Dagur - 13.10.1971, Qupperneq 2
2
V
HÉRAÐSFUNDUR Eyjafjarðar
prófastsdæmis var haldinn að
Munkaþverá og Freyvangi 12.
september.
Fundurinn hófst með guðs-
þjónustu í Munkaþverársókn.
IÞar predikaði hinn nýkjörni
Siglufjarðarprestur, síra Rögn-
vaídur Finnbogason, en síra
Sirgir Snæbjörnsson þjónaði
fyrir altari. Söng við guðsþjón-
Uistuna annaðist kór kirkjuníiar
undir stjórn Hrundar Kristjáns
dóttur.
Að lokinni guðsþjónustunni
sétti prófasturinn, síra Stefán
Shævarr, héraðsfundinn og
stjórnaði honum. Prófastur
minntist í ávarpi sínu tveggja
imanna, sem Iátizt hafa á héraðs
fundarárinu, þeirra síra Sigurð-
ar Stefánssonar, vígslubiskups
og Marinós Þorsteinssonar, odd
vita. Prófastur fór viðurkenn-
ingarorðum um þá báða, en
fundarmenn og kirkjugestir
vottuðu þeim virðingu og að-
standendum þeirra samúð með
að rísa úr sætum.
Þá bauð prófastur hinn nýja
Siglufjarðarprest velkominn til
starfs í prófastsdæminú.
í ávarpi sínu ræddi prófastur
jnokkuð málefni kirkjunnar al-
mennt og í prófastsdæminu.
Hann óskaði eftir meiru kirkju-
legu starfi bæði af hendi prest-
anna, safnaðarfulltrúa og sókn-
arnefnda og svo síðast hinna
óbreyttu safnaðarmeðlima.
Hann taldi vonlaust, að kirkjan
jnæði nokkrum verulegum ár-
angri, ef safnaðarfólkið sjálft
væri ekki virkt og starfsfúst.
Hvatti hann því alla, sem unna
kirkju og kristindómi til auk-
imna starfa og átaka. Að loknu
ávarpi prófasts sungu allir
kirkjugestir versið „Son guðs
ertu með sanni.“ Þá var gert
íundarhlé og fundurinn fluttur
að Freyvangi.
Er að Freyvangi kom, stóðu
þár borð hlaðin girnilegustu
kræsingum, en sóknarprestur-
ánn hafði boðið kirkjugestum og
Ihéraðsfúndargestum til kaffi-
drykkju fyrir hönd sóknar-
mefnda Múnkaþverár- og Káúp-
angssókna, en konur úr sókn-
unum sáú um veitingarnar.
Er gestir höfðu gert veiting-
anum góð skil var aftúr tekið
til við fúndarstörf. Prófastur
gaf þá skýrslu úm sförf prest-
anna í prófasfsdæminu. Sú
breyting varð á þjónustu á ár-
iinu, að síra Kristján Ró'berts-
son, Siglufirði hvarf frá störf-
lim sínum þar og er nú sóknar-
prestur að Hvanneyri í Borgar-
íirði. Prófastur þakkaði störf
jhans og óskaði honum heilla í
starfi sínu á nýjum stað. Við
störfum sóknarprests á Siglu-
firði hefur nú tekið nýr maður,
er áður er getið. Olafsfjarðar-
prestakall er enn prestslaust og
er þjónað af nágrannapresti. Þá
gaf prófastur skýrslu um störf
prestanna. Hann gat þess þó, að
þær tölur, sem hann flutti
segðu ekki nema lítinn hluta af
sögunni. Því að mikill hluti af
starfi prestsins er hvergi færð-
ur á skýrslur. í prófastsdæminu
voru fluttar alls 431 guðsþjón-
ústa á mótí 396. Þessar guðs-
þjónustur skiptast þannig: Al-
mennar guðsþjónustur 282,
barnámessur og samkomur 102
og aðrar messur 47.
Þá voru skírð 389 börn á ár-
inu 1970 á móti 389 á fyrra ári.
Fermd voru 355 börn á árinu,
en 366 árið áðúr. Altarisgestir
urðu 1358 á móti 1436 á fyrra
ári. Þá voru gefin saman af
prestum 126 brúðhjón og er það
19 færri en árið áður. Þá voru
loks greftraðir 138 einstaklingar
á árinu.
Þetta er starf prestanna í töl-
um, en eins og áður segir er
þetta ekki nema hluti starfs
þeirra.
Því næst vék prófastur að
kirkjureikningum. Það hefur
gengið mjög treglega að fá
reikninganna inn. Fjórum dög-
um fyrir héraðsfund voru 12
reikningar af 21 komnir í hend-
ur frófasts. Þess vegna varð
ekki hægt að samþykkja reikn-
ingana á fundinum eins og þó á
að gera. Prófasti var falið að
úrskurða þá með aðstoð síra
Þórhalls Höskuldssonar og
Kristjáns Vigfússonar í Litla-
Árskógi.
Þá skýrði prófastur frá því
að mikil og góð leiðrétting hefði
fengizt á rafmagnsmálum kirkn
anna. Iðnaðarmálaráðuneytið
hefur gefið út bréf, þar sem
segir: „. . . . skal rafmagnsverð
til kirkna miðast við hálft gjald
skrárverð á raforku í smásölu á
hverjum tíma.“ Þetta er all
mikil og góð réttarbót fyrir
kirkjurnar.
Þess var vænst að fulltrúi
æskulýðsfulltrúa þjóðkirkjunn-
ar myndi mæta á fundinum til
að kynna starfið og starfsgögn.
Af því gat ekki orðið. Fundur-
inn samþykkti að reyna að fá
fulltrúann norður seinna í
haust.
Þá flutti síra Bjartmar Krist-
jánsson fróðlegt og gott erindi
um „Drottins daginn“. Um
erindi sr. Bjartmars urðu nokkr
ar umræður um hvíldardaginn
og helgidagalöggjöfina og eftir-
lit lögregluyfirvalda með þeim
lögum. Það er varla mikið sagt,
þótt sagt sé, að það eftirlit sé
víðast hvar mjög slælegt. Svo-
hljóðandi tillaga um þessi mál
var samþykkt með öllum greidd
um atkvæðum:
„Héraðsfundur Eyjafjarðar-
prófastsdæmis haldinn að Frey-
vangi og Munkaþverá 12 sept.
1971, beinir þeirri eindregnu
ósk til Alþingis og ríkisstjórnar
innar að taka til endurskoðun-
ar lög um almannafrið á helgi-
dögum þjóðkirkjunnar, og þar
sem þess sé gætt, að sá tími,
sem kirkjan notar til helgihalds
ó þessum dögum hljóti tilhlýði-
lega lögverndan.“
Undir liðnum önnur mál,
urðu nokkrar umræður um
kristindómsfræðslu í skólum og
skort á góðum handbókum,
bæði fyrir kennara og nemend-
ur. Þessi mál voru nokkuð
rædd, en engar samþykktir
voru gerðar.
Þá var einnig rætt nokkuð
um organista og söngkennslu.
Víða horfir æði illa í þessum
málum. Því var hreyft að lík-
lega væri eina leiðin til að
bjarga þessu við í dreifbýlinu
náin samvinna milli sóknar-
nefnda og skólanefnda. Svo-
hljóðandi tillaga var samþykkt:
„Héraðsfundur Eyjafjarðar-
prófastsdæmis haldinn að Frey-
vangi og Munkaþverá 12. sept.
1971, beinir þeirn óskum til
skólanefnda- og sóknarnefnda
innan prófastsdæmisins, að þær
hefji samstarf um það, að reyna
að fá hæfa menn (einstaklinga)
til að sinna söngkennslu í skól-
unum og organistastörfum við
kirkjurnar.“
Tillagan var samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum.
Flutningsmaður þessarar til-
lögu var Ólafur Tryggvason,
organisti, Ytra-Hvarfi, en síra
Pétur Sigurgeirsson vígslu-
biskup flutti hina tillöguna um
helgihald á hvíldardeginum.
Síra Þórhallur Höskuldsson
flutti prófasti þakkir fyrir störf
hans og hvatti bæði presta og
safnaðarfulltrúa til að veita
honum það lið, er þeir mættu.
Staðarprestur, síra Bjartmar
Kristjánsson, þakkaði fundar-
mönnum komuna og óskaði
þeim góðrar heimferðar. Þá
bauð hann þeim fundarmönn-
um, sem tök höfðu á, að koma
heim að Laugalandi og þiggja
góðgerðir á heimili hans. Boðið
var þegið með þökkum.
Prófastur sleit síðan héraðs-
fundinum með stuttri andakt,
en fundarmenn mynduðu hring
og sungu versið: Son Guðs ertu
með sanni.
Fundurinn var hinn ánægju-
legasti. □
Á ÁRAMÓTUM sl. barst Akur-
eyrarbæ boð frá bæjarstjórn
vinabæjarins Vasterás í Sví-
þjóð, um að senda hóp unglinga
fæddra 1957—1959 til fyrsta
fyrirhugaðs íþróttamóts vina-
bæjanna fimm. Akureyrarbær
veitti svo ÍBA styrk til farar-
innar, en undirbúningur, þjálf-
un og val keppenda var all um-
fangsmikið og kom árangur
þess greinilega fram á Frjáls-
íþróttamóti Norðurlands nú ný-
verið. 17 unglingar, 4 stúlkur og
13 drengir, auk fararstjórnar,
urðu svo þeirrar ánægju aðnjót-
andi að dvelja í Vásterás í fjóra
daga og stofna til góðra kynna
í leik og starfi.
Unglingarnir voru frjálsmann
legir og glaðir og urðu bæ sín-
um áreiðanlega til sóma. Sér-
staklega kom þetta fram í knatt
spyrnuleiknum við Dani
(Randers), er telpurnar okkar
sungu og klöppuðu til að örva
drengina okkar. Von bráðar
virtist allur þingheimur taka
undir með þeim. Var þetta bráð
skemmtilegt. Leikinn unnu okk
ar drengir 2—1 og hefir það
löngum þótt viðunandi að vinna
vini okkar Dani. Finnar (Lathi)
unnu svo Akureyrardrengina í
úrslitaleik og varð Akureyri
því í 2. sæti í knattspyrnunni.
í frjálsíþróttum voru þátttak-
endur 5 í hverri grein, þ. e. 1
frá hverju landi og var árangur
okkar unglinga þessi:
Sigvaldi Torfason varð 3. í
100 m. hlaupi. Hilmar Malm-
quist varð 3. í 1000 m. hlaupi.
Ragna Karlsdóttir varð 4. í 800
m. hlaupi. Óskar Gunnarsson
varð 4. í langstökki. Drengja-
Fundum drengjaúlpu
framan vð Hólavatn.
Uppl. í Mýrarveg 124.
Nýlega fannst Korlæk
myndavél skammt ofan
við Grýtubakka I
í Höfðahverfi.
Eigandi vitji hennar
þangað.
N otaður
HEFILBEKKUR
óskast til kaups.
Sími 2-18-18.
LEIKGRIND til sölu.
Lítur mjög vel út.
Uppl. í síma 2-11-44.
Til sölu bensín-miðstöð
í Wolkswagen, 12 volt,
einnig tvær 13 tommu
felgur (Opel).
Uppl. í síma 2-17-18.
Til sölu, ódýrt en í góðu
lagi, tveir gítarmagnarar
og Rafha-eldavél, eld-
húsborð og barnakojur
150 cm.
Uppl. í síma 2-12-77.
prhappdrætfi Sjálfsbjargar 5. júlí 197
Númer Flokkur Númer Flokkur Númer Flokkur Númer Flokkur Númer Flokkur
96 61—100 4371 61—100 9662 61—100 15439 61—100 21241 31—45
661 61—100 4467 16—30 10551 61—100 15661 46—60 21295 16—30
774 61—100 4577 61—100 11093 61—100 15790 61—100 21553 31—45
914 61—100 4859 3 11630 61—100 15995 61—100 21804 31—45
1795 31—45 5264 46—60 11646 31—45 16065 4—15 21983 61—100
1873 16—30 5817 61—100 11997 4—15 16083 46—60 21978 1 bíllinn
1907 61—100 6275 16—30 12271 61—100 16122 16—30 22001 4—15
2173 16—30 6673 46—60 12317 61—100 16184 16—30 22198 31—45
2362 61—100 6824 46—60 13102 4—15 16241 46—60 22356 31—45
2402 61—100 7057 4—15 13310 31—45 16404 46—60 22375 61—100
2643 4—15 7300 16—30 13656 31—45 16709 4—15 22463 46—60
2923 61—100 7454 61—100 14260 31—45 17413 46—60 22644 61—100
3088 61—100 7507 46—60 14381 4—15 17523 46—60 23169 16—30
3478 46—60 7530 46—60 14597 2 17932 31—45 23502 61—100
3598 61—100 8633 46—60 14805 31—45 18066 61—100 23598 16—30
3716 61—100 8680 31—45 14922 31—45 18942 16—30 23612 16—30
3922 4—15 9056 16—30 15015 61—100 19839 46—60 23926 61—100
4094 16—30 9462 61—100 15061 61—100 20431 61—100 24119 4—15
4114 61—100 9575 61—100 15100 16—30 21138 61—100 24144 61—100
4208 61—100 9584 4—15 15130 61—100 21175 4—15 24508 31—45
sveit Akureyrar varð 4. í 4x100
m. boðhlaupi. Stúlknasveit Ak-
ureyrar varð 4. í 4x100 m. boð-
hlaupi.
Stúlkurnar okkar ráku svo
lestina í fjórum greinum, einu
sinni, í 100 m. hlaupi á sama
tíma og nr. 4, sjónarmunur.
Drengirnir urðu síðastir í tveim
ur greinum, hástökki og kúlu-
varpi. Vásterás vann 1. sæti í
8 greinum og Lathi í þremur.
Móttökur í Vásterás vorú
mjög góðar og hefir bærinn upp
á margt að bjóða, sem er heil-
brigt og þroskandi fyrir æsk-
una.
Lokahófi, sem Vásterás hélt
þátttakendum mótsins, stýrði
Einar Jónsson, sá hinn sami er
var fulltrúi Vásterás á 100 ára
afmælishátíð Akureyrar. Kvað
hann blysför hestamanna vera
sér minnisstæðasta atriðið frá
hinni ógleymanlegu hátíð. Bað
hann fyrir góðar kveðjur til
Akureyrar og Akureyringa.
Ymsir aðrir, sem notið hafa
gestrisni á akureyrskum heimil-
um, báðu að heilsa. Forystu-
menn íþróttamála voru sam-
mála um, að 'æskilegt væri að
halda íþróttamót vinabæjanna
annað hvert ár, þar eð svona
mót örva og vekja áhuga á
íþróttaiðkun. (Frá ÍBA)
Haukar
sigmðu
FYRSTADEILDARLIÐ Haúka
frá Hafnarfirði kom til Akur-
eyrar um helgina og lék við KA
og Þór. Á laugardag léku Hauk-
arnir við 2. deildarlið KA og
fóru leikar svo, að Haukarnir
sigruðu 25:21. Leikur KA-liðs-
ins lofar góðu, því langur veg-
ur er frá því að liðið sé komið
í fulla þjálfun.
Á sunnudaginn fór svo fram
hraðkeppni með þátttöku
Hauka, sem sigruðu bæði lið
Þórs og KA. Númer tvö varð
lið Þórs en KA rak lestina, —
tapaði báðum sínum leikjum. □
Til sölu FIAT 600
árgerð 1960. Selst ódýrt.
Þarfnast viðgerðar.
Uppl. í síma 2-17-68
eftir kl. 1. e.h.
WILLYS árg. T>5 til
sölu. Verð kr. 55.000.
Uppl. í síma 2-11-62.
TIL SÖLU:
Taunus 17 M station
árgerð ’68 og árgerð T>9.
Bifreiðarnar eru mjög
vel með farnar og lítið
keyrðar.
Upplýsingar í síma
1-29-46 eftir kl. 19.00.
Til söl.u Volvo Amason
árg. ’62, greiðsluskil-
málar og skipti koma til
greina.
Uppl. í síma 1-29-08, en
í síma 2-18-54 á kvöldin.
AUGLÝSÍD í DEGI