Dagur - 24.04.1971, Blaðsíða 1
FILMU húsið
Hafnarstrætj 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 397
SÉRVERZLUN:
LJOSMYNDAVÖRUR
FRAMKÖLLUN - KOPIERING
KLIFRAÐI - DATT
FRÁ lögreglunni er að frétta,
að á miðvikudagsnóttina gerði
ungur maður það sér til til-
breytingar, að leggja af stað
upp þakrennu símstöðvarinnar,
götumegin. Var hann kominn
alllangt upp, þegar hann féll
niður á gangstéttina. Sjórnar-
vottar hringdu á lögreglu og
sjújtrabíl, sem síðan fluttu pilt
á sjúkrahúsið, en ekki er vitað
hvort meiðsli hans eru alvar-
legs eðlis.
Þriggja ára barn hljóp fyrir
bíl á Hörgárbraut á miðviku-
daginn, en meiðsli þess munu
ekki eins alvarleg og á horfðist.
Auk þessa urðu nokkrir smá-
árekstrar, án slysa á fólki og
tveir menn voru teknir til rann
sóknar, grunaðir um ölvun við
akstur. Q
Ávarp vegni flóllamanna-
söfnunarinnar á morgun
GÓÐIR Akureyringar!
Á sunnudaginn, 25. apríl, sam
einast Norðurlönd í miskunnar
verki fyrir hrjáðan heim. Þann
dag verður skipulögð almenn
fjársöfnun til hjálpar flótta-
fólki. íslendingar taka að sjálf-
sögðu þátt í því verki og ís-
lenzka þjóðin er hvött til að
liðsinna Flóttamannastofnun
Okkur vantar
meiri fisk
Hrísey 23. apríl. Snæfell land-
aði hérna 61 tonni annan páska-
dlag og það er yerið að ljúka
við þann fisk, og svo kom
Frosti í nótt með einhvern afla,
en lítinn, vegna gæftaleysis
undanfarna daga. En svo vant-
ar okkur meiri fisk, mikinn
fisk.
Grásleppuveiðin gengur
óslcöp illa ennþá, bæði hér
heima og hjá tveim úthöldum,
sem fóru til Flateyjar til að
veiða þar. Eitthvað fór af þara
í netin enda mjög óstillt. S. F.
Sameinuðu þjóðanna, sem hef-
ur forgöngu í hjálparstarfinu
og fer hin norræna söfnun fram
á vegum hennar.
Hvað er flóttamaður? kunna
menn að spyrja. Það er sá „ein-
staklingur, sem yfirgefur heim-
kynni sín til að leita hælis
vegna einhverrar hættu. Sú
hætta kann að stafa af náttúru-
hamförum, svo sem flóði eða
jarðskjálfta, eða orsökin er af
mannavöldum, til dæmis styrj-
öld, þegar lífi eða frelsi er
ógnað.“ (Úr skýrslu UNHCR).
Vér sem njótum þess að eiga
heimili, land og lífsafkomu, eig
um erfitt með að setja oss í spor
þeirra, sem sviptir eru öllu
þessu. Vér erum í stórri þakk-
arskuld fyrir frelsi vort og hag-
sæld. Þær þakkir getum við
meðal annars sýnt í verki með
því að leggja fram skerf í hina
norrænu söfnun. Margir hafa
þegar gefið til þessa málefnis
og tökum öll höndum saman
um að veita þeim vernd og
skjól, sem hvergi eiga höfði
sínu að halla.
Söfnunarnefnd
í Iögsagnarumdæmi
Akureyrar.
ESJA BÍDUR ENN
EKKI varð af því, að Esja yrði
afhent eigendum sínum á sum-
ardaginn fyrsta og var það
vegna tæknilegs vandamáls.
Gunnar Ragnars, framkvæmda-
stjóri Slippstöðvarinnar, tjáði
blaðinu í gær, að þegar skipið
hefði verið tekið upp í slippinn
fyrir skömmu, hefði komið í
ljós, að eitthvað væri bogið við
afstöðu vélar, öxuls og skrúfu,
þannig að rétta þyrfti allt af, og
ekki væri hægt að segja,
hvenær því verki lyki. Allt
annað í skipinu væri hins vegar
tilbúið. Eitthvað verður því
Ríkisskip að bíða enn eftir sum-
argjöfinni frá Akureyri. □
Ólafur Jóhannesson.
Arinbjörn RE 54 í reynsluför í gær. (Ljósm.: E. D.)
Kjölur lagður að tveimur
HJÁ SLIPPSTÖÐINNI H.F. Á AKUREYRI
KJÖLUR var lagður að tveim
nýjum bátum hjá Slippstöðinni
í gær. Einnig voru bátarnir
Arinbjörn RE 54 og Sigurberg-
ur GK 212, afhentir eigendum
sínum, en bátunum var hleypt
af stokkunum fyrr í mánuðin-
um.
Bátarnir sem nú hefst smíði
á, verða smíðaðir fyrir Meitil-
inn h.f. í Þorlákshöfn og Hrað-
frystistöð Vestmannaeyja (Ein-
ar Sigurðsson). Þeir verða 105
brúttólestir að stærð og í megin
dráttum eins og Sigurbergur
GK, sem Slippstöðin hefur nú
nýlokið smíði á. Smíði bátanna
á að vera lokið í haust.
Að lokinni athöfninni í gær
fór Arinbjöm RE í siglingu fán-
um prýddur um Akureyrarpoll,
en síðan átti hann að leggja af
stað suður til Hafnarfjarðar
með Sigurberg í togi, en smíði
hans verður endanlega lokið
hjá Skipasmíðastöðinni Dröfn í
Hafnarfirði.
Arinbjörn RE 54 er 149 lestir.
Eigandi hans er Sæfinnur h.f. í
Reykjavík. Lengd skipsins er
31 metri og breidd 6.70. Það er
útbúið til línu-, neta-, tog- og
nótaveiða og vistarverur em í
afturskipi fyrir 12 manns, e»
íbúð skipstjóra er í brúnni.
Skipstjóri á Arinbirni verður
Birgir Guðjónsson og fyrsti vél
stjóri Halldór Jónsson. Skipið
fer á veiðar fljótlega.
Sigurbergur GK 212 er smíð-
aður fyrir samnefnt hlutafélag
í Hafnarfirði. Hann er smíðaður
eftir sömu teikningu og Arin-
björn ,en er 4 metrum styttri
og 105 lestir.
Góðar óskir fylgja þessum
nýju farkostum, er þeir halda
héðan, strax og leiði fæst. □
Samsöngur kóra í
minniugu Björgvins
KÓRARNIR á Akureyri ætl-
uðu að minnast afmælis Björg-
vins Guðmundsonar tónskálds,
sem hefði orðið áttræður 26.
apríl, ef honum hefði enzt ald-
ur, en hann lézt 4. janúar 1961.
Ymsar ástæður, m. a. utanför
Geysis, valda því, að minningar
samsöngvar kóranna verða
ekki haldnir fyrr en í júníbyrj-
un. Það er Söngfélagið Gígjan,
Geysir og Karlakór Akureyrar,
Tóiuas ÁruasoB.
sem saman leggja, og sameigin-
lega flytja þeir þrjú lög úr
stærri verkum tónskáldsins. En
allir hafa kórar þessir valið
ýmis lög Björgvins á söngskrár
sínar, er þeir flytja á árlegum
söngskemmtunum sínum á
þessu ári. Q
Kosin framkvæmdasljórn
Framsóknarflokksins
Gleðilegt
sumari
!
ÁRDEGIS 21. apríl kom mið-
stjórn Framsóknarflokksins, en
í henni eru rúmlega 100 manns,
saman til aðalfundar í Reykja-
vík. Þar var kjörin 14 manna
framkvæmdastjórn, sem fer
með stjóm flokksins milli aðal-
funda miðstjórnar, sem haldnir
eru einu sinni á ári.
f framkvæmdastjórninni eru:
Olafur Jóhannesson, formaður
flokksins, Steingrímur Her-
mannsson (ritari), Tómas Árna
son (gjaldkeri), Einar Ágústs-
sou, Srleffltlur Einarsson, Ey-
steinn Jónsson, Halldór E. Sig-
urðsson, Helgi Bergs, Jóhannes
Elíasson, Jón Skaftason, Jónas
Jónsson, Ólafur Ragnar Gríms-
son, Sigríður Thorlacius og Þór-
arinn Þórarinsson.
í lögum Framsóknarflokks-
ins segir svo að „framkvæmda-
stjórnarmenn skulu vera svo
settir, að þeir geti að jafnaði
sótt fund á venjulegum fundar-
stað, þótt eigi sé boðaður fyrr
en sama dag og hann er hald-
inn.“ □