Dagur - 03.06.1971, Side 7
7
- Kaupfélag Eyfirðinga skilaði góðum hagnaði
- ENGIN KIÖLFESTA
(Framhald af blaðsíðu 4).
yrði þá settur yfir mennta-
málin á íslandi? — Heldur
liann, að almennir kjósendur
Sjálfstæðisflokksins, sem ald-
ir voru upp við sparnað og
hágengiskenningar Jóns Þor-
lákssonar, hafi búizt við að
kjósa yfir sig gerigisfellingar
og eyðslustjórn Gunnars
Thoroddsens og Magnúsar
Jónssonar? Heldur hann, að
það hafi ekki komið sumum
Sjálfstæðiskjósendum á ó-
vart, þegar flokkurinn þeirra
gaf Alþýðuflökknum það í
morgungjöf, að leggja gömlu
kjördæmin niður? — svo að
nokkuð sé nefnt.
Það er hægt að segja margt
um Sjálfstæðisflokkinn, sumt
jákvætt. En kjölfesta í þjóð-
lífinu er liann ekki. □
Elskulegur sonur minn og bróðir okkar,
ÞORSTEINN SIGURJÓNSSON,
fórst af slysförum 26. maí 1971.
Margrét Þorsteinsdóttir,
Björg Sigurjónsdóttir,
Gunnlaug Sigurjónsdóttir,
Erla Sigurjónsdóttir,
Ólína Sigurjónsdóttir,
Tómas Sigurjónsson,
Guðrún Sigurjónsdóttir,
og aðrir vandamenn.
SIGURÐUR GÍSLI VIGFÚSSON,
Eyrarveg 16,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 31.
maí s.l. — Jarðarförin ákveðin síðar.
Katrín Björnsdóttir.
(Framhald af blaðsíðu 1).
hann þess, að umsetning félags
ins fyrsta árið hefði verið um
10 þúsund krónur en nú nær
tveir milljarðar, síðasta ár. Þá
gat hann þess, að hann flytti nú
skýrslu KEA í 32. sinn, en í
fyrsta skiptið, eða 1939, í um-
boði Vilhjálms Þórs, er þá
dvaldist vestan hafs og hvarf
ekki á ný til Akureyrar.
Um rekstur kaupfélagsins síð
asta ár sagði Jakob, að verzl-
unin hefði mjög aukizt, svo og
framleiðsla verksmiðja og þjón-
usta. Hefði verzlunaraukningin
verið meiri en kostnaðurinn og
leiddi það til góðrar niðurstöðu
þegar á heildina væri litið, og
betri en hann hefði þorað að
vona á fyrri fundum með sam-
vinnumönnum, þ. e. deildar-
fundunum í vetur, áður en
reikningar lágu endanlega fyr-
ir. Sagði hann, að verzlunar-
fyrirtaski félagsins hefðu aukið
sölu sína í 1.825 milljarða árið
1970, en hefðu verið 1.451 mill-
jarður árið 1969. Aukningin
væri 26%. Iðnfyrirtæki og verk
smiðjur hefðu aukið sína fram-
leiðslu um 24%. Síðan rakti
kaupfélagsstjórinn starfsemi
hverrar deildar og hvers fyrir-
tækis fyrir sig í stórum drátt-
um, eftir því sem tími vannst
til.
Niðurstaða þessa mikla yfir-
lits um hag og rekstur Kaup-
félags Eyfirðinga fyrir árið
1970, sýndi raunar 20 milljónir
króna til ráðstöfunar á þessum
fundi, afskriftir á fasteignum
hefði numið 18.2 millj. kr. og til
beinna framkvæmda hefði ver-
ið varið tæpum 38 milljónum
króna. Þar af hefði verið varið
til fjárfestingar á Dalvík og í
Hrísey um 10 millj. kr. og hefðu
því útibúin út með firðinum
ekki verið afskipt.
Kaupfélagsstjórinn sagði, að
launagreiðslur félagsins til fast-
ráðins starfsfólks hefðu numið
um 40 milljónum á síðasta ári.
Væri það svipuð upphæð og fé-
lagið þyrfti að greiða Magnúsi
frá Mel í söluskatt!
myndi hann ekki oftar standa
til að flytja ársskýrslu þessa
stærsta fyrirtækis utan höfuð-
borgarinnar. Hefði hann nú í
nær aldarþriðjung staðið í þess-
um sporum á aðalfundum en
léti nú af framkvæmdastjóra-
starfi. Þakkaði hann samstarfs-
fólki sínu öllu, svo og félags-
fólki fyrir hollustu í starfi og
tryggð við hugsjónir samvinnu-
manna og fyrir umburðarlyndi
alls þessa fólks í sinn garð. —
(Ljósmynd: E. D.).
Sagði hann, að störf eyfirzkra
samvinnumanna mættu vel
vera öðrum til fyrirmyndar, —
jafnframt sem þau væru Ey-
firðingum sjálfum til sóma. —
Margs væri að minnast, en nú
væri sér þakklætið efst í huga
og svo gleðin yfir því, að nú
hefðu nær allar deildir og fyr-
irtæld KEA skilað auknu starfi
og arði.
Að síðustu lýsti Jakob Frí-
mannsson yfir því, að hann
bæri hið fyllsta traust til þess
manns, er nú tæki við kaupfé-
lagsstjórastörfum, Vals Arn-
þórssonar, og þakkaði honum
ágætt samstarf undanfarin ár.
Megi gæfa og guðs blessun
fylgja Kaupfélagi Eyfirðinga,
sagði framkvæmdastjórinn að
lokum. En ræða framkvæmda-
stjórans var þökkuð með lang-
varandi lófataki.
Fundargestir snæddu síðan
hádegisverð í boði kaupfélags-
ins og hó/ust fundarhöld aftur
að honuírf Toknum og verður
síðar sagt frá framhaldi fund-
arins. D
Kartöflsigarðamir
milli Brunnár og Lækjarbakka verða tilbúnir
næstkomandi föstudag.
GARÐYRKJUSTJÓRI AKUREYRAR.
N ý k o m ii a r !
SUNÐBUXUR
velkomna
Stjórnarformaður bauð gesti
í lok ræðu sinnar minntist
Jakob Frímannsson þess, að
þessi aðalíundur Kaupfélags
Eyfirðinga væri sérstakur fyrir
sig persónulega, því að hér
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl.
10.30 f. h. (sjómannadaginn).
Sálmar: 4 — 364 — 68 — 660
— 681. Séra Frank M. Hall-
dórsson prestur í Nespresta-
kalli predikar og sjötíu
manna kirkjukór Kirkjukóra-
sambands Islands aðstoðar
við messuna. — B. S.
GRÍMSEYJARKIRKJA. Mess-
að á sunnudaginn kemur. —
Ferming. — Fermdar verða:
Kristjana Bára Bjarnadóttir,
Miðtúni og Sigrún Þorláks-
dóttir, Garði. — P. S.
SAMKOMUR votta Jehóva að
Þingvallastræti 14, II hæð:
Hinn guðveldislegi skóli,
föstudaginn 4. júní kl. 20.30.
Opinber fyrirlestur: Hvað
kennir biblían um dauðann,
upprisuna og ríki Guðs?
sunnudaginn 6. júní kl. 16.00.
Allir velkomnir.
SLÖKKVISTÖÐIN — Sjúkra-
bíllinn — Brunaútkall súni
1-22-00.
LEIÐRÉTTIN G. í frétt frá
ferðalagi nemenda Héraðs-
skólans í Reykjanesi 29. maí
leiðréttist. Skólastjórinn heit-
ir Kristmundur Hannesson
en ekki Kristinn.
MINNINGARSPJÖLD kvenfé-
lagsins Hlífar. Öllum ágóða
varið til fegrunar við barna-
heimilið Pálmholt. Spjöldin
fást í Bókabúðinni Huld og
hjá Laufeyju Sigurðardóttur,
Hlíðargötu 3.
SKODA OCTAVIA ’61
til sölu. Ekinn 62 þús.
Greiðsluskilmálar.
Uppl. í síma 1-20-82 og
1-15-41 á kvöldin.
Bifreiðin A-410, sem er
FORD FAIRLANE,
ár<r. 1965, er til sölu.
Anton Valdimarsson,
B.S.O.
VAUXHALL VICTOR
’68 til sölu og sýnis í
Byggðavegi 134, eftir kl.
5 e. h., sími 1-19-16.
AUSTIN GYPSY, árg.
1962 til sölu. Greiðslu-
skilmálar. Skipti koma
til greina.
Hjálmar Jóhannesson,
sími 1-29-08 á daginn og
2-18-54 á kvöldin.
Til sölu FIAT 850, árg.
1967, ekinn 40 þús. km.
Uppl. í síma 1-25-77,
eftirkl. 19.
OPEL CARAVAN, árg.
’59» til sölu. í oóðu lagi.
Uppl. í síma 2-13-74.
Til sölu VA UXHALL
’5Í), vel með farinn.
Uppl. hjá Guðmundi
Gunnlaugssyni, Bíla-
v<frkstæði Dalvíkur.
BRÚÐKAUP. Þann 25. maí sl.
voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju brúð
hjónin Ásthildur Sigurðar-
dóttir og Rafn Bierring Helga
son, Stokkahlöðum, Eyjafirði.
BRÚÐHJÓN. Hinn 29. maí
voru gefin saman í hjónaband
í Akureyrarkirkju ungfrú
Guðrún Bjarnadóttir og
Björn Sigmundsson útvarps-
virki. Heimili þeirra verður
að Skarðshlíð 32 F, Akureyri.
Hinn 30. maí voru gefin
saman í hjónaband í Akur-
eyrarkirkju ungfrú Sigurlína
Guðrún Jónsdóttir og Þórar-
inn Höskuldsson sjómaður.
Heimili þeirra verður að
Garðarsbraut 73, Húsavík.
Sama dag voru gefin saman
í hjónaband í Alcureyrar-
kirkju ungfrú Erla Vilhjálms
dóttir og Jón Marteinn Þeng-
ilsson lagermaður. Heimili
þeirra verður að Hlíðargötu
6, Akureyri.
FERMIN G ARBÖRN Akureyr-
arprestakalli. Farið verður á
fermingarbarnamótið í Möðru
vallaprestakalli laugardaginn
12. júní. Farið verður frá
Akureyrarkirkju kl. 9. Far-
gjald verður kr. 175 og móts-
gjald kr. 50. Vinsamlegast lát-
ið prestana vita um jjátttöku.
— Sóknarprestar.
ORÐ DAGSINS SfMI 2-18-40.
AÐALFUNDUR Berklavarnar
Verður haldinn laugardaginn
5. þ. m. kl. 3 e. h. að Hótel
Varðborg. Venjuleg aðalfund
arstörf. Kosning fulltrúa á
landsfund S.Í.B.S. Félagar
fjölmennið. Kaffiveitingar. —
Stjórnin.
DREGIÐ hefur verið í innan-
félagshappdrætti Kristniboðs-
félagsins Frækorn og komu
vinningar á eftirtalin númer:
14, 15, 22, 24, 37, 38, 98, 104,
221, 253, 283, 285, 309, 452, 555,
565, 599, 656, 773, 798, 800, 836,
860, 888. Aukavinningur kom
á nr. 813. Vinninga skal vitjað
í Möðruvallastræti 1, Akur-
eyri og Freyjugötu 23, Sauð-
árkróki.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ á
Akureyri. Frá og með 1. júní
verður safnið opið kl. 2—3.30
alla daga, nema laugardaga.
Skrifstofan opin á mánudög-
um kl. 2—5 síðd.
GJÖF. Hinn 28. maí sl. barst
Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri gjöf, kr. 50.000.00, frá
Kvenfélagi Svalbarðsstrand-
ar. Gjöfin er færð sjúkrahús-
inu í tilefni af sjötíu ára af-
mæli félagsins. — Stjórn
sjúkrahússins flytur gefend-
um sínar beztu þakkir og ósk
ar þeim velfarnaðar í starfi.
— Torfi Guðlaugsson.
BUXNADRAGTIR.
EILIÐARTÖSKUR
— hvítar og mislitar.
SIvINNHANZKAR o. fl.
MARKAÐURINN
SÍMI 1-12-61.