Dagur - 26.02.1972, Page 8

Dagur - 26.02.1972, Page 8
8 f Forsetahjóiiin til Finnlands SMATT & STORT FORSETINN, dr. Kristján Eld- ;íárn, og forsetafrúin, Halldóra Eldjárn, fara í opinbera heim- jókn til Finnlands og dvelja þar Jagana 2.—6. marz. Gunnarsstöóum, Þistilfirði 25. íebrúar. Naumast er hægt að segja, að snjór sáist, og farið að slá grænum lit á tún. Vegir /irðast klakalausir og eru orðn- GJAFALÉTTUR VETURí MÖÐRUDAL Grímsstöðum 24. febrúar. Allur snjór er að fara, en ögn svellað ennþá. Hross ganga alltaf og sauðfé hefur verið venju frem- ur létt á fóðrum í vetur. Bílar hafa verið að fara hér um, bæði jeppar og vörubílar, enda enginn snjór á vegi til Mý- vatnssveitar og lítill snjór mun á austurleið, þótt ég sé ekki viss um, að fólksbílafæri sé gott, það gætu verið smá snjóhöft á vegi. í gær fundust fjórar útigöngu kindur sunnan við Möðrudal, ekki mjög langt frá bæ og voru þær í ágætum holdum, sem eðli ! egt er í svona vetri. K. S. FRÁ LÖGREGLUNNI SAMKVÆMT viðtali við yfir- lögregluþjón Akureyrar í gær: 1 gær varð kona fyrir bifreið í Kaupvangsstræti. Hún var flutt í sjúkrahús, en mun ekki hafa brotnað, en særðist á höfði. í fyrradag skemmdust fjórir bilar í árekstri vestarlega á Strandgötu, en ekki meiddist fólk. í fyrrakvöld varð laus hestur fyrir bíl á Aðalstræti. Skemmd- ist bíllinn talsvert en hesturinn virtist ekki hafa meiðzt að ráði. Oftar en einu sinni hefur ver- ið brotizt inn í húsnæði Mjólkur samlagsins (nýja byggingin). Nú eru þau mál að upplýsast og fleiri óknytti sömu manna. □ DAGUR kemur næst út miðvikudaginn 1. marz. — Auglýsingar berist í tíma. Forsetahjónin fara með flug- vél frá Flugfélagi íslands til Kaupmannahafnar, en þaðan til Helsingfors, þar sem Kekkonin ir þurrir, en ósléttir eru þeir. Þetta er eins og maður hefur bezt munað, t. d. 1964 og 1939. Veturinn hefur verið fremur gjafaléttur, og ekkert sambæri- legur við undanfarna vetur að því leyti. Þistilfirðingar voru mjög dug legir að rækta undanfarin kal- og harðindaár og það bjargaði, því að gömlu túnin brugðust og gáfu lítið af sér vegna kal- skemmdanna, þangað til helzt nú, í sumar. En til eru enn stór túnflæmi ónýt og hafa ekki ennþá verið endurræktuð. Auk nýræktanna tóku menn hér upp grænfóðurrækt í stór- um stíl og hér á bæ hefur féð eingöngu verið fóðrað á höfrum úr votheysgeymslum e. áramót. En aðstaðan var ekki b.vggð upp með votheysnotkun í huga. Það er erfitt að færa til fleiri tonn af votheyi á dag. Ég hef stundum rökrætt votheysverk- un við minn innri mann og þessi innri maður vill smeygja sér undan þessari heyverkunarað- ferð. Hitt er ég jafn viss um, að þegar illa árar, bjargar vot- heyið. í vetur er verið að byggja tvö stór hús, annað er stór verkfæra geymsla hjá Vilhjálmi á Syðra- Lóni, úr léttu efni, en hitt er 380 ferm. hús fyrir bifreiða- og Skagaströnd 24. febrúar. Ungt fólk verður ástfangið í svona veðri, ef ekki hvað af öðru, þá af sjálfri vorblíðunni. Jörð hef- ur grænkað og blóm sprungið út í görðum. Ut á Skaga hafa tún ekki verið svona falleg í mörg ár í maílok, sagði póstur mér, og tiltók þar Víkur og Hafnir. Vegirnir eru eins og á sumrin. Á vegum ' kvenfélagsins er verið að æfa gamanleikinn „Margt býr í þokunni" og er ráð gert að sýna hann á Húnavik- Finnlandsforseti tekur á móti þeim. Dagskrá heimsóknarinnar hef ur þegar verið ákveðin. □ landbúnaðarvélaverkstæði kaup félagsins. Á því húsi var byrjað eftir áramót og er það komið undir þak og er þetta óvanalegt, að unnt sé að vinna að bygging- um hér á þessum árstíma. Heldur er aflinn tregur Harp- an er á togveiðum og reytir. Skálanesið var með línu og er nú farið suður á vertíð. Fagra- nesið hefur róið með línu. Vinna er slitrótt á Þórshöfn. Hrognkelsaveiði er ekki hafin ennþá. Verkalýðsfélagið á Þórshöfn hefur tekið upp þá nýbreytni, að halda kvöldvökur með heima fengnu efni að öllu leyti og er öllum heimill aðgangur án gjalds. Þetta mælist mjög vel fyrir og skemmtir fólk sér hið bezta. Ó. H. TVEIR af þingmönnum Fram- sóknarflokksins, Ingvar Gísla- son og Vilhjálmur Hjálmarsson, flytja í sameinuðu þingi tillögu til þingsályktunar um umboðs- og aðstoðarmenn lækna í byggð um landsins. Tillagan hljóðar þannig: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjóminni að kanna, hvort ekki unni, sem verður um sumar- málin. Leikstjóri er Birna Blön- dal. Tólfta febrúar hélt kvenfélag- ið þorrablót í félagsheimilinu Fellsborg og var það vel sótt. Stopul vinna hefur verið í frystihúsinu, því að bátarnir hafa fiskað heldur lítið í janúar og febrúar. En vinna við hörpu- disk hefur verið nokkur. Hingað kemur læknir frá Blönduósi tvisvar í viku og tek- ur þá á móti sjúklingum og hef- ur svo lengi verið. X. SKRÝTIÐ ORÐALAG Kona að norðan baðst skýring- ar á eftirfarandi klausu úr nefndaráliti frá Kvenréttinda- félagi íslands, er fjallar um skattaniál: „Nefndin gerir hins vegar kröfur til þess, hver sem megin- regla skattkerfisins verður í framtíðinni, að hjón verði viður kennd þar sem tveir jafngildir þjóðfélagsþegnar (eins og við kjörborðið), enda þótt ýmis störf þeirra, svo og nýting lifs- orku þeirra í sambandi við hlut verk hjónabandsins í þágu þjóð félagsins, sé ekki og geti ekki orðið algerlega eins.“ FERNUR í HAUST? Á félagsráðsfundi KEA sagði kaupfélagsstjórinn frá því, að sennilega yrði fernur, undir mjólk og rjóma, teknar í notk- un hér á Akureyri áður en Iangt liði. En ástæða þess er sú, að erfitt reynist að fá flöskur og átöppunarvél Samlagsins þarf mikillar endurnýjunar við, ef lengur á að nota hana svo að hagkvæmara sýnist að skipta yfir í fernurnar. PRJÓNAKAPUR FYRIR 90 MILLJÓNIR Gerður liefur verið samningur milli bandarísks fyrirtækis og Álafoss h. f. um sölu á 40.800 prjónakápum til Bandaríkjanna. Útflutningsverðmæti þessa magns er um 90 milljónir króna. Þetta mun vera stærsta pöntun sem gerð hefur verið á íslenzk- um ullarvarningi ef frá eru tal- in viðskipti SfS við Sovétríkin. Kápurnar verða framleiddar hjá mörgum fyrirtækjum. Ljúka þarf framleiðslunni fyrir 1. sept. BJARTUR f SUMARHÚSUM Sjálfstætt fólk, með Bjart karl- inn í Sumarhúsum, er nú komið í leiksviðsbúning og verður inn an tíðar sýnt í Þjóðleikhúsinu undir stjórn Baldvins Halldórs- sonar. En Róbert Arnfinnsson leikur Bjart. Önnur hlutverk leika Kristbjörg Kjeld, Rúrik Haraldsson, Valur Gíslason og Bessi Bjarnason, svo nefndir séu nokkrir helztu leikararnir. ÖRUGGAR KLUKKUR Frá og með næsta ári munu allar rafmagnsklukkur á opin- berum stöðum í Sovétríkjunum stjórnast af sjálfvirku útvarps- kerfi, Sevena, sem rannsóknar- sé tímabært og nauðsynlegt að hafa sem víðast um byggðir landsins starfandi sérstaka um- boðs- og aðstoðarmenn lækna, sem fólk gæti leitað til í neyðar- tilfellum og í sambandi við ýmis minni húttar erindi, þegar ekki þjálfaðir í slysahjálp, umönnun næst til læknis, og væru þeir sjúkra, umsjón með lyfjabirgð- um, lyfjaafgreiðslu o. s. frv. Skal í þessu sambandi athugað, hvort ekki sé líklegt, að nýta megi starfskrafta ljósmæðra framar því sem nú er á sviði heilbrigðisþjónustu. — Efna skal sem fyrst til sérstakra nám skeiða fyrir það fólk, sem veld- ist til slíkra starfa sem hér um ræðir.“ Hjúkrunarfólk í hverri sveit? Af hálfu flutningsmanna hafði Ingvar Gíslason framsögu fyrir tillögu þessari, er hún kom til umræðu í þinginu. Sagði hann í ræðu sinni, að þó að ekki bæri að líta á þessa tillögu sem „lausn“ á læknavandamálinu, þá væri það skoðun flutnings- stofnun úraiðnaðarins í Moskvu liefur búið til. Öll sjálfvirk úr, sem búin eru þar til gerðum móttakara, ná merkjunum, sem kerfið sendir út. Fara leiðrétt- ingarnar fram 24 sinnum á sólar liring, ef þeirra er þörf. Hugsan- leg skekkja í útreikningi sovézka meðaltímans er nú 1 sekúnda á 30 þúsund árum. Síð- ar mun verða liægt að láta sjálf virka útvarpsmerkjakerfið ná til allra klukkna í landmu, líka armbandsúra. — APN HÚSREGLUR í LÓNI 1. í þessu liúsi er TILLITS- SEMI og KURTEISI í háveg- uni höfð. 2. Hér fer enginn inn á ÓHREINUM ÚTISKÓM. 3. Ilér hefur enginn ÁFENGA DRYKKI um hönd. 4. Meðferð tóbaks er talin óæskileg. Þeir, er ánetjaðir eru tóbaksnotkun sýna þá sjálfsögðu tillitssemi að hafa slíkt ekki um hönd hér, nema sem minnst, og þá í samræmi við þær leiðbeiningar, sem ákveðnar og kynntar verða hverju sinni. 5. Hér sýna allir NAFNSKÍR- TEINI hvenær sem um slíkt er beðið. 6. Ef svo illa tekst til, að EIN- HVER VIRÐI EKKI, EINS OG TIL ER ÆTLAST, OFANRITAÐAR LEIÐBEIN INGAR, þá fórrtar sá hinn sami um leið rétti sínum til að dvelja á þessum stað um lengri eða skemmri tíma, eft- ir ákvörðun og mati umsjón- armanns. — Húsnefnd. MARGT FURÐULEGT Margt furðulegt skeður í veröld inni. Nixon borðar með prjón- um og þylur spaitmæli Maos for manns á „fundi aldarinnar“ í Kína. Hér á landi fer væntan- lega fram „skákeinvígi aldar- innar“, fyrri eða síðari hluti, en hinn hlutann fær Belgrad. fs- lenzkur háskólarektor sýndi þá dirfsku í okkar mikla efnis- hyggjulandi, að standa fyrir um ræðuin um „hvað sé hinum meg in“ og fékk marga til að hugsa. Þetta er „sjónvarpsþáttur vetr- arins“ sagði hrifinn sjónvarps- eigandi, sem sat við tæki sitt það kvöld.' Hér norður á Akur- eyri springa blóm út í görðum, en langt suður í álfu kom átta metra djúpur snjór. manna, að það væri til mikilla bóta á heilbrigðisþjónustunni, ef þjálfaðir væru til þjónustu í hverri sveit eða því sem næst sérstakir hjúkrunarmenn, sem fólk gæti leitað til í neyðartil- fellum, ekki sízt þegar slys bæri að höndum og langt væri að leita læknis. í því fælist mikið öryggi og myndi mjög létta storf héraðslækna, ef þeir hefðu sér til fulltingis þjálfað hjúkrunar- lið sem víðast í byggðum lands- (Fi'amhald á blaðsíðu 5) Akureyrartogararnir HARÐBAKUR landaði í heima- höfn á miðvikudaginn um 100 tonnum, og var það fyrsta heimalöndunin síðan fyrir jól. Kaldbakur landaði álíka fisk- magni á fimmtudaginn. Sléttbakur er á veiðum. Svalbakur er á heimleið úr söluferð. Sólbakur er enn í heimahöfn en fer sennilega á veiðar á morgun, sunnudag, Q KVÖLDVÖKUR MEÐ HEIMAUNNU EFl Tún lallegri en í maílok Alhyglisverð lillaga Ingvars og Vilhjálms

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.