Dagur


Dagur - 08.05.1971, Qupperneq 7

Dagur - 08.05.1971, Qupperneq 7
7 - Á DAGSKRÁ (Framhald af blaðsíðu 5). stoð ýmist í formi lána eða áhættufjármagns í formi hluta- fjár. Slík grundvallarbreyting virðist enn frekar koma til greina þegar skoðuð er staða ferðamálasjóðs, sem samkvæmt núverandi lögum er eini stofn- lánasjóður atvinnugreinarinn- ar, en er í rauninni einskis megnugur sem slíkur. Virðist einsýnt, að jafnhliða endurlífgun ferðamálasjóðs í einhverju formi, sem er í raun- inni ein af megin forsendum fyrir frekari þróun íslenzkra ferðamála, verði jafnhliða þeirri endurskipulagningu að marka honum víðara útlána- svið, með því að heimila lán- veitingar til annarra þátta ferða málanna, því að fleira getur verið fjárfesting í þágu ferða- mála, heldur en gisti- og veit- ingahús. Væri í rauninni ekki óeðlilegt að endurskipulögðum férðamálasjóði yrði ætlaður staður innan bankakerfisins í nánum tengslum við málastofn- un eða framkvæmdafélag, sem væri ábyrgt fyrir allri hinni við skiptalegu framkvæmd ferða- mála, en liti aðeins formlegri yfirstjórn ráðherra. Skipulags- lega séð, mætti hugsa sér að staða slíkra samtaka eða stofn- unar yrði sambærileg eins og t. d. Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna gagnvart sjávarútvegs málaráðherra og annarra sam- bærilegra aðila. Þá er rétt að fara örfáum orðum um það hverjar væru helztu fjáröflunar leiðir í sambandi við endur- skipulagðan ferðamálasjóð. Um það skulu ekki gerðar neinar fastmótaðar tillögur, en á það bent, að ekki væri óeðlilegt, að fjárveitingavaldið hlúði að þess ari nýju atvinnugrein og mæti hana meir en því sem nemur einni milljón króna á fjárlögum árlega. Er ekki þar með sagt, að fjármagnsþörfin yrði alltaf jafn mikil, en hætt er við að á næstu árum verði hún veruleg, t. d. í fimm eða sex ár. Auð- vitað kæmu aðrar leiðir til greina, eins og t. d. ákveðinn hundraðshluti af tekjum Frí- hafnarinnar í Keflavík, ákveð- inn hluti hagnaðar af Ferða- Faðir minn, ARI ÞORGILSSON, lézt að heimili sínu, Sökku, Svarfaðardal, 6. maí. Halldór Arason. PÉTUR BJARNASON, skósmíðameistari, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 5. maí. — Járðarför hans fer fram frá Akureyrar- kirkju 12. maí kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Bjarni Jónsson. Móðir mín, HJÖRDÍS HINRIKSEN, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að- faranótt 7. maí. Jarðarförin ákveðin síðar. Henry Hinriksen. Hjartans þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför BJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Sólvöllum 15. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsliði Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir góða hjúkrun og umönnun. Sigríður Guðmundsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Gunnar Guðmundsson. Þökkum innilega auðsýnda sarnúð og vináttu við andlát og útför HELGA STEFÁNSSONAR, Þórustöðum, Eyjafirði. Sigurbjörg Elíasdóttir, Anna Helgadóttir, Baldur Sigurðsson, Jónína Helgadóttir, Sigurður Viðar Sigmundsson, Ragnar Helgason, Guðrún Sigurðardóttir, Stefán Helgason, Helga Alfreðsdóttir, Örlygur Helgason, Margrét Sigfúsdóttir, Birgir Helgason, Olufine Thorsen, Sigurpáll Helgason, og barnabörn. skrifstofu ríkisins, ákveðinn hundraðshluti af gjaldeyrissölu til ferðamanna eða af keyptum gjaldeyri af erlendum ferða- mönnum, og ákveðinn hluti af þeim hluta söluskatts sem að einhverju leyti má rekja til sölu til erlendra ferðamanna. Á þessar leiðir er m. a. bent í nefndaráliti er minnzt var á hér að framan, og er þess að vænta að opinberir aðilar taki afstöðu til þess áður en langt um líður — eftir töluverðan drátt. Ótalin er sú leið, sem lauslega var minnzt á hér að framan, að fylli lega er hugsanlegt að leita mætti náinnar samvinnu við er- lendar lánastofnanir í sambandi við uppbyggingu íslenzkra ferðamála, og eru þess mörg dæmi í öðrum löndum og kæmi þá bæði til greina áhættufjár- magn í formi hlutafjár, svo og lán til langs tíma og það mætti líka hugsa sér, að vegafram- kvæmdir, sem sannarlega er snar þáttur ferðamála, yrði hluti af þeirri mynd. Allt þetta þarf nánar að skýrast og kann- ast, en engin niðurstaða fæst, ef hennar er ekki leitað. Því mið- ur hefur orðið verulegur mis- brestur á því og forysta opin- berra aðila verið langt frá því sem skyldi. Hafa of mörg tæki- færi verið látin ónotuð síðustu árin, og er það miður. Hvorki í þessum málum né öðrum er þess að vænta að við fáum allt fært á silfurfati — við þurfum að leggja fram þrotlaust starf og hugmyndaflug til að veru- legum árangri verði náð. Ég er sannfærður um að ef íslenzk ferðamál verða tekin föstum tökum á næstunni, verður þess ekki langt að bíða að árangur komi í ljós. □ 12-13 ára STULKA óskast til að gæta barns í sumar. Uppl. í Norðurbyggð 10, niðri. 12-13 ára STÚLKA óskast til barnagæzlu í O sumar. Uppl. í síma 1-28-98. Átta ára DRENGUR óskar eftir að komast á sveitaheimili í sumar. Uppl. í síma 1-18-71. ATVINNA! Heildverzlun á Akureyri vantar duglegan mann til pökkunar og út- keyrslu á vörum. — Þeir sem vilja sinna þessu eru beðnir að leggja nöfn sín í pósthólf 140, Akureyri. 11-12 ára TELPA ósk- ast til barnagæzlu í súm- ar. Uppl. í Stafholti 5, niðri, að sunnan. SVEITAVINNA í NOREGI! Ungur máður (um tví- tugt), vanur siveitastörf- um. óskast ábú í Noregi. Nánari uppl. gefur Tryggvi á Rútsstöðum, Eyjafirði. RMR — VST — 11 — 5 — 71 — 8i/2 — FL — BM — HV. I.O.G.T. stúkan Brynja nr. 99. Fundur verður mánudaginn 10. maí kl. 21.00 í félags- heimili templara -- Varðborg. Venjuleg fundarstörf. Hag- nefndaratriði. —• Æ.t. I.O.G.T. stúkan Akurliljan nr. 275. Félagar mætið sunnudag 9. maí kl. 2 e. h. í Akurhlíð. — Æ.t. HJÚKRUNAR- iKONUR! Fundur I verður að Kristnes- hæli mánudaginn 10. maí kl. 21. Farið frá Hótel KEA kl. 20.30. — Stjórnin. ORÐ DAGSINS, SÍMI 2-18-40. SLÖKKVISTÖÐIN — Sjúkra- bíllinn — Brunaútkall sími 1-22-00. TILKYNNING. — Göngudeild handlækningadeildar F.S.A. verður framvegis opin á þriðjudögum og fimmtudög- um frá kl. 10.00 f. h. fyrir sjúklinga, sem eftirlits þurfa eftir aðgerðir eða slys. Yfir- læknir deildarinnar hefir mót töku fyrir sjúklinga eftir til- vísun heimilislækna sömu daga frá kl. 12.30. Panta má viðtal eða eftirlit á göngu- deild í síma 11053 kl. 10.00 til 12.00 alla virka daga. Slysa- þjónusta deildarinnar er sem áður opin allan sólarhring- inn. — Fjórðungssjúkrahúsið. verður slitið fimmtudaginn 13. maí n.k. kl. 20.30. Kaffi og kvöldvaka f. 4. b. á eftir í Skíðahótelinu. Akureyri, 7. maí 1971. SKÓLASTJÓRI. Gæzlukonur óskast til starfa við leikvelli bæjarins í sumar. ráðningartími er frá 21 maí n.k. — Skriflegar lugn- sóknir skulu sendar leikvallanefnd á skrifstofu Akureyrarbæjar fyrir 15. maí n.k. Óskað er eftir upplýsingum um aldur og fyrri störf. Stúlkur yngri en 18 ára verða ekki ráðnar. LEIKVALLANEFND. Bifreiðavai rahlutir I YMSAR TEGUNDIR. Vélapakkningar Rafgeymar Stimpilihringar Rafgeymakaplar (RAMGO) Rafmagnsvír Kveikjuhlutir Leiðsluskór Kerti, CHAMPION Straumlokur Vatnshosur Ljósasamlokur Viftureimar Ljósaperur Olíu- og loftsiur Þurrkublöð Hljóðkútar Þurrkuteinar Púströr Móðúviftur Púst.röraefni, , 6, 12 og 24 v Spenmur og festingar Snjókeðjur Kúplingsdiskar Boxerplast Bardahl Vatnslásar H raðamæl issn úrur Vatnsdælusett Hurðapakkningar MILLION ein- Hemlaborðar Höggdeyfar angrunarband — Þrýstislöngur — og tengi — í WILLYS JEEP Gírkassahlutir, sektorar og m. fleira. Fljót og góð afgreiðsla. Allar pantanir sendar samdægurs. ÞÓRSHAMAR H.F. - varahlutaverzlun - AKUREYRI - SÍMI: (96) 1-27-00.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.