Dagur - 13.10.1971, Side 2

Dagur - 13.10.1971, Side 2
2 V HÉRAÐSFUNDUR Eyjafjarðar prófastsdæmis var haldinn að Munkaþverá og Freyvangi 12. september. Fundurinn hófst með guðs- þjónustu í Munkaþverársókn. IÞar predikaði hinn nýkjörni Siglufjarðarprestur, síra Rögn- vaídur Finnbogason, en síra Sirgir Snæbjörnsson þjónaði fyrir altari. Söng við guðsþjón- Uistuna annaðist kór kirkjuníiar undir stjórn Hrundar Kristjáns dóttur. Að lokinni guðsþjónustunni sétti prófasturinn, síra Stefán Shævarr, héraðsfundinn og stjórnaði honum. Prófastur minntist í ávarpi sínu tveggja imanna, sem Iátizt hafa á héraðs fundarárinu, þeirra síra Sigurð- ar Stefánssonar, vígslubiskups og Marinós Þorsteinssonar, odd vita. Prófastur fór viðurkenn- ingarorðum um þá báða, en fundarmenn og kirkjugestir vottuðu þeim virðingu og að- standendum þeirra samúð með að rísa úr sætum. Þá bauð prófastur hinn nýja Siglufjarðarprest velkominn til starfs í prófastsdæminú. í ávarpi sínu ræddi prófastur jnokkuð málefni kirkjunnar al- mennt og í prófastsdæminu. Hann óskaði eftir meiru kirkju- legu starfi bæði af hendi prest- anna, safnaðarfulltrúa og sókn- arnefnda og svo síðast hinna óbreyttu safnaðarmeðlima. Hann taldi vonlaust, að kirkjan jnæði nokkrum verulegum ár- angri, ef safnaðarfólkið sjálft væri ekki virkt og starfsfúst. Hvatti hann því alla, sem unna kirkju og kristindómi til auk- imna starfa og átaka. Að loknu ávarpi prófasts sungu allir kirkjugestir versið „Son guðs ertu með sanni.“ Þá var gert íundarhlé og fundurinn fluttur að Freyvangi. Er að Freyvangi kom, stóðu þár borð hlaðin girnilegustu kræsingum, en sóknarprestur- ánn hafði boðið kirkjugestum og Ihéraðsfúndargestum til kaffi- drykkju fyrir hönd sóknar- mefnda Múnkaþverár- og Káúp- angssókna, en konur úr sókn- unum sáú um veitingarnar. Er gestir höfðu gert veiting- anum góð skil var aftúr tekið til við fúndarstörf. Prófastur gaf þá skýrslu úm sförf prest- anna í prófasfsdæminu. Sú breyting varð á þjónustu á ár- iinu, að síra Kristján Ró'berts- son, Siglufirði hvarf frá störf- lim sínum þar og er nú sóknar- prestur að Hvanneyri í Borgar- íirði. Prófastur þakkaði störf jhans og óskaði honum heilla í starfi sínu á nýjum stað. Við störfum sóknarprests á Siglu- firði hefur nú tekið nýr maður, er áður er getið. Olafsfjarðar- prestakall er enn prestslaust og er þjónað af nágrannapresti. Þá gaf prófastur skýrslu um störf prestanna. Hann gat þess þó, að þær tölur, sem hann flutti segðu ekki nema lítinn hluta af sögunni. Því að mikill hluti af starfi prestsins er hvergi færð- ur á skýrslur. í prófastsdæminu voru fluttar alls 431 guðsþjón- ústa á mótí 396. Þessar guðs- þjónustur skiptast þannig: Al- mennar guðsþjónustur 282, barnámessur og samkomur 102 og aðrar messur 47. Þá voru skírð 389 börn á ár- inu 1970 á móti 389 á fyrra ári. Fermd voru 355 börn á árinu, en 366 árið áðúr. Altarisgestir urðu 1358 á móti 1436 á fyrra ári. Þá voru gefin saman af prestum 126 brúðhjón og er það 19 færri en árið áður. Þá voru loks greftraðir 138 einstaklingar á árinu. Þetta er starf prestanna í töl- um, en eins og áður segir er þetta ekki nema hluti starfs þeirra. Því næst vék prófastur að kirkjureikningum. Það hefur gengið mjög treglega að fá reikninganna inn. Fjórum dög- um fyrir héraðsfund voru 12 reikningar af 21 komnir í hend- ur frófasts. Þess vegna varð ekki hægt að samþykkja reikn- ingana á fundinum eins og þó á að gera. Prófasti var falið að úrskurða þá með aðstoð síra Þórhalls Höskuldssonar og Kristjáns Vigfússonar í Litla- Árskógi. Þá skýrði prófastur frá því að mikil og góð leiðrétting hefði fengizt á rafmagnsmálum kirkn anna. Iðnaðarmálaráðuneytið hefur gefið út bréf, þar sem segir: „. . . . skal rafmagnsverð til kirkna miðast við hálft gjald skrárverð á raforku í smásölu á hverjum tíma.“ Þetta er all mikil og góð réttarbót fyrir kirkjurnar. Þess var vænst að fulltrúi æskulýðsfulltrúa þjóðkirkjunn- ar myndi mæta á fundinum til að kynna starfið og starfsgögn. Af því gat ekki orðið. Fundur- inn samþykkti að reyna að fá fulltrúann norður seinna í haust. Þá flutti síra Bjartmar Krist- jánsson fróðlegt og gott erindi um „Drottins daginn“. Um erindi sr. Bjartmars urðu nokkr ar umræður um hvíldardaginn og helgidagalöggjöfina og eftir- lit lögregluyfirvalda með þeim lögum. Það er varla mikið sagt, þótt sagt sé, að það eftirlit sé víðast hvar mjög slælegt. Svo- hljóðandi tillaga um þessi mál var samþykkt með öllum greidd um atkvæðum: „Héraðsfundur Eyjafjarðar- prófastsdæmis haldinn að Frey- vangi og Munkaþverá 12 sept. 1971, beinir þeirri eindregnu ósk til Alþingis og ríkisstjórnar innar að taka til endurskoðun- ar lög um almannafrið á helgi- dögum þjóðkirkjunnar, og þar sem þess sé gætt, að sá tími, sem kirkjan notar til helgihalds ó þessum dögum hljóti tilhlýði- lega lögverndan.“ Undir liðnum önnur mál, urðu nokkrar umræður um kristindómsfræðslu í skólum og skort á góðum handbókum, bæði fyrir kennara og nemend- ur. Þessi mál voru nokkuð rædd, en engar samþykktir voru gerðar. Þá var einnig rætt nokkuð um organista og söngkennslu. Víða horfir æði illa í þessum málum. Því var hreyft að lík- lega væri eina leiðin til að bjarga þessu við í dreifbýlinu náin samvinna milli sóknar- nefnda og skólanefnda. Svo- hljóðandi tillaga var samþykkt: „Héraðsfundur Eyjafjarðar- prófastsdæmis haldinn að Frey- vangi og Munkaþverá 12. sept. 1971, beinir þeirn óskum til skólanefnda- og sóknarnefnda innan prófastsdæmisins, að þær hefji samstarf um það, að reyna að fá hæfa menn (einstaklinga) til að sinna söngkennslu í skól- unum og organistastörfum við kirkjurnar.“ Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Flutningsmaður þessarar til- lögu var Ólafur Tryggvason, organisti, Ytra-Hvarfi, en síra Pétur Sigurgeirsson vígslu- biskup flutti hina tillöguna um helgihald á hvíldardeginum. Síra Þórhallur Höskuldsson flutti prófasti þakkir fyrir störf hans og hvatti bæði presta og safnaðarfulltrúa til að veita honum það lið, er þeir mættu. Staðarprestur, síra Bjartmar Kristjánsson, þakkaði fundar- mönnum komuna og óskaði þeim góðrar heimferðar. Þá bauð hann þeim fundarmönn- um, sem tök höfðu á, að koma heim að Laugalandi og þiggja góðgerðir á heimili hans. Boðið var þegið með þökkum. Prófastur sleit síðan héraðs- fundinum með stuttri andakt, en fundarmenn mynduðu hring og sungu versið: Son Guðs ertu með sanni. Fundurinn var hinn ánægju- legasti. □ Á ÁRAMÓTUM sl. barst Akur- eyrarbæ boð frá bæjarstjórn vinabæjarins Vasterás í Sví- þjóð, um að senda hóp unglinga fæddra 1957—1959 til fyrsta fyrirhugaðs íþróttamóts vina- bæjanna fimm. Akureyrarbær veitti svo ÍBA styrk til farar- innar, en undirbúningur, þjálf- un og val keppenda var all um- fangsmikið og kom árangur þess greinilega fram á Frjáls- íþróttamóti Norðurlands nú ný- verið. 17 unglingar, 4 stúlkur og 13 drengir, auk fararstjórnar, urðu svo þeirrar ánægju aðnjót- andi að dvelja í Vásterás í fjóra daga og stofna til góðra kynna í leik og starfi. Unglingarnir voru frjálsmann legir og glaðir og urðu bæ sín- um áreiðanlega til sóma. Sér- staklega kom þetta fram í knatt spyrnuleiknum við Dani (Randers), er telpurnar okkar sungu og klöppuðu til að örva drengina okkar. Von bráðar virtist allur þingheimur taka undir með þeim. Var þetta bráð skemmtilegt. Leikinn unnu okk ar drengir 2—1 og hefir það löngum þótt viðunandi að vinna vini okkar Dani. Finnar (Lathi) unnu svo Akureyrardrengina í úrslitaleik og varð Akureyri því í 2. sæti í knattspyrnunni. í frjálsíþróttum voru þátttak- endur 5 í hverri grein, þ. e. 1 frá hverju landi og var árangur okkar unglinga þessi: Sigvaldi Torfason varð 3. í 100 m. hlaupi. Hilmar Malm- quist varð 3. í 1000 m. hlaupi. Ragna Karlsdóttir varð 4. í 800 m. hlaupi. Óskar Gunnarsson varð 4. í langstökki. Drengja- Fundum drengjaúlpu framan vð Hólavatn. Uppl. í Mýrarveg 124. Nýlega fannst Korlæk myndavél skammt ofan við Grýtubakka I í Höfðahverfi. Eigandi vitji hennar þangað. N otaður HEFILBEKKUR óskast til kaups. Sími 2-18-18. LEIKGRIND til sölu. Lítur mjög vel út. Uppl. í síma 2-11-44. Til sölu bensín-miðstöð í Wolkswagen, 12 volt, einnig tvær 13 tommu felgur (Opel). Uppl. í síma 2-17-18. Til sölu, ódýrt en í góðu lagi, tveir gítarmagnarar og Rafha-eldavél, eld- húsborð og barnakojur 150 cm. Uppl. í síma 2-12-77. prhappdrætfi Sjálfsbjargar 5. júlí 197 Númer Flokkur Númer Flokkur Númer Flokkur Númer Flokkur Númer Flokkur 96 61—100 4371 61—100 9662 61—100 15439 61—100 21241 31—45 661 61—100 4467 16—30 10551 61—100 15661 46—60 21295 16—30 774 61—100 4577 61—100 11093 61—100 15790 61—100 21553 31—45 914 61—100 4859 3 11630 61—100 15995 61—100 21804 31—45 1795 31—45 5264 46—60 11646 31—45 16065 4—15 21983 61—100 1873 16—30 5817 61—100 11997 4—15 16083 46—60 21978 1 bíllinn 1907 61—100 6275 16—30 12271 61—100 16122 16—30 22001 4—15 2173 16—30 6673 46—60 12317 61—100 16184 16—30 22198 31—45 2362 61—100 6824 46—60 13102 4—15 16241 46—60 22356 31—45 2402 61—100 7057 4—15 13310 31—45 16404 46—60 22375 61—100 2643 4—15 7300 16—30 13656 31—45 16709 4—15 22463 46—60 2923 61—100 7454 61—100 14260 31—45 17413 46—60 22644 61—100 3088 61—100 7507 46—60 14381 4—15 17523 46—60 23169 16—30 3478 46—60 7530 46—60 14597 2 17932 31—45 23502 61—100 3598 61—100 8633 46—60 14805 31—45 18066 61—100 23598 16—30 3716 61—100 8680 31—45 14922 31—45 18942 16—30 23612 16—30 3922 4—15 9056 16—30 15015 61—100 19839 46—60 23926 61—100 4094 16—30 9462 61—100 15061 61—100 20431 61—100 24119 4—15 4114 61—100 9575 61—100 15100 16—30 21138 61—100 24144 61—100 4208 61—100 9584 4—15 15130 61—100 21175 4—15 24508 31—45 sveit Akureyrar varð 4. í 4x100 m. boðhlaupi. Stúlknasveit Ak- ureyrar varð 4. í 4x100 m. boð- hlaupi. Stúlkurnar okkar ráku svo lestina í fjórum greinum, einu sinni, í 100 m. hlaupi á sama tíma og nr. 4, sjónarmunur. Drengirnir urðu síðastir í tveim ur greinum, hástökki og kúlu- varpi. Vásterás vann 1. sæti í 8 greinum og Lathi í þremur. Móttökur í Vásterás vorú mjög góðar og hefir bærinn upp á margt að bjóða, sem er heil- brigt og þroskandi fyrir æsk- una. Lokahófi, sem Vásterás hélt þátttakendum mótsins, stýrði Einar Jónsson, sá hinn sami er var fulltrúi Vásterás á 100 ára afmælishátíð Akureyrar. Kvað hann blysför hestamanna vera sér minnisstæðasta atriðið frá hinni ógleymanlegu hátíð. Bað hann fyrir góðar kveðjur til Akureyrar og Akureyringa. Ymsir aðrir, sem notið hafa gestrisni á akureyrskum heimil- um, báðu að heilsa. Forystu- menn íþróttamála voru sam- mála um, að 'æskilegt væri að halda íþróttamót vinabæjanna annað hvert ár, þar eð svona mót örva og vekja áhuga á íþróttaiðkun. (Frá ÍBA) Haukar sigmðu FYRSTADEILDARLIÐ Haúka frá Hafnarfirði kom til Akur- eyrar um helgina og lék við KA og Þór. Á laugardag léku Hauk- arnir við 2. deildarlið KA og fóru leikar svo, að Haukarnir sigruðu 25:21. Leikur KA-liðs- ins lofar góðu, því langur veg- ur er frá því að liðið sé komið í fulla þjálfun. Á sunnudaginn fór svo fram hraðkeppni með þátttöku Hauka, sem sigruðu bæði lið Þórs og KA. Númer tvö varð lið Þórs en KA rak lestina, — tapaði báðum sínum leikjum. □ Til sölu FIAT 600 árgerð 1960. Selst ódýrt. Þarfnast viðgerðar. Uppl. í síma 2-17-68 eftir kl. 1. e.h. WILLYS árg. T>5 til sölu. Verð kr. 55.000. Uppl. í síma 2-11-62. TIL SÖLU: Taunus 17 M station árgerð ’68 og árgerð T>9. Bifreiðarnar eru mjög vel með farnar og lítið keyrðar. Upplýsingar í síma 1-29-46 eftir kl. 19.00. Til söl.u Volvo Amason árg. ’62, greiðsluskil- málar og skipti koma til greina. Uppl. í síma 1-29-08, en í síma 2-18-54 á kvöldin. AUGLÝSÍD í DEGI

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.