Dagur - 09.12.1970, Síða 1
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
TöSuverðar skemmdir í rokinu
í ROKINU í gær fuku á all-
mörgum stöðum þakplötur af
húsum og aðrar losnuðu. Ein
bifreið varð fyrir skemmdum af
fjúkandi braki. Slökkvilig að-
Stoðaði með kranabíl sínum við
að festa þakplötur, er voru að
losna.
Rafmagnstruflanir urðu í
fyrrinótt og árdegis í gær og
mun samsláttur á línum hafa
valdið því og e. t. v. líka áfok.
Vegna raforkutruflana var
Gagnfræðaskólanum lokað og
barnaskólum einnig hér á Akur
eyri.
Jólatré fauk um koll við Ak-
ureyrarkirkju. Eitthvað mun
hafa fokið af heyi í nágrenni
bæjarins, og við Lónsbrú var
töluvert af bárujárni, sem ekki
var vitað hvaðan var. □
Húnaveliir, skóli A.-Húnvetninga
ÞANN 7. nóv. sl. var hinn nýi
heimavistarskóli þeirra Austur-
Húnvetninga, Húnavellir, form
lega vígður. Skólinn tók til
starfa fyrir ári síðan, og fyrir-
hugaðri byggingu er hvergi
nærri lokið enn. Eftir er sá hlut
inn, þar sem fram eiga að fara
íþróttir og sund, svo og mötu-
neyti. Þá er eftir að byggja
íbúðir starfsfólks, annarra en
kennara.
SELJA FISK
FYRIR FÆREYINGA
STJÓRN Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna staðfesti nýlega,
að dótturfyrirtæki S. H. ætli að
taka að sér fisksölu í Banda-
ríkjunum fyrir Foröyja fisksöla
í Færeyjum. En þetta færeyska
fyrirtæki hefur selt á Banda-
ríkjamarkað 5—6 þús. tonn af
frystum fiski á ári undanfarið.
Aðilar að Föröya fiskasöla
eiga 17 hraðfrystihús, en fyrir-
tækið er byggt upp á svipaðan
hátt og Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna. Föröya fiskasöla L/F,
eða FFS, er stærsti útflutnings
aðili á frystum fiski og saltfiski
frá Færeyjum.
Nemendur í skólanum nú eru
114, á aldrinum 9—14 ára. 76
nemendur eru í skólanum í
einu, það er 38 unglingar 13 og
14 ára í tveim deildum, eru all-
an tímann, eða 7 mánuði. Fara
aðeins heim um helgar. Hin
börnin, 9, 10, 11 og 12 ára, eru
til skiptis, þannig að aðra vik-
una eru 9 og 10 ára börn, en
hina 11 og 12 ára, en þau eru
alls 8 mánuði samtals.
Við skólann kenna 4 fastir
kennarar, með skólastjóra, sem
er Sturla Kristjánsson. Auk
þess eru 2 stundakennarar. Mat
ráðskona er Björk Kristófers-
dóttir, og með henni starfa 4
stúlkur.
Sex hreppar Austur-Húna-
vatnssýslu standa að skólanum.
Skólabyggingin mun þegar hafa
kostað um 38 millj. kr. Ríkið
greiðir 75% byggingarkostnað-
ar, en viðkomandi hreppsfélög
um 25%. Skólinn stendur um
20 km. frá Blönduósi. □
„Snjókötturmn“ er afburðagott farartæki.
(Ljósrn.: E. D.>
Verður „Snjókötturinn" seldur burtu?
NÝLEGA var auglýstur til sölu
„Snjóköttur" sá, sem Baldur
Sigurðsson keypti og standsetti
fyrir um það bil ári síðan. En
„Snjókötturinn“ er öflugur
snjó- og dráttarbíll, ætlaður til
heimskautaferða.
Farartæki þetta var síðan not
að í fyrravetur í Hlíðarfjalli hér
við Akureyri og einnig voru
farnar á snjóbíl þessum nokkr-
ar ferðir upp á miðhálendið sl.
vetur. í ferðum þessum kom í
ljós að fá eða engin íarartæki
munu taka þessum bíl fram í
ferðalögum að vetri til um
erfiðar slóðir í misjöfnum veðr-
um og færi hér norðanlands,
bæði í byggð og óbyggðum.
Væri því afleitt ef svo illa
færi, að farartæki þettfe yrði
selt burt úr héraði. Er því þeirri
áskorun beint til bæjar- og
sýsluyfirvalda, Almannavarna
hér norðanlands, svo og hjálpar
stofnana, eins og Slysavarna-
félags fslands, Flugbjörgunar-
sveitarinnar, skátanna og hlið-
stæðra aðila, að þeir beiti sér
fyrir því að „Snjókötturinn“
verði áfram hér norðanlands og
tryggi þannig, að þetta öryggis-
tæki verði tiltækt ef óhöpp
verða í byggð eða óbyggðum,
þar sem önnur tæki komast
ekki að.
□
Við erunt læknislausir í veiur
Raufarliöfn 7. des. Hér er með
öllu snjólaust, sunnan gola og
hláka. Vegir eru vel færir, a.
m. k. jeppum og vörubílum.
Samgöngur eru því með betra
móti. Annars eru engar fastar
ferðir til okkar nema í lofti
SútunarverksmiSjan á SauSárkróki
Askell Snorrason.
SÚTUN AR VERKSMIÐ J AN
nýja á Sauðárkróki hefur starf-
að um mánaðar skeið. Fram-
kvæmdastjóri hennar er Þráinn
Þorvaldsson, og áætlar hann, að
100 þús. gærur verði sútaðar á
þessu ári en helmingi fleiri á
næsta ári. Stefnt er að því að
framleiða pelsaskinn, en fyrst
verða gærurnar aðeins loðsút-
aðar og sumar litaðar. Um 20
manns starfa við sútunina.
Þráinn Þorvaldsson segir m.
a. í viðtali við Einherja:
Mesta magnið af gærum til
verksmiðjunnar kemur héðan
úr Skagafirði. Þetta eru ágætar
gærur, samt nokkuð smáar. En
við eigum í erfiðleikum með
gulu gærurnar og illhærur, sem
mikið er af. Við væntum mikils
af þeim sauðfjárræktartilraun-
um, sem Stefán Aðalsteinsson
vinnur að. í vetur munum við
taka til vinnslu gærur af til-
raunabúunum og í samráði við
Stefán gera sérstaka athugun á
því, hvernig þær nýtast í
vinnslu. En ég veit, að það sem
þarf að verða í framtíðinni, er
fyrst og fremst mat á gærunum,
þar sem hver bóndi fær afrakst
ur erfiðis síns. □
Fiskurinn er ekki nefndur á nafn
Áskell Snorrason látinn
ÁSKBLL Snorrason tónskáld
varð bráðkvaddur í Reykjavík
4. desember, 82ja ára.
Hann var fæddur á Öndólfs-
stöðum í Reykjadal 5. des. 1888,
en löngum kenndur við Þverá
í Laxárdal, sonur Snorra Jóns-
sonar bónda þar og Aðalbjargar
Jónasdóttur. Jónas bróðir hans
býr þar enn, hreppstjóri sinnar
sveitar. Kona Áskels Snorra-
sonar var Elísabet Guðrún
•Kristjánsdóttir frá Birningsstöð
um í Ljósavatnshreppi, nýlátin.
Áskell var nokkur ár bóndi á
föðurleifð sinni, en síðan söng-
kennari fyrst á Húsavík en síð-
an á Akureyri, allt frá árinu
1919 og þar til hann fluttist
suður til Reykjavíkur. Hann
var kjörinn til margra trúnaðar
starfa á Akureyri og eftir hann
liggur talsvert af rituðu máli.
En fyrst og fremst var hann
tónskáld og munu tónverk hans
lengi lifa. □
Hrísey 7. des. Við höfum ekki
séð fisk og tæplega heyrt nefnd
an fisk um mánaðarskeið. Ekki
er það nú björgulegra en þetta.
Margir karlmenn hafa vinnu
við byggingar, en konurnar
enga, enda eru þær nú að fara
á kaf í jólaundirbúningi. Verst
þykir sumum að fá ekki rjúpur
á jólunum. En þær er hvergi
að fá. Og enginn drepur rjúpu
í eynni þótt hægt væri. En það
vill nú svo til, að hér hefur
engin rjúpa sézt í vetur og
þykir okkur það miður því að
rjúpan er okkar fugl og á hér
griðland.
Hér virðist vera ævintýra-
F ramsóknarf l.happdr.
ÞEIR, sem hafa fengið heim-
senda miða, vinsamlegast gerið
skil sem allra fyrst til skrifstof-
unnar, Hafnarstræti 90, eða á
afgreiðslu Dags. Skrifstofan er
opin frá 9—19 virka daga. Þá
mó einnig gera skil til næsta
umboðsmanns í viðkomandi
sveitarfélagi. Dregið verður 23.
desember. □
laust með öllu og nokkur deyfð.
En jólin eru þó framundan hér,
eins og allsstaðar. S. F.
einu sinni í viku, á sunnudög-
um.
Ekki eru gæftir fyrir minnstu
bátana, enda búið að setja þá
flesta. Dekkbátar hafa lítinn
afla fengið. Jökull er í söluferð
með 80 tonn.
Atvinna var sæmileg í sumar
og fram í september, en síðan
misjöfn og stopul. Hún byggist
að mestu á aflanum, sem hefur
að verulegu leyti brugðizt.
Menn hafa gengið til rjúpna
en ekkert fengið.
Við erum læknislausir nú í
vetur, og erum því illa settir og
mun verr en fyrirfarandi ár.
Má það furðulegt heita, að heil-
ir landshlutar þurfi að vera án
læknisþjónustu. En enginn
læknir er frá Vopnafirði til
Húsavíkur. En hvenær sem er,
geta leiðir á landi lokast og
mikil vandræði skapast í heil-
brigðismálum. H. H.
Stórgrýti í hafnargarð á Skaga
SVEITARSTJÓRINN á Skaga-
strönd, Þorfinnur Bjarnason, og
fleiri þar vestra sögðu blaðinu
eftirfarandi á mánudaginn:
Tveir bátar veiða hörpudisk,
sem fannst hér úti í flóanum,
en aflinn er ekki mikill, enda
veðráttan með fádæmum óstillt.
Hólanesið vinnur aflann og
þetta er alveg lostæti, enda í
háu verði til útflutnings. En afl
inn þyrfti að vera meiri. Þriðji
báturinn býr sig undir skelfisk-
veiðarnar.
Trésmiðja Guðmundar Lárus
sonar er að hefja smíði tveggja
fiskibáta úr eik.
Verið er að kaupa til Skaga-
strandar 220 tonna togskip frá
Noregi.
Verið er að styrkja hafnar-
garðinn með stórgrýti frá Tjörn
ó Skag».
Snjólaust má heita. Beitar-
jörð hefur verið sæmileg fyrir
fé en ekki notazt sem skyldi
vegna storma og umhleypinga.
FRAMBOÐSLISTINN
í REYKJAVÍK
Á LAUGARDAGINN var fram
boðslisti Framsóknarmanna í
Reykjavík ákveðinn á fundi
fulltrúaráðs.
Tólf efstu sætin skipa: Þórar-
inn Þórarinsson, Einar Ágústs-
son, Tómas Karlsson, Baldur
Óskarsson, Kristján Friðriks-
son, Halldóra Sveinbjarnardótt
ir, Solveig Adda Pétursdóttir,
Þorsteinn Geirsson, Þorsteinn
Ólafsson, Alvar Óskarsson,
Fríða Björnsdóttir og Pétur
Sörlason. Q