Dagur - 18.12.1971, Qupperneq 1
Nýff gagnfræððskólahús
Ólafsfirði 18. desember. ÞaÖ
sorglega slys varð að Hlíð í
Ólafsfirði að fjögurra ára telpa,
María Gunnarsdóttir, beið bana
af slysi og var jarðsett í gær.
Sama dag var jarðsunginn
hér Baldvin Jóhannesson, sem
dó fyrir viku síðan. Hann var
á áttræðisaldri og lézt í Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Mikil umferð er um Múlaveg,
er var opnaður í morgun eða
nótt og hafði þá verið lokaður
um skeið, en áður í vetur aldrei
nema 1—2 daga í einu.
Hér hefur ekki snjóað mikið i
vetur og er þetta mesti snjór-
inn, sem komið hefur. Eldri
menn muna tæpast jafn góða
tíð og í nóvember.
Bátarnir fóru í siglingar fvrir
skömrnu en eru komnir heim,
fóru svo að fiska, en yfirleitt er
aflinn lítill og ekki vinna í frysti
húsunum nema dag og dag.
Unnið hefur verið af kappi
miklu við nýja gagnfræðaskól-
ann og tanda vonir til, að hægt
verði að hefja kennslu með
nýju ári, eða6. janúar. B. S.
Bafarnir kcmnir úr Norðursjó
S Trén lifa harðan vetur og bíða vorsins. (Ljósm.: E. D.) >z
Virkjun Dettifoss á dagskrá
Virkjunarstaðir norðanlands kannaðir og
skipuð sáttanefnd í Laxárdeilunni
Dalvík 18. desember. Við erum
búnir að fá báta okkar heim frá
Norðursjónum. En þeir eru
meðal okkar máttarstólpa hér á
GÆTA BARNA
SEX skólastúlkur 13—15 ára
hafa búið sig undir það, að taka
að sér barnagæzlu fyrir sann-
gjarna þóknun nokkra daga í
þessum mánuði. Getur ]jað kom
ið mæðrum vel í jólaannríkinu.
Hinn 18. desember kl. 3—7, og
svo dagana 20.—23. desember
kl. 1—6. Gæzlustaður er skáta-
heimilið Hvammur. Upplýsing-
ar um þetta eru gefnar í símum
12380 og 11597.
Gæzlugjaldið rennur til skáta
deildar stúlknanna, er heitir
Súlur. □
Egilsstöðum 18. desember. Snjó-
föl er í byggð en ögn meiri snjór
til fjalla og heiða. Fært er á
bifreiðum niður til fjarða. Tor-
leiði nokkurt er þó um Odds-
skarð, en þar er þó jeppum
fært. Ófært mun til Borgar-
fjarðar. Vegurinn til Borgar-
fjarðar verður opnaður í dag
svo að þeir fái þá jólaglaðningu,
sem þeim ber sem kristilegum
mönnum í okkar synduga sam-
félagi. Hálka er á vegum vegna
svella.
Nú er siginn á menn skamm-
degishöfgi. Veðráttan er rysjótt
og erfitt um útivinnu. En nægi-
leg verkefni hafa menn haft,
einkum í byggingum og talsvert
framundan í því efni.
Hroll setur að sumum við út-
málun Jóhanns Hafsteins og
félaga, hversu allt sé nú pen-
ingasnautt og lítið til í ríkis-
kassanum. En við huggum okk-
ur þó við það, að ef peningar
gufa upp með einhverjum hætti
á ákveðnum stöðum, faili þeir
mönnum í skaut annarsstaðar,
eins og vatnið sem gufar upp
fellur svo niður sem regn.
Kannski rignir peningum á
Austurlandi af guðs náð á
næsta ári.
Skólarnir eru að loka því að
nemendur halda jólin heima hjá
sér. Geysilegt annríki hefur ver
ið hjá Flugfélagi íslands af þeim
sökum, en einnig vegna þess, að
kaupskipin stöðvuðust og þörf á
vöruflutningum í lofti vex að
sama skapi.
Dalvík. Þetta voru Loftur Bald-
vinsson og Bjarmi II. Lofti gekk
sérstaklega vel og Bjarma einn-
ig, sérstaklega síðari hluta síld-
veiðanna, Hásetahlutir eru ef-
laust góðir og þar sem sjómenn-
irnir eru flestir héðan, munar
um það í tekjuöfluninni. Nú
verða þessi skip og önnur í
höfn yfir jólin.
Einn bátur, Bliki, rær með
línu og hefur fiskað ofurlítið, en
gæftir hafa hamlað veiðum —
fengið 2—3 tonn í róðri. Eigend-
ur salta fiskinn sjálfir.
Vegir eru allir færir og fagur
jólasnjór, ef hann bara gæti
haldist. Múlavegur var opnaður
í morgun og var þess full þörf,
því að margir þurfa að komast
leiðar sinnar og mikið þarf að
flytja nú í jólaannríkinu. J. H.
Verið er að reisa flugskýli á
Egilsstaðaflugvelli, þar sem
hýsa á litla flugvél Flugþjón-
ustunnar, sem nú heldur hér
uppi flugi á milli staða með póst
og farþega. Ennfremur á flug-
skýlið að geta rúmað þyrlu
Landhelgisgæzlunnar. Nú líða
menn á fáum mínútum yfir fjöll
og ófærur, sem áður þurfti lang
an tíma til að komast. Það er
t. d. aðeins 17 mínútna flug til
Vopnafjarðar og til Borgarfjarð-
Prentaraverkfall
Á MIÐVIKUDAG og fimmtu-
dag var aflétt ellefu daga verk-
falli bókagerðarmanna. Verk-
fall þetta náði til prentara blaða
og bóka hér á Akureyri og kom
Dagur því ekki út á meðan. Var
að þessu mikið óhagræði og stór
tjón. Ymiskonar efni varð að
bíða birtingar og ennfremur
auglýsingar, og verður hvorugt
bætt á þessu ári.
Þistilfirði 17. desember. Sam-
göngur eru hér betri nú en oft-
ast áður. Flugfélag íslands held-
ur uppi vikulegum ferðum, á
sunnudögum. En svo er það
póstflugið, sem Tryggvi Helga-
son eða Norðurflug annast. Það
er tvisvar í viku og fólk er mjög
ánægt með það. Er þá flogið um
Húsavík, Kópasker, Raufarhöfn,
í FRÉTTATILKYNNINGU frá
ríkisstjórninni segir, að Ólafur
Jóhannesson forsætisráðherra
hafi skipað sáttanefnd í Laxár-
virkjunardeilunni, og jafnframt
hefur iðnaðarráðuneytið ákveð-
ið könnun á virkjunaraðstæðum
ar. Póstflugvélin er þarfaþing.
í þessum landshluta er læknis
leysi. Sjálfir höfum við tvo
lækna hér og fáum þann þriðja
þegar læknamiðstöðin tekur til
starfa. Og enn minna er að
verða um presta, þó að það
valdi minni vandræðum, að því
er fólki finnst. Allir hafa kom-
izt niður í jörðina á kristilegan
máta. Á Seyðisfirði og Norð-
firði er prestlaust. Enginn á
Vopnafirði og enginn á Eski-
firði. Talað er um, að fá „fjórð-
ungsprest". Eitthvað verður lík-
lega að gera í því máli, jafnvel
þótt jafn gott sé að hafa engan
prest og mjög lélegan prest. Við
viljum auðvitað ekki neinar
vanmetakindur. En hvað um
það, við lítum björtum augum á
framtíðina og erum komnir í
jólaskapið.
Rjúpur veiðast ekki, að heitið
geti. Harðvítugar rjúpnnskyttur
hafa átt örðugt með að afla sér
í matinn. V. S.
Þórshöfn, Vopnafjörð. Er þetta
í fyrsta sinn, sem maður kallar,
að samgöngur séu allgóðar.
Flugvellirnir eru mismunandi
snjóléttir. Sauðanesvöllur er
næstum aldrei tepptur af snjó,
enda er hann á rinda milli vatns
og sjávar, og oft eru hinir vell-
irnir einnig ágætir, þótt stund-
um þurfi að hreinsa þá. Ó. H.
norðanlands, og undirbúningi
fullnaðaráætlunar um Dettifoss
virkjun.
Fréttatilkynningin fer hér á
eftir.
„Ólafur Jóhannesson, forsæt-
isráðherra, hefur skipað þá Egil
Sigurgeirsson, hæstaréttarlög-
mann, og Ólaf Björnsson, pró-
fessor, til þess að reyna að
koma á sáttum milli stjórnar
Laxárvirkjunar og stjórnar Fé-
lags landeigenda við Laxá.
Jafnframt hefur sáttasemjur-
unum verið falið að byggja
sáttatilraunirnar á eftirfarandi
meginatriðum, en tillaga for-
sætisráðherra þar að lútandi
var nýlega samþykkt í ríkis-
stjórninni:
„að ekki verði stofnað til frek
ari virkjunarframkvæmda í
Laxá en n úhafa verið leyfð-
ar, nema til komi samþykki
fyrirsvarsmanna landeigenda
og náttúruverndarráðs;
að niður verði felld málaferli
þau, sem risið hafa í sam-
bandi við virkjunarfram-
kvæmdir;
að ríkið greiði deiluaðilum
hæfilega fjárhæð vegna þess
kostnaðar, sem þeir hafa haft
af málaferlum í sambandi við
þetta deilumál;
að gerður skuli fiskvegur
fram hjá virkjunum við Brú-
ar í Aðaldal upp Laxárgljúf-
ur, og verði stuðzt við álit
vísindamanna um þá fram-
kvæmd;
að settar verði reglur um
verndun Laxár- og Mývatns-
svæðisins.
Jafnframt hefur iðnaðarráðu-
neytið ákveðið að láta nú þegar
kanna skipulega virkjunarað-
stæður norðanlands. Verður
lögð sérstök áherzla á að vinna
að undirbúningi fullnaðaráætl-
unar um virkjun við Dettifoss,
en forsenda slíkrar virkjunar er
samtenging orkuveitusvæða.“
DAGUR
Síðasta blað fyrir jól kemur út
á þriðjudagskvöldið.
Jeppi stúlknanna „púnteraður“ í miðbænum — og karl-
mennirnir látast ekki sjá. — (Ljósm.: E. D.)
Skammdegishöfgi en þó jólaskap
Póslflugil bæfir úr brýnni jíörf