Dagur


Dagur - 12.02.1972, Qupperneq 5

Dagur - 12.02.1972, Qupperneq 5
4 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. Kraftsins ör FYRIR einum áratug voru raforku- mál Norðlendinga komin á það stig, að verkfræðifirmanu Harza í New York var falið að gera áætlanir um virkjun Jökulsár á Fjöllum. Það mál átti sér langan aðdraganda. Þegar í byrjun aldarinnar flutti Einar Bene- diktsson þjóðinni gleðiboðskap sinn um Dettifossvirkjun og gerði hann að yrkisefni. „Hve mætti bæta lands og lýðs vors kjör, að leggja á bogastreng þinn kraftsins ör.“ Vatnsmælingar í Jökulsá munu liafa verið hafnar á öðrum tug aldar- innar. Þorvaldur Thoroddsen skrif- aði ítarlega um Jökulsá í íslandslýs- ingu sinni og lýsti vatnasvæði henn- ar, sem er hið stærsta á landinu. En það mun hafa verið nokkru eftir 1950, sem Hermann Jónasson þáver- andi raforkumálaráðlierra lét hefja skipulega rannsókn á möguleikum til að virkja Dettifoss. Var þar eink- um um að ræða jarðfræðilegar at- huganir. Á Alþingi 1960 sameinuðust allir þingmenn hins nýstofnaða Norður- landskjördæmis eystra um að leggja það til, að gerð yrði fullnaðaráætlun um virkjun Jökulsár við Dettifoss, fengu samþykkta þingsályktunartil- lögu þar sem ríkisstjórninni var falið að láta gera áætlunina. Mikill áhugi vaknaði þá á þessu máli, ekki aðeins á Norðurlandi, lieldur einnig á Aust- urlandi. Náði sú hreyfing hámarki er 20 alþingismenn að norðan og aust- an boðuðu til fundar á Akureyri um Dettifossvirkjun sumarið 1962. En þar mættu auk þingmannanna full- trúar frá sýslum og kaupstöðum á öllu Norður- og Austurlandi. Glöggir menn þóttust sjá, að Detti fossvirkjun myndi skapa tímamót, ef henni væri hrundið í framkvæmd, verða upphaf norðlenzkrar aldar í landsbyggðarsögu íslands. En sú öld er enn ekki upp runnin, Dettifoss var ekki virkjaður. En Harza gerði áætlun, eins og til stóð. Gert var ráð fyrir að virkja saman þrjá fossa í Jökulsá, Selfoss, Detd- foss og Hafragilsfoss, og sameina fall- ið í jarðgöngum milli þeirra. Virkja skyldi rúmlega þann hluta af vatns- rnagni árinnar, sem telja má berg- vatn, og um tiltölulega litla stíflu- gerð er að ræða. Hagkvæmast sýndist að virkja 100 þús. kw. með þrem vatnsvélum eða 130 þús. kw. með fjórum vatnsvélum. Reiknað var (Framhald á blaðsíðu 6). Þorgerður Eiríksdóffir KVEÐJU0RÐ „Þeir, sem guðirnir elska, deyja ungir.“ DULÚÐUGT er lögmál lífs og dauða. Ung, efnileg listakona er kölluð héðan fyrirvaralaust, þeg ar framtíðin virðist brosa við henni. Miklar vonir voru bundn ar við hljómlistargáfu Þor- gerðar. Hún var í Oddeyrarskólanum fram að 13 ára aldri. Hæglát, hugþekk og skyldurækin stund- aði hún þar nám sitt og rækti það með ágætum, þótt hún væri einnig í Tónlistarskólanum. Snemma annaðist hún undirleik við skemmtiatriði á ársskemmt- un skólans. í þrjú ár lék hún undir söng barnanna í barna- stúkunni Samúð. Allt þetta gerði hún af fúsu geði. Fyrir þennan þegnskap við skólann sinh var ég henni þakklátur. Þessi orð verða aðeins stutt kveðja frá barnaskólanum henn ar. En sú kveðja er flutt af ein- lægni og byggð á þeirri trú, að mannkostir hennar og hæfileik- ar njóti sín áfram í öðrum heimi. Ég trúi því staðfastlega að sál hennar lifi og starfi áfram. Aldrei framar mæti ég henni í Geislagötunni eins og svo oft áður, þegar hún var að fara heim úr skólanum og hún brosti svo hlýtt til mín. Slíkt bros ylj- ar hverjum kennara. Undarlegt hve mikill ylur getur falist í einu litlu brosi. Mikill harmur er nú kveðinn að foreldrum hennar, Hólmfríði og Eiríki, systkinum og öðrum ástvinum. En ég vona að í gegn- um þann harm skíni sólargeisl- ar trúarinnar á annað líf. Um leið og ég þakka Þorgerði yndis lega samveru, bið ég guð að styrkja ástvini hehnar i bessari erfiðu reynslu. Eiríkur Sigurðsson. ÞORGERÐUR EIRÍKSDÓTTIR lézt af slysförum í London 2. febrúar sl. og verður til moldar borin í dag. Sá sorgaratburður, er hún hvarf okkur í blóma æskunnar með svo sviplegum hætti, er hryggilegri en svo, að orðum verði yfir komið. Þorgerður átti þegar að baki sér ágætan náms- feril, þótt ung væri, og var rétt að hefja framhaldsnám að af- loknu burtfararprófi frá Tón- listarskóla Akureyrar. Við þekktum Þorgerði allt frá því, er hún var lítil telpa að feta fyrstu sporin á þeirri braut, er hún síðar kaus að ganga og fundum það löngum, að með námi sínu var henni fyllsta alvara. Ævinlega gekk hún heils hugar og með fullri einbeitn- ingu að hverju viðfangsefni, sem fyrir hana var lagt. Hún var fjölþættum gáfum gædd samfara óvenjulegri atorkusemi og kom miklu í verk á stuttu æviskeiði. Þorgerður var ein þeirra fágætu nemenda, sem sameina prúða og Ijúfmannlega framkomu, næmri og sívakandi eftirtekt, og hún hafði í ríkum mæli til að bera hæfileikann til vinnunnar, sem ef til vill er flestum hæfileikum dýrmætari, því að vinnan er móðir allra afreka. Tónlistin var henni ekki neitt tómstundagaman eða leikfang, heldur eitt megininntakið i lífi hennar. Á daglegt starf innan veggja skólans setti hún líflegan og elskulegan svip og var kennur- um til stöðugrar uppörvunar í þeirra starfi. Foreldrum Þorgerðar, Hólm- fríði Þorláksdóttur og Eiríki Stefánssyni, systkinum og öðr- um vandamönnum, sendum við innilegar samúðarkveðjur. Hug- ur okkar dvelst hjá þeim þessa sorgartíð, og við óskum þeim hugarléttis í þessari raun. Lið- inna daga minnumst við þakk- látum huga. Skólastjóri og kennarar Tónlistarskólans á Akureyri. ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ ÞÓR hélt árshátíð sína sl. laugardags- kvöld. Á árshátíðum félagsins hefur það verið venja undan- farin ár að kjósa íþróttamann eða íþróttakonu félagsins. Er þá aðallega stuðzt við það hvaða maður hafi að áliti stjórnarinn- ar skarað fram úr í sinni íþrótta grein á árinu á milli árshátíða. Að þessu sinni ákvað stjórnin að verðlauna 18 ára gamla stúlku, Friðnýju Jóhannesdótt- ur. Friðný hefur getið sér mjög gott orð í körfuknattleik, þar sem hún hefur m. a. orðið tvö- faldur íslandsmeistari og ber mönnum saman um að henni hafi þar verið mest að þakka. Ekki er nóg með að Friðný sé fremst í flokki á íþróttavellin- um, héldur er hún alltaf tilbúin til að sinna öllu því, sem til hennar er leitað með í sam- bandi við félagsstarfið. O fþróttakona ársins, Friðný Jó- hannesdóttir, með glæsilegan verðlaunagrip. Nýr tilraunastjóri kominn til Akureyrar og svarar hann nokkrum spurningum blaðsins GROÐRARSTOÐIN á Akureyri skipaði sér fyrir löngu á virð- ingarbekk í hugum Norðlend- inga. Þar var um áratugi bæði skóli og sýnikennsla í ræktun, síðar tilraunastöð í jarðrækt og er það enn. Skógrækt og matjurtarækt voru meðal fyrstu verkefnanna, og sér þess enn merki í gamla trjágróðrinum þar. Ræktun mat jurta og skrautjurta breiddist út frá Gróðrarstöðinni, fremur en nokkrum einum öðrum stað hér um slóðir. En ræktunar- menningin hefur átt erfitt upp- dráttar hér á landi, í öllum landshlutum, og er raunar skammt á veg komin, nema gras rækt. Virðast þessir þættir í öldudal, einkum matjurtarækt. Skipuleg tilraunastarfsemi í jarðrækt, hefur um áratugi far- ið fram í nágrenni Gróðrarstöðv arinnar, og skýrslur verið birtar og niðurstöður tilrauna. Má þar nefna tilraunir með grasfræ- blöndur, áburðartilraunir, sáð- tímatilraunir og verkunarað- ferðir heys. Þá hafa jarðvinnslu aðferðir verið ofarlega á dag- skrá í tilraunastarfseminni, en einnig tilraunir með belgjurtir, kartöflur og korntegundir, svo að eitthvað sé nefnt. Mér hefur virzt frá því fyrsta að ég kynntist tilraunastarfsem- inni á Akureyri og einnig á Sámsstöðum í Fljótshlíð, að til- raunastarfsemin færi að nokkru leyti fyrir ofan garð og neðan hjá bændum. Þeir bændur eru, held ég teljandi, sem gefa sér tíma til að skoða tilraunastarf- semina á sumrin, á meðan allt er í blóma og áhugaverðast að sjá tilraunareitina á vaxtartím- anum. Og tilraunaskýrslurnar, sem bændur hafa auðvitað greiðan aðgang að, virðast ekki til þess fallnar að vekja brenn- andi áhuga, enda þarf í raun og veru vissa þekkingu til að lesa þær svo sem aðrar skýrslur fræðimanna. Skýrslulesturinn Ályktanir Búnaðarsam- BÚNAÐARSAMBAND Eyja- fjarðar efndi til aukafundar að Hótel KEA mánudaginn 3. jan. sl. og mættu þar, auk stjórnar og ráðunauta, fulltrúar frá öll- um búnaðarfélögunum á sam- bandssvæðinu. Ennfremur sátu fundinn nokkrir gestir. Hér fara á eftir nokkrar af þeim samþykktum, sem fundur- inn gerði og vísað var til Bún- aðarþings, Stéttarsambands bænda, Rannsóknarráðs land- búnaðarins og landbúnaðarráðu neytisins: 1. „Fulltrúafundur B.S.E. haldinn á Akureyri 31/1 1972, samþykkir eftirfarandi ályktun: Þar sem Ijóst er, að fjárhags- afkoma búnaðarsambandanna er mjög erfið og þarfnast mik- illa úrbóta, leggur fundurinn til, að tillögur milliþinganefndar Búnaðarþings 1971 verði sam- þykktar óbreyttar. Lagt verði kapp á, að þær komi til fram- kvæmda nú á þessu ári og verði teknar inn í lög samhliða endur skoðun á jarðræktar- og búfjár- ræktarlögum.“ 2. „Fulltrúafundur B.S.E. haldinn á Hótel KEA 31/1 1972, samþykkir eftirfarandi áskorun til fjárveitingavaldsins og Rann sóknarstofnunar landbúnaðar- ins: Fyrirsjáanlegt er, að í næstu framtíð eða innan þriggja til fimm ára verði land, er Til- raunastöð ríkisins að Galtalæk hefur til umráða, komi inn í skipulag Akureyrar, enda er nú þegar búið að taka allmikið land af stöðinni til nota fyrir Akureyri. Er því mjög aðkall- andi að farið sé að huga að nýju landi, þar sem tilraunastöðin geti starfað til frambúðar. Því vill fundurinn beina þeirri áskorun til áður nefndra aðila, að þetta verði tekið til vand- legrar athugunar þegar á þessu ári og kannaðir verði möguleik- ar á jarðakaupum í því augna- miði. Einnig skorar fundurinn á fjárveitingavaldið og stjórn Rannsóknarstofnur.ar landbún- aðarins að auka fjármagn til- raunastöðvarinnar þannig, að um verulega aukningu á starf- ber líklega oft svipaðan árangur og grasafræðikennsla skólanna á vetrum, þegar hvergi er lif- andi jurt að sjá og flestum leið- ist. Með einhverjum hætti þarf að koma á lífrænna sambandi milli bænda og tilraunastöðvanna, ef út frá því er gengið, að stöðv- arnar fáist við nytsamar tilraun ir og niðurstöður þeirra séu verðugir vegvísar fyrir þá, sem af gróðrinum og landinu lifa. I framhaldi af þessum hug- leiðingum hitti blaðið að máli Bjarna Guðleifsson, nýkominn frá búvísindanámi í Noregi, þar sem hann lagði sérstaka stund á kalrannsóknir hér 4 landi, í sambandi við nám sitt, og hefur nú verið ráðinn tilraunastjóri hjá Rannsóknarstofnun land- semi geti verið að ræða á sviði tilrauna í þágu landbúnaðar- ins.“ 3. „Aukafundur B.S.E. hald- inn á Akureyri 31. jan. 1972, fagnar því, að nú skuli vera í athugun að flytja inn færanlega heykögglaverksmiðju og felur stjórn sinni að athuga mögu- leika á, að verksmiðjan hefji starf í Eyjafirði. Ennfremur tekur fundurinn undir samþykkt aðalfundar Stéttarsambands bænda 1971, sem fjlalar um þetta mál.“ 4. „Fulltrúafundur B.S.E. beinir því til Búnaðarþings, að það láti fara fram athugun á möguleikum í sambandi við djúpfrystingu hrútasæðis hér á landi. Sjálfsagt er að hafa sam- ráð við þá erlenda aðila, sem þessu eru kunnastir, s. s. Norð- menn og Svía.“ 5. „Fulltrúafundur B.S.E. 31/1 1972, beinir því til Bún- aðarþings, að í framtíðinni verði lögð aukin áherzla á nauðsyn afkvæmarannsókna á hrútum. Til þessa verði veitt aukið fjár- magn, og nauðsynlegt er, að sauðfjárræktarráðunautar Bún- aðarfélags íslands geti unnið að skipulagningu rannsóknanna og uppgjöri á niðurstöðum í sam- starfi við héraðsráðunauta við- komandi búnaðarsambanda.“ 6. „Fulltrúafundur B.S.E. haldinn á Akureyri 31/1 1972, telur rétt, að öll sveitarfélög verði skipulagsskyld. Má benda á í þessu sambandi vaxandi ásókn bæjarbúa í lönd fyrir sumarbústaði o. fl. Fundurinn telur því nauðsynlegt, að haft sé eftirlit með slíkum bygging- um, bæði með staðsetningu þeirra, hvernig þær eru í útliti og aðra nauðsynlega aðstöðu, er þessu fylgir.“ Stjórn og ráðunautum bún- aðarsambandsins var falið að láta greinargerðir fylgja tillög- unum til viðkomandi aðila og einkum tillögu nr. 3, sem var mikið rædd á fundinum og var ríkjandi áhug'i fyrir því, að sem fyrst fengist úr því skorið, hvort færanlegar heykögglaverksmiðj ur gætu orðið til hagsbóta við heyverkun í framtíðinni. □ Bjarni Guðleifsson, tilraunastj. búnaðarins, er fluttur til Akur- eyrar og heldur áfram því til- raunastarfj, sem löngum hefur verið kennt við Gróðrarstöðina og áður við Ræktunarfélag Norðirrlands. En hér á landi eru fjórar tilraunastöðvar á vegum Rannsóknarráðs, eða ein í hverj um landsfjórðungi. Hvert verður þitt tilraunasvið einkum? Á sviði jarðræktar, fyrst og fremst. Haldið verður áfram 'þeim tilraunum, sem hér hafa verið í gangi undanfarin ár, en sérfræðingar og tilraunastjórar ákveða þær fyrirfram í stærstu dráttum, fyrir tilraunastöðvarn- ar. Tilraunir þessar snúast mest um grasræktina, áburðarnotk- un, stofna- og tegundatilraunir með grasfræ og aðrar tilraunir út frá þessu. Minni tilraunir verða í kartöflurækt, grænfóður rækt og kornrækt. En höfuð verkefnið verður grasræktin. Komið hefur fram þolleysi grastegunda. Hvað viltu segja um það? Þetta atriði ætla ég einmitt að leggja.mikla áherzlu á í tilraun- unum. Við þurfum að geta við- haldið sæmilegu uppskeru- magni í lengri tíma, án óhóflegs áburðarkostnaðar. Erlendis hafa áhrif mismunandi áburðar, mis- munandi jarðvinnslu, mismun- andi uppskeruhættir, 'beitarþol, sáð- og sláttutími, verið í rann- sókn. Þessi verkefni þarf að rannsaka- með tilraunum hér hjá okkur. Beinar kaltilraunir hafa ekki verið gerðar hér enn- þá. Gróðlir í landi tilraunastöðv arinnar hér, hefur kalið meira og minna. En það kal gefur okk ur ekki nægar upplýsingar um mismunandi meðferð landsins, með tilliti til kals. Mig langar til að vinna að því, að finna þau áhrif, sem kalinu valda. Ilve stórt er Iand það, sem þú licfur til umráða? Það er 30—35 héktarar. Það er hér við þéttbýlið og vaxandi landþörf bæjarins gengur út yfir tilraunastarfsemina áður en varir, ef að líkum lætur. Þetta land hefur verið notað til gras- ræktar og mjólkurframleiðsla stunduð samhliða. Um nokk- urra ára skeið var heyfóðrið selt, en nú er fjósið orðið fullt á ný, með um 40 gripi og þar eru nú fóðurtilraunir gerðar, bæði með héyköggla, kjarnfóð- ur og vothey. En til þess að gera verulegar fóðurtilraunir í naut- griparækt, þarf marga gripi. En þessar fóðurtilraunir eru annar liður í tilraunastarfseminni, sem sérfræðingur frá Rannsóknar- stofnuninni skipuleggur, og hafa þær staðið í þrjú ár. Er það rétt, að flytja eigi þessa starfsemi? Það er á umræðu- og athug- unarstigi, að flytja alla tilrauna- starfsemina. Við þurfum stórt land og fjölbreytt, og helzt á þeim stað, sem getur verið sam- nefnari fyrir sem flestar venju- legar aðstæður í norðlenzkum sveitum. Þess vegna viljum við t. d. ekki flytja tilraunastarf- semina fram í Eyjafjörð, þar sem veðursæld er óvenju mikil. En vel fer á því, að hafa þær tilraunir saman, sem hér hafa verið nefndar, m. a. vegna vinnuaflsins. Þá er það kostur að vera ekki mjög fjarri Akur- eyri, en ókostur að vera fast við þéttbýlið eins og nú, og alls ekki til frambúðar. Þörf er nýrra bygginga fyrir tilraunastarfsem- ina, þar sem hún er nú. Mælir sú þörf með því, að nýr tilrauna staður verði valinn til verulegr- ar framtíðar. Dreifðar tilraunir hjá bænd- um? Þær hafa verið gerðar um ára bil og sjálfsagt er að halda þeim áfram. Bændur komast bá sjálf- ir í beina snertingu við þær, og auk þess er hægt að velja margs konar land til tilraunanna, sem e .t. v. er ekki fyrir hendi á aðal tilraunastaðnum, en engu að síður er nauðsynlegt að kanna. Blaðið þakkar svörin og von- ar að geta frætt lesendur meira síðar um tilraunirnar. E. D. íjörn R. Árnason Irá Átl NOKKUR KVEÐJUORÐ AÐFARARNÓTT sunnudagsins 6. þ. m. barst vini mínum Birni R. Árnasyni, eða Runólfi í Dal eins og hann kallaði sig stund- um, kallið mikla. Ekki segi ég að ég hafi glaðzt eða fagnað, er ég frétti það, en þó fannst mér það meiri gleði en sorgarfrétt, því að mér var það mjög vel kunnugt, að hann var farinn að þrá umskiptin miklu og kveið þeim í engu og má miklu frem- ur segja að hann hafi hlakkað til. Við áttum æði oft tal saman, og þá um ýmsa hluti. Og nú hin síðari árin barst talið æði oft að því, sem nú er fram komið við vin minn Björn — dauðanum. Björn talaði oft um það, einkum nú tvö til þrjú sl. ár að sér væri farið að leiðast að lifa, og hann vildi svo gjarna fá að fara. Ekki sagðist hann þó vilja hjálpa neitt til þess. Hann vildi bíða íiugrór þess, að höfundi lífsins þóknaðist að kalla á hann. Og hann var ekki í einum vafa um það að lífið héldi áfram. Og hann trúði ekki á neinn dauða- svefn, heldur átti hann þess von að vakna strax til nýs lífs, kannske eitthvað ráðviltur fyrst, en að vitundarleysið yrði ekki langt. Og nú á ég þess von að honum hafi orðið að trú sinni. Það er ekki ætlunin hér að gera verulega grein fyrir lífs- sögu þessa vinar míns. Þó læt ég hér fylgja örfá æviatriði. Björn Runólfur var fæddur að Hæringsstöðum í Svarfaðar- dal 13. júlí 1885. Foreldrar hans voru hjónin fsak Árni Runólfs- son bónda á Hreiðarsstöðum ísakssonar og Anna Sigríður Björnsdóttir bónda á Atlastöð- um Sigurðssonar. Árni faðir Björns bjó á Hæringsstöðum frá 1882—1890 og svo í Atlastöðum frá 1890—1915. Þau Atlastaða- hjón Árni og Anna Sigríður eignuðust 7 börn og komust sex þeirra upp og eru nú aðeins tvió Raforkusala Rafmagnveifna Rík- isins á Norðurlandi eystra RAFORKUSALA Rafmagns- veitna ríkisins á Norðurlandi eystra nam 25.1 milljón kwst. í smásölu á árinu 1971 og hafði aukizt um 6.4% frá árinu áður. Fyrir þessa orku greiddu not- ur er á söluskýrslu Rafmagns veitnanna. Svæði Seldar Samtals Meðal verð kwst. kr. kr./kws1 Grímey 150.000 500.000 3.33 Ólafsfjörður 1.883.000 5.709.000 3.03 Hrísey 903.000 2.182.000 2.41 Dalvík 2.527.000 6.273.000 2.48 Svarfaðardalur , Árskógsströnd 794.000 1.459.000 1.84 430.000 1.140.000 2.65 Eyjafjörður norðan Ak 1.960.000 3.456.000 1.76 Eyjafjörður sunnan Ak 4.493.000 7.795.000 1.73 S.-Þing. vestan Ljósavatns .... 3.150.000 5.165.000 1.64 S.-Þing. austan Ljósavatns .... 5.492.000 10.301.000 1.88 Axarfjörður og Kelduhverfi ... 752.000 1.619.000 2.15 Kópasker 382.000 870.000 2.28 Raufarhöfn 1.280.000 3.197.000 2.50 Þórshöfn og Þistilfjörður 904.000 2.666.000 2.95 Samtals 25.100.000 52.332.000 2.08 þeirra á lífi. Björn heitinn ólst upp á heimili foreldra sinna og voru honum foreldrarnir og æskuheimilið á Atlastöðum mjög kært. Og nú hin síðari árin var það svo, að tal hans bar æ oftar að minningum, sem bundnar voru við Atlastaða- heimilið. Enda var margs þaðan að minnast. Því að þó Atlastað- ir, og kannske einmitt vegna þess, að Atlastaðir er fremsti bærinn að vestanverðu í botni Svarfaðardals, þá var þar mjög gestkvæmt á meðan Heljardals- heiði var enn aðal leiðin milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar. Þeir Atlastaðamenn áttu marg- ar ferðir yfir Heljardalsheiði sem fylgdarmenn. Og margir voru þeir, sem nutu aðhlynning ar og góðrar fyrirgreiðslu þeirra Atlastaðahjóna, og kunni Björn endur 52.3 milljónir króna. Meðalverð varð því kr. 2.08 á kwst. Hér á eftir fer listi, sem byggð Eins og sézt á listanum hér að ofan er meðalverðið nokkuð mis munandi. Lægst er það í sveit- um, en það byggist á því að bændur hafa tök á, vegna bú- rekstrar, að nýta raforku eftir marktaxta. Meðalverð orkunnar á þeim gjaldskrárlið er kr. 1.34 á kwst. Rafmagnsveitur ríkisins, Akureyri. margar sögur af því. Hann var sjálfur sporléttur göngumaður og ég held að hann hafi oft notið þess að fylgja mönnum og eiga sálufélag með þeim, sem hann fylgdi. Því að þó að Björn væri alla tíð feiminn og hlédrægur, þá hef ég fáa hitt, sem var meiri þörf á því að hafa einhverja til að blanda geði við. Og hann vildi í senn bæði fræða menn og fræðast af þeim. Hug'ur Björns mun hafa stað- ið til skólagöngu og mennta. Tækifæri til hins fyrra gafst eigi, en hann var all vel mennt- aður, þó að þar væri aðeins um sjálfsmenntun að ræða. Enda var Björn vel greindur og minnugur. En ég held að honum hafi alltaf fylgt einhver minni- máttarkennd, sem átti rót sína að rekja til þess að hann gat ekki gengið í skóla eins og hug- ur har.s stóð til. Nú má það vel vera að ævi hans hefði orðið önnur, ef það hefði tekizt. En ég veit ekki hversu Björn hefði tekið skólavist og skólagöngu. En læt það alveg ósagt, að hann hefði sætt sig við það. Það má - Frá Húsnæðismálast. (Framhald af blaðsíðu 8) ræða íbúðir sem verið hafa í byggingu undanfarin ár og eru byggðar á vegum hins eldra verkamannabústaðakerfis. — Framkvæmdir eru þegar hafn- ar á grundvelli hinna nýju laga um verkamannabústaði, bæði hafa stjórnir verkamannabú- staða verið skipaðar í mjög mörgum byggðarlögum í land- inu og eins er bygging 27 íbúða þegar hafin í 4 byggðarlögum. Hefur Húsnæðismálastofnunin þegar tekið ákvörðun um ráð- stöfun mikils fjármagns til smíði íbúða þessara. (Úr fréttatilkynningu Húsnæðismálastofnunar) l—Hllr HIBlltBBaf-iMHHti asföðum þó vel vera að hann hefði ger; það, en hann hefði þá sennilegE’, ekki verið sá Björn, sem vift Svarfdælingar þekktum og mér finnst, sem löng skólavist hefði, getað orðið honum ofraun. En hvað sem um það er, þci er það staðreynd, að á vissum sviðum þekkingar bar Björn langt af öðrum hér um slóðir. í önn hversdagsins aflaði hann sér staðgóðrar jjekkingar á mönnum og málefnum og hann bjó yfir mikilli þekkingu á per- sónusögu fjölda margra hér i . Svarfaðardal og víðar. Enda var hann sá brunnur þekkingar e .' ég sótti mjög til um allar upp- lýsingar um látna menn og lif - andi hér um slóðir. Og allar líkur eru til þess, að ef hann hefði haft aðstöðu til að beita sér eingöngu að þessum málum, þá hefði hann náð þar miklum og góðum árangri. En lífsstarfið og búsorgin, sem hann talaði svo oft um, hazlaði honum völl annars stað • ar. Hann gerðist bóndi hér i Svarfaðardal og bjó skv. Kenn- aratalinu á þreimur stöðum: Atlastöðum, Klaufabrekknakoti og Ingvörum. Oll þau ár, sen:. hann bjó var hann leiguliði. Og einhvern veginn hef ég haft þao á tilfinningunni að bóndastaðan hafi ekki alls kostar hentac honum. Hugurinn var oft bund- inn við annað. Hann fékkst æð:;. lengi við barnakennslu hér :: Svarfaðardal og víðar, og þar held ég hann hafi náð góðun'. árangri. Þá tók hann þátt í opir, berum málum, var t. d. í hrepps nefnd, skóla- og sóknarnefnd- um. Og meðfram þessu stundað . hann ritstörf. Má þar til nefna margar minningargreinar og margar þeirra skrifaðar undi..• nafninu Runólfur í Dal. Bókii'. „Sterkir stofnar“, sem hefur að geyma frásagnir eða þætti ai: mörgum Svarfdælingum, kom út árið 1960. Þá má geta um fjölritað bændatal í Svarfaðar- dal, sem út kom 1969. Og svo á hann ugglaust eitthvað í hancl • ritum. Árið 1907 kvæntist hanr. Önnu Stefaníu Stefánsdóttu:.’ frá Sandá, Jónatanssonar. Þau eignuðust einn son, Stefán, sem nú er búsettur í Lambhaga ci Dalvík, kvæntur Dagbjörtu Ás- grímsdóttur og eiga þau fimm mannvænleg börn, sem nú eru uppkomin og voru Birni afa sínum mjög hugstæð. Nú er þessi aldni vinur minn lagstur til hinztu hvíldar. Méi.' er engin launung á að þar sakna ég' vinar í stað, er Björn er fai ■ inn. Hann kom æði oft til min og naut ég þess að tala við hann, eða hlusta á hann, því að alls eins oft var það svo að ég hlusv • aði, en Björn talaði. Mér fannsv, hann oft vera í svo mikiili þör:: fyrir það að tala. Við vorum ekki alltaf sammála, en ég minr. ist þess aldrei að okkur yrði sundurorða. Ég þakka Birni á Grund, en svo var hann oft kallaður hei', langa og góða vináttu og marg» ar ánægjustundir. Hann er nú horfinn yfi? „Heljarána“, sem hann talaðl stundum um. Og mér er nú sem ég sjái hann ganga sporléttan og glaðan á vit hins nýja og óræðé:. Þakklátur hugur minn fýlgL’ honum á þeirri leið. Ég votta syni hans og ástvin- um öllum samúð. Stefán Snævarr. j;

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.