Dagur - 25.04.1970, Síða 1
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 13/71 • P.O. Box 397
SÉRVER2LUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
STOFNFUNDUR SAMTAKA UM
NÁTTÚRUVERND Á NORÐURL.
Á síðastliðnu vori var fealdin
ráðstefna um náttúruvernd á
Laugum í Reykjadal. Var þar
eamþykkt að hefjast handa um
stofnun náttúruverndarsamtaka
fyrir Norðlendingafjórðung'.
Kosin var bráðabirgðastjórn til
að annast undinbúning málsins,
og boðaði hún til annars fundar
í Bólstaðarhlíð sl. haust.
Ákveðið hefur verið, að stofn
fundur samtakanna verði hald-
inn á Akureyri, dagana 20. og
21. júní í vor.
Á fundinum verður fjölbreytt
kynningardagskrá, með erind-
um og myndasýningum, og í
fundai'Iok verður farið í skoð-
unarferð um Eyjafjörð, S'lcaga-
fjörð og Fljót.
Framkvæmdastjóri norsku
náttúruverndarsamtakanna
mætir á fundinum, og segir frá
starfi þeirra Norðmanna að
náttúruverndarmálum.
Dagskrá fundarins verður
auglýst síðar. Ollum er heimill
aðgangur að fundi þessum. □
/T
Tönn fyrir tönn?
ÞAÐ þótti tíðindum sæta
þegar stjórnarfrumvarp um
verðlagsmál féll á Alþingi.
Og ekki sízt vegna þess, að
ráðherra Alþýðuflokksins
greiddi atkvæði gegn frum-
varpinu, sem hann sjálfur
hafði átt þátt í að bera fram.
En vitað var, að formaður
Sjálfstæðisflokksins átti mik
ið undir því, að málið gengi
fram.
Nú er fram komið annað
frumvarp, sem talið er að
ráðherrar Alþýðuflokksins
beri mjög fyrir brjósti og
ætli sér að nota sem auglýs-
ingamál í kosningunum þótt
minna sé í það spunnið en
vonir stóðu til.
Hér ei' um að ræða frum-
varp til nýrra laga um íbúða
lán. Nú bregður svo við, að
í Morgunblaðinu hefur verið
gerð hörð hríð að þessu
íbúðalánafrumvarpi og geng
ur þar m. a. fram fyrir
skjöldu fyrrv. ritstjóri íslend
ings-ísafoldar, sem margir
kannast við hér. í öðru lagi
hafa ýmsir kunnir Sjálf-
stæðismenn, sem eru fyrir-
svarsmenn lífeyrissjóða, mót
mælt ákvæðum frumvarps-
ins harðlega, um skyldufram
lög sjóðanna, og eru Sjálf-
stæðismenn raunar ekki ein
ir um það. Þykir sumum
þetta minna verulega á spari
fjárfrystinguna, sem aldrei
hefur verið vel þokkuð.
Dagur hefur heyrt, að
sumii’ forystumenn Sjálfstæð
isfélaga hér á Akureyri telji
engan veginn víst, að frum-
varpið nái fram að ganga og
■má vera, að þeir hafi veður
af því sem er að gerast bak
við tjöldin í flokknum syðra.
En að þar sé hvíslað: Auga
fyrir auga og tönn fyrir tönn.
Fimm beztu gæðingarnir. Sigurvegarinn, Þorsteinn Jónsson, er annar frá hægri með hestinn Sörla.
Ljósmynd: Bjöm Mikaelsson.
FIRMAKEPPNI LÉTTIS
SUNNUDAGINN 12. apríl var
haldin firmakeppni á vegum
Hestamannafélagsins Léttis og
fór hún fram á Glerárevrum að
Á ÞRIÐJUDAGINN var lögð
fram á Alþingi tillaga um bygg
ingu þjóðarbókhlöðu í tilefni 11
alda byggðar í landinu og rúmi
hún bæði Landsbókasafn og
Háskólabókasafn. En Alþingi
samþykkti sameiningu þessara
stofnana 1957.
Byggingu þjóðarbókhlöðu á
að vera lokið, samkvæmt til-
lögunni, árið 1974 og á hún að
vera tengd hinu merka afmæli,
ellefu alda íslandsbyggðar. □
Samkomulag um Gljúfurversvirkjun
AÐ UNDANFÖRNU hafa stað-
ið yfir viðræður milli Laxár-
virkjunarstjórnar, héraðsnefnd-
ar Þingeyinga og stjómvalda
um Gljúfurversvirkjun og virð-
ast þær viðræður nú vera að
leiða til samkomulags um fram-
kvæmdir, sem flestir geta senni
lega við unað. Er þess þá að
vænta, að niður falli harðar
deilur milli Þingeyinga og"
stjórnar Laxárvirkjunar um
liina marg umtöluðu Gljúfur-
versvirkjun. Síðdegis í gær var
enn fundur um málið á Akur-
eyri, en heildarlínur þess virð-
ast nú ljósar, ef svo heldur sem
horfir um samkomulag og leyfi
og fyrirgreiðslu stjórnvalda.
| FRAMSÓKNARMENN |
I sfjórna nú meiri fram- j
jförum í bænum en|
1 menn hafa áður þekkf. I
I FELUM ÞEIMSTJÓRN-I
IINA NÆSTU ÁRIN. I
■ ■ t ■ 111 • 1111 ■ i ■ i ■ 11 ■ 111 ii 1111 iii ....... ii ■ 1111
Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem blaðið liefur aflað sér,
liefur héraðsnefnd Þingeyinga
og Laxárvirkjunarstjórn náð
samkomulagi í megin atriðum,
sín á milli og við ráðherra.
Ráðherraleyfi var áður fyrir
12 þús. kw. virkjun, með ann-
arri tilliögun en síðar var ákveð
in. Virðist ráðherra líta svo á,
að þetta samrýmist fyrsta
áfanga Gljúfurversvirkjunar,
sem er tæpl. 8 þús. kw. rennslis
virkjun. Ennfremur öðriun
áfanga, sem unnt verði að leyfa
síðar, en sá áfangi er miðaður
við stíflu og 20 metra vatns-
borðshækkun er gæfi rúm 11
þús. kw. viðbótarorku — eða
samtals 19 þús. kw. Laxárvirkj-
un framleiðir nú 12.500 kw.
Ákvörðun um vatnsborðshækk
un verði ekki teknar nema í
samráði við íbúa Laxárdals og
hlutaðeigandi sveitarstjórnir.
Framkvænvd vatnsmiðlunar
verði hagað með fyllsta tilliti
til lax- og silungsveiði.
Þá er samkomulag um það,
að liorfið sé frá áformum um
Suðurárveitu. Ákveðið er, að
gerðar verði sérfræðilegar, líf-
fræðilegar rannsóknir á vatna-
svæði Laxár.
Lögð er áherzla á það, af
hálfu yfirvalda, að aðild að Lax
árvirkjun verði víðtækari en nú
er, einkiun með þátttöku þeirra
svæitarfél., er málið varðar mest
Þá heitir ráðuneytið því, að
hraðað verði athugun á öðrum
virkjunarstöðum norðanlands.
Samkvæmt því, er að framan
greinir, ættu framkvæmdir að
hefjast innan skamms fyrir aust
an, ef nýjar hindranir verða
ekki lagðar í götu framkvæmd-
anna. □
FYRSTU FUGLARNIR
FYRSTU farfaglami.r, langt aó
'komnir, hafa nú sóet-. Grágæsar
innar varð vai*t fyrir gkömmu
og hefur henni fjölgað síöan.
Fimm stelkar spígöporuÖu á
Leirum á sumardaginn fyrsta
og tjaldurinn skammt frá, tveir
fuglar. Þá eru rauðhöfðaendur
og grafendur famar að sjást og
þröstunum hefur fjölgað.
Hrafn og svartbakur, mikill
fjöldi beggja tugunda, er á ösku
haugunum og á sífeldu sveimi
yfir bæinn. Auðnutittlingarnir
eru ákaflega margir í bænum
og eru farnir að hugsa um hjú-
skap og hreiðurgerð. Farfuglar
eru venju fremur seint á ferð-
inni í ár. □
viðstöddum fjölda áhorfenda.
39 fyrirtæki tóku þátt í keppn-
inni og var nú í fyrsta sinn
keppt um fallegan bikar, sem
Kaupfélag Eyfirðinga gaf til
keppninnar. Bikar þennan, sem
er farandbikar og vinnst aldrei
til eignar, hlýtur það fyrirtæki
er verður nr. 1 og geymir það
bikarinn í 1 ár eða til næstu
firmakeppni.
Urslit í keppninni urðu þessi:
Nr. 1 Sörli. Eigandi Sveinn
Guðmundsson, Sauðárkróki.
Knapi Þorsteinn Jónsson, og
keppti hann fyrir Heildverzlun
Valdemars Baldvinssonar.
Nr. 2 Bleikur. Eig. Karl
Ágústsson, Litla-Garði, og var
hann einnig knapi, keppti fyrir
Skógerð Iðunnar.
Nr. 3 Sindri. Eig. Jóhann Kon
i'áðsson, Akureyri, og \rar hann
einnig knapi, keppti fyrir Ein-
ir h.f.
Nr. 4 Nös. Eij. Jenny Karls-
dóttir, Akureyri. Knapi Ingólf-
ur Magnússon, og keppti hann
fyrir Þórshamar h.f.
Ni'. 5 Svala. Eig. Björn Þor-
steinsson, Akureyri. Knapi Árni
Magnússon, og keppti hann fyr
ii' Slippstöðina h.f.
Heildverzlun Valdemars Bald
vinssonar hlaut sem fyrr segir
farandbikarinn til varðveizlu
en eigendur fimm fyrstu hest-
anna hlutu áletraða verðlauna-
peninga til eignar.
Þarna fóru einnig fram boð-
reiðar milli eldri og yngri hesta
manna, og unnu þeir eldri eftir
harða keppni og tvísýna og
hlutu að iaunum boðhlaups-
bikar Léttis er Kurt Sonnen-
feld tannlæknir gaf fyrir nokkr
um árum.
Stjórn Léttis þakkar öllum
þeim er þátt tóku í keppninni,
bæði fyrii'tækjum og hesta-
mönnum, góðan og drengilegan
stuðning.
(Fi'éttatilkynning)
111111111 in i iii iimiiiiiiiiiiim ii i iiiiiimi, i.
F Z
I Hver Islendingur er-|
jlendis er eins konarj
I sendiherra þjóðar sinn-1
j ar og verður að haga I
| sér samkvæmt því.
| Ofsfæki dæmir sigi
[ sjálft. I
N efndatalninganefnd
MIKIÐ fát kom á i'áðherra ný-
leg-a þegar lögð var fram á Al-
þingi fyi'irspurn frá Tómasi
Árnasyni um fjölda starfandi
nesfnda á vejfuma ríkisins og
kostaað við |>em'.
Þingsköp meela svo fyrir, að
bem skuli undir atíkvæði þing-
mamia án umrseðu, hvort leyfa
skidi fram komnar fyrirspuimir
og hafa slíkar fyrirspurnir víst
alltaf vei-ið leyfðar.
Að þessu sinni brá svo við,
að forsætisráðherra kvaddi sér
hljóðs, ut>an dagskrár, og tók
að ræða fyi'irspurn Tómasar.
Kvað hann það svo miíkið verk,
að leita uppi nefndirnar, að
ekki væri slíkt leggjandi á ráð-
herra að láta hann ljúka því á
einni viku! Myndi því réttast
að kjósa nýja nefnd til að telja
nef ndimar!! F j ármálaráðherra
tók undii' með forsætisi'áðherra,
að ekki væri unnt að svara fy i'h'
spui-ninni fyi’h' þingok. Þegar
til atkvæðagreiðslu kom um
þette mál, greiddu þó flesta'
þingmenn með því að levfa
fyrh'spurnina, og urðu ráðherr-
ar að láta sér það' lynda.
Margir minnt-ust þess þá, sem
heitið vai’ í upphafi „viðreisn-
ar,“ að fækka skyldi nefndum
svo um munaði. Það hefði þótt
illa spáð í þann tíð, að nefnda-
fjölgunin yrði svo mikil, áður
en „viðreisn" lyki, að sjálfur
„viðreisnar“-formaðurinn,
Bjarni Benediktsson, treysti sér
ekki til að telja nefndirnar. Síð-
ar voru tíundaðar 708 nefndir.