Dagur - 17.04.1971, Side 1
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyrl
Sími 12771 • P.O. Box 397
SErverzlun:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
Drukku lyrir 18 milljónir
á aSeins þrem mánuðum
•AKUREYRINGAR drukku
áfengi fyrir rúmar 18 milljónir
■króna þrjá fyrstu mánuði árs-
ins og er það 5 milljónum meira
en á sama tíma í fyrra. Þess
ber þó að geta, að áfengi hækk-
aði allmikið í verði á sl. ári.
Þetta kemur fram í skýrslu
frá ÁTVR, sem blaðinu hefur
borizt. Þar segir ennfremur, að
frá áramótum til marzloka í ár,
hafi verið selt áfengi í og frá
•Reykjavík fyrir rúmar 165
millj., en 127 í fyrra. Ef áfengis-
salan á hinum ýmsu stöðum á
landinu er tekin í röð, þá kem-
ur útsalan í Keflavík næst á
eftir Akureyri. Þar var selt
fyrir tæpar 12 milljónir, síðan
Vestmannaeyjar með tæpar 8
milljónir. Þá ísafjörður með 5
milljónir. Á Siglufirði var selt
áfengi fyrir rúmar 3 milljónir
og á Seyðisfirði fyrir tæpar 4
mílljónir. Aukningin síðan í
fyrra er svipuð hlutfallslega á
öllum stöðunum, og þess ber að
geta, að allar tölurnar eru mið-
aðar við tímabilið 1. janúar til
31. marz. □
Gaffalbitar til Rússa
HJÁ Niðursuðuverksmiðju
Kristjáns Jónssonar & Co., er
nú verið að vinna kryddsíld í
Miiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii 1111111111111 iiiiiiiimiimi
!„Hjá því verður ekkij
| horft, að verðbóiga j
| hefur verið hér á landi j
| meira en tvöfalf örari j
len í nokkru nálægui
[landi og einnig all-l
1 miklu meiri en áratug-1
1 inn á undan.” j
i (Jóhannes Nordal á árs- §
i fnndi Seðlabankans, 7. i
i apríl s.l.). i
Ólafur Jóhannesson.
gaffalbita, sem fara eiga á Rúss
landsmarkað. Nýr samningur
var gerður við Rússa í lok marz
og er hlutur niðursuðuverk-
smiðjunnar í honum um 7000
kassar af gaffalbitum, sem eiga
að vera tilbúnir fyrir maílok.
Síldin sem lögð er niður, er
Suðurlandssíld, sem flutt hefur
verið norður úr ýmsum áttum,
en mest frá Hornafirði.
Um 60 stúlkur vinna nú í
verksmiðjunni, en um mánaða-
mótm verður þeim fjölgað upp
í um 100. í júníbyrjun verður
svo farið að leita að smásíld-
inni. □
Harðbakur fékk 330 tonn í síðustu veiðiferð.
(Ljósm.: Ásgrímur)
Munu Akureyringar eignest bókabíl?
AMTSBÓKASAFNIÐ lánaði út
99.100 bindi á sl. ári, og er þ^ð
heldur minna, en árið á undan.
Hins vegar bendir aðsóknin að
safninu, það sem af er þessu
ári, til þess, að talsverð aukn-
ing verði í ár, að sögn Lárusar
Zóphoníassonar bókavarðar, er
Flenzan tefur fiskvinnuna
FIMMTÁNDA flokksþing Fram
sóknarflokksins var sett í Há-
skólabíói í gærkvöldi, föstudag.
Þingið stendur til þriðjudags-
kvölds og er öllum opið.
Við setningu þingsins flutti
formaður flokksins, Ólafur Jó-
hannesson, ræðu, en síðan fóru
fram ýmis skemmtiatriði. í dag
verða fluttar skýrslur og kosn-
ar fastanefndir þingsins. Á
Siglufirði 15. apríl. Hér er það
helzt að frétta, að afli hjá tog-
bátunum er ágætur og togarinn
Hafliði kom í dag með 250 tonn
eftir viku veiðiferð. Þá kom
Hafnarnes í fyrradag með 75
tonn eftir 4 daga. Þetta er sæmi
legur fiskur, en nokkuð bland-
aður. Dagný kom með 150 lestir
nýlega, en komst ekki að og fór
með aflann til Færeyja og er að
selja þar núna. Grásleppuveiðin
er heldur treg, en vel veiðist af
rauðmaga. Markaður fyrir
hann er hins vegar lítill, svo
hann er fluttur til Reykjavíkur,
en eitthvað fer þó í vinnslu hér
og fiskbúðir.
Þessi fiskur allur skapar að
sjálfsögðu næga atvinnu, en
inflúenzan kemur í veg fyrir,
að fólk geti komið til vinnu,
eins og þyrfti. Skólabörn hafa
heldur ekki farið varhluta af
flenzunni, þannig að allt að V:s
hóist í gær
sunnudaginn hefjast nefndar-
störf og standa eins lengi og
þörf krefur fram eftir-deginum
og á mánudaginn verða mál af-
greidd og kosið verður í mið-
stjórn flokksins, fimmtán menn
og varamenn. Þinginu lýkur
svo síðari hluta þriðjudags, en
á miðvikudaginn verður síðan
haldinn aðalfundur miðstjórn-
ar. Þingfundir verða haldnir í
Súlnasal Hótel Sögu. □
nemenda er veikur og kennar-
ar líka.
Um veður og færð er það að
segja, að hér er lítill snjór á
okkar mælikvarða og vegir fær
ir um allar sveitir. J. Þ.
Sjónvarp
ÍSLENZKA sjónvarpið gerir á
miðvikudaginn, síðasta vetrar-
dag, fyrstu tilraun sína til að
sjónvarpa samtímis atburði,
sem gerist utanhúss. Hér er um
að ræða þann sögulega atburð,
er fyrstu handritinu koma
heim. Sjónvarp hefst því á mið-
vikudagsmorguninn laust fyrir
kl. 11, en þá gengur sendinefnd
Danmerkur á land úr danska
herskipinu „Vædderen11 með
Flateyjarbók og Konungsbók
Eddukvæða í höndumun. Við
þetta tækifæri flytja þeir Jó-
hann Hafstein forsætisráðherra
og fulltrúi dönsku sendinefnd-
arinnar ávörp. □
Bændaklíibbsfundur
verður haldinn í Hótel Varð-
borg mánudaginn 19. apríl. Um-
ræðuefni: Kynbætur og naut-
griparækt. Frummælandi Magn
ús Jónsson ráðunautur. Ath.
Fundurinn er í Varðborg.
Venjulegur fundartími. Q
blaðið heitaði frétta hjá hon-
um.
Lárus sagði, að ekki væri
nein ástæða til að kvarta. því
það þætti gott, ef bókasafn lán-
aði að meðaltali 6 bindi á ári á
hvern íbúa, en tölur síðasta árs
sýndu, að hér væru þau um 9.
1900 bindi bættust við bóka-
kost safnsins á árinu og laus-
lega er áætlað, að safnið eigi
um 50 þús. bindi.
Síðan Amtsbókasafnið flutt
ist í nýju bókhlöðuna í nóvem-
ber 1968, hefur skapazt mun
betri aðstaða fyrir böm, enda
koma þau mun meira í safnið
nú. Skráðir gestir lestrarsalar-
ins á sl. ári voru 9000.
Um vinsælustu höfundana
sagði Lárus, að erfitt væri að
dæma, þar sem höfundar ættu
mjög mismörg verk, en hins
vegar sagði hann að mest lán-
uðu bækurnar á sl. ári væru
tvímælalaust „Leigjandinn" eft-
ir Svövu Jakobsdóttur og
„Kristnihald undir Jökli“ eftir
Laxness.
í haust tók safnið upp þá ný-
breytni að gera fólki mögulegt
að panta bækur, sem ekki væru
við, og' hefðu viðskiptavinir
notað sér það vel. Þá var safnið
haft til reynslu opið í vetur á
sunnudögum milli 1 og 4 og var
það sæmilega sótt, sérstaklega
af skólafólki.
Um framtíðaráform sagði
Lárus að endingu, að það væri
draumur að safnið eignaðist
bókabíl, þótt rekstrargrundvöll-
ur væri varla fyrir hann strax.
Karl prins
í landhelgi
VARÐSKIPIÐ Þór tók á mið-
vikudagsmorguninn brezta tog-
arann „Prince Charles“ frá
Hull, þar sem hann var staddur
langt innan við landhelgislín-
una út af Þistilfirði. Ekki var
togarinn þó að veiðum, heldur
með ólöglegan útbúnað veiðar-
færa.
Þór kom með togarann til
Akureyrar um kvöldið og var
málið tekið fyrir strax og af-
greitt með dómssátt. Skipstjór-
inn var dæmdur í 175 þúsund
króna sekt og gert að greiða
einnig sakarkostnað. Q
Fimrn bátar stunda
nú bákarlaveiðarnar
FIMM bátar stunda nú hákarla-
veiðar frá Vopnafirði og munu
tveir væntanlega bætast við
bráðlega. Fyrstu línurnar voru
lagðar í febrúar—marz og hafa
nú verið teknar á land 10—12
skepnur, Eru þetta vænstu stór-
hákarlar og mun átan af hverj-
um vera til jafnaðar um 400
kg. en veiðimenn fá um 200 kr.
fyrir kílóið.
Hákai'labátsrnir eru flestir
S—7 trwmn triilubátar, Þoár
leggja línuna og láta hana svo
liggja og vitja ekki um, nema
annað slagið. Þegar hákarl er á,
er hann tekinn á land og skor-
inn niður í beitur, og fást 15—
16 beitur úr hverjum. Síðan er
hann kasaður í trékössum, und-
ir fargi í einar 3 vikur, en þá
tekinn og hengdur upp. Úr
þessu verður svo hið mesta
lostæti, sem selt er í matvöru-
verzlunum um land allt á lúxus
varuvsrðl. Q