Dagur - 21.01.1970, Page 1
LIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 21. janúar 1970 — 3. tölublað'
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÓSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Ivö tilboÖ í
Gljýfyrvers-
virkjun
SÍÐDEGIS í gær voru á Akur-
eyri opnuð tilboð í byggingar-
framkvæmdir fyrsta stigs við
Gljúfurversvirkjun í Laxá.
Tvö tllboð bárust, og er þau
voru opnuð kom í ljós, að þau
voru frá Norðurverki h.f. á
Akureyri og Efrafalli s.f. í
Reykjavík.
Tilboð Norðurvenks var kr.
202.521.900.00. Tilboð Efrafalls
var kr. 224.265.000.00.
í tilboðunum eru ýmsir fyrir-
varar og á nú eftir að bera til-
boðin saman.
Viðstödd opnun tilboðanna
var Laxárvirkjunarstjórn og
ráðunautar hennar og fulltrúar
fyrirtækjanna.
Hátíðaferð Heklu á Eyjafirði á laugardaginn.
(Ljósmyndastofa Páls)
Eramkvæmd sú, er hér um
ræðir er stöðvarhús og nær
eins km. jarðgöng. □
Akureyrartogararnir
NÝJA STRANDFERDASKIPID HEKI.A
AFHENT EIGENDUM SL. LAUGARDAG
KALDBAKUR er á leið til
Þýzkalands og selur afla sinn
þar á föstudaginn.
Svalbakur er á veiðum.
Harðbakur fór í gær áleiðis
til Þýzkalands í söluferð.
Sléttbakur selur í Abeerdim
á morgun. □
SNEMMA vors 1967 var um það
samið við Slippstöðina h.f. á
Akureyri, að hún tæki að sér
að smíða tvö sti-andferðaskip úr
stáli fyrir Skipaútgerð ríkisins,
eitt þúsund tonna skip. En út-
boð á smíði skipanna hafði þá
farið fram og erlendar og inn-
lendar skipasmíðastöðvar buðu
í þetta verkefni. Eftir samning
þennan hófst undirbúningur
Hekla við Torfunefsbryggju.
(Ljósm.: F. Vestniann)
skipasmíðanna og síðan smíðin
sjálf.
Hinn 18. júní í sumar var
fyrra skipið sjósett og hlaut það
nafnið Hekla. Við það tækifæri
fluttu þeir ræður, Skapti Ás-
kelsson forstjóri Slippstöðvar-
innar og Eggert Þorsteinsson
ráðherra.
Sl. miðvikudag fór Hekla í
reynsluferð út í fjarðarmynnið
og reyndust vélar og tæki í full
komnu lagi og gekk skipið tæp-
ar 14 sjómílur.
Á laugardaginn, 17. janúar,
var svo farin hátíðasigling um
Eyjafjörð með 80—90 boðsgesti
að norðan og sunnan. Meðal
gesta voru tveir ráðherrai'. Há-
degisverður var snæddur um
borð á leiðinni, en vín var ekki
um hönd haft, fremur en venja
Slippstöðvarinnar ei' við slík
tækifæri.
Siglt var norður fyrir Arn-
arnes, á móts við Fagraskóg og
snúið þar við. Lagst var að
Toitfunefsbryggju klukkan tæp-
lega þrjú. Fór þá fram íormleg
afhending skipsins um borð. En
allmargt manna safnaðist sarnan
í landi til að hlusta á ræður
manna og sjá hið fánum
skreytta, nýja skip.
Skapti Áskelsson rákti í fáum
orðum aðdraganda og smíði
skipsins, þakkaði samstarfs-
mönnum sínum, bæjarstjóm,
bankastjórum og landsfeðrum
og einnig Jakobi Fitfmannssyni
kaupfélagsstjóra sérstaklega. Að
síðustu afhenti hann skipið for-
manni byggingarnefndar, Brynj
ólfi Ing’ólfssyni ráðuneytisstjóra,
sem síðan tók til máls og flutti
ávarp. Afhenti hann síðan skip-
ið samgöngumálaráðherra, Ing-
ólfi Jónssyni, er eftir það tók
til máls og afhenti það síðan
framkvæmdastjóra Skipaútgerð
ar ríkisins, Guðjóni Teitssyni.
Flutti þá Guðjón ræðu, en að
síðustu var skipið afhent skip-
stjóranum, Tryggva Blöndal.
Fáni Skipaútgerðarinnar var
dreginn að húni en fáni Slipp-
Skapti Áskelsson afhenti nýja
skipið formanni byggingar-
netfndar. (Ljósm.: E. D.)
stöðvarinnar var dreginn niðiu-.
Skipið var formlega komið í
hendur eigenda sinna.
Afhending skipsins ‘hafði
dregizt nokkuð vegna margs-
konar tafa, en lengst stóð á
sknifunni. Systurskip Heklu
verður væntanlega afhent Skipa
útgerðinni á næsta hausti og
heíur það ekki Idotið nafn
ennþá.
Hekla, hið nýja skip Skipa-
útgerðar ríkisins, er stærsta
skipið, sem landsmenn hafa
sjálfir smíðað. Smíði þess er hin
vandaðasta og lét skipaskoðun-
arstjóri svo um mælt, að sú
smíði og frágangur, sem fvrir
allra augum væri og mundi
verða, væri betri en yfirleitt
tíðkaðist hjá þeim erlendum
skipasmíðastöðvum, sem skip
byggðu af svipaðri gerð.
Á sunnudagsmor.gun fór
Hekla enn út Eyjafjörð með
staitfsfólk Slippstöðvarinnar inn
anborðs, en síðdegis sama dag
var skipið opið almenningi og
skoðuðu það hundrúð ef ekki
þúsundir manna.
Slippstöðin h.f. á Akureyri
var stofnuð 22. nóvember 1952,
en verkefni hennar var rekstur
dráttarbrautar og skipaviðgerð-
ir í því sambandi. Fyrstu stjóm
hennar skipuðu: Skapti Áskels-
son, Herluf Ryel og Gísli Kon-
ráðsson. Verkefnin jukust mjög
fljótt og Slippstöðin smíðaði 27
báta á 13 fyrstu árunurn, auk
þess að annast viðgerðir, hreins
un og málningu skipa af ýms-
um gerðum og stærðuin. En árið
1965 urðu þáttaskil í starfsemi
fyrirtækisins. Það ár var lagður
kjölur að stæreta stálfiskiskipi
hérlendis, en eigandi þess var
Magnús Gamalíelsson í Ólafs-
firði. Skipið hlaut nafnið Sigur-
björg. Næsta verkefni var smiði
Eldborgar, fyrir saimnefnt hluta
félag í Hafnarfh'ði. Eldborg er
550 lesta skip.
(Framhald á blaðsíðu 2)
Bændaklúbbsfimdur
NÆSTI bændaklúbbsfundur
verður haldinn á llótel KEA
mánudaginn 26. janúar. Verður
þá rætt um byggingar og bygg-
ingarlsostnað.
Framsögumaður verður Olaf-
ur Sigurðsson forstöðuinaður
Teiknistofu landbúnaðarins. □