Dagur - 18.02.1970, Blaðsíða 2

Dagur - 18.02.1970, Blaðsíða 2
2 SKAUTAMÓT AK Þór sigraií Mjarðvíkinga í mjög fvísýnum leik S.L. LAUGARDAG lék 1. deild arlið Þórs í 'körfuknattleik sinn 4. leik í íslandsmótinu og fór leikurinn fram í íþróttaskemm- unni, heimavelli Þórs, en keppi nautur Þórs að þessu sinni voru NjarSvíkingar. Leikurinn átti að hefjast kl. 4 e. h., en vegna seinkunar á komu NJarðvík- inga til Akui'eyrar hófst leikur- inn ekki fyrr en kl. 6,30, og hafði það sín áhrif á aðsóknina, en áhorfenduir voru fremur fáir. Þeir, sem á leikinn horfðu, hafa þá væntanlega farið ánægð ir heim ,því leikurinn var tví- sýnn og spennandi og aðeins 6 stig skildu liðin að þegar leikn- um liauk. Þórsarar byrjuðu leikinn vel og tókst að skora 6 stig, áður en Njai'ðvíkingar svöruðu fyrir sig, og leiddi Þór allan fyrri hálfleik inn, en tókst aldrei að ná yfir- höndinni algjörlega. Mest mun- aði 9 stiguim í fyrri hálfleik 23: 14 og 25:16, en undir lok fyrri hálfleiks tóku Njarðvíkingar góðan sprett og breyttu stöð- unni úr 27:20 í 27:25, en Þór skoraði síðasta stigið í fyrri hálfleik og lauk honum með 28 stigum gegn 25 Þór í vil. Hittni beggja liðanna var slæm í fyrri hálfleik og var oft á tíðum furðulegt hvernig mistókst að nota mjög góð tækifæri. Magnús skoraði fyrstu stigin fyrir Þór í síðari hálfleik, 30:25, en Njarðvíkingar skoruðu næstu 6 stig og komust í fyrsta skipti yfir í leiknum 31:30, en Guðni náði aftur yfirhöndinni fyrir Þór 32:31, en Njarðvíking- tar skora næstu körfu, en Pétur jafnar fyrir Þór úr víti 33:33. Njarðvíkingar skora nú 4 stig og komast í 37:33, en Þórsurum tókst að jafna, og voru Magnús og Guðni þar að vertki. Þá skor- ar Magnús enn fyrir Þór, 39:37, og eftir það hélt Þór forystu til leilksloka, þótt mjótt væri á mununum og kiu(k þessum skemmtilega leik með sigri Þóns 64 stigum gegn 58. Síðari hálf- leikur var mun betur leikinn af báðum liðum, og var þessi leikur einn hinn skemmtilegasti, sem leikinn hefur verið í körfu- knattleik á Akureyri. Stiga- hæstir í Þórsliðinu voru þeir Magnús, Guttormur og Guðni, en Magnús varð að víkja af leikvelli rétti fyrir leikslok með 5 villur. Sérstaka athygli vakti ungur leikmaður í Þórsliðinu, Þorleifur, en hann skoraði 10 stig í þessum leik. — Dómarar voru Jón Eysteinsson, Rvík og Ólafur Geirsson, Akureyri, — og skilúðu þeir sínum hlutverk. um vel. HINN 31. janúar höfst skauta- mót Akureyrar á Brunnárflæð- um. — ísinn var góður, veðui' stillt og margir áhorfendur. Hófst keppnin kl. 2 e. h. Kepp endur nær 20 talsins. Úrslit urðu þessi: A-flokkur, 500 m. skautahlaup: Örn Indriðason 49,6 Hallgrímur Indriðason 52,3 Skúli Lorenzson 54,1 Norðurlandsriðill í liandknattleik: KA-Þór leika um helgina UM NÆSTU helgi mætast KA og Þór í öllum flokkum í Hand knattlei'ksmóti íslands, Norður- landsriðli, og er ekki að efa, að þar verður um skemmtilega viðureign að ræða milli Akur- eyrarfélaganna í flestum flokk- um, og láta handknattleiksunn- endur sig trúlega efcki vanta í íþróttaskemmunni um helgina. Keppnin hefst kl. 3,30 e. h. á laugardag, en á sunnudag kl. 2 e. h. Á laugardag verður leik- ið í 3. fl. karla, 2. fl. kvenna og NORÐURLANDSRIÐILL: KA sigraði í 4 fi., en Þór í fveim UM sl. helgi fóru fram 7 leikir í Norðurlandsriðli í handknatt- leik milli KA og Þórs, og urðu úrslit þessi: KA—Þór, 2. deild karla 24:16 KA—Þór, 3. fl. karla 10:7 KA—Þór, 2. fl. kvenna 2:2 Þór—KA, 2. fl. karla 11:9 KA—Þór, 4. fl. karla 6:3 KA—Þór, 3. fl. kvenna 8:2 Þór—KA, 1. fl. kvenna 9:7 Úrslit eru þegar ráðin í 2. fl. karla í Norðurlandsriðli, ig hef- ur Þór tryggt sér sigur og leik- ur til úrslita. KA og Þór leika um helgina. . . Næstkomandi sunnudag, 22. febrúar kl. 1.30, heldur keppni áfram í Norðurlandsriðli í íþi'óttaskemmunni og mætir Völsungur á Húsavík til leiks og leikur við KA í þremur fl. kvenna og 2 fl. karla. □ Brélkorn lil Baldurs á Ofeigsstöðum í VIKUBLAÐINU Degi, 26. nóvember s.l., er fréttabré'f frá Baldri á Ófeigsstöðum. Eðlilega er þar rætt um málefni heima fyi’ii’, en þó víðar komið við. Þegar hann ræðir um skólahald í sinni sveit segir hann: „Skól- - inn er rékinn sem heimagöngu- skóli og mun það spara foreldr- um 20—-30 þús. krónur á hvert skólabarn yfir veturinn, miðað við heimavistir“. — Ekki veit ég hvernig Baldur fær þessar tölur og ekki vil ég ætla honum, að hann setjj þær fram til að villa fól’ki sýn til áróðui's fyrir það skólaform, sem hann ræðii' urn, þ. e. heimagönguskóla. Ekki fer ég út í samanburð á þessum skólaformum. — Þau munu eiga fullan rétt á sér bæði, eftir því hvernig hagar til. Spms staðar verður efcki öðru viðkomið en heimavist, það gera vegalengdir, misjafnir veg- ir og veðurlag, sem allt er þekkt af reynslu. Enginn skal ætla, að heimangönguskó'Iarnir, eða akstur barna á bíl til og frá Skóla, sé ’kostnaðarlaust. — Þar sem ég hefi haft nofckur afskipti af rekstri 'heimavistarskóla s.l. 6 ár, komu mér þessar tölur ó- kunnuglega fyrir sjónir. í Bárð- ardal hefir starfað heimavistar- skóli s.l. 6 ár. Öðru foimi verður efcki við komið. Er þetta þá ekki óbærilegur kostnaðua’ fyrir for- edra, eitthvað í líkingu við töl- ur þær, sem Baldur nefnir og mundu sennilega verða í hans sveit, ef rekinn væru slíkur skóli. Efcki má rugla samian rekstri skóla í heild og refcstri mötuneytis. Hinn venjulegi rekstur, hvort sem um er að ræða heimavistar- eða heiman- göngilskóla, greiðist af sveitar- félögum og ríkinu. Heimavistin, eða mötuneytið, er aftur á móti starfrækt af ríkinu hvað sner.tir starfsfólk, en foreldrar greiða efni í fæðið. Hér við barna- iskólann nam þessi kostnaðuþ (þ. e. efni í fæði) kr. 48,00 á dag s.l. ár, eða á barn, sem hef- ir haft 101 fæðisdag kr. 4.848,00 yfir veturinn. GJÖF TIL GRENIVÍKURKIRKJU Á SÍÐASTLIÐNU sumri færði Jakob Gunnlaugsson frá Holti á Látraströnd — nú búsettur í Hafnarfirði — Grenivíkurkirkju að gjöf fimmtíu þúsund krónur, til iminningar um látna átvini sína: Eiginkonu, Klöru Jóhanns dóttur; tvær dætur: Þóru og Elínu Jónu; foreldra: Þóru Þor- steinsdóttur og Gunnlaug Gunn laugsson; og afa og ömmu: Sig- ríði Arnfinnsdóttur og Þorstein Jónsson. Skyldi þessu fé varið til orgelkaupa í kirkjuna. Þessi höfðinglega gjöf ber ljósan vott um tryggð gefanda til æsku- stöðvanna, um leið og þökk og virðing er vottuð látnum ástvin um. — Innilegar þakkir eru hér færðar gefanda svo og öðrum velunnurum kiikjunnar. (Frá Sóknarnefnd Grenivíkur- kirkju. □ meistaraflokki karla, 2. deild. — Á sunnudag leika 4. fl. barla, 3. fl. kvenna, 1. fl. kvenna og 2. fl. karla. — Dómarar verða frá Reykjavík. A. -flokkur 1500 m: Örn Indriðason 3.006 Hallgrímur Indriðason 3.046 Skúli Lorenzson 3.125 B. -fl., 500 m: Guðmundiír Júlíusson 62,5 Hermann Björnsson 64,2 Ósfcar Kristjánsson 67,7 13—15 ára, 500 m: Sigurður Baldursson 63,8 Guðmundur Karlsson 66,2 Rúnar Kristdórsson 69,8 10—12 ára, 300 m: Jón Björnsson 76,9 Þetta mót Skautafélags Ak- ureyrai’ var hálfnað þennan dag, átti að ljúka næsta dag en var frestað vegna snjóa og óveð- urs. Skautamótinu verður fram haldið eins fljótt og veður og færi gera það kleift. □ Skákþing Norðlendinga SKÁKÞING NORÐLENDINGA verður háð á Akureyri og hefst laugardaginn 28. febrúar . í sam bandi við þingið verður haldið opið skákmót til að minnast 50 ára afmælis Skákfélags Akur- eyrar er var á síðasta ári, og mótið verður einnig í sambandi við hina stóru vetraríþrótta- hátíð er sténdur yfir á sama tíma. Það er von okkar, að þar tefli 1—2 af sterkustu skák- mönnum ofckar lands á móti þessu. Nú stendur yfir starfshópa- keppni hjá Skákfélaginu og er leiðandi A-sveit KEA með 11 vinninga eftir þrjár umferðir. Keppt er í 4ra manna sveitum. (Frá Skákfélaginu) Nýtt trégólf í Skemmuna í sumar Nú lengist í vetur sá tími, sem unglingar verða á skóla og reiknað væri með 190 fæðisdög- um yrði fæðiskostnaður á barn kr. 8.920,00 með sama verðlagi og var s.l. ár. Á eitt má líta í þessu sambandi, það er það, að þótt barnið væri ekki í heima- vist skólans ,þyrfti það að borða og þá heima hjá sér, og eru þair fleiri hliðar á málinu;. Svona lít- ur þetta út fi'á því sjónaiTniði séð að gera kostnaðinn sem minnstan, sem á foreldrunum hviir ,og það er hægt ef beitt er skynsamlegum ráðum. Hins vegar býður mér í grun, að Baldur vilji engu síður hlut heimavistarskólans la'fcari en hins. Mínar tölur byggjast á því, að hægt sé að halda þessum kostnaði niðri með skynsamleg- Úm ráðum, og raunar nauðsyn- legt og sj'álfsagt. — Hitt væri ómögulegt, að heimilisfaðir með 5 börn á skóla þyrfti að greiða um eða vfir 100 þús. krónur yfir veturinn. Það væri ekki hægt. í lok hugleiðinga sinna um skólamálin segir Baldur: „Skólia málin eru orðin stóikostlegt vandræðamál okkar fámennu þjóðar. Kynslóðin, sem nú er að verða útslitin, stóð sig vel við uppbyggingu síðustu ára“. — Já, víst stóð hún sig vel, en ekki vegpa þess að hana vantað'^ aðstöðu til skólagöngu og mennt unar, heldur þrátt fyrir þá vönt un. Engin skyldi þó ætla, að dkólakerfið sé óaðfinnanlegt og þess vegna verður að hagræða verkum og fá það bezta út úr því, sem kostur er hverju sinni. Þórólfur Jónsson. BÆJARSTJÓRN hefur veitt á fjárhagsáætlun kr. 200 þús., svo hægt verði að setja trégólf í íþróttaskeimmuna næsta sumar, og verður húsið þá notheeft fyrir íþróttakennslu skóla, en rekstrartími hússins á degi hverjum eykst um hekning, því húsið verður trúlega í notkun frá kl. 9 að morgni til kl. 10— 11 að kvöldi. — Sú spurning hlýtur að vakna, hvort íþrótta- félögin KA og Þór gætu ekki í sameiningu tekið þessa fram- kvæmd að sér, að leggja gólfið, og félagar sem að þessu ynnu, ísl.móf í blðki BLAKMEISTARAMÓT íslands í 1. flokki karla (18 ár.a og eldri, miðað við 1. október) fyrsta Xs- landsmótið, verður haldið í íþróttaskemmunni á Akureyri 15. marz n. k. fþróttafélag Menntaskólans á Akureyri — ÍMA — sér um mótið og undir- búning þess. Þátttaka tilkynn- ist fyrir 5. marz n. k. til Vil- •hjálms Inga Árnasonar, Hrafna gilsstræti 12, sími 1-20-92 eða Halldórs Jónssonar, sími 1-23-60 eða 1-11-63, Akureyri. (Fréttatilkynning) Tunnuverksmiðjan á Akureyri veitir 40 manns atvinnu í vetur TUNNUVERKSMIÐJAN á Ak ureyri hefur tunnuframleiðslu í næstu viku. Þar munu vinna yfir 40 manns næstu tvo mán- uði eða svo, því smíða á 20—22 þús. tunnur og er mest af efn- inu komið. Þói'ður Björnsson er verkstjóri. Katarine, 700 tonna flutn- ingaskip frá Þórshöfn í Fær- eyjum, kom með tunnuefni fyrir helgina, en lasaði stýrisás í ís hér á Pollinum og er nú í slipp á Akureyri til viðgerðar. létu andvirði vinnu sinnar renna til félaga sinna, sem allt- af eiga í erfiðleikum með að halda uppi íþróttastarfinu vegna fjárskorts. □ DRIDGEMÓT UMSE BRIDGEMÓT Ungmennasam- bands Eyjafjarðar er nýlega haf ið. Taka alls 12 sveitir þátt í því. Keppt er í tveim riðlum. í A-riðli eru tvær sveitir úr Svarfaðardal, tvær frá Dalyík og tvær af Árskógsströnd. í B- riðli eru þrjár sveitir úr Saur- bæjarhreppi, tvær úr Önguls- staðahreppi og ein úr Hrafna- gilshreppi. Þetta er í 8. sinn sem UMSE gengst fyrir sveita- keppni í bridge. Dalvíkingar hafia alltaf sigrað til þessa í þeim keppnum. Þátttaka er nú meiri en nokkru sinni fyrr. □ - SMÁTT OG STÓRT (Framhald af blaðsíðu 8). blaðið komið í réttar liendur til athugunar. BÖRNIN OG LYFIN Öðru hverju berast fréttir af því, að börn hafi náð í lyf, etið þau og veikzt hættulega. Fyrir kemur einnig ,að óvitar nái í þvottaefni og sótthreinsunarlyf. Þessi dæmi eru svo mörg og sorgleg, að vert er að vekja á því athygli til viðvörunar. Lyf, þvottaefni o. fl. hættulegt óvit- um, þarf að geyma í læstum skápum eða þeim stöðum, að börn nái ekki til þeirra. IIVAR ER BYSSAN GEYMD? Hið sama gildir um skotvopnin og lyfin, að þau mega ekki lenda í barnahöndum, svo sem komið hefur fyrir. Blaðinu er tjáð, að sumir byssueigendur geymi bæði skotvopn og skot- færi á glámbekk og skapi það óþarfa hættu. Er þcirri ábend- ingu einnig komið á framfæri til viðvörunar og umhugsunar fyrir þá, sem skotvopn eiga.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.