gjörbyltingu á kennslu- og menntakerfi þjóðarinnar og það að- lagað nútímakröfum, m. a. með það í huga að tryggja jafnrétti til mennt- unar um land allt og stórauka þekk- ingu á hinum ýmsu sviðum atvinnu- lífsins. Löggjöf um iðnnám verði breytt þannig að iðnskólar en ekki iðn- meistarar taki við ungmennum til náms og verði skólarnir þannig bún- ir tækjum og kennslukröftum, að þeir verði færir um að útskrifa nem- endur sem komnir verði á ákveðið stig fagnáms eftir tveggja ára nám, sem þeir síðan Ijúki á 1—2 árum eft- ir eðli fagsins hjá iðnmeistara. 2. Víðtækri opinberri tækniþjón- ustu við íslenzka atvinnuvegi, m. a. með tæknimiðstöðvum í öllum lands hlutum. 3. Stórauknum rannsóknum á auð lindum landsins og öflugri vísinda- starfsemi í þágu iðnaðarins. 4. Kerfisbundinni athugun á þró- unarmöguleikum og samkeppnis- hæfni íslenzks iðnaðar um land allt. 5. Opinberr þjónustu við athugun á arðsemi iðngreina og allri aðstöðu til iðnaðar. 6. Forgöngu um samvinnu iðn- fyrirtækja innan sömu iðngreina um framleiðslu til útflutnings. 7. Markvissri aðstoð við álitlegar nýjar framleiðslugreinar. 8. Markaðsstofnun fyrir íslenzka framleiðslu sem jafnframt hafi gæða eftirlit með höndum. 9. Skipulag mn land allt á vegum hins opinbera að nýjum iðngrein- um, ekki síður smáum en stórum. 10. Eflingu matvælaiðnaðar, ullar- og skinnaiðnaðar, skipasmíða, hús- gagnaiðnaðar og hvers konar full- vinnslu innlendra hráefna, sem enn eru flutt út úr landinu lítt eða óunn in. Ennfremur álbræðslu norðan- lands, silicíumvinnslu, sjóefnaiðnað og olíuhreinsunarstöð, svo eitthvað sé nefnt af þeim möguleikum, sem hraða þarf sem mest könnun á. □ ísland verði áfensislaust land Bakkus sjóli sinn við bikar situr á stóli tignarhám, eins og sólin öðling blikar uppi í jólasölum blám. (Alþingisrímur). Það hefir löngum leikið ljómi um Bakkus konung, og honum verið sungið lof og dýrð. Hér á Islandi hefir hann verið tignað- ur síðan land byggðist að einu stuttu tímabili undanskildu. En þessi ljómi hefir jafnan verið falskur, með honum hefir verið reynt að villa um fyrir mönn- um, og dylja þá hættu sem á bakvið býr. Enginn sem gengur Bakkusi konungi á hönd, getur treyst honum. Hann gefur fög- ur fyrirheit, en hverjum sem ekki gætir sín, er háski búinn. Vini sína og aðdáendur hefir hann löngum svikið á hinn hraklegasta hátt. Vill því oft svo fara, að þjónustan við kon- ung þennan, hefir sorglegan endi. Hér á íslandi hefir veldi Bakkusar, svo sem áður getur, staðið frá landnámstíð, og löng- um með miklum blóma, hefir gengi hans farið vaxandi í seinni tíð, einkum meðal kven- fólks og unglinga. Hefir hann og góða aðstöðu, þar sem hann er studdur til valda, af sjálfu ríkisvaldinu, og herjar í skjóli þess. En hver er þá afleiðingin af þessum glæsilegu sigrum Bakk usar? Um það geta orð eins og „áfengisvandamál“, og „áfengis böl“, nokkra hugmynd. Það af- hroð sem þjóðin hefir goldið af hans völdum, er svo gífurlegt, að ekki má dragast að gera eitt- hvað sem um munar, til úrbóta. Hingað til hafa það aðhllega verið dreifðir kraftar, og ekki nógu samtaka, sem að þessu hafa unnið. Nú verða allir þeir, sem sjá hvílíkur voði er hér á ferð, að taka höndum saman í allsherjar átaki, og setja sér ekki lægra mark en það að vinna fullan sigur, útrýma öllu áfengi úr landinu. Svo sem öllum er kunnugt er það íslenzka ríkið, sem hefir áfengissöluna með höndum. All ar tekjur af áfengissölunni renna til ríkisins. Mun mörgum, ekki sízt ríkisstjómunum, verða all starsýnt á þennan tekjulið, og þykja sem ríkið mundi missa spón úr askinum sínum væri hann þurrkaður út. En er nú ekki rétt að gera ofurlitla könn un á því hvað þessi tekjustofn muni gefa í nettó arð? Það skyldi þó aldrei fara svo, að niðurstaðan yrði neikvæð, þeg- ar öll kurl koma til grafar? Fyrst mætti þá auðvitað nefna allan beinan kostnað rík- isins í sambandi við áfengið, kostnað við áfengissöluna, áfengisvarnir, drykkjumanna- hæli, löggæzlu og þvíumlíkt, þó að það séu auðvitað smámunir hjá öllu því tjóni sem af áfengis sölunni leiðir. Hve há mun hún vera upphæðin af öllu því bif- reiðatjóni, sem áfengið veldur? Hver vill meta til fjár öll meiðsli og mannlíf, sem bifreiða slysunum fylgja? Eða hvað þá um öll mannslífin, sem áfengis- neyzlan eyðileggur fyrir aldur fram, munu þau ekki nokkurs virði? Oll sú starfsorka, sem hún brýtur niður. Allt það heimilisböl, og eyðilegging heimila, sem áfengið veldur. Öll spilling, skemmdarverk og glæp ir, sem skrifa má á þess reikn- ing. Ætli milljónirnar, sem áfengið skilar í ríkissjóðinn, fari ekki að verða hæpinn gróði, þegar málið er skoðað af raunsæi, og hleypidómalaust. Ég held að allir hljóti að sjá, við hlutlausa athugun hvílík óverj- andi þjóðarmeinsemd og þjóðar hneisa áfengissala ríkisins er, og að það sé eitt mesta menn- ingarspor, sem þjóðin getur stig ið, að losa sig við það fyrir fullt og allt. Það er algerlega vansæmandi að sjálft ríkið, sem hefir það hlutverk, fyrst og fremst, að vinna að heill og hamingju þjóð arinnar, skuli hafa með hönd- um útvegun og sölu á þessum görótta drykk, sem veldur þjóð inni svo miklu tjóni. Sjá ekki allir hvernig ríkisvaldið leikur hér á hinn lúalegasta hátt tveim skjöldum, býður fram vöru, sem það refsar svo fyrir að neyta. En það er fyrirfram vit- anlegt að margir munu neyta vínsins á þann hátt, að refsi- vert verður. Þegar svo þessi sama vara vinnur markvisst að því að brjóta niður menningu og starfsorku þjóðarinnar, og veldur gífurlegu tjóni, þá er mælirinn vissulega fullur. Ríkis valdið verður að hætta að leika tveim skjöldum í þessu máli, rækja aðeins annan þáttinn, þar sem betur gegnir, og því er sam boðinn baráttu gegn áfenginu, vinna að því að útiloka það úr landinu. Það mundi verða þjóð- inni langtum meira virði, en aurar þeir, sem áfengissalan gefur í ríkiskassann. Nú er mér sem ég heyri vini og stuðningsmenn Bakkusar gera óp mikið, svo sem venja þeirra er, þegar talað er um út- rýmingu áfengis, og hrópa. Eigum við nú að fara að setja vínbann, og steypa þjóðinni út í afbrotafen! En góðu menn, hafa þá ekki gildandi áfengislög verið brot- in? Athugum það lítillega. Hve margir eru þeir ungling- arnir innan 21 árs, sem neytt hafa áfengis á undangengnum árum, þrátt fyrir lögbann? Hve margir hafa veitt, eða selt þess- um unglingum vín, þvert ofan í landslög? Hve margir hafa ekið bíl undir áhrifum áfengis, þó það sé skýlaust lögbrot? Hve margir eru þeir, sem flutt hafa vín til landsins á óleyfilegan hátt?, o. s. frv. Nei, lögbrotin eru fyrir hendi, þau mundu ekki aukast, heldur stórminnka, einkum þegar fram í sækti, og allt eftirlit verða stórum auð- veldara. Það hefir verið nokkuð vikið að því hér að framan, hvílík hræðileg þjóðarmeinsemd áfeng isneyzlan er, hve margháttaðri spillingu og tjóni hún veldur, og hve allt fyrirkomulag og rekstur áfengismálanna er óheil brigður, óeðlilegur og vansæm- andi. Vil ég nú skora á alla, sem sjá hvílík hætta er hér á ferð, fyrir sjálfstæði og menningu þjóðarinnar, að taka höndum saman, um algera útrýmingu áfengis úr landinu. Hér dugar ekkert minna en öflug allsherj- ar samtök. Öll reynsla sannar, að það er máttur samtakanna, sem sigrar. Dreifðir hópar, geta aldrei náð nema takmörkuðum órangri. Það þarf að taka mál þetta föstum tökum, koma því í fast form, og sækja fram að ákveðnu marki, og takmarkið hlýtur að vera ísland án áfang- is! Eðlilegt sýnist að Stórstúka íslands, og „landssamtök gegn áfengisbölinu", hefðu hér for- ystu. Þessi tvö öflugu félagasam tök mundu miklu fá áorkað, til að hafa áhrif á almenning, og vinna málinu fylgi. Ef öll þau félög, og félagasamtök, sem standa að „landsambandi gegn áfengisbölinu“, gengju einhuga til liðs við málið, mætti telja að sigur væri unninn. Nú þegar er jarðvegurinn nokkuð undirbú- inn með „samkomum án áfang- is“, o. fl. Hvort baráttan tekur lengri eða skemmri tíma, verð- ur ekki vitað fyrirfram, en frá takmarkinu má ekki hvika, unz fullnaðarsigur er unninn. Þegar tímar líða, mun það ástand, sem nú ríkir í landinu, sökum áfengisneyzlunnar, verða sem Ijótur draumur í endur- mínningu þjóðarinnar, og hún mun blessa þá stund er hún rak vínið af höndum sér. I samræmi við það, sem að framan er skráð, og því til árétt ingar, vil ég að lokum koma fram með eftirfarandi tillögur, og gætu þær þá skoðast sem umræðugrundvöllur í málinu: 1. Allir áfengir drykkir séu algerlega bannaðir á íslandi. Sjá þó lið nr. 2. 2. Þegar vínbannið er lögleitt, geti þó þeir karhnenn, sem orðn ir eru 25 ára, og þess óska, feng ið ákveðið magn af víni á ári. Skammturinn miðast við það, að um óhóflega vínnautn geti ekki orðið að ræða. Úthlutun fari fram svo oft sem hagkvæmt eða heppilegt þykir, sérstaklega með tilliti til notkunar áfengis- ins. Þessum skammti fái við- komandi að halda, svo lengi sem hann óskar þess. 3. Að öðru leyti en um getur í lið nr. 2, verði algert áfengis- bami. 4. Hver maður sem fær vín- leyfi hafi kort, undirritað af lög legu yfirvaldi, sem sýni að hann hafi þetta leyfi. Um tillögurnar vildi ég segja þetta: Smnum kann að virðast svo, að það verði of mikill seina- gangur á þessu máli, að gera þá tilslökun, sem ég sting uppá. Þetta held ég þó að sé nauðsyn- legt, til að tryggja svo sem unnt er að lögin verði í heiðri höfð. Að setja í fyrstu lotu algert og skilyrðislaust bann, væri mjög óhyggilegt, því vitahlegt er að þeir sem neyta víns að mun, eiga í flestum tilfellum mjög erfitt með að leggja það niður, og mundu leita allra bragða, til að verða sér úti um það, þessa menn á að láta hafa hóflegan vínskammt meðan þeir æskja þess. Það getur auðvitað tekið allt uppí 50 ár, að vínið hverfi algerlega úr landinu, en með hverju árinu sem líður, mundi það minnka. Þó þessir menn fengju hóflegan vínskammt, mundi þess lítið gæta, því að sjálfsögðu er þess vænst, að all- ir sem treysta sér til, afsali sér víninu. Allt eftirlit með áfengis neyzlu yrði mun auðveldara, og aðeins brot af því sem nú er. Þetta fyrirkomulag, að láta vínið smá fjara út, held ég að yrði langsamlega affarasælast, beita ekki hörku, en sýna þeim tillitssemi, sem orðnir eru svo handgengnir Bakkusi, að þeir treysta sér ekki til að snúa við honum bakinu, aðal atriðið er, að kynslóðin, og kynslóðirnar, sem upp vaxa, komist aldrei í kynni við hann, þá ætti þeim að veitast auðvelt að vera án víns- ins. Margir munu nú sennilega líta svo á, að það sé fjarstæða að hugsa sér að við íslendingar getum komið á, og haldið vín- banni í landinu, jafn tíðar og samgöngur séu nú orðnar við útlönd, fjöldi íslendinga fari utan árlega, og muni verða örðugt fyrir þá að standa á móti víninu, sem allsstaðar sé á boð- stólum. Satt er það, að freist- ingarnar eru margar, þar getur aðeins eitt bjargað, stei’k þjóð- erniskennd, og þjóðarmetnaður. Það er sagt um Ungverja, að sé farið fram á eitthvað við þá, sem þeir telja sér vansæmd að hafi þeir á reiðum höndum hið stolta svar. „Ég er Magyar“. Þar með er málið útrætt. Get- um við íslendingar ekki tekið okkur þetta til fyrirmyndar? „Ég er íslendingur“. Með því svari væri skírskotað til ís- lenzkra laga, og mundu allir taka það svar gilt. Það mætti hverjum íslendingi vera metn- aður og sæmd, að gefa slíkt svar, undir þesskonar kringum- stæðum. Smáþjóðum er það nauðsyn að eiga hugsjón, sem þær standa saman um. Þær þurfa-að ■ eiga sameiginleg menningar- verðmæti, og þora að fara sínar eigin leiðir, og vera í farar- broddi um hverskonar siðgæðis og menningarmál. Það skapar þeim, framar flestu öðru, rétt til að vera sjálfstæð þjóð, um leið og það treystir hin sameig- inlegu þjóðernisbönd, og þjóðar meðvitund. Gætum við íslend- ingar útilokað áfengi úr landi voru, mundi það auka oss virð- ingu meðal annarra þjóða. En það sem mest er þó um vert, siðferðisþróttur og starfsþrek þjóðarinnar mundi stóraukast. Útrýming áfengis mundi verða ein sterkasta stoðin undir frelsi og farsæld íslenzku þjóðarinnar um ókomin ár. Stefán Kr. Vigfússon. Nokkur orð um nefndarkosningar bæjarstjórnar Myndin er frá aðalfundinum, sem haldhin var á Höfn í Hornafirði. ATHYGLI vakti við nýafstaðið nefndakjör bæjarstjórnar Akur eyrar, afstaða Braga Sigui-jóns- sonar og Ingólfs Árnasonar. Þeir stilltu upp í sameiningu lista í allar nefndir og buðu upp á hlutkesti við Sjálfstæðismenn um fimmta manninn í nefndun- um (fimm manna nefndir) og sýndu með því, að þeim er sama þótt Sjálfstæðisflokkurinn hagn ist á sundrung vinstri flokk- anna. Fulltrúar Framsóknarflokks- Samvinnutryggingar endurgreiddu 68 milljónir -AÐALFUNDIR Samvinnutrygg inga og Líftryggingafélagsins Andvöku voru haldnir að Hótel Höfn, Hornafirði, föstudaginn 30. f. m. Fundina sátu 19 full- trúar víðs vegar að af landinu, auk stjórnar félaganna og nokk urra strafsmanna. Formaður stjórnarinnar, Er- lendur Einarsson, forstjóri, flutti skýrslu stjómarinnar og gat þess, að þetta væri 22. aðal- fundur Samvinnutrygginga og 19. aðalfundur Líftryggingafé- lagsins Andvöku, en 9. maí sl. voru 20 ár liðin frá stofnun þess, og er félagið nú orðið stærsta líftryggingafélagið á ís- landi. Einnig kom fi-am, að fé- lagið hafði fest kaup á einum þriðja hluta eignanna að Bifröst í Borgarfirði og umboðsskrif- stofa félagsins að Egilsstöðum hafði flutt í nýtt húsnæði á ár- inu. Á fundinum urðu allmiklar umræður um umferðar- og öryggismál og vofu í því sam- bandi samþykktar eftirfarandi ályktanir: „Aðalfundur Samvinnutrygg- inga, haldinn að Höfn í Horna- firði föstudaginn 30. maí 1969, fagnar stofnun Landssamtaka Klúbbanna ÖRUGGUR AKST- UR og sendir stjóm þeirra ám- aðaróskir.“ „Aðalfundur Samvinnutrygg- inga, haldinn í Höfn í Homa- firði föstudaginn 30. maí 1969, fagnar stofnun Umferðarmála- ráðs. Fundurinn telur, að hið nýskipaða Umferðarmálaráð eigi, ef rétt er á málum haldið, að geta orðið sá aflvaki um- ferðaröryggis í landinu, sem nauðsynlegur er, eftir að Fram- kvæmdanefnd hægri umferðar lauk störfum. Um leið og bent er á nauðsyn þess, að Umferðarmálaráði Atliygli vakin á iðnfræðslu FRÁ iðnfulltrúum á Akureyri og Sauðárkróki hefur blaðinu borizt til birtingar eftirfarandi: Að gefnu tilefni skal vakin athygli iðnmeistara og þeirra, er ætla sér í iðnnám, að skylt er að gera námssamning strax og iðnnám hefst, og að náms- samningur er ekki gildur fyrr en hann hefur fengið staðfest- ingu iðnfulltrúa. Skal námssamningur hafa bor izt til staðfestingar eigi síðar en mánuði eftir að nemandi byrjar nám sitt. Reglugerð um iðnfræðslu kveður svo á í 15. gr. að iðnfull- trúa sé heimilt að breyta byrj- unartíma námsins ef samningur berst eigi til staðfestingar innan tilskilins tíma. Hér eftir mun þessu ákvæði 15. gr. verða beitt þegar ástæða er til. Þá skal einnig vakin athygli á 22. gr. iðnfræðslulaga tun inn- tökuskilyrði í iðnskóla, en þar segir svo: 1. „Að nemandinn sé fullra 15 ára. 2. Að hann hafi lokið mið- skólaprófi. Iðnfræðsluráði er heimilt a ðveita undanþágu frá ákvæði 2. töluliðar — þegar um er að ræða nemendur, sem hefja iðnnám eftir 18 ára aldur, enda liggi fyrir samþykki fræðnefndar viðkomandi iðn- greinar um, að undanþága sé veitt að því er iðngreinina snertir. Sé undanþága veitt, skal nem andinn sýna við inntökupróf, að hann hafi nægilega þekkingu í íslenzku og reikningi, og skulu inntökupróf miðuð við eigi minni kröfur en gerðar eru til miðskólaprófs í þessum grein- um.“ Þurfi a ðleita undanþágu sam kvæmt þessari grein, er iðn- meisturum bent á, að afla sér verði skapaður fastur tekju- stofn til að standa undir brýnni starfsemi þess, hvetur fundur- inn alla þá, sem aðild eiga að ráðinu, til að láta nú hendur standa fram úr ermum og gera stórátak til aukinnar umferðar- fræðslu og bættrar umferðar- menningar á íslandi. Aðalmark miðið með slíku átaki í umferð- armálum er að komast hjá öll- um þeim hörmungum og ógæfu, sem umferðarslysunum fylgja, en jafnframt ítrekar fundurinn, að kostnaður sá, sem slíku átaki fylgir, skilar sér margfaldur aftur til þjóðarbúsins.“ Heildariðgjaldatekjur Sam- vinnutrygginga á árinu 1968 námu 276.1 millj. króna og höfðu aukizt um kr. 57 millj. eða 26% frá árinu áður. Er um að ræða aukningu iðgjalda í öllum greinum, nema frjálsum ábyrgðartryggingum og ábyrgð artryggingum bifreiða, en þar er þó ekki um fækkun trygg- inga að ræða, heldur auknar bónusgreiðslur. Mest er aukn- ingin í sjótryggingum og endur- tryggingum, enda hafa gengis- breytingar mikil áhrif á þessar tegundir trygginga. Heildartjón Samvinnutrygg- inga námu á árinu 1968 kr. 218.1 millj. og höfðu aukizt um kr. 39.3 milljónir eða 21.96% frá árinu áður. Tjónaprósenta árs- ins var 78.97 á móti 81.59 árið 1967. Reksturskostnaður Samvinnu trygginga jókst um kr. 2.3 millj. en kostnaðarprósentan lækkaði hins vegar úr 14.71% í 12.53% árið 1968. Nettó hagnaður af rekstri Samvinnutrygginga árið 1968 nam kr. 495.200.00, eftir að endurgreiddur hafði verið tekju afgangur til tryggingartakanna að fjárhæð kr. 3.409.000.00. Nema þá slíkar endurgreiðslur tekjuafgangs kr. 68.1 millj. frá því byrjað var að endurgreiða tekjuafgang árið 1949. Bónus- greiðslur til tryggingartaka í ökutækjatryggingum námu kr. 33.7 millj. á árinu 1968 á móti kr. 29.7 millj. árið 1967. Eigin tryggingarsjóðir Sam- vinnutrygginga að viðbættum varasjóði námu í árslok 1968 kr. 268.8 millj. og höfðu aukizt um kr. 31.9 millj. í stjórn félaganna voru endur kjömir Erlendur Einarsson, for stjóri, Reykjavík, Jakob Frí- mannsson, kaupfélagsstjóri, Ak ureyri, og Karvel Ögmundsson, útgerðarmaður, Ytri-Njarðvík, en aðrir stjórnarmenn eru Ing- ólfur Ólafsson, kaupfélagsstjóri, Reykjavík, og Ragnar Guðleifs- son, kennari, Keflavík. Framkvæmdastjóri félaganna er Ásgeir Magnússon, lögfræð- ingur. □ - Frá aðalfundi KEA þeirrar undanþágu áður en við- komandi nemandi er ráðinh til námsins. Iðnfræðsluráð löggildir meist ara og iðnfyrirtæki til þess að mega taka nemendur og segir svo í 1. gr. reglna um það efni: „Þeir einir mega taka nem- endur til náms í löggiltri iðn- •grein, sem hafa löggildingu iðn fræðsluráðs“ — og í 5. gr. sömu reglna segir: „Til að tryggja að nemendur fái notið fullkominn- ar kennslu mega meistarar og iðnfyrirtæki, sem löggildingu hafa hlotið, að jafnaði eigi hafa fleiri nemendur, miðað við full- gilda iðnaðarmenn, en sem hér segir: 1 nemanda f. 1—2 iðnaðarm. 2 nemendur f. 3—4 iðnaðaim. 3 nemendur f. 5—6 iðnaðarm. 4 nemendur f. 7—8 iðnaðarm. 5 nemendur f. 9—10 iðnaðarm. (Framhald á blaðsíðu 2) (Framhald af blaðsíðu 1). aðstöðu félagsins á Dalvík og byggingu stórgi-ipasláturhúss á Akureyri. Kaupfélagsstjórinn, Jakob Frí mannsson, las reikninga félags- ins fyrir árið 1968 og skýrði ýtar lega frá rekstri þess. Heildar vörusala félagsins og fyrirtækja þess á innlendum og erlendum vörum, þegar með eru taldar út flutningsvörur, verksmiðjufram leiðsla og sala þjónustu-fyrir- tækja jókst um 16.5%, úr 958.6 milljónum í 1.116.9 milljónir króna, og er það í fyrsta sinn að ársvelta félagsins fer fram úr einum milljarði króna. Vöru- sala verzlunardeilda félagsins var hins vegar 302 milljónir króna og hafði hækkað um 6% frá áriríu 1967. Heildarafskriftir og auknrrtg eigin sjóða námu á árinu 18 náffljónum króna, en rekstrarhagnaður var krónur 1.848.000 þegar greitt hafði ver- ið gengistap að upphæð kr. 3.5 milljónir á erlendum vörukaup um, sem stafaði af gengisfell- ingunni í nóvember sl. Það kom hins vegar skýrt fram í ræðu kaupfélagsstjórans, að rekstrarafgangur ársins stafar af rekstri ýmissa iðnfyrirtækja og umboðssöludeilda, auk frysti hússins á Dalvík, en verzlun fé- lagsins skilar engum ágóða og er greinilegt, að núverandi verzlunarálagning stendur alls ins höfðu svarað tilmælum Ingólfs Árnasonar um samstarf við kosningar á þann veg, að þeir skyldu styðja að því, að bæði flokksbrot Alþýðubanda- lagsins héldu mönnum í nefnd- um eins og var sl. ár, þar sem aðeins eitt ár væri eftir af kjör- tímabilinu og nokkuð jöfn skipt ing virtist milli þeirra, að því e þeu töldu sjálfir. Þetta var stefna fulltrúa Framsóknarflokksins í sam- bandi við kjör vinnuskólanefnd ar og tilnefningu manna í stjórn Ú. A. fyrr á þessu ári. Þessa stefnu studdu þá einhuga full- trúar Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins og var ekki annað vitað fram á síðustu stund, en að svo yrði nú. Kosningum lauk reyndar nær alveg á þann veg er Framsókn- armenn buðu upp á, þar sem listi Ingólfs og Braga vann þrjú hlutkesti (af þrem) á móti Sjálf stæðisflokknum og bæjarfull- trúar Framsóknarflokksins stóðu fyrir sitt leyti við sitt til- boð og stilltu upp mönnum Al- þýðubandalagsins í þær nefnd- ir, sem áður var upplýst (m. a. af Ingólfi Ámasyni) að hefðu verið skipaðar stuðningsmönn- um Jóns Ingimarssonar. Þá vakti það einnig athygli, að Sjálfstæðisflokkurixm studdi kjör Braga Sigurjónssonar, sem forseta, en ekki varaforsetanna og setja menn það í samband við það, að fulltrúar Alþýðu- flokksins vísuðu aftur til bæjar ráðs, ásamt Sjálfstæðisflokkn- um, ályktun Þorvaldar Jónsson ar um að átelja ríkisstjórnina fyrir seinagang Norðurlands- áætlunarinnar. Tillagan var svo hljóðandi: „Bæjarráð Akureyrar átelur, að ekki skuli lokið gerð Norður landsáætlunarinnar og skorar á ríkisstjórnina að hlutast til um, að niðurstöður áætlunarinnar liggi fyrir eigi síðar en þegar Alþingi kemur saman í haust.“ Magnús Jónsson fjármálaráð- herra, sem hér var á ferð um helgina mun hafa fengið fregnir af ályktuninni, orðið reiður flutningsmönnum og skipað Braga að sjá til þess, að henni væri frestað. Þykir mönnum viðkvæmni ráðherrans helzt til mikil, en e. t. v. er samvizkan ekki í vel góðu lagi út af þessu máli. □ Karlakórinn YÍSIR ekki undir nauðsynlegum verzl unarkostnaðL Aðalfundurinn ákvað að greiða í reikninga félagsmanna 6% arð af viðskiptum þeirra við lyfjabúð félagsins, Stjörnu Apótek, sem þeir sjálfir höfðu greitt. Úr Menningarsjóði félagsins hafði verið úthlutað kr. 155.000.00 til 11 aðila, en' tekjur sjóðsins voru kr. 250.000.00 framlag samþykkt af aðalfundi i fyrra, auk vaxta. Á aðalfund- inum nú var samþykkt kr. 300.000.00 framlag til sjóðsins. Þá samþykkti fundurinn ein- róma að heiðra minningu Þór- arins heitins Eldjárn frá Tjörn með því að veita kr. 100.000.00 framlag til minningarsjóðs um Þórarin, sem verið er að stofna í heimabyggð hans, Svarfaðar- dal. 1 stjórn félagsins til þriggja ára voru endurkjömir þeir Brynjólfur Svéinsson, Akur- eyri, og Hjörtur Eldjám Þór- arinsson, Tjörri. Varamenn í stjóm félagsins til þriggja ára voru endurkjömir þeir Jón Hjálmarsson, Villingadal og Gísli Konráðsson, Akureyri. Endurskoðandi til tveggja ára var endurkjörinn Sigurður Óli Brynjólfsson, Akureyri, og í stjórn Menningarsjóðs til þriggja ára var endurkjörinn Árni Kristjánsson, Akureyri. SÍÐASTLIÐINN sunnudag bar hér að garði karlakórinn Vísi frá Siglufirði og efndi hanri til samsöngs í Nýja-Bíói. Söng- stjóri var Geirharður Valtýs- son, sem einnig lék einleik á trompet. Undhleik önnuðust Elías Þor valdsson, Rafn Erlendsson, Sverrir Elefsen og Þórhallur Þorláksson. Einsöngvarar voru: Guðmundur Þorláksson, Krist- inn Georgsson, séra Kristján Róbertsson, Sigurjón Sæmunds son og Þórður Kristinsson. Fyrri hluti söngskrár var með hefðbundnu sniði, þ. e. innlend og erlend lög eftir ýmsa höf- unda. Ber þar helzt að- nefna til, lag Þórarins Jónssonar „Ár vas alda“, sem bar af íslenzku lög- unum um alla gerð, mótað skýr um, sterkum dráttum og naut sín vel í meðförum kórsins. Sömuleiðis náði kórinn góðri reisn í flutningi sínum á hinu fagra lagi eftir Mendelsohn „Ó dalur, hlíð og hólar.“ Það er ekki nema sjálfsögð kurteisi, þegar siglfirzkir söng- menn ljúka munni sundur, að nafn séra Bjarna Þorsteinsson- ar standi á söngskrá. Samt held ég það væri enn betri virðingar vottur við hið stórmerka ævi- starf séra Bjarna, ef flutt væru annað slagið einhver af þeim íslenzku þjóðlögum, sem honum tókst á elleftu stundu að bjai'ga frá gleymsku. Sannleikurinn er sá, að séra Bjarni Þorsteinsson var tónskáld rétt í meðallagi, en hann var stórmerkur fræði- maður og menningarfrömuður. Hefði ekki komið til hið frá- bæra næmi hans á þau tónlistar verðmæti, sem voru rétt við það að glatast, ásamt fádæma eljusemi hans og kostgæfni, væru þess vísast fáar heimildir, að hér á íslandi hefði nokkru sinni staðið söngmennt, sem um talsverð væri. Það er enginn vafi, að geysimikið af lögum hefur glatazt og verða þau ekki endurheimt úr gleymskunnar djúpi. Tjóar lítt að sýta það, og er nær að gleðja sig við það, sem varðveitzt hefur. Þar eiga íslendingar stóra skuld að gjalda séra Bjarna Þorsteins- syni, sem auðnaðist með þjóð- lagasafni sínu að auka veruleg- um þætti við sögu íslenzkrar menningar. Þetta svið sönglaga mætti rækja betur. Söngstjóri Vísis, Geirharður Valtýsson, er í bezta máta ná- kvæmur og skörulegur í sinni söngstjórn. Hann agar sína menn sterklega, en gerir það með glöðu yfirbragði, sem ljær söng kórsins léttan óþvingaðan blæ, þegar bezt lætur. Því er þó ekki að neita, að Vísir er að nokkru undir sömu annmarka seldur og margir aðrir karla- kórar, að því er söngstíl snertir. Sterkur söngur er t. d. lítt hefl- aður, og iðulega skortir mýkt og hljóm í veikum söng. Aftur á móti nýtur kórinn þess, að vera undir svo myndugri og kunnáttusamlegri stjórn, sem raun ber vitni. Á síðari hluta éfnisskrár var svo tekið upp léttara hjal. Vísir hefur, eftir því sem ég bezt veit, einna fyrstur karlakóra farið inn á svið léttrar dægurtónlist- ar. Um þá ráðstöfun sýnist trú- lega sitt hverjum og ef til vill finnst ýmsum þeim, sem taka karlakóra hátíðlega, sem virð- ingu þeirra sé með þessu frek- lega misboðið. Hins vegar munu þeir Vísismenn og þeirra ágæti söngstjóri gera sér það vel ljóst, hve karlakór sem hljóðfæri eru mikil takmörk sett og hver nauðsyn það er að reyna nýjar leiðir. Það er svo annað mál, hvort þeir hefðu ekki með góð- um árangri getað kosið sér stærra svið að viðfangsefni. Þeir hafa mörgum prýðisgóðum söngmönnum á að skipa, og mér er nær að halda, að söngstjór- inn, Geirharður Valtýsson, sé óvenju fjölhæfur tónlistarmað- ur og afkastamikill eftir því. Flutningur þessara „léttu“ dæg urlaga var hinn öruggasti, líf- legur og skemmtilegur og auð- heyrilega ekki kastað höndun- um til neins. Undirleikur þeirra fjórmenninga átti góðan hlut að máli, að því ógleymdu er söng- stjórinn greip sjálfur trompet- inn. Það leyndi sér ekki, að þar fer enginn miðlungsmaður, held ur ræður hann fyrir ágætri kunnáttu á sitt hljóðfæri. Þama rennur ósvikið tónlistarblóð í æðum. Var þessum lögum öll- um tekið með fögnuði. Að lok- um söng Vísir sem aukalag „Ég , (Framhald á blaðsíðu 2)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.