Dagur - 28.10.1970, Qupperneq 1
Dagur
LIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 28. okt. 1970 — 44. tölublað
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstrætj 104 Akureyrl
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÓLLUN - KOPIERING
Áfengissalan hefur enn aukizt
BLAÐINU hafa borizt tölur yfir
áfengissöluna 9 mánuði þessa
árs, eða til septemberloka..
Áfengi frá Áfengis- og tóbaks
verzlun ríkisins var á þessum
tíma selt fyrir kr. 597.865.424.00
og var söluaukning í krónum
21.5%.
Sér í lagi liggja nú fyrir tölur
um áfengissöluna tímabilið 1.
júlí til 30. september, og er sal-
an á þeim tíma tæpar 230 millj.
kr. móti 190 milljónum árið
1969. Áfengissalan 1. júlí til 30.
sept. skiptist þannig:
Selt í og frá Reykjavík kr.
167.718.975.00, selt í og frá Akur
eyri kr. 24.436.635.00, selt í og
frá ísafirði kr. 6.480.670.00, selt í
og frá Siglufirði kr. 4.416.805.00,
selt í og frá Seyðisfirði kr.
6.192.780.00, selt í og frá Kefla-
vik kr. 12.000.210.00 og selt í og
frá Vestmannaeyjum kr.
8.109.070.00. □
Krisfniboðs- og æskuiýðsvika
DAGANA 1. til 8. nóvember, að
báðum dögum meðtöldum, verð
ur haldin kristniboðs- og æsku
lýðsvika í Kristniboðshúsinu
Zíon. Þar verður fjölbreytt dag
KYNNING Á
OSTARÉTTUM
HARALDUR Gíslason forstöðu
maður Mjólkursamlags Kaup-
félags Þingeyinga sagði blaðinu
í gær, að K. Þ. gengist fyrir osta
kynningu á Húsavík 4. nóvem-
ber og á Laugum 5. nóvember,
tvær kynningar þann dag.
Margrét Kristinsdóttir hús-
mæðrakennari kynnir hina
mörgu rétti, er þarna er um að
ræða.
Þetta eru fyrstu ostakynning
ar hjá okkur. En þann 3. nóvem
ber hefur KEA ostakynningu á
Akureyri. □
skrá á hverju kvöldi. Sýndar
verða nýjar myndir frá starfinu
á kristniboðsakrinum í Eþíópíu,
m. a. frá Gídole, en það er ein
kristniboðsstöðin í S.-Eþíópíu
og er hún önnur „íslenzka" stöð
in þar. Hin er stöðin í Konsó.
Stöðvarstjóri í Gídole er Skúli
Svavarsson frá Akureyri. Þá
verða fluttir frásöguþættir um
ýmis efni m. a. við hæfi ungl-
inga.
Ræðumenn vikunnar verða:
Gunnar Sigurjónsson cand.
theol, Rvík, Benedikt Arnkels-
son cand. theol., Rvík, sr. Bolli
Gústafsson, Laufási, sr. Sigfús
J. Árnason, Miklabæ, sr. Þór-
hallur Höskuldsson, Möðruvöll-
um, Friðrik Schram verzl.m.,
Rvík.
Auk framangrinds verður svo
mikill almennur söngur. Allar
samkomurnar byrja kl. 8.30.
Kristniboðsfélag kvenna,
K.F.U.M. og K.F.U.K.
Prestskosningar
TALIN hafa verið í skrifstofu
biskups, atkvæði í þrem prest-
kosningum.
Um Hveragerðisprestakall
sótti séra Tómas Guðmundsson,
fyrrum prestur á Patreksfirði.
Á kjörskrá voru 877, atkvæði
greiddu 409, umsækjandi hlaut
400 atkvæði, 9 seðlar voru auðir
og kosningin ólögmæt, þar eð
umsækjandi þarf að fá helming
atkvæða miðað við fjölda á kjör
skrá.
Slippstöðin á Akureyri og umhverfi hennar.
Tvö fyrirtæki í vanda stödd
Um Ólafsvíkurprestakall sótti
séra Ágúst Sigurðsson, sóknar-
prestur í Vallanes. Á kjörskrá
voru 823, atkvæði greiddu 387,
auðir seðlar voru 8. Kosningin
var ólögmæt.
Um Reykhólaprestakall sótti
séra Sigurður H. Guðmundsson,
settur prestur þar. Á kjörskrá
voru 276, atkvæði greiddu 194,
umsækjandi hlaut 191 atkvæði,
en 3 seðlar voru auðir. Kosn-'
ingin var lögmæt. □
TVÖ stórfyrirtæki á Akureyri
eru nú í sérstökum vanda stödd.
Annað þeirra er Útgerðarfélag
Akureyringa h.f., en hitt er
Slippstöðin h.f.
Útgerðarfélagið hefur lengi
haft endurnýjun veiðiskipa
sinna á dagskrá, en því miður
ekki ráðist í hana. Nú hefur
það loks ákveðið að efna
til skipakaupa og sótti í því
skyni um einn hinna sex skut-
togara, sem ríkisstjórnin loks
ákvað að beita sér fyri að út-
vega, en það mál hefur verið
mörg ár á döfinni.
Smíði þessara togara var boð
in út og á grundvelli tilboðs frá
Spáni, var samið um smíði fjög-
urra togaranna þar, en yfir
standa viðræður eða samningar
um smíði fimmta togarans fyrir
Ú. A. við Slippstöðina á Akur-
eyri, ennfremur sjötta togarans,
sem Súlur h.f. á Akureyri vilja
kaupa. Allt eru þetta um 1000
tonna skip.
Spánartogararnir eru smíðað-
ir fyrir fyrirfram ákveðið verð,
sagðir seldir undir kostnaðai'-
verði. Og talið er, að hvergi
fáist eins hagstæð kaup slíkra
skipa.
Ú. A. hefur eindregið óskað
þess, að fá skip sitt smíðað hér
á Akureyri, hjá Slippstöðinni.
Hætt er við, eða raunar sýni-
legt, að sá togari verður dýr-
ari en hinir Spánarsmíðuðu.
Vandi Ú. A. stafar af þeim þegn
skap, að vilja láta annað fyrir-
tæki á Akureyri levsa hið stóra
verkefni í endurnýjun togar-
anna og greiða það verk hærra
verði en á Spáni. En vandi
Slippstöðvarinnar í samkeppni
við Spánverja liggur í því, að
Spánartogai'arnir eru boðnir
undir kostnaðarverði. En hér á
landi fær skipasmíðaiðnaðurinn
litla fyrirgreiðslu, miðað við
þarfir ungrar iðngreinar.
Frá sjónarhóli hinna almennu
skattborgara á Akureyri, sem
eiga Útgerðarfélagið og bærinn
rekur, á Ú. A. að gera eins hag
(Framhald á blaðsíðu 7)
FISKIKASSAR
SJÁLFSBJÖRG, félag fatlaðra
á Akureyri, framleiðir plast-
hluta til raflagna. Um næstu
áramót mun félagið einnig hefja
framleiðslu á fiskikössum úr
polyéthylen-efni.
Þessi framleiðsla fer fram í
húsakynnum Sjálfsbjargar,
Bjargi við Hvannavelli.
Sjónvarpssjúklingar?
Kjördæmisþing Framsóknarmanna
helsi í Akureyri 7. nóvember næst!
KJÖRDÆMISÞING Framsókn
armanna í Norðurlandskjör-
dæmi eystra, verður sett í Hótel
Varðborg á Akureyri laugardag
inn 7. nóvember n. k. kl. 10 ár-
degis, og mun enn óráðið, hvort
því lýkur þann dag eða þann
BANASLYS
Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ
bar það við á Hömrum II við
Akureyri, að 21 árs gamall
piltur, Grétar Stefánsson, lézt
af slysförum.
I (Frá lögreglunni)
næsta. En það getur, auk þing-
starfanna, farið eftir veðri og
samgöngum á þeim tíma.
Síðdegis á föstudag kemur
stjórn sambandsins saman til
fundar. En henni ber m. a. að
semja ábendingarlista, sem not-
aðir eru sem kjörseðlar við kjör
næstu sambandsstjórnar og mið
stjórnarfulltrúa . sambandsins,
sem kosnir eru á þinginu. Einn-
ig ber henni að leggja ályktunar
tillögur fyrir þingið.
Eitt af aðalmálum kjördæmis
þingsins verður að taka til með
ferðar tillögur tólf manna nefnd
ai', sem nú er starfandi um skip
un framboðslista í kjördæminu
í alþingiskosningum á næsta
vori. En samkvæmt ákvörðun
kjördæmisþings í fyrra, lét
nefndin fara fram skoðana-
könnun til undirbúnings fram-
boðinu.
Formaður sambandsstjórnar
ei' Eggert Ólafsson í Laxárdal í
Þistilfirði, en formaður fram-
boðsnefndar er Baldvin Baldurs
son á Rangá í Kinn. En í fram-
boðsnefnd eru þrír fulltrúar úr
hverju hinna gömlu kjördæma.
Um þessar mundir fer fram
kosning þingfulltrúa í hinum
ýmsu Framsóknarfélögum í kjör
dæminu, þar sem þeir hafa ekki
þegar verið kosnir. □
FRÉTTARITARI blaðsins á
Skagaströnd sagði í gær:
Skipasmíðar eru í undirbún-
ingi, nokkuð af efni komið til
smíðanna, en nauðsynlega fyrir
greiðslu vantar.
Atvinnulífið er í daufara lagi
eins og er því að fremur lítið
fiskast, bátarnir í viðgerð og
gæftir stopular. Bátur leitar nú
að hörpudiski hér í flóanum og
bíða margir spenntir eftir
árangrinum.
Lógað var 9.840 fjár hér í
haust og var það veruleg at-
vinnuaukning meðan á því stóð.
Fólk glápir hér endalaust á
sjónvarp og mér finnst sumt
fólk hálfgerðir sjónvarpssjúkl-
ingar. □
Svalbarðskirkja flutt
til Akureyrar
UM hádegi í gær vol'u tveir
kranar og öflugur dráttarvagn
við gömlu kirkjuna á Svalbarði
á Svalbarðsströnd. Hefur þessu
aldna og fornfálega guðshúsi
verið búinn staður þar sem fyrr
um stóð kirkja í Innbænum á
Akureyri. □
Konum kynntir ostaréttir
í JÚNÍMÁNUÐI sl. efndi Kaup
félag Eyfirðinga, í samvinnu við
Osta- og smjörsöluna, til osta-
kynninga fyrir húsmæður á fé-
lagssvæðinu. Frú Margrét Krist
insdóttir, húsmæðrakennari,
kynnti húsmæðrum ýrnsar teg-
undir osta og sýndi tilbúning
nokkurra ostarétta, sem þátt-
takendum gafst síðan tækifæri
til að bragða á. Kaffiveitingar
voru síðan fram bornar, en þær
500 húsmæður, sem þá sóttu
þessa 8 kynningarfundi létu hið
bezta yfir. Þar eð .nær allir þess
ir fundir fóru fram síðari hluta
dags, gátu margar konur ekki
sótt þá vegna atvinnu sinnar.
Nú gefst þeim og öðrum hús-
mæðrurn tækifæri til að bæta
hér um, því að næstkomandi
þriðjudagskvöld kl. 20.30 mun
svipuð ostakynning verða að
Ilótel KEA. — (Sjá auglýsingu)