Dagur - 24.04.1971, Page 1

Dagur - 24.04.1971, Page 1
FILMU húsið Hafnarstrætj 104 Akureyri Sími 12771 • P.O. Box 397 SÉRVERZLUN: LJOSMYNDAVÖRUR FRAMKÖLLUN - KOPIERING KLIFRAÐI - DATT FRÁ lögreglunni er að frétta, að á miðvikudagsnóttina gerði ungur maður það sér til til- breytingar, að leggja af stað upp þakrennu símstöðvarinnar, götumegin. Var hann kominn alllangt upp, þegar hann féll niður á gangstéttina. Sjórnar- vottar hringdu á lögreglu og sjújtrabíl, sem síðan fluttu pilt á sjúkrahúsið, en ekki er vitað hvort meiðsli hans eru alvar- legs eðlis. Þriggja ára barn hljóp fyrir bíl á Hörgárbraut á miðviku- daginn, en meiðsli þess munu ekki eins alvarleg og á horfðist. Auk þessa urðu nokkrir smá- árekstrar, án slysa á fólki og tveir menn voru teknir til rann sóknar, grunaðir um ölvun við akstur. Q Ávarp vegni flóllamanna- söfnunarinnar á morgun GÓÐIR Akureyringar! Á sunnudaginn, 25. apríl, sam einast Norðurlönd í miskunnar verki fyrir hrjáðan heim. Þann dag verður skipulögð almenn fjársöfnun til hjálpar flótta- fólki. íslendingar taka að sjálf- sögðu þátt í því verki og ís- lenzka þjóðin er hvött til að liðsinna Flóttamannastofnun Okkur vantar meiri fisk Hrísey 23. apríl. Snæfell land- aði hérna 61 tonni annan páska- dlag og það er yerið að ljúka við þann fisk, og svo kom Frosti í nótt með einhvern afla, en lítinn, vegna gæftaleysis undanfarna daga. En svo vant- ar okkur meiri fisk, mikinn fisk. Grásleppuveiðin gengur óslcöp illa ennþá, bæði hér heima og hjá tveim úthöldum, sem fóru til Flateyjar til að veiða þar. Eitthvað fór af þara í netin enda mjög óstillt. S. F. Sameinuðu þjóðanna, sem hef- ur forgöngu í hjálparstarfinu og fer hin norræna söfnun fram á vegum hennar. Hvað er flóttamaður? kunna menn að spyrja. Það er sá „ein- staklingur, sem yfirgefur heim- kynni sín til að leita hælis vegna einhverrar hættu. Sú hætta kann að stafa af náttúru- hamförum, svo sem flóði eða jarðskjálfta, eða orsökin er af mannavöldum, til dæmis styrj- öld, þegar lífi eða frelsi er ógnað.“ (Úr skýrslu UNHCR). Vér sem njótum þess að eiga heimili, land og lífsafkomu, eig um erfitt með að setja oss í spor þeirra, sem sviptir eru öllu þessu. Vér erum í stórri þakk- arskuld fyrir frelsi vort og hag- sæld. Þær þakkir getum við meðal annars sýnt í verki með því að leggja fram skerf í hina norrænu söfnun. Margir hafa þegar gefið til þessa málefnis og tökum öll höndum saman um að veita þeim vernd og skjól, sem hvergi eiga höfði sínu að halla. Söfnunarnefnd í Iögsagnarumdæmi Akureyrar. ESJA BÍDUR ENN EKKI varð af því, að Esja yrði afhent eigendum sínum á sum- ardaginn fyrsta og var það vegna tæknilegs vandamáls. Gunnar Ragnars, framkvæmda- stjóri Slippstöðvarinnar, tjáði blaðinu í gær, að þegar skipið hefði verið tekið upp í slippinn fyrir skömmu, hefði komið í ljós, að eitthvað væri bogið við afstöðu vélar, öxuls og skrúfu, þannig að rétta þyrfti allt af, og ekki væri hægt að segja, hvenær því verki lyki. Allt annað í skipinu væri hins vegar tilbúið. Eitthvað verður því Ríkisskip að bíða enn eftir sum- argjöfinni frá Akureyri. □ Ólafur Jóhannesson. Arinbjörn RE 54 í reynsluför í gær. (Ljósm.: E. D.) Kjölur lagður að tveimur HJÁ SLIPPSTÖÐINNI H.F. Á AKUREYRI KJÖLUR var lagður að tveim nýjum bátum hjá Slippstöðinni í gær. Einnig voru bátarnir Arinbjörn RE 54 og Sigurberg- ur GK 212, afhentir eigendum sínum, en bátunum var hleypt af stokkunum fyrr í mánuðin- um. Bátarnir sem nú hefst smíði á, verða smíðaðir fyrir Meitil- inn h.f. í Þorlákshöfn og Hrað- frystistöð Vestmannaeyja (Ein- ar Sigurðsson). Þeir verða 105 brúttólestir að stærð og í megin dráttum eins og Sigurbergur GK, sem Slippstöðin hefur nú nýlokið smíði á. Smíði bátanna á að vera lokið í haust. Að lokinni athöfninni í gær fór Arinbjöm RE í siglingu fán- um prýddur um Akureyrarpoll, en síðan átti hann að leggja af stað suður til Hafnarfjarðar með Sigurberg í togi, en smíði hans verður endanlega lokið hjá Skipasmíðastöðinni Dröfn í Hafnarfirði. Arinbjörn RE 54 er 149 lestir. Eigandi hans er Sæfinnur h.f. í Reykjavík. Lengd skipsins er 31 metri og breidd 6.70. Það er útbúið til línu-, neta-, tog- og nótaveiða og vistarverur em í afturskipi fyrir 12 manns, e» íbúð skipstjóra er í brúnni. Skipstjóri á Arinbirni verður Birgir Guðjónsson og fyrsti vél stjóri Halldór Jónsson. Skipið fer á veiðar fljótlega. Sigurbergur GK 212 er smíð- aður fyrir samnefnt hlutafélag í Hafnarfirði. Hann er smíðaður eftir sömu teikningu og Arin- björn ,en er 4 metrum styttri og 105 lestir. Góðar óskir fylgja þessum nýju farkostum, er þeir halda héðan, strax og leiði fæst. □ Samsöngur kóra í minniugu Björgvins KÓRARNIR á Akureyri ætl- uðu að minnast afmælis Björg- vins Guðmundsonar tónskálds, sem hefði orðið áttræður 26. apríl, ef honum hefði enzt ald- ur, en hann lézt 4. janúar 1961. Ymsar ástæður, m. a. utanför Geysis, valda því, að minningar samsöngvar kóranna verða ekki haldnir fyrr en í júníbyrj- un. Það er Söngfélagið Gígjan, Geysir og Karlakór Akureyrar, Tóiuas ÁruasoB. sem saman leggja, og sameigin- lega flytja þeir þrjú lög úr stærri verkum tónskáldsins. En allir hafa kórar þessir valið ýmis lög Björgvins á söngskrár sínar, er þeir flytja á árlegum söngskemmtunum sínum á þessu ári. Q Kosin framkvæmdasljórn Framsóknarflokksins Gleðilegt sumari ! ÁRDEGIS 21. apríl kom mið- stjórn Framsóknarflokksins, en í henni eru rúmlega 100 manns, saman til aðalfundar í Reykja- vík. Þar var kjörin 14 manna framkvæmdastjórn, sem fer með stjóm flokksins milli aðal- funda miðstjórnar, sem haldnir eru einu sinni á ári. f framkvæmdastjórninni eru: Olafur Jóhannesson, formaður flokksins, Steingrímur Her- mannsson (ritari), Tómas Árna son (gjaldkeri), Einar Ágústs- sou, Srleffltlur Einarsson, Ey- steinn Jónsson, Halldór E. Sig- urðsson, Helgi Bergs, Jóhannes Elíasson, Jón Skaftason, Jónas Jónsson, Ólafur Ragnar Gríms- son, Sigríður Thorlacius og Þór- arinn Þórarinsson. í lögum Framsóknarflokks- ins segir svo að „framkvæmda- stjórnarmenn skulu vera svo settir, að þeir geti að jafnaði sótt fund á venjulegum fundar- stað, þótt eigi sé boðaður fyrr en sama dag og hann er hald- inn.“ □

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.