Dagur - 01.07.1970, Page 6

Dagur - 01.07.1970, Page 6
6 Ýmsar ályklanir um nálfúruvernd AÐAL.'FUNDUR Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi, haldinn á Akureyri dagana 20. og 21. júní 1970, vill vekja at- hygli á eftirfarandi: 1. Hinni sívaxandi mengunar hættu, er notkun ýmissa tilbú- inna efna og verksmiðjurekstur hefur í för með sér. í því sam- bandi vill fundurinn benda á þá miklu hættu á mengun lofts og lagar, sem kann að stafa af stað setningu aluminíumverksmiðj u við Eyjafjörð, og þegar er rætt um. Fyrir því skorar fundurinn á rétt stjórnvöld að hlutast til um, að ýtarleg rannsókn fari fram á aðstæðum í Eyjafirði og mengunarhættu, sem slíkri verk smiðju yrði samfara þar. 2. Fundurinn beinir þeim ein- dregnu tilmælum til réttra aðila, að þegar verði hafin skipuleg nýting á beitilöndum, þannig að um oíbeit verði ekki að ræða og einnig hafin uppgræðsla beiti- landa, sem eru í hættu vegna gróðureyðingar, Þar sem ekki er unnt að ná slíku samstarfi við bændur eða aðra aðila, verði lögum um ítölu búfjár beitt. 3. Fundurinn skorar á yfir- völd bæja og kaupstaða á Norð- urlandi, að hlutast til um, að þannig verði gengið frá sorpi og öðrum úrgangi að hann lendi ekki í sjó eða vötnum, eða dreifist um landið. 4. Samtökin skulu beita sér fyrir, að eftirtalin svæði á Norð urlandi verði friðlýst, að ein- hverju eða öllu leyti: 1. Borgarsvæðið í V.-Hún., sem afmarkast af Hópinu, Víði- dalsá, Vesturhópsvatni og Sig- ríðarstaðavatni. 2. Vatnsdalshólar í A.-Hún. 3. Borgarskógar og Borgar- mýrar hjá Sjávarborg í Skaga- firði. 4. Bakkar bg hólmar Svarf- aðardalsár, frá Tjörn og niður að sjó. 5. Vestmannsvatn og ná- grenni, þ. e. vatnið og tjarnirn- ar fyrir vestan það, ásamt nú- verandi vegi gegnum svæðið, og e. t. v. Vatnshlíðin. 6. Jökulsárgljúfur í N.-Þing., þar með talið Ásbyrgi, Ástjörn og Vesturdalur. 5. Fundurinn samþykkti eftir farandi ályktanir um vötn og virkjunarmál. 1. Á sl. ári hafa komið fram áætlanir um stórkostlegan til- flutning á norðlenzkum vatns- föllum vegna virkjunaráforma, sumpart út úr fjórðungnum til Þjórsár eða Lagarfljóts, sum- part í nágrannaár innan fjórð- ungsins. Einnig eru áætluð geysistór uppistöðulón til að hreinsa jökulvatnið og miðla vatni milli árstíða. Augljóst er að af slíkum framkvæmdum muni hljótast miklar breytingar á náttúrufari Norðlendingafjórð ungs, sem gætu leitt til veru- legra umskipta á búskaparskil- yrðum. Vatnsveitingarnar myndu leiða til þurrðar í sum- um ám, en flóða í öðrum og hætta er á afdrifaríkum jarð- vatnsbreytingum. Einnig myndi slík röskun valda róttækum breytingum á lífríki vatnsfall- anna og aðstöðu til fiskiræktar og fiskveiða í þeim, og gæti jafn vel haft áhrif á veiðar í flóum og fjörðum, sem árnar falla í. Það er álit fundarins, að með þessum áætlunum, sé stefnt inn á varhugarverða braut, sem hlýtur að leiða til mikils ófriðar í landinu ef farin yrði. Einnig er hætt við, að slíkar fram- kvæmdir geti orðið kostnaðar- samari, en áætlað var í upphafi, vegna óhjákvæmilegra skaða- bóta, sem draga myndu langan slóða ef illa tækist til. Virðist fundinum einsýnt, að ekki skuli gripið til slíkra ráða, fyrr en fullsannað er með rann- sóknum, að orkuþörf fjórðungs- ins verði ekki fullnægt á annan hátt, svo viðhlítandi sé. Má nefna Dettifossvirkjun og virkjun Skjálfandafljóts við ís- hólsvatn, sem dæmi um aðra möguleika. Verði hins vegar af opinberri hálfu haldið fast við nefnda áætlun um vatnaflutn- ingana, er það sjálfsögð krafa, að nú þegar verði hafizt handa um rannsóknir á hugsanlegum afleiðingum framkvæmdanna, jafnframt . sjálfum virkjunar- rannsóknunum. 2. Laxá í Þingeyjarsýslu hef- ur algera sérstöðu meðal ís- lenzkra vatnsfalla að lífmagni og fegurð. Fundurinn ályktar að engar frekari virkjanir á ánni skuli leyfa, nema rennslis- virkjun, innan þeirra marka sem núgildandi lög heimila, en þó aðeins að undangengin rann sókn leiði í ljós, að hún verði ánni ekki til skaða. Skal áin varðveitt, sem næst því formi, sem hún hefur nú, nema leitast Nýstúdent óskar EFTIR ATVINNU næstu 3 mánuði. Uppl. í síma 1-11-69. GET TEKIÐ í SVEIT tvær telpur á aldrinum 5—9 ára. Uppl. gefnar í síma 2-16-24, eftir kl. 6. yrði við að bæta eftir föngum úr þeirri röskun, sem núver- andi virkjanir hafa valdið, t. d. vatnsmiðlunarmannvirkin hjá Geirastöðum. Jafnframt lýsir fundurinn þeirri einlægu von sinni, að Laxárbændur og stjórn Laxár- virkjunar, nái 'hið fyrsta sam- komulagi um virkjun árinnar, sem tryggt geti hagsmuni beggja aðila. 3. Vegna gálausrar umgengni Íslendinga við vötn sín, ályktar fundurinn, að leita skuli, af opinberri hálfu, allra tiltækra ráða til að rannsaka og fylgjast með mengun ferksvatns og sjávar. (Fréttatilkynning) OPEL CARAVAN, árgerð 1955, til sölu. Uppl. í síma 1-25-61. TIL SÖLU Landrover, árgerð 1951, mótor keyrður 15000 km. Skipti á litlum bíl kæmi til greina. Uppl. í síma 2-15-87, eftir kl. 7 á kvöldin. BÍLL ÓSKAST Góður 5 manna bíll óskast, árg. 64—67. Uppl. í síma 2-11-81. VIL KAUPA góðan fólksbíl 4—5 ára. Get borgað mikið út. Sími 2-15-41. TIL SÖLU 3 herbergja íbúð, efri hæð, Hafnarstræti 45. Uppl. á kvöldin á sarna stað. ÓSKA EFTIR HERBERGI til leigu. Uppl. í síma 1-19-24. Tveggja herbergja íbúð ÓSKAST TIL LEIGU. Uppl. í síma 1-21-17. ÍBÚÐ ÓSKAST, 3—4 herbergja. nánari uppl. í síma 1-18-00 eða 1-18-79. HÚSGRUNNUR eða HÚS í byggingu óskast keypt. Stærð ca. 120—130 ferm., ein hæð. Tilboð leggist inn á af- greiðslu blaðsins, merkt „Hús“ fyrir 7. júlí. ORÐSENDING frá Almannatryggingaumboðinu Tryggingaumboðið biður bótaþega vinsamleg- ast að virða áður auglýstan afgreiðslutíma til að auðvelda afgreiðslu bótanna. En hann er: 10.—15. hvers mánaðar: Elli- og örorkulaun, örokustyrkir, ekkjulífeyrir, makabætur, barnalífeyrir, endurkröfur og mæðralaun. 15.-20 hvers mánaðar: Fjölskyldubætur með 3 börnum og fleirum. Fjölskyldubætur með 1 og 2 börnum frá 21.-25. mánuðina júní — sept. TRYGGINGARUMBOÐIÐ, Akureyri GÓÐ AUGLÝSING - GEFUR GÓÐAN ARÐ Ferðafélag Akureyrar FERÐIR í JÚLÍ - ÁGÚST: Öskju- og Hekluferðir. Helgarferðir. Sumarleyfisferðir. Allar upplýsingar í skrifstofu félagsins Skipagötu 12, II. hæð. Opin kl. 5—7 alla daga nema laugar- daga og sunnudaga, sími 1-27-20. Straufríu terrylene SKYRTURNAR eru komnar aftur á sama lága verðinu. HVÍTAR kr. 405.- - MISLITAR kr. 420,- Sterkar — þægilegar. HERRADEILD FRÚARSKÓR með innleggi, svartir, drapplit- aðir. — Verð frá kr. 1.295,00. TÖFLUR með korksóla. Verð frá kr. 620,00. FÓTBOLTASKÓR (æfingaskór), stærðir 36—46. Verð frá kr. 620,00. HVÍTIR STRIGASKÓR, stærðir 30-46. Verð frá kr. 260,00. SKÓVERZLUN M. H. LYNGDAL í FERÐALAGIÐ FRÁ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ KEA: Niðursoðið kjöt Niðursoðið grænmeti Nýkomið! PLASTSKÓR, drengja, ungl. og herra. PLASTSKÓR kvenna, mjög ódýrir. SANDALAR telpna og (kvenna. HERRASRÓR, brúnir og svartir. KVENSKÓR, hvítir, rauðir og svartir. SANDALAR, herra. VEIÐIBÚSSUR, finnskar. Póstsendum. SKÓBÚD AUGLÝSIÐ í DEGI - SÍMINN ER 1-11-67

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.