Dagur - 18.02.1970, Blaðsíða 8

Dagur - 18.02.1970, Blaðsíða 8
8 SMÁTT & STÓRT Fólk safnaðist við styttuna og lét kuldann ekkert á sig fá. (Ljósm.: E. D.) var afhjúpaður á synnudaginn KLUKKAN rúmlega þrjú á sunnudaginn var afhjúpuð hin stóra og áhrifamikla höggmvnd Einars Jónssonar, Utilegumað- urinn, sem ekkja Einars, frú Anna Jónsson gaf Akureyrar- kaupstað á síðastliðnu ári. Myndin er afstevpa úr eir og var henni valinn staður við gatnamót Hrafnagilsstrœtis og Eyrarlandsvegar. Athöfnin hófst með söng Karlakórs Akureyrar, en síðan flutti séra Jón Auðuns dóm- prófastur, fulltrúi gefanda, ávarp og afhenti Akureyrar- kaupstað höggmyndina. Að því loknu afhjúpaði Bjarni Einars- son bæjarstjóri listaverkið en forseti bæjarstjórnar, Bragi Sigurjónsson, þakkaði gjöfina og að lokum söng Karlakórinn. í ávarpi sínu sagði séra Jón Auðuns, að stytta þessi hefði lent í eldsvoðanum mikla þegar vöruhús Eimskips brann, en var síðan send til Noregs til viðgerðar. Þetta listaverk, Uti- legumaðurinn, er áhrifamikið og rammíslenzkt. Útilegumaður inn hefur bundið lík konu sinn (Framhald á blaðsíðu 5). MYNDATAKA A FUNDAR- STAÐ f síðasta blaði birtust myndir af þebn þrjátíu, sem kosið verður um í skiðanakönnun Fram- sóknar í þessari viku. Hinir þrjá tíu komu saman á fund 8. febrú ar og voru myndimar teknar af Haraldi M. Sigurðssyni jafn- óðum og fundarmenn mættu. Fólk, sem ætlar að taka þátt í skoðanakönnuninni, ætti að geyma blaðið vegna þess að þar1 eru almennar upplýsingar um kosningu'na auk þehra, er hér birtast í blaðinu í dag. MARKMIÐ LANDGRÆÐSLU- MANNA í lögum Iandgræðslu og náttúru verndarsamtakanna, sem stofn- uð voru í haust, segir svo: „Marltmið samtakanna er: að stuðla að heftingu gróður- og jarðvegseyðingar; að styðja hvers konar landgræðslu; að hamla gegn spjöllum á náttúru landsins og stuðla að góðri um- gengni um landið. Breytingar á flmahilinu 195 Nokkrar tölulegar uppl. Gimnars á fí jarðarfelli FÓLKINU í landinu fjölgaði um 20%. — Bændunum fækk- aði um 17%. Innvegin mjólk jókst um 46%. Innvegið kjöt um 23%. 011 framleiðsla búvöru á föstu verði jókst um 18%. Nýmjólkitrsala jókst um 46% eða jafnmikið og móttaka mjólk urbúa. Ostasala innanlands jókst um 22%. Smjörsala um 59%. Rjóma sala um 28%. Skyrsala stóð í stað. Kindakjötsala innanlands varð 13% meiri, en það er tals- vert minni aukning en í mjólk- urafurðum. Árið 1968 nam útflutningur á mjólkurafurðum 8—9% af heild SKOÐANAKÖNNUNIN SKOÐANAKÖNNUN Fram- sóknarfélaganna á Akureyri hefst á föstudaginn. Hún er gerð vegna óska fólks þar um, og er þess því að vænta, að þátt taka verði góð. Blaðið vekur athygli á ýmsum atriðum varð- andi þetta mál, birt á öðrum stað, og þar er iennig birtur listi yfir nöfn þeirra manna, sein um er kosið. Kynnið ykkur listann og kosningareglurnar. Fjölmennið á kjörstað. □ TVENNIR TVÍBURAR SYSTURNAR Helga og Sigríð- ur Jónsdætur frá Fjósatungu í Fnjóskadal eignuðust báðar tvíbura á þessu nýbyrjaða ári, önnur þann 25. jan. en hin þann 29. jan. sl. Öll börnin eru dreng ir meðalstórir og hraustlegir. Bæði þeim og mæðrurn þeirra heilsast vel. Helga er til heimilis í Hrafna gilsstræti 19 hér í bæ, gift Inga Kristjáni Péturssyni sjómanni, en Sigríður er gift Pákna Sig- urðssyni frá Kaiupangi og eiga þau heima í Fjósatungu. □ armj ólkurframleiðslunni. Út- flutningur af kindakjöti hefði þurft að vera 50% af ársfram- leiðslunni svo að birgðir ykjust §|I ekki. III Nautgripum fjölgaði um 12%. Kúm fjölgaði um 8%. Sauðfé um 3%. || Notkun tilbúins áburðar jókst um 84%. Fóðurbætisnotkun um 138%. Allri fjárfestingu í landbún- aði á tímabilinu jafnað á 5000 bændur gerir 800 þúsund krón- ur á mann (íbúðarhúsum og ||i rafvEeðingu sleppt). |i Tímakaup Dagsbrúnarmanns hækkaði frá 1959 um 177% auk \ nokkurra fríðinda. Mjólkurverð ^ í verðlagsgrundvelli hækkaði á Útilegumaðurinn. sama tíma um 208%, kjötverð _______________________ um 340%, ull lækkaði, en gær- ur voru óbreyttar í verði. Ærin gaf af sér 250% meira í verð- lagsgrundvelli árið 1959 en sl. haust. Verð á köfnunarefnisáburði LEIKFÉLAG M. A. frumsýnir hefur hækkað um 190%, á for- revíuna Axarskaft í Samkomu- fói um 248%, kalí 254%. Kjarn- foúsi bæjarins á laugardags- fóðurverð hefur hækkað qm kvöldið kL 8.30. Leikstjórar eru i-úmlega 100%. □ Arnar Jónsson og Þórhildui' Þorieifsdóttir. Revíu þessa hafa mennta- Skólanemendur samið að nokkru upp úr revíunni Upp- lyfting eftir H. H. og H., léttum söngvum, dönsum oig hljóðfæra slætti er bætt inn í. Söngtextar eru flestir frumsamdir af Jóni G. Kristjánssyni en aðrir eru þýddír. , Bændaklúbbsfundur verður á Hótel KEA kl. 9 á mánudagskvöldið 23. febrúar. Umræðuefni: Fóðurfræði. Fram sögumaður verður Þórarinn Lárusson fóðurfræðingur, sem nú starfar við Rannsóknarstofu Norðurlands. □ Markmiði sínu vilja samtökin ná með því að: 1) auka skilning og vekja áhuga landsmanna á gróður- vernd, landgræðslu og almennri náttúruvernd. 2) vinna að rannsóknum og fræðslu: a) á orsökum gróður- eyðingar, b) í þágu náttúru- vemdar, c) tilraunum með land græðslu. 3) stofna til og skipuleggja þátttöku landsmanna í sttörfum á þessum sviðum í samvinnu við þær stofnanir, sem að þess- um málum vinna.“ BLAÐIÐ ER OF LÍTH) Blaðinu berst jafnan töluvert af efni og stundum mikið meira en rúm er fyrir. Ýmiskonar efni verður því oft að bíða. Sumt efni þolir það en annað ekki. I tveim síðustu blöðum voru íþróttafréttir lagðar til hliðar, að mestu, fréttabréf og tilkynn- ingar og biðu-r blaðið velvirð- ingar á því. En ekld er hér þá verið að kvarta yfir aðsendu! efni, síður en svo. Það er jafnan kærkomið, þótt nafnlaus bréf og greinar hafni í rusiakörf- unni. Enn einu sinni er á það bent, að blöðin era vettvangur fólksins og þann vettvang á það að nota, þótt stundum geti orð- ið einhver dráttur á birtingu. YFIR ÁNA Bóndi nokkur heyjaði 40 hesta í eyju einni í sumar. Illt var að komast yfir ána því hún var all djúp og sandbleyta í botni, þó var dráttarvél aðeins fært og vélsló bóndi eyjuna. En livernig átti að koma heyinu heim? Hann brá á það ráð að flytja blásara þangað út og blés síðaú heyinu yfir ána í stóran haug. Er blaðinu ekki kunnugt um, að slíkt hafi verið reynt áður hér á landi. Þetta gerðist austur á Langanesi. Logn var á er þessir einstöku heyflutningar fóru fram. SPARISKORNIR Kona ein, sem vill láta bónda sinn vera sæmilega biiinn til fótanna á hátíða- og tyllidögum, hringdi til blaðsins þeirra erinda að kvarta yfh' því, að Iðunnarskór, sem bóndi vildi kau-pa og hafði augastað á, ’ fengust ekki hér og varð að leita þeirra í öðruni landsliluta. (Ljósm.: E. D.) Telur konan þetta of aigengt og ------------ vill vita ástæðuna. Ástæðan mun sú, að Skóverksmiðjan framleiðir eftir pöntunum, fyrst og fremst og liggur ekki með mikinn lager. Skótegundir, sem fljótt seljast, geta því genglð Önnur sýning verður á sunnu hér fyrr upp en á öðrum stöð- dagjakvöld, en annars værða sýn um og ekki auðvelt úr að bæta, ingar nánar aRglýstar í blöðuan samkvæmt framansögðu. Öðr- bæjarins svo og með götuaug- um 0g persónulegri umkvört- lýsingum. untnn og ábendingum hefur (Fréttatilikynning) (Framhsdd á blaðsíðu 2). Gjafir fil Snðrfarstððakirkju urmn Ferðamenn ERLENDIR ferðamenn af um 80 þjóðernum gistu landið á ár- inu sem leið. Samkv. skýrslu útlendingaeftirlitsins komu 59.479 manns til landsins með flugvélum á árinu, af 'þeáinri tiölu 17.463 íslendingaæ, en með skipum 4.102, þar af 2.019 ís- lendingar. Bandaríkjamenn voru lang- fjölmennasti útLendingahópur- inn, sem kom til landsins eða 17.872, þá Bretar 4.015, Þjóð- verjar 3.999 og fjórðu í röðinni viru Danir 3.615. Flestir útlendinganna komu til landsins í júlímánuði en þar næst í ágústmánuði. □ NÚ Á jólum bárust Snartar- staðakinkju góðar gjafir. Hjónin í Leirhötfn, Andrea Jónsdóttir og Helgi Kristjáns- son, gáfu Ijósakrónu í kór kinkj. unnar ásamt tveim veggljósum. Gjöí þessi er til- minningar um foreldra þeirra, Jón Árnason smið og bónda á Ásmundarstöð um og konu hans Hildi Jóns- dóttur, og Kristtján Þorgríms- son bónda í Leirhöfn cg konu hans Helgu Sætmundadóttur. Þá gáfu systumar Andrtea, Margrét, Arnfríður og Hildur Jáhannsdœtur, Leirhöfn, tvo kertastja-ka úr brenndum, ís- lienzkum leir, sem gerðir eru af Hauki Sturlusyni. Þeir eru gefnir til minningai' um Siigurð Kristjánsson fyrrum bónda í Leirhöfn, en hann hefði orðið átti-æður 24. des. sL Einnig hafa systkinin Krist- björg Vigfúsdóttir og Stefán Kr. Vigfússon gefið kh-kjunni 40 sálmabækur, 20 áletraðar bæk- ur nú í sumar og höfðu áður gefið jafnmargar. Við biðjum blaðið að flytja gefendum innilegustu þakkir. Kópaskeri 6. febrúar 1970. Sóknamefnd Snartarstaðakii'kju. Friðrik J. Jónsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.