Dagur - 25.02.1970, Síða 2

Dagur - 25.02.1970, Síða 2
■ Ish?** Ég «n<Jím!aður hefij ísn í-kuldhitidiftgarj ttje-rirt roa-ð X við |>ó IS5i. scm vtS etgts. v«f6omíi óartlaóo þorr og póniwn « vclurr*. iir á skautum m§ lll llli VÖ«ttf«StTí Oft A«T'M>» frTSÍiiWW' SÍÉIP'? 1 «®mW» 111» t*n jt&ímts á miMiitrtw f rjiiatit >Bt*»J>»».«j5*: J»». >TA !<» Tr**lcr *«l*rr.<n!«l>.j *S«r 43 4* *!»*.)!«>«*•: >4»rj.*»j4«.'.! , . Hasx.riti — S2 *j<sd» . .. . Ht>í«as».rj ewi: jtsvra . . **r»- távn »ci«i*r<i»*jf«rf . yr-»-!sr*S<*». K«ejsnjK4»r«i*»rí . «rrntr>r!3-œw: 39-30 w! . , VSSttafc>rfc . ■ T,- <rvr> ri*tts!.«i*ri .<r- j3'..:<jj'. .... *ntr>o"<ji K«NW OíO »e*rB» , . rz r»rrj*. sg l»ÍjrJ!flOs<«A! aiíoríorsí @0-2 Jfltjí*-*: SBoOrvflrrA íflVÍKCrfjv*! ....... 4tf« i*v .i . , Asíit-SBfli*.- r‘.r.vc'rr.í!rJvct4i 2*<,B>e64>0 : MM4M | ;ÍI1|ÉÉ| Hiiilíf I ETtKÖ.-aS .»34X»,fl>0 «í.,i>03.9o ' =.:=»# 4f.,r».:K. 4*,«Sa>.90 4 *!”!•«! 3#.jið*ao At.AM.iKí os.ousae M3>íít>0JÍ.> ^^pHi 4AJW04®; ■,:V.jnM!Í»i00ó 'Öt-VráSS- ?ói|Íli|Í|||iÖ^ÍÍIt|V«r*,| |:::|| í-iiri- 1 OSítfliafl itrn>»«*»Í«;<^wiÍik«*t*<TV<«- i >»»4»«tM«j»yfl«-«Bj. «n». riftt. wnfl c»—t B /* *. I ttAaiOj í*»ri»iA y»-t «*.« **.o okni A >Í3* «5 V<cnvn-» »r«t«3»:iiít,Cí..,J.tj*j.,' 'SflriTrí! *r«fl iinaníttKíiyt. - trattfl ór» r&S Nri*J : :: * V Svona lítur fyrirspurnaformið út þegar Jón Jónsson er búinn að fylla það út. Hann vantar varaliluti í mjaltavél, traktora, heyvinnuvélar og rafgeyma — auk þess sem hann hefur hug á nýjum traktor og sléttuþyrlu. Tímanlegar pantanir tryggja afgreiðslu - BLAÐAFRÉTT - BÆNDURNIR SVARA HÉR með sendist eintak af fyr- jrspurnarforminu „Bændurnir svara“ sem sent war út með jólablaði Búnaðarblaðsins Freys 1969, en það er eins og mönnum er kunnugt gefið út f Búnaðarfélagi íslands. Einnig var aukaupplagi af fyrirspurnarforminu dreift til formanna hreppabúnaðarfélag- anna a. m. k. á þeim stöðum þar sem talið var að bændur keyptu ekki Frey. Menn eiga því að geta fengið fyrirspurn- arformið hjá formönnum bún- aðarfélaga í sinni sveit, eða hjá Véladeild SÍS, hafi þeim ekki borizt það. Tilg.angurinn með þessu fyrir spurnarformi er að stuðla að nákvæmari og betri viðskipta- háttum fyrir bændur er varðar bútækni og varahluti í þær vél ar er þeir þegar eiga. Eins og segir í orðsendingu til bænda er fylgir fyrirspurnar forminu er afgreiðslutími á vél um, sem vara'hlutum, frá útlnnd inu nú óvenju langur og því að eins að birgðir séu tímanlega pantaðar verður hægt að full- nægja þörf fyrir þessa hluti. Véladeild SÍS mun kappkosta að aðstoða bændur við allt er varðar þessi viðskipti og senda öllum sem svara haldgóðar upp lýsingar með verðum og greiðslukjörum. SKÁTINN EIN deild innan Skátafélags Akureyrar, Eskimóar, hefur gef ið út blaðið Skátinn til kynn- ingar og fjáröflunar og verður það 'selt á götum bæjarins á morgun, fimmtudag, og munu skátar einnig ganga í hús og bjóða blað sitt. Verð og gæði haldast væntanlega í hendur, en hitt er þó meira um vert, að með því að kaupa „Skátann“ eru menn að viðurkenna gott starf skáta á Akureyri og styðja það. □ DAGUR rúmar ekki að þessu sinni allt það efni, er koma átti, og eru greinarhöfundar beðnir vel- virðingar á því. Q» Búv.élainnflytjendur hafa sætt mikilli og að mörgu leyti réttmætri gagnrýni vegna langs afgreiðslutíma á varahlutum sem vélum og er mikil nauðsyn að bæta úr þessu. Ekki er nokkur minnsti vafi á því að bændur sjálfir geta hjálpað mikið til að bæta úr þessu með því að svara um- ræddu fyrirspurnarformi. Oskað er að svörin berist fyrir lok þessa mánaðr, þ. e. febrúarlok, en þau eru þannig frágengin að þau má láta ófrí- merkt í póst. Ennfremur verða allir sem svara hlutgengir við útdrátt góðra vinninga en þar má nefna múga- og snúningsvél af nýj- ustu gerð PZ 2000, sem reynd hefur verið af Bútæknideild Rannsóknarstofnunar landbún- aðarins á Hvanneyri 2 undan- farin sumur og gaf vélin mjög gpða raun. Eins er meðal vinninga Sing- er prjónavél, ferðaútvarpstæki, rakvélar, leikföng, pennasett og bréfhnífar. Vinningarnir verða dregnir út 15. apríl n. k. Þess má geta að nú þegar hefur borizt svar frá einu bú- fjárflesta búi á landinu, sem nær eingöngu verzlar við Véladeild SÍS með vélar, en á svari frá þessu búi var m. a. pöntun í varahluti, tvær gerðir múga- og snúningsvéla sem búið not- ar, Taarup sláttutætara, Inter- notional traktor, PZ sláttuþyrlu o. fl. Hins vegar gerði þetta bú ekki ráð fyrir að þurfa fleiri vélar í bili. Langmestur óbugi almennt virðist vera fyrir ýmiskonar heyvinnuvélum og má þar nefna PZ sláttuþyrlurnar, Taarup sláttutætarana með sýrudreifara, McCormick hey- bindivélar og Kemper hey- hleðsluvagna. Ennfremur er nokkur áhugi fyrir nýjustu gerð af International traktorun um og áburðai-dreifurum af Bögballe og New Idea gerð. Nú þegar hafa á fjórða hundr að svör borizt, en þau svör hafa nú þegar gefið verðmætar upp- lýsingar til Véladeildar SÍS uúr hve áætla má mikla þörf á hin- um ýmsu vélum næsta sumar. Ennfremur sjá allir í hendi sér hve mikill munur það hlýtur að vera fyrir innflytjandann að fó varahlutapöntun í heyvinnu- vélar á miðjum vetri í stað þess að þær berist eins og venjulega nokkrum dögum fyrir slátt, en auk þess tryggir þetta að kaup- endur fá hagstæðari verð á varahlutunum úr skipasend- ingu í stað dýrari flugsending- ar að öllum líkindum ella. Segja má að Véladeild SÍS - FÍÐLUTÓNLEIKAR (Framhald af blaðsíðu 5). Ég fæ heldur ekki varizt þeiiu-i hugsun, hvort ekki sé orð ið tímabært og bróðnauðsyn- legt að taka til endurskoðunar það fyrirkomulag, sem lengi hefur verið stuðzt við varðandi almenn framkvæmdaatriði um tónleikahald. Þó að það hafi áðuj: gefið góða raun og stund- um prýðilega, er ekki endilega víst, að það hæfi núna við breyttar aðstæður. Hefur raunar áður verið á það bent í þessum pistlum og skal ekki endurtekið. Einungis vildi ég hér með hvetja til um- ræðu um tónlistarmálin hér á Akureyri, deyfð þá og tómlæti gagnvart þeim, sem því miður ■hefur farið vaxandi nú í seinni tíð. S. G. 'hafi nú úrval af tækjum og tæknibúnaði á boðstólum og hún eigi að geta fullnægt þörf flestra búa fyrir fullkomnustu tæki á hverju sviði. Mikið hag- ræði felst í því fyrir 'bændur að eiga flestar vélar frá sama fyrirtæki, en þð auðveldar inn- kaup þeirra á varahlutum og stuðlar að tryggari viðskipta- háttum en annars. Standa vonir til að með áhuga þeim sem bændur sýna þessari viðleitni Véladeildar SÍS verði hægt að tryggja mun bætta aðstöðu er þessi viðskipti varðar. í febrúar 1970. Búvéladeild SÍS. UM fyrri helgi háðu Reykvík- ingar og Akureyringar bæja- -keppni í íshokkí á Krókeyri á Akureyri. Þessari bæjakeppni lauk með sigri norðanmanna 5:1. í hraðkeppni daginn eftir, sunnudag, vann A-lið Akur- eyrar lið Reykjavíkur 3:0 og A-lið Skautafélags Akureyrar vann B-lið Reykjavíkur 3:2. □ - Kvenfél. Akrahrepps (Framhald af blaðsíðu 8). en að félagið hafi fyllilega stað- ið við þau fyrinheit og efnt raunar meina en í upphafi var lofað því það hefur alla tíð ver- ið athafnasamt og látið flest framfaramál innan sveitar mjög til sín taka og lagt lið ýmsum þjóðþrifaframkvæmdum á víð- ara vettvangi. Það hefur geng- izt fyrir námskeiðum í vefnaði, sa-umum, „föndri“, hjálp í við- lögum, hafði um skeið hjúkr- unarkonu á sínum vegum, geng ist fyrir jólatrésskemmtunum fyrir börn sveitarinnar, komið upp trjálundi, átt hlut að bygg- ingu félagsheimilis í hreppn- um, styrkt með fjárframlögium ýmis mannúðar- og menningar mál utan héraðs og innan. Núverandi stjórn félagsins skipa: Helga Kristjánsdóttir, Silfrastöðum, Anna Jónsdóttir, Stóru-Okruim og Ingibjörg Jóns dóttir, Flugumýrarhvammi. Á afmælishófinu fór sitt hvað fram til skemmtunar og fróð- leiks. Áður er minnzt á ræðu formannsins. Þá voru og lesin kvæði eftir Maxíu Rögnvalds- dóttur frá Réttarholti, Arnfríð- ur Jónasdóttir á Þverá fór með frumsamin ljóð og stökur, frú Jóhanna Sigurðardóttir á Mikla bæ las sögu eftir Hannes Péturs son, Lilja Sigurðardóttir á Víði Völlum flutti ræðu, sýndir voru gamanþættir og loks dansað. — mhg. JÓHYNDASAMKEPPNI UNDIRBÚNINGSDEILD Vetr- aríþróttahátíðar Í.S.Í. hefur sam þy-kkt að gera tilraun til að koma á snjómyndasamkeppni meðal bæjarbúa í sambandi við Vetraríþrótta'hátíð Í.S.Í. 1970, sem fram fer á Akureyri. Að sjálfsögðu er Snjómyndagerð þessi háð því, hvort snjór verð- ur í bæjarlandinu þessa daga, en undirbúningsnefnd vill hvetja einstaklinga og félaga- samtök til að taka þátt í Snjó- myndasamkeppninni og gera þannig Vetrarhátíðina fjöl- Fyrsia vélsleðakeppnin FYRSTA keppni í akstri vél- sleða á íslandi var háð á Egils- stöðum 8. febrúar sl. f keppn- inni voru 6 vélsleðar, tveir Johnson-sleðar, tveir Evenrud- sleðar og tveir Snowtric-sleðar. Brautin var um 12 km. og lögð ýmist á sléttu, í bratta eða hlið- bratta og reynt að samræma sem flestar tegundir aðstæðna þeirra, sem íslenzkt fjalllendi hefur upp á að bjóða. Fyrstur í keppni þessari var Unnar Elísson frá Hallfreðar- stöðum á Snowtric-sleða. Hann fór brautina á 15 mín. og 51.1 sek. Annar varð Ormar Árna- son frá Egilsstöðum á Evenrud- sleða á 17 mín. og 39 sek., þriðji var Gunnar Guttormsson á Litla-Bakka á Evenrud-sleða á 18 mín. og 21.1 sek., fjórði var Jón Egill Sveinsson, Egilsstöð- um á Johnson-sleða á 18 mín. og 28 sek., fimmti varð Birgir Ásgeirsson frá Vaðhrekku á 19 mín. og 24.2 sek. Hann var á Snowtric-sleða, og sjötti varð Gunnar Karlsson frá Hofteigi á 22 mín. og 25.6 sek. í ráði er að halda keppni í akstri á vélsleðum í sambandi við Skíðamót Austurlands, sem haldið verður í marz næstkom- andi. □ breyttari og skemmtilegri en ella. REGLUGERÐ: 1. Gerð mynda: Meginefnið verður að vera snjór. Heimilt er að nota önnur efni svo sem tre og járn í uppi- stöðu eðla „beinagrind11 fyrir myndina. 2. Þátttakendur: Keppnin verður tvíþætt: 1) Allar fjölskyldur í bæn- um hafa rétt til þátttöku. —■ Minnst 2 meðlimir fjölskyldu takí þátt í byggingu myndar- innar. 2) Allir skólar, æskulýðsfé- lög og starfsmannafélög. 3. Verkefnaval frjálst: Myndirnar séu staðsettar á eða við lóð viðkomandi aðila og þannig, að vel sjáist frá götu. 4. Byggingartími. 21.—26. febrúar. Dómnefndir fara um bæinn 27. febrúar. — Verðlaun verða aifhent við setn. Vetraríþróttahátíðar 28. febr. Þeir, sem 'hug hafa á þátttöku hafi samband við skrifstofu V- hátíðarinnar, Hanarstræti 100, Ak., sími 1-27-22. (Fréttatilkynning)

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.