Dagur


Dagur - 18.12.1971, Qupperneq 5

Dagur - 18.12.1971, Qupperneq 5
3 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Björnssonar hj. Landið okkar LANDIÐ var viði vaxið þegar land- námsmennimir komu hingað og um það vitna skráðar heimildir. Önnur heimild, sem staðfestir hina fyrri, er skráð í djúpan jarðveg íslenzku mýr- anna. Þar hafa jurtaleifarnar aldrei fúnað vegna kulda og raka, en hlað- izt upp og geyma fræin og aðra jurta- hluta, sein fræðimenn lesa eins og opna bók. Og bændum, sem tóku mó til eldsneytis til skamms tíma, duld- ist ekki skógarleifarnar, né heldur öskulögin af völdum hinna ýmsu eldgosa. En náttúruöflin og búsetan í landinu höfðu áhrif á skógana og allan annan gróður. Víst er, að á undanförnum öldum og þeim síðari áratugum, er menn þekkja bezt, fór gróðri ört hnignandi og eru þar flest- ir eða allir sammála, hvað sem um forsögu gióðursins, langt aftur í ald- ir, má segja. Nú, á síðari hluta tutt- ugustu aldar skiptir það heldur ekki meginmáli, heldur hitt, hvemig nú horfir og hvað gera má til að endur- heimta horfin gróðurlönd og gieiða það gjald, sem við skuldum fóstur- jörð okkar. Fram til síðustu tíma hafa menn horft á landið fjúka und- an fótum sér, eins og það væri sjálf- sagður hlutur eða lífsins lögmál. Og þeir menn eru ef til vill ennþá til hér á landi, sem ekki finna sársauka í hjarta sínu þótt þeir sjái tveggja eða þriggja metra, stakar jarðvegs- torfur, sem vindurinn sverfur smám saman, einar standa eftir á stórum, uppblásnum sandauðnum, eða eru aðeins undrandi yfir því, að síðustu leifar gróðurmoldarinnar skuli ekki einnig horfnar út í veður og vind. Sandgræðsla, Landvemd, skóg- rækt og alhliða ræktunarmenning fólksins í landinu, og nú einnig mikill og vaxandi áhugi fjöldans á gróðurfari, utan hins ræktaða lands og skynsamlega nýtingu hans, styður baráttuna við eyðingaröflin, og benda má á mörg landsvæði, einkum hjá Sandgræðslu ríkisins, þar sem vörn hefur verið snúið í sókn. En hins vegar telja flestir, að þrátt fyrir allt gróðurstarfið, minnki gróður- lendi landsins á ári hverju, og að við eigum enn nokkuð langt í land þar til sá jöfnuður náist, milli eyðingar og uppgræðslu, að ekki lialli lengur á ógæfuhlið þegar á heildarmyndina er litið. Brátt minnumst við ellefu alda byggðar á fslandi. Á þeim tíma hef- ur gróið land á íslandi minnkað um helming. Á þessum tímamótum væri það höfðingleg afmælisgjöf til fóstur jarðarinnar, að greiða fyrstu stóm aíborgunina af skuld okkar með sameinuðu átaki í græðslu lands. □ - JöklaferS á (Framhald af blaðsíðu 8) Grikki í hestinum við Trjóu forðum. Klukkan átta var enn lagt af stað. Ekki hafði þó veðrið setið auðum höndum, og var nú kom- inn vestan strekkingur og orðið alskýjað. Fyrstu þrjá kílómetr- ana gengum við á undan, því að velja þurfti góða leið milli ís- hóla, sandkeilna og vatnsrása. Tókst að fylgja slóðinni frá deg- inum áður, og eftir klukkutíma var hreinn snjór framundan svo langt sem augað eygði. Var þá enn rakið úr kaðlinum mikla, og stigu sumir okkar þegar á skíðin, nema Nenni, sem taldi öryggi sínu betur borgið á snjó- þotu. Þá yrði fall hans minna, ef illa tækist til. Svo fór þó, að þota Nenna reyndist sýnu valt- ari en skíðin okkar hinna, og lauk ferðinni þannig, að þotan lenti ofan á, en Nenni undir. *Vitni töldu sig hins vegar þekkja tiltæki kauða, og væri hann aðeins að gera tilraunir. Lnks tókst þó þotustjóranum að teygja arminn fram undan skel- inni og gefa merki um að stanza. Var hann þá orðinn sem útstoppaður lundabaggi af snjónum milli klæða hans. Það sem eftir var ferðarinnar, sat Nenni ýmist inni í bílnum eða uppi á þaki. í þetta sinn var stefnan tekin sýnu austar en daginn áður, og tókst með því að krækja hjá sprungubeltinu að mestu, þótt alloft þyrfti að gera út línu- mann að kanna. Eftir um hálf- tíma ferð á hjarninu var jökull- inn orðinn sléttur og hvítur sem óspjölluð jómfrú, og þurfti ekki að hafa áhyggjur af gjótum eftir það. Var nú ýmislegt gert til skemmtunar. Jón benti okkur hinum á, hvar Geysir sálugi lá, en sem kunnugt er var Jón í skíðaleiðangrinum, sem bjarg- aði áhöfnunum af Geysi og amerísku skíðavélinni niður af jöklinum í septemberlok árið 1950. Leiddu menn getum að því, hversu djúpt nú mundi nið- ur á vélina og hve langt væri í, áð hún kæmi fram í jökuljaðar- inn. Skíðamennirnir æfðu nýtt afbrigði af stórsvigi, sem kalla mætti risasvig. Plægðu þeir all- ir í einu upp í þrekkuna, unz skottið sneri nær þvert á Kött- inn, renndu sér síðan undan og notuðu sveifluna til að auka ferðina. Taugin var yfir hundr- að metra löng, og náði enda- maður allt að 80 km. hraða með þessari aðferð. Ymsar aðrar list- ir lék skíðafólkið, svo sem að láta þriggja lítra brúsa með ávaxtasafa ganga milli sín sem liðlegast. Þeir, sem í bílnum sátu, fundu upp á þeim leik, að láta epli eða annað hnossgæti detta út um gluggann og sjá, hver skíðamannanna væri snjall astur við að bera sig eftir björg- inni. Þessum leik var þó hætt, þegar Óli var orðinn saddur. Gekk nú ferðin fljótt og vel. Þegar komið var upp á Bárðar- bungu, var komið glampandi sólskin. Bungan er svo flöt hið efra og vegalengdir miklar, að erfitt getur verið að sjá, hvar hæsti hlutinn er. Samkvæmt korti er hún hæst 2000 m. yfir sjávarmáli, en hæðarmælirinn okkar sýndi þegar 2060 m. Þar sem hann hafði ekki verið sett- ur síðan á Akureyri, þótti senni legra, að loftþyngd hefði breytzt síðan, heldur en að við værum komin of hátt. Á vesturhluta bungunnar er útsýnið fegurst, og þar var snæddur hádegis- verður, myndir teknar, skrifuð gestabók o. fl. Útsýn til suðurs „Snjókeflinum".... var að nokkru byrgð skýjum, en einkar tilkomumikið var að líta Vonarskarðið nær beint fyrir neðan okkur, Hofsjökul og Tungnafellsjökul vestan við það. í norðrinu mátti sjá Torfu- fell, Kerlingu, Mývatnsfjöllin og allt norður í Lambafjöll, en austar Trölladyngju, Herðu- breið, Dyngjufjöll, Snæfell og Kverkfjöll. 1 sjónauka mátti auðveldlega greina bæi í Mý- vatnssveit. Eftir rúma klukkustundar dvöl tygjuðu menn sig aftur af stað, og nú skyldi haldið suður í Grímsvötn. Fyrst þurfti að fara alllanga leið til baka til að halda sprungulausri leið. Fór þá skíðafólkið á undan niður tólf km. langa samfellda skíða- brekku. Er komið var niður að „vega- mótum“, var snúið suðaustur í átt til Grímsvatna. Var nú sólar hitinn slíkur, að skíðamenn fækkuðu fötum sem þeir þorðu og urðu að hafa sig alla við með áburðinn til að verjast sólbruna. Eftir alllanga ferð byrjaði að opnast útsýnið suðuraf: Esju- fjöll, Öræfajökull með Hvanna- dalshnjúk, Þumall og síðar Lómagnúpur og fjöllin vestan Skaftár. Skammt framundan stóð allhár fjallahryggur upp úr jökulfönninni. Það var Gríms- fjall með tvö hundruð metra þverhnípi ofan í Grímsvatna- sigdældina að norðan. Síðast gaus í Grímsvötnum 1934. Hljóp þá Skeiðará, og hefur gert það síðan fjórða hvert ár. Lækkar jökullinn í sigdældinni við hlaupin, en hækkar smátt og smátt á milli. Þar sem degi var tekið að halla, var ákveðið að fara ekki niður í jarðsigið, heldur halda austur og suðurfyrir og í skála Jöklarannsóknarfélagsins. Þang að var komið um kl. sjö um kvöldið. Inni gegndi enginn, þótt guð- að væri á glugga og réðust menn þá til inngöngu. Urðum við eilítið undrandi að finna yl koma á móti okkur og sjá glæð- ur í kolum. Samkvæmt gesta- bók hafði annar af tveim leið- öngrum sumarsins yfirgefið staðinn fyrr um daginn. Nú tóku allir til starfa við að kveikja upp í eldatækjum, troða snjó í potta og bræða. Sóttist það vel, nema hvað fyrir- ferðin á snjónum minnkaði óhugnanlega við umbreyting- una. Þurfti því oft að bæta í kokkteilinn. Þegar matreiðslu vatnsins var lokið, var úr því orðin hin gómsætasta súpa de la region, bleksterkt kaffi og kakó svo þykkt, að smyrja mátti á brauð. Báru réttir þessir allir merki þess, að spara þurfti vatn ið. Snæddu nú allir meðan eftir var í pottum. Þótti þó sumum ekki nóg að gert og veiddu dós- ir og pakka upp úr bakpokum sínum og settu í potta til að bæta matseðilinn. Framan af hrærði hver í sínum potti, en áður en varði beindist athygli allra að matreiðslukúnstum þeirra Nenna, Jóa og Óla. Höfðu þeir sett svo ríflega af kjötboll- um og sósu frá Kjötiðnaðarstöð- inni í lítið pottkríli, að stór kúf- ur var á. Á öðrum eldi var gríðarstór panna með nokkrum pínulitlum pylsum, sem minnk- uðu enn til muna í heitri feit- inni. Horfðu allir með andakt á aðfarirnar, og biðu eftir að verða vitni að þeirri matreiðslu- snilli, að sjóða tvo lítra af kjöt- bollum í hálfsannarslítra potti. Eftir því sem hitnaði í pottinum og sósan þynntist, stóðu meist- ararnir í æ meira stríði með sleifarnar við að halda sósunni í pottinum. Skyndilega gripu áhorfendur andann á lofti — eitthvað virtist hafa komið fyr- ir niðri í pottinum, einna lík- ast því að gos væri í aðsigi. Innihaldið tók að lyftast hægt og tignarlega, hærra og hærra. Matreiðslumennirnir handléku sleifarnar, svo unun var á að horfa, en allt kom fyrir ekki. Stór loftbóla brauzt upp á yfir- borðið og drjúgur hluti ag inni- haldi pottsins belgdist út yfir vélina. Voru nú góð ráð dýr, en fyrir snarræði viðstaddra tókst að bjarga matreiðslunni. Náðu þeir handfljótustu þar í lófafylli af dýrindis kjötbollum og sósu frá Kjötiðnaðarstöðinni. Þótti nú þeim þremenningunum ekki ráð að hætta á annað gos úr potcinum og tóku hann því af eldinum. Vegna þess hve pyls- urnar á pönnunni stóru voru orðnar smáar, fannst þeim og heillaráð að setja þær saman við bollurnar eins og beikon í serbneskan gúllas. Jusu þeir því næst réttinum í skálar sínar og snæddu með beztu lyst. Brátt mátti þó heyra eitthvert japl og jaml frá snæðendum. Þegar spurzt var fyrir, hvað ylli, kom í ljós að enginn þótt- ist finna neinar pvlsur í sinni skál. Var hent gaman að því, hvað valdið hefði. Líklegast þótti, að pylsurnar hefðu runn- ið milli tanna þeirra, án þess að eftir væri tekið. Meðan þessu fór fram, hafði kvenskapurinn þrifið til og þvegið upp, og að veizlulokum þeirra bræðra var allt reiðu- búið til brottfarar. Var þá orðið skuggsýnt, þoku belgingur og nokkur úrkoma. Stigu nú aðeins þeir allra harð- gerðustu á skíðin, en flestir kusu heldur að sitja inni í Kett- inum. Upphófst þar brátt al- mennur söngur, sem stóð sleitu- laust í hálfan þriðja klukku- tíma eða meðan röddin entist. Á eftir tóku þau Maggi og Nenni að kveðast á sem ákafast í hálftíma til. Sá hálftími, sem enn var eftir að jökulurðunum, leið við grín og gamansögur þeirra, sem ekki höfðu sofnað undir kveðskapnum. Við jökuljaðarinn lét Baldur ganga á undan, til að freista þess að halda slóðinni frá um morguninn á ísnum. Þar sem stormur og hlýindi hafði verið um daginn, gekk það treglega, og eftir alllanga stund hvarf Erá vinstri: Baldur Sigurðsson og Jón Sigurgeirsson. (Ljósm.: J.S.) Snjókötturinn í jökuljaðrinum, " (Ljósm.: S. B. Þ.) hún alveg. Komið var fram yfir miðnætti, og í myrkrinu virtust allar sandkeilurnar nákvæm- lega eins. Þannig' var haldið áfram drykklanga stund, og sýndist sitt hverjum, hvort kom ið væri framhjá uppkomustaðn- um eða ekki. Hafði þó verið fylgzt vandlega með sandöld- unum á jökuljaðrinum, því þar hefðu slóðir enn átt að sjást. Skyndilega hnaut Nenni um eitt sanddrýlið og missti ljósið í fallinu. „Strákar, hún er hérna“, kallaði hann um leið og hann stóð upp. Þeir, sem næstir stóðu, komu á vettvang, og í skininu frá Ijósinu á jörðinni mátti greina skýrt beltisfar í einni sandörðunni. Þurfti þá ekki lengur að leita. En storm- urinn hafði ekki setið auðum höndum. Þar sem um morgun- inn var harður ís, þurfti nú að vaða vatn upp á mið.ian legg. Vatnslænurnar í jökulröndinni höfðu víkkað um allt að helm- ing, og voru nú margar hverjar á annan metra á breidd. Var það erfitt verk og blautt að gera Kettmum' 'brant-í-myrlífipu, en tókst þó að lokum. ar liðið á fjórða tímann um nóttina, er búið hafði verið um hann uppi á Benzinum og farangurinn á sleðanum. Ákváðu nú allir að njóta nokkurra tíma svefns nema Benni, Magga og Helga, sem lögðu strax af stað vestur á Sprengisarid, því að sú síðast- nefnda þurfti að hefja virmu um hádegið. Hurfu þau brátt út í næturmyrkrið. Nokkru síðar kallaði bílstjórinn upp í talstöð- ina samkvæmt umtali +il að láta vita, að hann væri að leggja út í Rjúpnabrekkukvíslina. Hafði hún umhverfzt í storminum um daginn og náði upp undir glugga straummegin, en yfir komst "bíllinri. ‘ Tveim tímum seinna, er Maggi og Jón Ævar komu að henni, hafði lækkað í henni a. m. k. um fet, og var hún sæmilega greiðfær. Þannig geta aðstæður allar á öræfum gjörbreytzt á skömmum tíma, sem gerir ferðalög þar ennþá minnisstæðari. Norður Sprengisand gekk ferð allra að óskum. Helga komst í vinnuna í tæka tíð, og Benzinn og Köttuririri náðu í kvöldmatinn. Þegar nokkrir ferðalanganna hittuSt aftur fá- einum dögum síðar, var byrjað að ráðgera næstu ferð, og hefur sú áætlun verið í mótun síðan. Hvenær hún verður fullgerð, veit enginn ennþá, en fáir eru þeir, sem gætu gert sig ánægða með eina slíka ferð sem þessa. Magnús Kristinsson. • e & e er í endurskoðun VIÐTAL VIÐ JONAS JONSSON í SÍÐUSTU VIKU barst Menn- ingar- og; fræðslusjóði Alþýðusam bands Norðurlands fíu þúsund króna -gjöf frá Verkalýðsfélaginu Fram á Sauðárkróki. Er gjöf þessi gefin í minningu Alberts heitins Sölvasohar,1 hins kunna dugnað- ar- og félagshyggjuinanns, er lézt snemma í nóvcmber. En á meðan Albert var búsettur á Sáúðárkróki starfaði hann mikið fyrir Verka- mannafélagið Fram, var um skeið formaður félagsins, en heið- ursféla«i allt frá árinu 1953. Stoíaun Menningar- og fræðslu sjóðs Alþ ýðtt sa mha n d s Norður- lands var ákveðin á þingi sam- bandsins 7,, nóv.cntber sl., og var stofnfé líaíris gjafir til minningar um Kaldur heitinn Svanlaugssón og framlag frá sambandssjóði, en hin myndarlega minningargjöf Verkama n n atélagsins Fram er fyrsta gjöfin, sem sjóðnum berst eftir stofnun hans. '2. 'de's. 1971. AÐ ÞESSU sinni hringdi blaðið til Jónasar Jónssonar ráðunauts og aðstoðarmanns landbúnaðar- ráðherra og ræddi við hann um stund um landbúnaðarmál og sitthvað, sem er í undirbúningi hjá stjórnvöldum landsins við- komandi landinu og landbún- aðinum. Við hvað starfarðu einkum núna á sviði Iandbúnaðarmáía? Starf mitt er fólgið í því að aðstoða landbúnaðarráðherra við að koma í framkvæmd ýmsu því, sem er í stjórnarsátt- málanum um landbúnaðarmál. Þar er m. a. um að ræða endur- skoðun á mikilvægum þáttum í landbúnaðarlöggjöfinni og má þar fyrst nefna lögin um fram- leiðsluráð og verðmyndun. Til að endurskoða þau lög hefur verið skipuð 9 manna nefnd, sem hefur unnið að endurskoð- uninni' Formaður hennar er Sveinn Tryggvason fram- kvæmdastjóri Framleiðsluráðs. Nefndin vinnur á grundvelli ályktana, sem í stjórnarsáttmál- anum segir um, að bændur semji við ríkisvaldið um verð búvara í stað þess fyrirkomu- lags, sem verið hefur. En þetta er sú stefna, sem Stéttarsam- band bænda hefur óskað að far- in væri í verðlagsmálum. Fleiri þættir Iöggjafar í endur skoðun? Já, þar má einnig nefna jarð- ræktarlögin. Þau eru í endur- skoðun, af nefnd sem Búnaðar- þing kaus. Einnig eru búfjár- ræktarlögin í endurskoðun, einnig af nefnd, sem Búnaðar- þing kaus til þess. Og enn má nefna, að ákveðið er, að gera heildaráætlun um alhliða land- græðslu og skipulega nýtingu landsgæða. En allt eru þetta mikilvæg mál. Nú er að hlaupa af stokkunum nefnd, sem á að gera tillögur um alhliða og skipulega landgræðslu og nýt- ingu lands. En á síðustu tímum er vakandi áhugi á þessum mál- um meðal þjóðarinnar og mjög vaxandi. Loks nú á síðustu tínuim liggja fyrir gróðurrannsóknir, sem leggja má til grundvallar? Já, og þær sýna okkur það, að í vissum landshlutum, svo sem sunnan og vestan er land of- beitt, en í öðrum landshlutum má búfé fjölga allverulega, svo sem á Norðausturlandi. Nú þarf að taka upp skipulega nýtingu landsins. Þar sem afréttir eru taldir ofsettnir, eru miklir möguleikar til landbóta og hag- feldari nýtingu í búskap. Til landbóta má nefna alla þá þurrkun lands, sem framkvæmd hefur verið á landinu, en skurð- ir munu samtals vera 15 þús. km. til þurrkunar lands. Þar mætti víða hugsa sér nýjar bú- greinar, einkum þar sem sauð- lönd eru ofsetin en unnt er að bæta láglendi með ýmsu móti. En með nýrri búgrein á ég eink um við holdanaut. Nú er hreyfing á holdanauta- innflutningi? Jú, nú eru fyrir þinginu breyt ingar á lögum um innflutning búfjár. Standa vonir til, að eftir 2—3 ár gætu bændur fengið sæði af nýjum stofni holda- nauta, en fyrir því hafa bændur barizt svo árum skiptir. Sæði holdanautanna yrði notað til einblendingsræktunar. En þegar rætt er um skipu- lega nýtingu lands, þarf ekki aðeins að hugsa um búskapinn, heldur önnur not af landinu. ís- lendingar þurfa sem flestir að geta notið landsins með ein- hverjum hætti, svo sem með útivist og ferðalögum. Þar kem- ur þá einnig til greina eftirsókn margra eftir landi, svo sem til að byggja sumarbústaði, eða réttindi til veiða. Ég er því fylgj andi að allir geti notið landsins sem allra bezt, en það verður þó að vera með skipulegum hætti, og á þann veg, að til gagns verði bæði sveitafólki og kaupstaðafólki. Sveitarfélögin verða að gera það upp við sig, hvar og hvort þau vilja leyfa byggingar sumarbústaða og úti- vistarsvæða. Og bændur eiga ekki að selja land sitt heldur leigja það. Og hið sama má segja um veiðivötn og veiðiár. Þar þarf að vera góð og skipu- leg samvinna milli landeigenda og þeirra, sem vilja njóta sumar daga til veiðiskapar. Sumir vilja taka landsréttindi af bændum? Já, rétt er það, og fyrir skömmu kom það sjónarmið Jónas Jónsson. fram í erindi í útvarpinu „um daginn og veginn“. En mikil- vægast fyrir alla þjóðina er, að halda samfélagi sveitanna við lýði og samfélög sveitanna hald ■ ast ekki við nema að sveitir og sveitarfélög njóti allra þeirra gæða, sem við landið eru bund- in. Fólkið í sveitunum nytjai' landið og hefur helgað sér rét>; til landsins með því að nytja það. Þetta er eitt af stórmálun- um í íslenzkum landbúnaði. Orlof bændanna? Orlof komst á hjá bændum og frændum okkar í Noregi, frá 1, júlí 1971 Við höfum verið að kynna okkur það mál hjá þeim, í Noregi voru bændur einna síð astir til að fá skipuleg orlof. Hér eru bændur einnig á seinni skipunum og hafa ekki fengið orlof. Hjá Norðmönnum var varið 80 millj. norskra króna tii (Framhald á blaðsíðu 6) JMJ, KORÓNA OG ARISTO FÖT A UNGA OG ALDNA í GLÆSILEGU ÚRVALI RAÐHUSTORGI 3 SÍMI 111 33 GRÁNUFÉLAGSG. Á SÍMI 115 99

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.