Dagur - 17.04.1971, Síða 6
6
Ég vil fella ríkisstjórnina og
því kýs ég F ramsóknarf lokkinn
SEGIR DNGI SJOMAÐDRINN
VIÐ hittum aS máli á föstudag-
inn langa, Guðmund Ingólfsson,
matsvein á m/s Oddgeiri frá
Grenivík.
Hvaðan róið þið Guðmund-
ur?
Við leggjum upp í Grindavík
og róum með net.
Hvað getur þú sagt mér um
aflabrögðin?
Þau hafa verið frekar slæm.
Við erum húnir að fiska rúm
500 tonn frá 6. janúar, og ef
1 EFTIRFARANDI grein gerir
kunnugur maður, Gunnlaugur
Jónsson á Sunnuhvoli í Bárðar-
dal, grein fyrir þeim möguleika
að byggja tvö raforkuver við
Skjálfandafljót, annað þar sem
Fljótinu væri veitt í íshólsvatn,
en hitt við 100 m. fallhæð úr
vatninu. Grein Gunnlaugs fer
hér á eftir:
í bókinni Náttúra íslands má
sjá, að vatnasérfræðingurinn
Sigurjón Rist telur vatnsmagn
lindánna er renna í Skjálfanda-
fljót vera 40—50 teningsmetra
á sekúndu, allt árið, en það er
aðalvatn Skjálfandafljóts yfir
veturinn. Er því ekki fjarri, að
þetta rennsli sé það sama og í
Laxá.
Séu svo athugaðar hæðarmæl
ingar Þorvalds Thoroddsen,
kemur í ljós, að fallið frá mynni
Sandár, þar sem hún fellur í
Skjálfandafljót, og niður að ís-
hólsvatni er 33 metrar. En við
Sandá er stífla þvert yfir Krók-
dalinn, er steypt var fyrir 7 þús
und árum, að áliti Sigurðar
Þórarinssonar jarðfræðings.
Innan við hana hefur myndazt
gríðarmikið stöðuvatn, sem
Fljótið hefur ræst fram að
nokkru, en að öðru leyti fyllt
upp, svo þar er undirlendi all-
mikið.
í þessum stóra dal haldast
við örnefni eins og bæjarnafnið
Sandmúli, þar sem „gangsilfrið“
fannst fyrir einum mannsaldri.
í skarði því, sem Fljótið hef-
ur sorfið í þessa gömlu stíflu,
er bihð að mæla fyrir annarri
nýrri, í því augnamiði að veita
Skjálfandafljóti í Svartárvatn
og ætti stíflan því ekki að vera
lægri en vatnið, svo frá henni
og niður að íshólsvatni væru
því 41 m., en með 45 tenings-
metra rennsli ætti það að gefa
13.579 kílówött rafmagns, eða
ríflega 1000 kw. meira en nú-
verandi Laxárvirkjanir.
Þar sem sagt er, að ekki þurfi
jarðgöng til að veita Skjálfanda
fljóti í íshólsvatn, og stórt og
djúpt stöðuvatn tekur við öllum
sandburði, jakahlaup eru engin
þar suður frá og vatnið yrði
áreiðanlega undir ís allan vetur
inn, finnst mér athugandi fyrir
stjórn Laxárvirkjunar, hvort
ekki sé betra að flytja virkjun-
arframkvæmdir þar suður, en
vera við Laxá, þar sem þær
koma aldrei að notum, því svo
rækilega eru Laxárbændur bún
ir að undirstrika það, að Laxá
verði varin og þeir hafa til þess
aðstöðu, vit og vilja, að standa
við það fyrirheit,
páskahrotan bregst, eins og nú
horfir, má segja, að útlitið sé
ekki beint glæsilegt, því að eins
og stendur er algjör ördeyða,
aflinn undir fjórum tonnum í
róðri hjá flestum Grindavíkur-
bátum.
Hver er nú hlutur þinn úr
þessum rúmum 500 tonnum?
Ég reikna með að hann losi
100 þúsund krónur.
Hvað segir þú um útfærslu
landhclginnar í 50 mQur næsta
Sannast að segja finnst mér
ekki ástæða til annars, en afl-
stöðvar framtíðarinnar verði
við Skjálfandafljót, þar sem 100
metra fallið niður frá vatninu
er eftir, þótt hitt yrði notað,
niður að því.
Hvað mættu Austfirðingar
gefa fyrir aðra eins aðstöðu,
þar sem rennsli Lagarfljóts fer
niður í 4 teningsmetra á sek-
úndu, sem eru ekki nema 4%
þess sem þarf, því ráðgerð afl-
stöð þeirra fer með 98 tenings-
metra til að geta framleitt 12600
kílówött.
Þó ráðgert sé að geyma vatn
í svo stórum stíl frá sumrinu,
að Lögurinn verði þrisvar sinn-
um stærri en Mývatn, nægir
það ekki nema 19 sólarhringa.
Vatnasérfræðingurinn telur
hins vegar, að vatnsþurrðar-
tímabilið geti skipt mánuðum,
svo það virðist treyst á hláku-
vatn yfir veturinn.
Gunnlaugur Jónsson.
FYRIR skömmu voru hér á
vegum Brunamálastofnunar
ríkisins, tveir menn og aðstoð-
uðu við þjálfun í reykköfun hjá
slökkviliði Akureyrar.
Þjálfunin beindist aðallega að
kerfisbundinni leit í húsum
með björgun á mannslífum og
leit að eldi að markmiði.
Við reykköfun eru notaðar
reykgrímur með loftkútum og
endist loftið allt að 45 mín.
Ég tel, að það sé lífsnauðsyn
fyrir okkur íslendinga að land-
helgin verði færð út í 50 mílur
a. m. k., eins fljótt og auðið er,
og að stjómmálaflokkarnir
standi saman um þá fram-
kvæmd. En eins og málum virð-
ist háttað finnst mér mikið
vanta á um slíka samstöðu.
Stjórnarflokkarnir þora ekki að
láta til skarar skríða í málinu,
heldur slá því á frest. Ég tel að
allur frestur geti komið okkur
í koll síðar. Einkum ættum við
að keppa að því, að útfærsla
landhelginnar komi til fram-
kvæmda áður en alþjóðlegur
fundur um þessi mál verður
haldinn að 2 eða 3 árum liðn-
um.
Fylgir þú einhverjum ákveðn
um stjórnmálaflokki að málum?
Nei. Ég er ekki ánægður með
neinn þessarra flokka, veit ekki
einu sinni hvernig ég kysi í vor,
væri ég ekki á kjörskrá í Norð-
urlandskjördæmi eystra. Þar
sem ég legg höfuðáherzlu á að
fella ríkisstjórnina, virðist mér
Framsóknarflokkurinn koma
helzt til greina, þar sem barátt-
an stendur á milli hans og Al-
þýðuflokksins eftir að Alþýðu-
bandalagið klofnaði, einnig
ræður val frambjóðenda þar
nokkru um.
Hefur þú trú á að margir
hugsi líkt og þú í þessu efni?
Það veit ég ekki, en ekki
þætti mér það ólíklegt þegar á
allt er litið.
Er þetta í fyrsta skipti, er þú
mátt kjósa til Alþingis?
Ég er fæddur það seint á ár-
inu 1946, að ég hafði ekki öðlazt
kosningarétt við síðustu alþing-
iskosningar.
Dagur þakkar Guðmundi við-
talið og vonast til að páska-
hrotan bregðist honum ekki eða
öðrum, er sjóinn sækja. □
Aldrei eru sendir færri en
tveir menn saman í reykköfun
og fylgjast þeir ætíð að.
Þjálfunin fór fram á Slökkvi-
stöðinni og í gömlu húsi. Var
það fyllt af reyk og í því leitað
að gúmmídúkkum sem þar
voru faldar.
Þjálfun þessi stóð í þrjá daga.
(Fréttatilkynning)
Starfsmaður
ÓSKAST, SEM FYRST.
SANA HF. - Akureyri
Frá Sveinafélagi
jámiðnaðarmanna
Félagsmenn, sem óska eftir að dvelja í orlofshúsi
féiagsins í sumar, hafi sem fyrst samband við
Þráin Karlsson, sími 1-21-29.
ar:
Tvær virkjanir í
Skj álfandaflj óti
Þjálfun í reykköfun
ATVINNA!
Fatagerð J.M.J. vill ráða mann við fatapressun
oo' stúlkur við saumastörf. Ynsfri en 20 ára koma
ekki til greina.
Uppl. í síma 1-24-40.
„ Þ R I F ”
TÖFRAEFNIÐ
TIL HREINGERNINGA
KJORBÚÐIR KEA
„TEPPASJAMPO"
Blandið 1 hluta sjampo móti 9
hlutum vatns
Berið á með teppahreinsara
TEPPIN VERÐA SEM NÝ
KJORBÚÐIR KEA
RENAULT
RENNUR ÚT
RENAULT 4
RENAULT 6
RENAULT 12
Ódýr, spameytinn og
öruggur.
Fyrir íslenzkar aðstæður
sérstaklega.
Stærri hjól. — Sterkara
rafkerfi. — Hlífðarpanna
á undirvagni.
RENAULT 16
• LEITIÐ FREKARI UPPLÝSINGA.
KLAPPARSTIG 25-27 SÍMI 22675 ®
UMBOD A AKUREVRI
AIBERT VAIDEMARSSON KAIDBAKSGÖTU
SÍMI 1-25-51 - HEIMASÍMI 2-12-24