Dagur - 17.04.1971, Síða 7

Dagur - 17.04.1971, Síða 7
7 Ræklun sumarblómanna að hefjasl SUMARBLÓM eru almennt kölluð einærar jurtir. Sáð er til þeirra síðari hluta vetrar, inni eða í sólreiti, stundum úti á vorin. Æviskeið þeirra er ekki lengra en 6—9 mánuðir. Er því nauðsynlegt að endurnýja þess- ar jurtir árlega með fræsán- ingu. Rétt er að geta hinna svo- kölluðu tvíæru jurta. Til þeirra er sáð í júlí og þær síðan dreif- settar í sólreiti eða kassa og haldið síðan í þeim lífinu yfir veturinn. Næsta sumar bera þær blóm og deyja svo að fullu komandi haust. Venjulegt ævi- skeið þeirra er því 12—15 mán- uðir. Hér á landi eru ræktaðar á annað hundrað tegundir sumar blóma auk fjölda afbrigða. Fræ- valið ætti því að fara fram í samráði við garðyrkjumenn, vegna þess, að meðal alþekktra tegunda er hægt að velja á milli margra afbrigða sömu tegund- SVANBJÖRN Frímannsson hef ur verið skipaður bankastjóri Seðlabankans og tekur hann við starfi 1. maí n. k. Er hann skipaður í stað Sigtryggs heit- ins Klemenzsonar. Svanbjörn Frímannsson er fæddur árið 1903. Hann hóf störf við íslandsbanka árið 1920 og við Landsbanka íslands frá 1936. Hann hefur verið banka- stjóri við Landsbankann frá 1957. Svanbjörn Frímannsson gegndi störfum seðlabanka- stjóra í forföllum Sigtryggs .Klemenzsonar árið 1969. Á fundi bankaráðs Lands- banka íslands í síðustu viku var Helgi Bergs framkvæmda- stjóri ráðinn bankastjóri Lands bankans í stað Svanbjörns Frí- .mannssonar frá 1. maí n. a. að telja. DANSLEIKUR verður í Sólgarði miðvikudaginn 21. apríl (síðasta vetrar- dag) og hefst kl. 22. Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar, Skagafirði, leikur fyrir dansi. Sætaferðir frá Sendibíla- stöðinni, Akui'eyri. U.M.F. Saurbæjarhrepps. ar, sem ekki eru einungis breytileg að stærð, heldur hafa mismunandi blómgunartíma, blómalit og blómastærð. Bráðþroska tegundum er hægt að sá beint í garðinn, en öðrum tegundum er sáð inni í kassa, í jurtapotta, í vermireiti eða gróðurhús. Hvar sem fræ- inu er sáð, ber brýna nauðsyn til þess, að moldin, sem sáð er í, sé vel undirbúin. Moldin þarf að vera fínmulin gróðurmold, blönduð sandi að % hluta og hæfilega bleytt. Hæfilegt er, að moldin ofan á fræjunum sé tvöfalt þykkri en fræin sjálf. Nauðsynlegt er, að halda sem jöfnustu rakastigi. Ágætt er því, að breiða dag- blaðapappír yfir sáningarílátin, unz fullspírað er. Þeim jurtum sem sáð er til inni, er venjulega dreifplantað í annað ílát með 5 cm. millibili. Þegar dreifplant- að er, má jurtin í mesta lagi hafa tvö blöð auk fræblaðanna. r Helgi Bergs er fæddur árið 1920. Hann var í bankaráði Iðn- aðarbanka íslands um skeið frá 1952—1959 og settur banka- stjóri Landsbanka íslands í 6 mánuði árið 1969. □ Ef sáð hefur verið beint í garð- inn, þarf að grisja jurtirnar sem fyrst, nema það sé um veik- byggða tegund að ræða. Venjulegur gróðursetningar- tími. án tillits til einstakra teg- unda, er frá 15. maí til 25. júní. Öll sumarblóm eru sólelsk, og ætti því að velja þeim sólríkan stað í garðinum. Venjulegt bil milli plantnanna er 15—30 cm., en getur farið niður í 10 cm. og upp í 70 cm., eftir því um hvaða tegund er að ræða og hver staða hennar er í garðinum. Þegar búið er að ganga frá gróðursetningu eða grisjun, en því ætti öllu að vera lokið fyrir júnílok, er vandasamasta starf- inu lokið. Samt verður að fylgjast með blómunum og verja þau fyrir ágangi illgresis og annarra að- vaxandi plantna, vökva þau, þegar nauðsyn ber til, og gefa þeim áburðarlög, ef moldin reynist of næringarefnasnauð. Varast skal að úða köldu vatni yfir jurtirnar heldur reyna að vökva moldina í kring um þær. Krókusar og aðrar laukjurtir fara að boða komu vorsins og senn fer í hönd mesti annatími garðeigenda og fyrr en varir hillir undir sumarið á næsta leiti með angan í lofti og ilm úr jörð. Frá Garðyrkjufélagi Akureyrar. Keppni milli skóla HÚSABAKKASKÓLI sótti okk ur heim til skíðakeppni mið- vikudaginn 31. marz sl. Var þetta í annað sinn, sem nem- endur skólanna leiða saman skíði sín, en í fyrra var keppt á Húsabakka. Keppendur nú voru um 50. Keppt var í göngu, stökki, svigi og stórsvigi. Veður til keppni var fremur óhagstætt, rigning- arsuddi með köflum. Þegar leið á stórsvigskeppnina skall á svarta þoka. Við það komst mótsstjórnin í mikinn vanda, því að tímaverðir, sem voru niður á láglendi, séu ekki rás- markið, en það var einhvers staðar uppi í Sólarfjalli. Vegna óvenju næmrar heyrnar tíma- varða svo og raddstyrk ræsis, Sveins Jónssonar, sem jafn- framt var mótsstjóri og háyfir- dómari, tókst að ljúka báðum greinum Alpa-tvíkeppninnar svo og stökki og göngu á telj- andi mistaka. Að keppni lokinni var stiginn dans af miklu fjöri Skólahljóm- sveit Árskógarskóla lék fyrir dansi. Úrslit í einstökum greinum skíðakeppninnar urðu sem hér segir: Á = Árskógarskóli. H = Húsabakkaskóli. Stökk, eldri flokkur. Stig Gunnlaugur Sigurðsson, Á 139 Svavar Marinósson, H 89 Vignir Hjaltason, Á 89 Stökk, yngri flokkur. Stig Helgi Halldórsson, H 82 Konráð Sigurðsson, Á 77 Ganga pilta, eldri fl. Tími Vignir Hjaltason, Á 8.32.0 Arnar Árnason, Á 9.46.0 (Gengið var um það bil 2Ú2 kílómetra). Ganga pilta, yngri fl. Tími Marinó Þorsteinsson, Á 10.24.5 Jón Ingi Sveinsson, Á 10.32.5 4- ÁSKELL JÓNSSON. ! t í 1 tilefni af sextugsafmœli minu, 5. apríl s.l., fœri © ég öllum vinum, frændum og samstarfsfóllii alúð- arþakkir fyrir hlýfar kveðfur og góðar gjafir. Hugheilar óskir sendi ég öllum. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN KRISTJÁNSSON frá Skógarnesi, lézt í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mið- viikudaginn 7. apríl s.l. Jarðarförin fer fram frá Árskógarkirkju laugar- daginn 17. þ. m. kl. 14.00. Þórey Einarsdóttir, dætur, tengdasynir og barnabörn. Ganga stúlkna, eldri fl. Tími Sigfríð Valdimarsd., Á 11.11.1 Sigurbjörg Snorrad., Á 12.10.0 Ganga stúlkna, yngri fl. Tími Svanfríður Sigurðard., Á 15.01.0 Jónína Sveinsbjörnsd., Á 15.33.0 Alpa-tvíkeppni stúlkna, yngri flokkur. Tími Elín Gústafsdóttir, H 1.59.4 Anna S. Hjaltad., H 2.47.5 Alpa-tvíkeppni stúlkna, eldri flokkur. Tími Guðrún Kristjánsd., H 1.40.6 Ingibjörg Þórarinsd., H 2.02.9 Alpa-tvíkeppni drengja, yngri flokkur. Tími Helgi Halldórsson, H 1.51.2 Sigurður Hreinsson, H 2.09.1 Alpa-tvíkeppni drengja, eldri flokkur. Tími Vignir Hjaltason, Á 1.34.2 Kristján Hjartarson, H 1.36.5 (Fréttatilkynning) RMR — VST — 20 — 4 — 71 _ 8i/2 — M T — B R M — H T. BRIDGEFÓLK Akureyri og ná- grenni, munið að spilað verður í Landsbankasaln- um n.k. þriðjudagskvöld kl. 8. HESTAMENN, Akureyri. Mun- ið hópreiðina á sumardaginn fyrsta. Lagt verður af stað frá Aðalstræti 23 kl. 2 e. h. Mæt- ið stundvíslega. — Stjórn Léttis. ORÐ DAGSINS. SÍMI 2-18-40. LEIKFÉLAG AKUREVRAR SANDKASSINN eftir Kent Anderson. Þýðandi: Stefán Baldurs- son. — Leikstjóri: Sig- mundur Örn Arngríms- son. Frumsýning þiiðiudags- kvöld kl. 20.30. Fastír frumsýningai'gest- ir vitji miða sinna sunnudag og mánudag kl. 15-17. " SLÖKKVISTÖÐIN — Sjúkra- bíilinn — Brunaútkall, sími 1-22-00. V ATN SHLÍÐ ARSÖFNUNIN: 1.000 kr. frá B., 1.000 frá Stef. Ás., 1.000 kr. fr. J. A. Þ., 500 kr. frá J. H., 600 kr. fr. N. N., 1.500 kr. frá P. S. og V. S., 4.000 kr. .frá fjölsk. Löngum. 10, 1.000 kr. frá H. J., 500 kr. frá H. J, 5.000 kr. frá N. N, 100 kr. frá J. D, 250 kr. frá S. B. Þ, 1.000 kr. frá Þor- steini Davíðssyni, 1.000 kr. frá hjónunum á Dvergsstöð- um, 250 kr. frá N. N, 500 kr. frá J. og Á, 500 kr. frá Skag- firðingi. KROSSNESSÖFNUNIN. Kr. 500 frá J. H, kr. 1.000 frá K. P, kr. 1.500 frá P. S. og V. S, kr. 500 frá N. N, kr. 1.000 frá Stef. Ás, kr. 500 frá Önnu og Þóru, kr. 1.000 frá B, kr. 500 frá H. J. kr. 5.000 frá N. N, kr. 14.700 frá Gissuri Hólm- geirssyni, Vallakoti, kr. 100 frá J. D, kr. 250 frá S. B. Þ, kr. 1.000 frá Þorsteini Davíðs- syni, kr. 100 frá Akureyringi, kr. 1.000 frá K. G. og G. M, kr. 1.000 frá R. S, kr. 200 frá G. B, kr. 100 frá J. D. Á, kr. 100 frá S. D. L, kr. 500 frá Þ. J, kr. 250 frá N. N, kr. 1.000 frá G. A, Akranesi, kr. 2.500 frá ýmsum, kr. 1.000 frá H. S, kr. 500 frá J. og A. SKIPAMÁLNING

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.