Dagur - 26.08.1970, Page 5
I
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR ÐAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMtJELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
HVERJIR
VORU
HRÆDDIR?
EFTIR fylgishrun Alþýðuflokksins
í Reykjavík og Akureyri í bæjar-
stjórnarkosningunum í vor, byrjaði
umtal um haustkosningar. Ýmsir Al-
þýðuflokksmenn, utan þings,
kenndu „íbaldsþjónustu“ ráðberra
sinna um ósigurinn, bitu í skjaldar-
rendur og heimtuðu stjórnarslit. A
miðju sumri sagði Jóbann Hafstein
norskum blaðamönnum, að ekki
væri útilokað að haustkosningar
færu fram. Nokkru síðar tilkynntu
stjórnarflokkamir, að þeir liefðu
baldið fundi, hvor í sínu lagi með
helztu ráðamönnum sínum til að
ræða haustkosningar og voru þar
kjörnir fulltrúar til nánari viðræðna
um málið. Þetta var almennt talinn
fyrirboði þess, að þing yrði rofið og
efnt til haustkosninga. En þá kom
babb í bátinn. Sl. föstudagskvöld
flutti ríkisútvarpið viðtal við forsætis
ráðherrann, þar sem skýrt var frá
því, að ekkert yrði úr haustkosning-
um. Upplýst var þar og í stjórnar-
blöðum, að miðstjórn Alþýðuflokks-
ins hefði haldið nýjan fund og með
„greinilegum meirihluta“ lýst sig
andvíga haustkosningum. Morgun-
blaðið segir, að Sjálfstæðisflokkurinn
hafi viljað haustkosningar og að þær
hafi verið nauðsynlegar vegna þjóð-
arhagsmuna. Hins vegar liafi Sjálf-
stæðismenn á sínurn tíma lofað Al-
þýðuflokknum Jjví, að forsætisráð-
herrann skyldi ekki rjúfa þing nema
með samþykki beggja flokka. Lof-
orðum flokksins megi jafnan
treysta(!) og þess vegna verði Alþýðu
flokkurinn nú að ráða, eða hinn
„greinilegi meirihluti“ í miðstjóm
hans. En auðvitað lá það ]>á beinast
við, að forsætisráðherrann bæðist
lausnar fyrir ríkisstjórnina, ef stjóm-
arflokkamir gátu ekki náð samkomu
lagi um mál, sem a. m. k. annar
þeirra taldi varða Jtjóðarhagsmtmi.
Það er auðsætt, að einhverjir, sem
að stjórainni standa, og mikils mega
sín, hafa verið hræddir við haust-
kosningar og að ótti þeirra hefur
skyndilega magnazt. Um ]>að munu
flestir sammála, að hinn „greinilegi
meirihluti“ A1 þ ý ðu íl ok ksr á ðh e rr-
anna hafi verið hræddur. En hefði
það nægt? Er það ekki mergurinn
málsins, að Sjálfstæðismenn séu líka
hræddir við kosningar eins og á
stendur og fegnir því, að fá J>ann
kaleik frá sér tekinn í átta mánuði,
en stjóma í þess stað á ábyrgð minni
flokksins þann tíma? □
Stangarveiðimaður í
í fuila sex áratugi
Rætt við Pétur Jónsson í Árhvammi í Laxárdal
ÞEGAR ég var í Laugaskóla,
og síðan eru áratugir, heyrði ég
einn kennarann segja, að í Lax-
árdal byggi „sérstakur þjóð-
flokkur," en ekki heyrði ég rök"'
stuðninginn. Fáum árum síðar
kom ég í Laxárdal í gróandan-
um og gleymi aldrei sterkum og
heillandi áhrifum dalsins. Þá
kynntist ég fyrst nokkrum Lax-
dælingum og minntist ummæla
kennarans og fannst ekki undar
legt, að í svo sérstæðum dal
byggi sérstætt fólk og í sumum
greinum öðru fremra. Menn
bera svipmót sinnar sveitar. Ég
held að það sé gott að vera upp
fóstraður í Laxárdal, og í „þjóð
flokki“ þeirrar sveitar.
Laxárdalur er gamall farveg-
ur glóandi grjóts og hraunhólar
og hrauntaumar setja svip á
hann. En hann er einnig far-
vegur hinnar frægu Laxár, sem
er svo full af lífi og' grósku, að
bakkar hennar og hólmarnir
óteljandi eru vaxnir þroska-
miklu blómstóði, viði og birki.
Upp af dalnum rísa heiðarnar,
að vestan Laxárdalsheiði, sem
liggur milli Reykjadals og Lax-
árdals, og að austan heiðar þær
eða heiði, sem nafn dregur af
hinum ýmsu bæjum dalsins, svo
sem Kasthvammsheiði, Hóla-
heiði og Hamarsheiði. Þar uppi
er Kísilvegurinn um Hólasand,
sem raunar er gömul lesta- og
rekstrarleið uppsveitarmanna
til Húsavíkur.
Hlíðar Laxárdals að austan og
vestan eru vel grónar, auk skóg
anna. Dalurinn býr yfir fjöl-
breyttri fegurð, mildari og
hlýrri en aðrir dalir, en mikið
af honum er lokað land vegna
þess að vegi vantar.
Mývatnssveit og Laxárdalur
er að verulegu leyti ein heild og
sama hrauna- og vatnasvæði.
Mývatn fyllir víðáttumikla lægð
mikillar hásléttu. Umhverfis
rísa há og nafnkunn fjöll, er
veita svæðinu útlitsreisn. Ur
Mývatni rennur Laxá um Lax-
árdal, um eða yfir 30 km. leið
að Laxárfossum við Brúar, þar
sem áin hefur verið virkjuð til
raforkuframleiðslu. En bar end-
ar Laxárdalur og Laxá rennur
síðan um Aðaldal, um 25 km.
leið og fellur þar í Skjálfanda-
flóa. En í þeim hluta árinnar er
mikil laxagengd, og hlýtur hún
mikið hrós stangveiðimanna á
{>essu svæði. Hins vegar kemst
axinn aðeins upp að virkjun.
Þar fyrir ofan er áin þó auðug
af fiski. Er þar mjög stórvaxinn
og feitur urriði, allt til Mývatns.
En Mývatn er aftur á móti hinn
mikli nségtarbrunnur bænd-
anna, serm bleikjunni er stöðugt
úr ausið. .
Nafnið Laxárdalur bendir til
þess, að þar hafi fyrrum lax-
' gengt veiið og dalurinn hlotið
nafn af því. En eú sögn er til
og er ellefu. alda gömul, að.
Garðar Svavareaon hafí sent
þrœla sína tó. að kynna sétr
Laxá. Fóru þeir upp með ánni,
allt til Mývatns, gengu' í kring-
um það og síðan til baka. Er
jþeir höföu frá tíðihdum sagt,
þótti husbónda þeirra líklegt, að
þeir færu með fleipur eitt og að
lengri tíma þyrfti til að ganga
fyrh- upptök svo mikils vatns-
falls. Og drap hann sendimenn
sína.
Á síðustu timiun mikilla uin-i
ræðna og harðra deilna um
meiri vii'kjunarframkvaemdir i
Laxá, ættu menn að gera sér
iþað ómak að a'ka að Laxárvirkj-
un og fram í Laxárdal, svo langt
sem akvegir ná. Er þá unnt að
gera sér grein fyrir þeim breyt-
ingurn Laxárdals, sem verða, ef
18—20 metra stífla er gerð í
Laxárgljúfri eða jafnvel 57
metra stífla til enn meiri raf-
orkuframleiðslu, en einnig til
að njóta fegurðar þessa umtal-
aða og sérstæða dals, sem alið
hefur þjóðkunna menn á sviði
félagsmála, framkvæmda og
lista, og hér verður ekki rakið.
Daginn áður en Þingeyingar
fjölmenntu til Akureyrar til að
mótmæla Gljúfurversvirkjun og
breytingum við Laxá, skrapp ég
austur í Laxárdal til að hitta
aldinn bónda og veiðimann,
Pétur Jónsson í Árhvammi, og
ræða við hann um -veiðiskap í
ánni fyrr og síðar.
Á meðan ég ræddi við hann í
stofu og dreypti á kaffi, barst
talið að deilu Laxárvirkjunar-
stjórnar og landeigenda við
Laxá, og ég spurði: Hvað verð-
ur nú um þetta hús, Pétur, ef
stóra stíflan verður gerð? Þá
fer húsið í kaf. Ég veit raunar
ekki hvort eitthvað stendur upp
úr af reykháfnum, svaraði hann.
Ég fór að hugsa um hina óvenju
legu aðstöðu bændanna í Laxár
dal, sem hafa átt það yfir höfði
sér að dalnum þeirra yrði sökkt,
eins og það er stundum orðað.
En með 57 metra stíflunni mynd
ast 15 km. langt vatn í utan-
verðum Laxárdal.
Pétur í Árhvammi er sjötug-
ur, fæddur á Auðnum 28. febrú-
ar aldamótaárið. Hann er dóttur
sonur Benedikts Jónssonar, sem
jafnan er við þann bæ kennd-
ur og voru ^ foreldi'ar Péturs
Hildur Benediktsdóttir og Jón
frá Múla í Aðaldal, fæddur 1866,
af Hólmavaðsætt, en Hildur var
9 árum yngri. Þau Hildur og
Jón áttu 9 börn, sem öll ólust
upp á Auðnum og þurfti því
mikið til bús að leggja. Og þar
ólst Pétur upp, var í kaupa-
vinnu á ýmsum stöðum er hann
hafði aldur til, í vegavinnu og
nokkur ár var hann vinnumað-
ur hjá þeim Hallgrími og Berg-
þóru á Halldórsstöðum i sömu
sveit. Og þar kynntist hann
Regínu Kristinu Frímannsdótt-
ur frá Húsavík, er þar hafði
dvalið um skeið og gengu þau
í hjónaband árið 1925. Þau
fluttu nú að Þverá og voru þar
tvö ár í einskonar húsmennsku
hjá Snorra Jónssyni, en síðan
fóru þau í Kasthvamm, árið
1928, bjuggu þar á hálflendunni
en byggðu svo nýbýli sitt, Ár-
hvamm, 1939 og búa þar síðan.
Börn þeirra hjóna eru 8 á lífi:
Jón, býr þar heima, Þorkell, í
iðnnámi, Þórður, Pétur og Aðal
steinn, búsettir á Húsavík, Hall-
grímur, í Kópavogi, Guðrún,
húsfreyja í Árhólum í Ijaxárdal
og Hildur, búsett á Dalvík.
Pétur í Árhvammi er glöggur
nraður og kíminn, fróður og
félagslyndur, dálítið gráhærður
orðinn, 'blakkur af útivist og
léttur á fæti, grenjaskytta, póst-
ur, veiðimaður og bóndi. í dag
kynnumst við veiðimanninum
Pétri í Árhvammi.
Við spyrjnm fyrst hinn sjö-
tuga bónda, hvenær hann hafi
fyrst veitt silung á stöng í ánni?
Tíu ára, man það þó ekki
alveg nákvæmlega, en ég man
glöggt hvernig silungurinn var
og hvernig ég veiddi hann. Og
einnig man ég hvað ég varð
áhugasamur veiðimaður, eða
réttara sagt; alveg vitlaus að
veiða. Og ekki nóg með það,
því ég hef eiginlega verið það
alla tíð síðan. En ég veiddi ekki
að neinu ráði fyrr en ég var
orðinn 13 ára, af vissum ástæð-
um.
Iivers vegna ekki fyrr?
Þannig stóð á, að enskur upp-
gjafa-flotaforingi brezku krún-
unnar, William Dawding, tók
ána á leigu og kom svo hvert
sumar í mörg ár, oftast með
einhverja vildarvini sína með
sér og veiddi svo hér í ánni, út
og suður. Þá mátti ég ekki
veiða.
Og þú fylgdist með veiðum
þeirra?
Auðvitað gerði ég það, og þótt
ég hefði 'bæði gagn og gaman af
því, var mér það töluverður sárs
auki að mega ekki bregða öngli
í vatn. Ég man að leigan, sem
pabbi fékk fyrir ána, var 30
krónur á ári og var það raunar
nokkur peningur. En mér tókst
að koma þeim ensku úr ánni.
Hvernig fórstu að því?
Ég bað pabba minn að láta
ekki veiðiréttinn lengur af
hendi, sagðist sjálfur ætla að
veiða meira en sem leigunni
svaraði og leggja til heimilisins.
Og pabbi lét að ósk minni og
það varð rekistefna út af þessu.
En ég hafði þó mitt fram og
þóttist hafa unnið mikinn sigur.
Og hvað veiddir þú þá mikið
fyrsta sumarið?
Það vill nú svo til, segir Pét-
ur, að ég hef skrifað allt, sem
ég hef veitt í Laxá öll þessi ár.
En þetta sumar veiddi ég 170
silunga, og mér er nær að halda,
að þeir hafi til jafnaðar verið
3 pund eða þar um bil. Þetta
kom sér vel fyrir heimilið og
pabbi viðurkenndi það líka,
mér til óblandinnar gleði. Þá
var máður nú ekki að telja eftir
sér að fara niður að ánni á
kvöldin eftir vinnudag, og svo
hefur það löngum verið. Og til
eru ennþá veiðibækur þessa
brezka veiðimanns og eru þær
hinar fróðlegustu, fyrir þær
virði ég hann. Hann og þeir
félagar veiddu mest á flugu, og
á einum stað nefnir hann sér-
staklega fluguna Alexöndru,
sem sérlega góða flugu í Laxá.
Ég sá þó einnig hjá þeim fisk-
líki, silfrað, með mörgum öngl-
um og munu þeir hafa brugðið
því í vatn, þar sem dýpst var.
Veiðir þú mest á flugu?
Já, og ég bjó þær til sjálfur
lengi vel. Þá keypti maður öngl-
ana, sem voru augalausir og
maður varð að hnýta augað á
öngullegginn. Notaði maður þá
la'kk til að festa þetta betur. Ég
notaði fjaðrir af hænsnum og
öndum. Þá sá maður ekki flugjj*
í vezlun. Þær komu síðar. Ég
(Ljósm.: E, D.)
man eftir‘"Jþvf'^þegar ég keypti
fyrstu.iflugyna. Það var Silyer-
doktor og-fékkst á Húsavík og
var dýr, með áfestum girnis-
taum. Fór ég svo heim með_
þennan útlenda kjörgrip og
hlakkaði til að bregða honum
í vatn.
Það Iiefur þú líklega látið
eftir þér?
Jú, jú, ekki dróst það lengi
og þá var eftirvæntingin mikil.
Ég fór að veiða suður með á,
á ágætum stað og var búinn áð
kásta nokkrum sinnum þegar
þrifið var í og það heldur rösk-
lega. Var þar kominn einn helj-
ar mikill urriði og sterkur eftir
því. Hann stökk, slelt og fói'.
Ósköp varð ég dapur, að missa
bæði fluguna og þennan stóra
silung.
Þú fréttii' ekki meira af hon-
um?
Jú, sú varð reyndar raunin á.
Um haustið fór ég á Hraunsrétt
í Aðaldal. Jakob bóndi í Haga
kallaði til mín og spurði mig,
hvort ég hefði fest í stóriim
silungi í sumar og misst hann.
Ég játti því. Hann lét mig segja
frá því atviki. Þá brosti Jakob
og sagðist hafa séð silung í ánni,
við hólma einn, þar sem hann
var að heyja um sumarið, og
náð honum. Silungurinn var
mjög dasaður og var með flug-
una í kjaftinum. Jakob sagði,
að hann hefði strax séð, að þetta
var silungur framan úr dal, svo
stór sem hann var, vigtaði 8
pund, en var þá magur orðinn.
Sagði bóndi, að hann hefði ef-
laust verið 10 pund eða meii;a,
er ég fyrr um sumarið festi í
honum. Hann dró síðan fluguna
upp úr vasa sínum og fékk mér
hana.
En hvað hefurðu veitt þá
stóra hérna í ánni? ,
Upp í 9 pund, en ofar eru þeir
til enn þyngri, svo sem uppi
hjá Arnarvatni, veit ég mgð
vissu. En yfirleitt er urriðinn
mjög feitur hér i Laxárdal,
mesta hnossgæti nýr og reykt-
ur. Sum árin hef ég veitt upp í
200 silunga. Það eru áraskip.ti
í aflabrögðum, eins og gengip'.
Fyrir kemur að áin drepur í séi'
fiskinn í hlaupum á veixum og
nær -sér svo upp aftur. -
Manstu eftir einhverri sér-
staklega mikilli veiði í ánni?
Já, segir Pétur. Einhverntíma
á árunum 1875—1890, á fyrstu
árurri stangveiða í Laxárdal,
skeði það, að Jón vinnumaður
Benedikts á Auðnum veiddi* í
ánni kvöld nokkurt, þar sem
heitir Beyja á Syðrieyri í Auðna
lahdi. Þarna er dálítið vik eða
beygja í vesturbakka árinnar,
ca. 40—50 metra löng, strengur
framar í ánni því neðan v.ið
fellui' áin þrÖngt og er þar ekki
yfii’ 40 metrar milli bakka.
Þarna veiddi Jón vinnumaður
50 silunga og skildi þá eftir er
hann fór heim. Benedikt sótti
veiðina um morguninn og
vcidd'i þá um leið 10 silunga.
Liklega hefur þessi veiði öll
vérið heill hestburður á þyngd
eða iim 200 pund, þótt það sé
áuðyitað ágizkun mín, en styðst
þo við meðalþyngd urriða í
Laýá síðar. Sennilega hefur
þarna verið á ferð ganga ur
'Mývatni, því vitað er, að urrið-
. inn' gengur snemma sumars nið
,:hr í Laxá, lengst niður í dal.
, t>ettá ér mesta veiði á litluaji
ýeiSistað, sem ég veit um.
Og svo eigið þið hændur eini-
Íiversstaðar undrastað í áinni?
Þú átt við Kvígildisaugað-
(•Kyígildi eða kúgildi sama vejfí
mæti og aex ær loðnar og lemhd
þr.y í kíl, sem rennur í Laxá
.jieðan- .við bæinn Kasthvamm,
þr lítið vik, sem ber þetta nafn
óg ér há klettaborg austan við,
rétt hjá. í þetta litla vik eða
„Auga“ rennur neðanjarðar-
vatn. í rauninni er „Augað“ eða
Kvígildisauga sprunga í hraun-
klöpp, um eitt fet á breidd og
um meter á dýpt. En sjálft heit-
ir síkið Álfasíki og vera má, að
Borgin (klettaborgin) hafi heit-
ið Álfaborg. En svo aftur sé
vikið áð sprungunni í hraun-
hellunni, Auganu, víkkar hún
inn undir hraunhelluna og hef-
ur verið prófað með 8 álna
stöng, en hún reyndist of stutt.
í þessari sprungu, Auganu, hef-
ur verið silungsveiði frá fornu
fari, stundum mikil. Gengur
silungurinn úr Laxá upp í síkið
og inn í Augað og hellinn þar
inn af, bæði haust og vor, en er
þar ekki á sumrin. Eins og nafn
ið, Kvígildisauga, ber með sér,
var veiðin metin eitt kúgildi og
afgjald þess var einn sauður.
Sagt er, að bóndinn í Kast-
hvammi hafi látið vaka yifir
neti, sem lagt var í Augað, og
að eitt sinn hafi karl sá, sem
vaka átti yfir veiðinni, og taka
úr netinu, borið grjót í kílinn
og Augað og við það hafi veiði
minnkað mjög og þetta afgjald
þá fallið niður. Þó .veiðist þarna
stundum ennþá.
Menn vita ekki með vissu um
ferðir urriðans milli Mývatns og
árinnar?
Lengi vel álitu menn að allur
silungur færi á haustin upp í
Mývatn. En fyrir nokkrum ár-
um veiddi ég 45 spikfeita sil-
unga á spón hér í dálítilli vök
á ánni. Það var fullorðinn sil-
ungur og bragðaðist vel. Enn er
margt órannsakað um lífið í
ánni og í Mývatni, og raunar
flest.
Nú konia hingað margir gestir
til að veiða og til að njóta frið-
ar?
Já, já, þeim fer fjölgandi með
ári hverju og síðan aðkomu-
menn hófu töluverðan veiðiskap
í ánni, veit ég minna hve mikið
áin gefur, því veiðimenn skila
ekki skýrslum um aflann. Hing
að kom fyrir nokkrum árum
hinn kunni veiðimaður og rit-
höfundur, Borgfirðingurinn
Björn Blöndal. Ég fór með hann
á Slæðuna (góður veiðistaður).
Hann kastaði og fékk 6 punda
urriða. Hann sagðist aldrei hafa
séð svona fisk áður. Hann gaf
mér fisklíki, dökkt á lit, mest
úr einhverri viðartegund. Við
feðgar reyndum það og fengum
16 eða 17 væna silunga á það
strax, en siðan engan og hef ég
þó margsinnis prófað það.
Sérstök atvik við ána, þér
niinnisstæð?
Já, þau eru nú nokkuð mörg,
enda hef ég átt þar margar
stundir. Einu sinni í ágústlok
fór ég niður að á, kastaði flugu
og fébk einn 'fisk strax. Síðan
varð ég ekki var og var í þann
veginn að halda heim. Þá fór
silungur allt í einu að stökkva
um alla breiðuna. Stundum
voru fleiri fiskar á lofti í einu,
allt bolta-fiskur. Ég hoi'fði fyrst
á þetta eins og bergnuminn, svo
undrandi varð ég á öllum þess-
um fiski. Brátt fór ég að kasta
á ný en varð ekki var að heldur
en fiskurinn hélt áfram að
stökkva góða stund og var enn
að stökkva þegar ég’ fór með
minn eina fisk heim.
Hér skammt frá er svo
Kringluvatn?
Það er svona rösklega 10
mínútna gangur héðan frá bæn-
um upp að Kringluvatni. Þar er
bæði bleikja og urriði. Þar var
fyrrum leyfður ádráttur og
komu menn úr mörgum sveit-
um til að fá sér í soðið. Þá lagði
landeigandi til bát og net og tók
hálfan hlut. Kringluvatn er í
landi Kasthvamms, uppi á Kast-
hvammsheiði og þaðan er
skammt austur á Kísilgúrveg-
inn. í Kringluvatn renna tærir
(Framhald á hlaðsíðu 2)
Prjónavörur Heklu eru eftirsóttar innanlands og utan. (Ljósm.: E. D.)
- ISnsfefna samvinnumðnna
(Framhald af blaðsíðu 1).
leiða pels-mokkaskinn, kápu-
og kragaskinn, teppagærur eða
skrautskinn og að hluta hálf-
sútaðar gærur þar til öll árs-
framleiðslan verður fullunnin í
verksmiðjunni. Hér er um að
ræða vörur, sem að mestu verða
fluítar á erlenda markaði.
Til skóverksmiðjunnar voru
keyptar nýjar vélar og nýr 1200
fermetra vínnusalur var tekinn
í notkun fyrr á árinu. Þar vinna
70 manns. Framleiðslugeta nýju
verksmiðjunnar er 200 þús. pör
af skóm. Skóverksmiðja sam-
vinnumanna á Akureyri hefur
staðið af sér hretviðri þau hin
mörgu á undanförnum árum,
sem lamað hefur eða hreinlega
drepið allar aðrar skóverksmiðj
ur landsins. Verksmiðjan leitaði
sjálf vatns til eigin nota rétt hjá
verksmiðjunni og með ágætum
árangri.
Fremst í sýningarsalnum gaf
að líta einskonar samsýningu
■verksmiðjanna á vörum, sem
fiuttar eru út. Þar var og nota-
legt „kaffihorn,“ þar sem kynnt
var hið ljúffenga Bragakaffi.
í sýningarsalnum gafst verzl-
unarfólki kostur á að gera inn-
kaup fyrir verzlanir sínar og
fyrirtæki og mun mikið hafa
verið pantað af hinum fjölþætta
iðnaði samvinnumanna. Enn-
fi-emur gafst hinum venjulegu
neytendum kostur þess, að sjá
með eigin augum, og saman-r
komið á einum stað, hið mikla
vöruval, er iðnaðarmenn og iðn
verkamenn á Akureyri hafa
framleitt, og að verulegu leyti
úr innlendu hráefni.
Sýningardeildir Gefjunar og
Heklu hlutu að vekja sérstaka
athygli, auk vara skóverksmiðj_
unnar og sútunai'ver.ksmiðjunn-
ar. Þá voru sýndar girnilegar
vörur Kjötiðnaðarstöðvarinnar,
Flóru, Sjafnar, Kaffibrennsl-
unnar, Mjólkursamlagsins og
Smjörlíkisgerðar. Ennfremur
vörur frá sútuninni og svo fata-
deild Gefjunar í Reykjavík og
Jötni s.f.
•í samvinnuverksmiðj’unum á
Akureyri vinna 7—800 manns
og að samanlögðu er þetta
stærsti hópur iðnaðar- og iðn-
verkafólks hér á landi. Og þéss-
ar verksmiðjur, fyrst og fremst,
hafa gert Akureyri að mesta,
hlutfallslega, iðnaðarbæ lands-
ins og Akureyringa beztu iðn-
verkamennina.
Til marks um útflutninginn
frá verksmiðjum samvinnu-
manna á Akureyri má nefna,
að verið er að framleiðá ullar-
vörur upp í samnirig við Sovét-
ríkin, en samningsupphæðin er
nær 100 millj. kr. En vörur verk
smiðjanna eru seldar í möi'gum
löndum og nýrra markaða stöð-
ugt leitað.
Lokaorð forstjóra SÍS við
setningu iðnstefnunnar á Akur-
eyri voru þessi:
„Ég sagði í upphafi máls míns,
að við minnumst í dag, við setn
ingu þessarar iðnstefnu, að viss
um áföngum hefur verið náð í
uppbyggingu iðnaðar Sambands
ins. Það, sem gerði þessa upp-
byggingu mögulega var sæmi-
lega hagstæður rekstur verk-
smiðjanna á árinu 1969. Stefnt
er að því, að áframlialdandi up >
bygging í iðnaði á vegum sam
vinnufélaganna geti átt sér stai .
Ný verkefni eru í athugur,
Framtíðarþróunin byggist þ >
mest á þvi, að verðbólguskrið;,
kippi ekki fótum undan þessai .
starfsemi. Því miður virðis í
ekki bjart framundan í þein,:
efnum. Flestir kostnaðarliði :
eru stórhækkandi og það er frá
leit ályktun, að hækkun á fisk ■
verði erlendis réttlæti hækku ,
Þótt ýmsir möguleikar séu fyri
á reksturskostnaði í iðnaðinun
hendi, að bæta reksturinn inna ,
frá með aukinni vinnuhagræð ■
ingu og meiri tækni, er þett •
þó vissum takmörkum háð. Ni .
þegar hafa verið gerð stór átö :
í samvinnuverksmiðjunum ;,
'þessu. sviði. Markaðsöflan o,,
sölustarfsemin er mjög þýðing
armikill þáttur. Þennan þái i
verður að styrkja. Koma þarf ;i
fót skipulegri þjálfun starísfólk i
í öllum verksmiðjunum. Ranr •
sóknarstarfsemi þarf ao auk ,
Nýjar vörur þarf að íramleið; ,
Verkefnin eru mörg og stó ,
Samvinnufélögin munu reyr, :
að leysa þessi verkefni a ser .
farsælastan hátt. Ég vil að lok •
um þakka öllum þeim, ser.\
unnið hafa að því að koma upp
þessari sýningu. Það er osk mi. ,
og von, að forráðamenn verk ■
smiðjanna megi sjá goðan áran ;
ur af iðnstefnunni í mikiili söl .
Ég óska Akureyri til hamingj .
með þá iðnaðarupptyggingi ,
sem hér hefur átt sér stað. Meg l
blessun fylgja þessum verk •
smiðjum og því fólki, sem he :
mun starfa um ókomin ár.“ Q)
Skóverksnúðj:ui sýndi þægilega, sterka og smekklega skó. (Ljósm.; E. D.)