Dagur - 17.04.1971, Page 1

Dagur - 17.04.1971, Page 1
FILMU HÚSIÐ Hafnarstræti 104 Akureyrl Sími 12771 • P.O. Box 397 SErverzlun: LJÖSMYNDAVÖRUR FRAMKÖLLUN - KOPIERING Drukku lyrir 18 milljónir á aSeins þrem mánuðum •AKUREYRINGAR drukku áfengi fyrir rúmar 18 milljónir ■króna þrjá fyrstu mánuði árs- ins og er það 5 milljónum meira en á sama tíma í fyrra. Þess ber þó að geta, að áfengi hækk- aði allmikið í verði á sl. ári. Þetta kemur fram í skýrslu frá ÁTVR, sem blaðinu hefur borizt. Þar segir ennfremur, að frá áramótum til marzloka í ár, hafi verið selt áfengi í og frá •Reykjavík fyrir rúmar 165 millj., en 127 í fyrra. Ef áfengis- salan á hinum ýmsu stöðum á landinu er tekin í röð, þá kem- ur útsalan í Keflavík næst á eftir Akureyri. Þar var selt fyrir tæpar 12 milljónir, síðan Vestmannaeyjar með tæpar 8 milljónir. Þá ísafjörður með 5 milljónir. Á Siglufirði var selt áfengi fyrir rúmar 3 milljónir og á Seyðisfirði fyrir tæpar 4 mílljónir. Aukningin síðan í fyrra er svipuð hlutfallslega á öllum stöðunum, og þess ber að geta, að allar tölurnar eru mið- aðar við tímabilið 1. janúar til 31. marz. □ Gaffalbitar til Rússa HJÁ Niðursuðuverksmiðju Kristjáns Jónssonar & Co., er nú verið að vinna kryddsíld í Miiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii 1111111111111 iiiiiiiimiimi !„Hjá því verður ekkij | horft, að verðbóiga j | hefur verið hér á landi j | meira en tvöfalf örari j len í nokkru nálægui [landi og einnig all-l 1 miklu meiri en áratug-1 1 inn á undan.” j i (Jóhannes Nordal á árs- § i fnndi Seðlabankans, 7. i i apríl s.l.). i Ólafur Jóhannesson. gaffalbita, sem fara eiga á Rúss landsmarkað. Nýr samningur var gerður við Rússa í lok marz og er hlutur niðursuðuverk- smiðjunnar í honum um 7000 kassar af gaffalbitum, sem eiga að vera tilbúnir fyrir maílok. Síldin sem lögð er niður, er Suðurlandssíld, sem flutt hefur verið norður úr ýmsum áttum, en mest frá Hornafirði. Um 60 stúlkur vinna nú í verksmiðjunni, en um mánaða- mótm verður þeim fjölgað upp í um 100. í júníbyrjun verður svo farið að leita að smásíld- inni. □ Harðbakur fékk 330 tonn í síðustu veiðiferð. (Ljósm.: Ásgrímur) Munu Akureyringar eignest bókabíl? AMTSBÓKASAFNIÐ lánaði út 99.100 bindi á sl. ári, og er þ^ð heldur minna, en árið á undan. Hins vegar bendir aðsóknin að safninu, það sem af er þessu ári, til þess, að talsverð aukn- ing verði í ár, að sögn Lárusar Zóphoníassonar bókavarðar, er Flenzan tefur fiskvinnuna FIMMTÁNDA flokksþing Fram sóknarflokksins var sett í Há- skólabíói í gærkvöldi, föstudag. Þingið stendur til þriðjudags- kvölds og er öllum opið. Við setningu þingsins flutti formaður flokksins, Ólafur Jó- hannesson, ræðu, en síðan fóru fram ýmis skemmtiatriði. í dag verða fluttar skýrslur og kosn- ar fastanefndir þingsins. Á Siglufirði 15. apríl. Hér er það helzt að frétta, að afli hjá tog- bátunum er ágætur og togarinn Hafliði kom í dag með 250 tonn eftir viku veiðiferð. Þá kom Hafnarnes í fyrradag með 75 tonn eftir 4 daga. Þetta er sæmi legur fiskur, en nokkuð bland- aður. Dagný kom með 150 lestir nýlega, en komst ekki að og fór með aflann til Færeyja og er að selja þar núna. Grásleppuveiðin er heldur treg, en vel veiðist af rauðmaga. Markaður fyrir hann er hins vegar lítill, svo hann er fluttur til Reykjavíkur, en eitthvað fer þó í vinnslu hér og fiskbúðir. Þessi fiskur allur skapar að sjálfsögðu næga atvinnu, en inflúenzan kemur í veg fyrir, að fólk geti komið til vinnu, eins og þyrfti. Skólabörn hafa heldur ekki farið varhluta af flenzunni, þannig að allt að V:s hóist í gær sunnudaginn hefjast nefndar- störf og standa eins lengi og þörf krefur fram eftir-deginum og á mánudaginn verða mál af- greidd og kosið verður í mið- stjórn flokksins, fimmtán menn og varamenn. Þinginu lýkur svo síðari hluta þriðjudags, en á miðvikudaginn verður síðan haldinn aðalfundur miðstjórn- ar. Þingfundir verða haldnir í Súlnasal Hótel Sögu. □ nemenda er veikur og kennar- ar líka. Um veður og færð er það að segja, að hér er lítill snjór á okkar mælikvarða og vegir fær ir um allar sveitir. J. Þ. Sjónvarp ÍSLENZKA sjónvarpið gerir á miðvikudaginn, síðasta vetrar- dag, fyrstu tilraun sína til að sjónvarpa samtímis atburði, sem gerist utanhúss. Hér er um að ræða þann sögulega atburð, er fyrstu handritinu koma heim. Sjónvarp hefst því á mið- vikudagsmorguninn laust fyrir kl. 11, en þá gengur sendinefnd Danmerkur á land úr danska herskipinu „Vædderen11 með Flateyjarbók og Konungsbók Eddukvæða í höndumun. Við þetta tækifæri flytja þeir Jó- hann Hafstein forsætisráðherra og fulltrúi dönsku sendinefnd- arinnar ávörp. □ Bændaklíibbsfundur verður haldinn í Hótel Varð- borg mánudaginn 19. apríl. Um- ræðuefni: Kynbætur og naut- griparækt. Frummælandi Magn ús Jónsson ráðunautur. Ath. Fundurinn er í Varðborg. Venjulegur fundartími. Q blaðið heitaði frétta hjá hon- um. Lárus sagði, að ekki væri nein ástæða til að kvarta. því það þætti gott, ef bókasafn lán- aði að meðaltali 6 bindi á ári á hvern íbúa, en tölur síðasta árs sýndu, að hér væru þau um 9. 1900 bindi bættust við bóka- kost safnsins á árinu og laus- lega er áætlað, að safnið eigi um 50 þús. bindi. Síðan Amtsbókasafnið flutt ist í nýju bókhlöðuna í nóvem- ber 1968, hefur skapazt mun betri aðstaða fyrir böm, enda koma þau mun meira í safnið nú. Skráðir gestir lestrarsalar- ins á sl. ári voru 9000. Um vinsælustu höfundana sagði Lárus, að erfitt væri að dæma, þar sem höfundar ættu mjög mismörg verk, en hins vegar sagði hann að mest lán- uðu bækurnar á sl. ári væru tvímælalaust „Leigjandinn" eft- ir Svövu Jakobsdóttur og „Kristnihald undir Jökli“ eftir Laxness. í haust tók safnið upp þá ný- breytni að gera fólki mögulegt að panta bækur, sem ekki væru við, og' hefðu viðskiptavinir notað sér það vel. Þá var safnið haft til reynslu opið í vetur á sunnudögum milli 1 og 4 og var það sæmilega sótt, sérstaklega af skólafólki. Um framtíðaráform sagði Lárus að endingu, að það væri draumur að safnið eignaðist bókabíl, þótt rekstrargrundvöll- ur væri varla fyrir hann strax. Karl prins í landhelgi VARÐSKIPIÐ Þór tók á mið- vikudagsmorguninn brezta tog- arann „Prince Charles“ frá Hull, þar sem hann var staddur langt innan við landhelgislín- una út af Þistilfirði. Ekki var togarinn þó að veiðum, heldur með ólöglegan útbúnað veiðar- færa. Þór kom með togarann til Akureyrar um kvöldið og var málið tekið fyrir strax og af- greitt með dómssátt. Skipstjór- inn var dæmdur í 175 þúsund króna sekt og gert að greiða einnig sakarkostnað. Q Fimrn bátar stunda nú bákarlaveiðarnar FIMM bátar stunda nú hákarla- veiðar frá Vopnafirði og munu tveir væntanlega bætast við bráðlega. Fyrstu línurnar voru lagðar í febrúar—marz og hafa nú verið teknar á land 10—12 skepnur, Eru þetta vænstu stór- hákarlar og mun átan af hverj- um vera til jafnaðar um 400 kg. en veiðimenn fá um 200 kr. fyrir kílóið. Hákai'labátsrnir eru flestir S—7 trwmn triilubátar, Þoár leggja línuna og láta hana svo liggja og vitja ekki um, nema annað slagið. Þegar hákarl er á, er hann tekinn á land og skor- inn niður í beitur, og fást 15— 16 beitur úr hverjum. Síðan er hann kasaður í trékössum, und- ir fargi í einar 3 vikur, en þá tekinn og hengdur upp. Úr þessu verður svo hið mesta lostæti, sem selt er í matvöru- verzlunum um land allt á lúxus varuvsrðl. Q

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.