Dagur - 25.04.1970, Síða 7

Dagur - 25.04.1970, Síða 7
7 ;£***»»& l Innilegar þakkir fyrir auðsýnida samúð við andlát og jarðarför MARÍU GUNNARSDÓTTUR frá Flatey. Sérsta.klega þökkum við læknum og öðru starfs- liði Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir ágæta umönnun. Guð blessi ykkur öll. Böm og tengdabörn. Hjartanlegar þakkir færum við öllum ættingjum og vinum, sem sýnt hafa okkur hlýhug við fráfall eiginmanns míns og föður okkar HILMARS SÍMONARSONAR, Karlsbraut 21, Dalvík. Sérstákar þakkir færum við læknum og starfsliði Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, Útgerðarfé- lagi Akureyringa og skipshöfnum á Sléttbak og Björgvin. Guðrún Benediktsdóttir og böm. Vantar MANN vanan sveitavinnu frá 1. maí n.k. Rósa á Þverá, Öngulsstaðahreppi. aö Brúarftöt 5 Garöahreppi gæti orðiö yðar, ef heppnin er með. Sötuverð hössins er um 3 milljónir króna, og er þaö eitt af fjöl- mörgum stórvinningum í Happdrætti ÐAS 1970—71. Aðrir eru m.a. 100 öílar, íbúð í hverjum mánuði, ferðalög, og húsbúnaðar- vinningar. Hefur nokkur efni á því aö láta slíka möguleika til stór- happs framhjá sér fara? I.O.G.T. stúkan Akurliljan nr. 275. Fundur n. k. fimmtudag kl. 21.00 í Ráðhúsinu. Félagar fjölmennið. — Æ.t. TRÚLOFUN. — Sumardaginn fyrsta kunngjörðu heitbind- ingu sína ungfrú Steinunn Guðjónsdóttir skrifstofu- stúlka í POB og Björn Eiríks son prentari POB. MINJASAFNIÐ á Akureyri er lokað um óákveðinn tíma. Þó verður tekið á móti skóla- fólki eftir samkomulagi. Gerið skil fyrir happ- drættismiðum ÍSÍ, í síð- asta lagi 30. þ. m. — U.M.S.E. Til sölu: LJÓSMYNDA- STÆKKARI (Rowi) 35 mm. Uppl. x síma 1-19-82. ÁRABÁTUR til sölu, einnig spil í Land Rover bíL Gústaf Kjartansson, Brímnesi, símí Dalvík. Til sölu nýlegt KARL- MANN SREIÐH JÓL (Philips) í góðu lagi. UppL í síma 1-15-32. LYKILLINN AÐ ÞESSU IiI SI Gleöilegt sumar MYNDVBR SKIPAGÖTU 12 , SÍMI 21205 Auglýsingasími Dags er 1-11-67 AUGLYSING um afnám sérstakra varúðarráðstafana vegna varna gegn hringskyrfi á naut- gripum í Eyj'afirði. í. gi-. Þar sem talið er að tekizt hafi að lækna nautgripi í Eyjafirði af hringskyrfi er hér með fellt niður bann við samgangi gripa við gripi af bæjium, þar sem sýki var áður, og aðrar takmarkanir á sam- göngum við þá bæi, frá 1. maí 1970 að telja. Að öðru leyti heldur reglugerð nr. 35, 18. febrúar 1967, um varnir gegn smitandi hringskyrfi á nautgripum og öðrum 'húsdýrum af völdum sveppa, gildi. 2. gr. Auglýsing frá 18. marz 1968, um sérstakar varnir gegn hrmgskyrfi á nautgripum í Eyjafirði, fellur úr gildi 1. mai 1970. Landbúnaðarráðuneytið, 16. apríl 1970. INGÓLFUR JÓNSSON. Aðalfundur STYRKTARFÉLAGS VANGEFINNA verður haldinn í Sólborg laugardaginn 2. maí og hefst kl. 13.30 (hálftvö). Venjuleg aðalfundarstörf. Óskað er eftir að félagsmenn fjölmenni. Nýir félagar velkomnir. F. H. félagsstjórnar, JÓHANNES ÓLI SÆMUNDSSÓN. Tveggja manna HER- BERGI óskast til leigu. Uppl. gefur Hallgrímur Skaptason, sími 2-13-00 eða 1-19-45. ÍBÚÐ í Kaupmanna- höfn! 2 herbergja íbúð til leigu í miðborg Khafnar frá 1. júní til 30. ágúst. Nánari uppl. í sírna 1-16-92, Akureyri.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.