Dagur - 08.05.1971, Page 7
7
- Á DAGSKRÁ
(Framhald af blaðsíðu 5).
stoð ýmist í formi lána eða
áhættufjármagns í formi hluta-
fjár. Slík grundvallarbreyting
virðist enn frekar koma til
greina þegar skoðuð er staða
ferðamálasjóðs, sem samkvæmt
núverandi lögum er eini stofn-
lánasjóður atvinnugreinarinn-
ar, en er í rauninni einskis
megnugur sem slíkur.
Virðist einsýnt, að jafnhliða
endurlífgun ferðamálasjóðs í
einhverju formi, sem er í raun-
inni ein af megin forsendum
fyrir frekari þróun íslenzkra
ferðamála, verði jafnhliða
þeirri endurskipulagningu að
marka honum víðara útlána-
svið, með því að heimila lán-
veitingar til annarra þátta ferða
málanna, því að fleira getur
verið fjárfesting í þágu ferða-
mála, heldur en gisti- og veit-
ingahús. Væri í rauninni ekki
óeðlilegt að endurskipulögðum
férðamálasjóði yrði ætlaður
staður innan bankakerfisins í
nánum tengslum við málastofn-
un eða framkvæmdafélag, sem
væri ábyrgt fyrir allri hinni við
skiptalegu framkvæmd ferða-
mála, en liti aðeins formlegri
yfirstjórn ráðherra. Skipulags-
lega séð, mætti hugsa sér að
staða slíkra samtaka eða stofn-
unar yrði sambærileg eins og
t. d. Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna gagnvart sjávarútvegs
málaráðherra og annarra sam-
bærilegra aðila. Þá er rétt að
fara örfáum orðum um það
hverjar væru helztu fjáröflunar
leiðir í sambandi við endur-
skipulagðan ferðamálasjóð. Um
það skulu ekki gerðar neinar
fastmótaðar tillögur, en á það
bent, að ekki væri óeðlilegt, að
fjárveitingavaldið hlúði að þess
ari nýju atvinnugrein og mæti
hana meir en því sem nemur
einni milljón króna á fjárlögum
árlega. Er ekki þar með sagt,
að fjármagnsþörfin yrði alltaf
jafn mikil, en hætt er við að á
næstu árum verði hún veruleg,
t. d. í fimm eða sex ár. Auð-
vitað kæmu aðrar leiðir til
greina, eins og t. d. ákveðinn
hundraðshluti af tekjum Frí-
hafnarinnar í Keflavík, ákveð-
inn hluti hagnaðar af Ferða-
Faðir minn,
ARI ÞORGILSSON,
lézt að heimili sínu, Sökku, Svarfaðardal, 6. maí.
Halldór Arason.
PÉTUR BJARNASON, skósmíðameistari,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
5. maí. — Járðarför hans fer fram frá Akureyrar-
kirkju 12. maí kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Bjarni Jónsson.
Móðir mín,
HJÖRDÍS HINRIKSEN,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að-
faranótt 7. maí. Jarðarförin ákveðin síðar.
Henry Hinriksen.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu
okkur samúð og vináttu við andlát og útför
BJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Sólvöllum 15.
Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsliði
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir góða
hjúkrun og umönnun.
Sigríður Guðmundsdóttir,
Guðmundur Guðmundsson,
Gunnar Guðmundsson.
Þökkum innilega auðsýnda sarnúð og vináttu við
andlát og útför
HELGA STEFÁNSSONAR,
Þórustöðum, Eyjafirði.
Sigurbjörg Elíasdóttir,
Anna Helgadóttir, Baldur Sigurðsson,
Jónína Helgadóttir, Sigurður Viðar Sigmundsson,
Ragnar Helgason, Guðrún Sigurðardóttir,
Stefán Helgason, Helga Alfreðsdóttir,
Örlygur Helgason, Margrét Sigfúsdóttir,
Birgir Helgason, Olufine Thorsen,
Sigurpáll Helgason,
og barnabörn.
skrifstofu ríkisins, ákveðinn
hundraðshluti af gjaldeyrissölu
til ferðamanna eða af keyptum
gjaldeyri af erlendum ferða-
mönnum, og ákveðinn hluti af
þeim hluta söluskatts sem að
einhverju leyti má rekja til sölu
til erlendra ferðamanna. Á
þessar leiðir er m. a. bent í
nefndaráliti er minnzt var á hér
að framan, og er þess að vænta
að opinberir aðilar taki afstöðu
til þess áður en langt um líður
— eftir töluverðan drátt. Ótalin
er sú leið, sem lauslega var
minnzt á hér að framan, að fylli
lega er hugsanlegt að leita
mætti náinnar samvinnu við er-
lendar lánastofnanir í sambandi
við uppbyggingu íslenzkra
ferðamála, og eru þess mörg
dæmi í öðrum löndum og kæmi
þá bæði til greina áhættufjár-
magn í formi hlutafjár, svo og
lán til langs tíma og það mætti
líka hugsa sér, að vegafram-
kvæmdir, sem sannarlega er
snar þáttur ferðamála, yrði
hluti af þeirri mynd. Allt þetta
þarf nánar að skýrast og kann-
ast, en engin niðurstaða fæst, ef
hennar er ekki leitað. Því mið-
ur hefur orðið verulegur mis-
brestur á því og forysta opin-
berra aðila verið langt frá því
sem skyldi. Hafa of mörg tæki-
færi verið látin ónotuð síðustu
árin, og er það miður. Hvorki
í þessum málum né öðrum er
þess að vænta að við fáum allt
fært á silfurfati — við þurfum
að leggja fram þrotlaust starf
og hugmyndaflug til að veru-
legum árangri verði náð. Ég er
sannfærður um að ef íslenzk
ferðamál verða tekin föstum
tökum á næstunni, verður þess
ekki langt að bíða að árangur
komi í ljós. □
12-13 ára STULKA
óskast til að gæta barns
í sumar.
Uppl. í Norðurbyggð 10,
niðri.
12-13 ára STÚLKA
óskast til barnagæzlu í
O
sumar.
Uppl. í síma 1-28-98.
Átta ára DRENGUR
óskar eftir að komast á
sveitaheimili í sumar.
Uppl. í síma 1-18-71.
ATVINNA!
Heildverzlun á Akureyri
vantar duglegan mann
til pökkunar og út-
keyrslu á vörum. —
Þeir sem vilja sinna
þessu eru beðnir að
leggja nöfn sín í
pósthólf 140, Akureyri.
11-12 ára TELPA ósk-
ast til barnagæzlu í súm-
ar.
Uppl. í Stafholti 5, niðri,
að sunnan.
SVEITAVINNA í
NOREGI!
Ungur máður (um tví-
tugt), vanur siveitastörf-
um. óskast ábú í Noregi.
Nánari uppl. gefur
Tryggvi á Rútsstöðum,
Eyjafirði.
RMR — VST — 11 — 5 — 71
— 8i/2 — FL — BM — HV.
I.O.G.T. stúkan Brynja nr. 99.
Fundur verður mánudaginn
10. maí kl. 21.00 í félags-
heimili templara -- Varðborg.
Venjuleg fundarstörf. Hag-
nefndaratriði. —• Æ.t.
I.O.G.T. stúkan Akurliljan nr.
275. Félagar mætið sunnudag
9. maí kl. 2 e. h. í Akurhlíð.
— Æ.t.
HJÚKRUNAR-
iKONUR! Fundur
I verður að Kristnes-
hæli mánudaginn 10.
maí kl. 21. Farið frá
Hótel KEA kl. 20.30. —
Stjórnin.
ORÐ DAGSINS, SÍMI 2-18-40.
SLÖKKVISTÖÐIN — Sjúkra-
bíllinn — Brunaútkall sími
1-22-00.
TILKYNNING. — Göngudeild
handlækningadeildar F.S.A.
verður framvegis opin á
þriðjudögum og fimmtudög-
um frá kl. 10.00 f. h. fyrir
sjúklinga, sem eftirlits þurfa
eftir aðgerðir eða slys. Yfir-
læknir deildarinnar hefir mót
töku fyrir sjúklinga eftir til-
vísun heimilislækna sömu
daga frá kl. 12.30. Panta má
viðtal eða eftirlit á göngu-
deild í síma 11053 kl. 10.00 til
12.00 alla virka daga. Slysa-
þjónusta deildarinnar er sem
áður opin allan sólarhring-
inn. — Fjórðungssjúkrahúsið.
verður slitið fimmtudaginn 13. maí n.k. kl. 20.30.
Kaffi og kvöldvaka f. 4. b. á eftir í Skíðahótelinu.
Akureyri, 7. maí 1971.
SKÓLASTJÓRI.
Gæzlukonur
óskast til starfa við leikvelli bæjarins í sumar.
ráðningartími er frá 21 maí n.k. — Skriflegar lugn-
sóknir skulu sendar leikvallanefnd á skrifstofu
Akureyrarbæjar fyrir 15. maí n.k.
Óskað er eftir upplýsingum um aldur og fyrri
störf.
Stúlkur yngri en 18 ára verða ekki ráðnar.
LEIKVALLANEFND.
Bifreiðavai rahlutir
I YMSAR TEGUNDIR.
Vélapakkningar Rafgeymar
Stimpilihringar Rafgeymakaplar
(RAMGO) Rafmagnsvír
Kveikjuhlutir Leiðsluskór
Kerti, CHAMPION Straumlokur
Vatnshosur Ljósasamlokur
Viftureimar Ljósaperur
Olíu- og loftsiur Þurrkublöð
Hljóðkútar Þurrkuteinar
Púströr Móðúviftur
Púst.röraefni, , 6, 12 og 24 v
Spenmur og festingar Snjókeðjur
Kúplingsdiskar Boxerplast
Bardahl Vatnslásar
H raðamæl issn úrur Vatnsdælusett
Hurðapakkningar MILLION ein-
Hemlaborðar Höggdeyfar angrunarband
— Þrýstislöngur — og tengi —
í WILLYS JEEP
Gírkassahlutir, sektorar og m. fleira.
Fljót og góð afgreiðsla.
Allar pantanir sendar samdægurs.
ÞÓRSHAMAR H.F. - varahlutaverzlun
- AKUREYRI - SÍMI: (96) 1-27-00.