Dagur - 26.02.1972, Blaðsíða 8
8
f
Forsetahjóiiin til Finnlands
SMATT & STORT
FORSETINN, dr. Kristján Eld-
;íárn, og forsetafrúin, Halldóra
Eldjárn, fara í opinbera heim-
jókn til Finnlands og dvelja þar
Jagana 2.—6. marz.
Gunnarsstöóum, Þistilfirði 25.
íebrúar. Naumast er hægt að
segja, að snjór sáist, og farið að
slá grænum lit á tún. Vegir
/irðast klakalausir og eru orðn-
GJAFALÉTTUR
VETURí MÖÐRUDAL
Grímsstöðum 24. febrúar. Allur
snjór er að fara, en ögn svellað
ennþá. Hross ganga alltaf og
sauðfé hefur verið venju frem-
ur létt á fóðrum í vetur.
Bílar hafa verið að fara hér
um, bæði jeppar og vörubílar,
enda enginn snjór á vegi til Mý-
vatnssveitar og lítill snjór mun
á austurleið, þótt ég sé ekki viss
um, að fólksbílafæri sé gott, það
gætu verið smá snjóhöft á vegi.
í gær fundust fjórar útigöngu
kindur sunnan við Möðrudal,
ekki mjög langt frá bæ og voru
þær í ágætum holdum, sem eðli
! egt er í svona vetri. K. S.
FRÁ LÖGREGLUNNI
SAMKVÆMT viðtali við yfir-
lögregluþjón Akureyrar í gær:
1 gær varð kona fyrir bifreið
í Kaupvangsstræti. Hún var
flutt í sjúkrahús, en mun ekki
hafa brotnað, en særðist á höfði.
í fyrradag skemmdust fjórir
bilar í árekstri vestarlega á
Strandgötu, en ekki meiddist
fólk.
í fyrrakvöld varð laus hestur
fyrir bíl á Aðalstræti. Skemmd-
ist bíllinn talsvert en hesturinn
virtist ekki hafa meiðzt að ráði.
Oftar en einu sinni hefur ver-
ið brotizt inn í húsnæði Mjólkur
samlagsins (nýja byggingin).
Nú eru þau mál að upplýsast og
fleiri óknytti sömu manna. □
DAGUR
kemur næst út miðvikudaginn
1. marz. — Auglýsingar berist í
tíma.
Forsetahjónin fara með flug-
vél frá Flugfélagi íslands til
Kaupmannahafnar, en þaðan til
Helsingfors, þar sem Kekkonin
ir þurrir, en ósléttir eru þeir.
Þetta er eins og maður hefur
bezt munað, t. d. 1964 og 1939.
Veturinn hefur verið fremur
gjafaléttur, og ekkert sambæri-
legur við undanfarna vetur að
því leyti.
Þistilfirðingar voru mjög dug
legir að rækta undanfarin kal-
og harðindaár og það bjargaði,
því að gömlu túnin brugðust og
gáfu lítið af sér vegna kal-
skemmdanna, þangað til helzt
nú, í sumar. En til eru enn stór
túnflæmi ónýt og hafa ekki
ennþá verið endurræktuð.
Auk nýræktanna tóku menn
hér upp grænfóðurrækt í stór-
um stíl og hér á bæ hefur féð
eingöngu verið fóðrað á höfrum
úr votheysgeymslum e. áramót.
En aðstaðan var ekki b.vggð
upp með votheysnotkun í huga.
Það er erfitt að færa til fleiri
tonn af votheyi á dag. Ég hef
stundum rökrætt votheysverk-
un við minn innri mann og þessi
innri maður vill smeygja sér
undan þessari heyverkunarað-
ferð. Hitt er ég jafn viss um, að
þegar illa árar, bjargar vot-
heyið.
í vetur er verið að byggja tvö
stór hús, annað er stór verkfæra
geymsla hjá Vilhjálmi á Syðra-
Lóni, úr léttu efni, en hitt er
380 ferm. hús fyrir bifreiða- og
Skagaströnd 24. febrúar. Ungt
fólk verður ástfangið í svona
veðri, ef ekki hvað af öðru, þá
af sjálfri vorblíðunni. Jörð hef-
ur grænkað og blóm sprungið
út í görðum. Ut á Skaga hafa
tún ekki verið svona falleg í
mörg ár í maílok, sagði póstur
mér, og tiltók þar Víkur og
Hafnir. Vegirnir eru eins og á
sumrin.
Á vegum ' kvenfélagsins er
verið að æfa gamanleikinn
„Margt býr í þokunni" og er ráð
gert að sýna hann á Húnavik-
Finnlandsforseti tekur á móti
þeim.
Dagskrá heimsóknarinnar hef
ur þegar verið ákveðin. □
landbúnaðarvélaverkstæði kaup
félagsins. Á því húsi var byrjað
eftir áramót og er það komið
undir þak og er þetta óvanalegt,
að unnt sé að vinna að bygging-
um hér á þessum árstíma.
Heldur er aflinn tregur Harp-
an er á togveiðum og reytir.
Skálanesið var með línu og er
nú farið suður á vertíð. Fagra-
nesið hefur róið með línu.
Vinna er slitrótt á Þórshöfn.
Hrognkelsaveiði er ekki hafin
ennþá.
Verkalýðsfélagið á Þórshöfn
hefur tekið upp þá nýbreytni,
að halda kvöldvökur með heima
fengnu efni að öllu leyti og er
öllum heimill aðgangur án
gjalds. Þetta mælist mjög vel
fyrir og skemmtir fólk sér hið
bezta. Ó. H.
TVEIR af þingmönnum Fram-
sóknarflokksins, Ingvar Gísla-
son og Vilhjálmur Hjálmarsson,
flytja í sameinuðu þingi tillögu
til þingsályktunar um umboðs-
og aðstoðarmenn lækna í byggð
um landsins.
Tillagan hljóðar þannig:
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjóminni að kanna, hvort ekki
unni, sem verður um sumar-
málin. Leikstjóri er Birna Blön-
dal.
Tólfta febrúar hélt kvenfélag-
ið þorrablót í félagsheimilinu
Fellsborg og var það vel sótt.
Stopul vinna hefur verið í
frystihúsinu, því að bátarnir
hafa fiskað heldur lítið í janúar
og febrúar. En vinna við hörpu-
disk hefur verið nokkur.
Hingað kemur læknir frá
Blönduósi tvisvar í viku og tek-
ur þá á móti sjúklingum og hef-
ur svo lengi verið. X.
SKRÝTIÐ ORÐALAG
Kona að norðan baðst skýring-
ar á eftirfarandi klausu úr
nefndaráliti frá Kvenréttinda-
félagi íslands, er fjallar um
skattaniál:
„Nefndin gerir hins vegar
kröfur til þess, hver sem megin-
regla skattkerfisins verður í
framtíðinni, að hjón verði viður
kennd þar sem tveir jafngildir
þjóðfélagsþegnar (eins og við
kjörborðið), enda þótt ýmis
störf þeirra, svo og nýting lifs-
orku þeirra í sambandi við hlut
verk hjónabandsins í þágu þjóð
félagsins, sé ekki og geti ekki
orðið algerlega eins.“
FERNUR í HAUST?
Á félagsráðsfundi KEA sagði
kaupfélagsstjórinn frá því, að
sennilega yrði fernur, undir
mjólk og rjóma, teknar í notk-
un hér á Akureyri áður en Iangt
liði. En ástæða þess er sú, að
erfitt reynist að fá flöskur og
átöppunarvél Samlagsins þarf
mikillar endurnýjunar við, ef
lengur á að nota hana svo að
hagkvæmara sýnist að skipta
yfir í fernurnar.
PRJÓNAKAPUR FYRIR
90 MILLJÓNIR
Gerður liefur verið samningur
milli bandarísks fyrirtækis og
Álafoss h. f. um sölu á 40.800
prjónakápum til Bandaríkjanna.
Útflutningsverðmæti þessa
magns er um 90 milljónir króna.
Þetta mun vera stærsta pöntun
sem gerð hefur verið á íslenzk-
um ullarvarningi ef frá eru tal-
in viðskipti SfS við Sovétríkin.
Kápurnar verða framleiddar
hjá mörgum fyrirtækjum. Ljúka
þarf framleiðslunni fyrir 1. sept.
BJARTUR f SUMARHÚSUM
Sjálfstætt fólk, með Bjart karl-
inn í Sumarhúsum, er nú komið
í leiksviðsbúning og verður inn
an tíðar sýnt í Þjóðleikhúsinu
undir stjórn Baldvins Halldórs-
sonar. En Róbert Arnfinnsson
leikur Bjart. Önnur hlutverk
leika Kristbjörg Kjeld, Rúrik
Haraldsson, Valur Gíslason og
Bessi Bjarnason, svo nefndir
séu nokkrir helztu leikararnir.
ÖRUGGAR KLUKKUR
Frá og með næsta ári munu
allar rafmagnsklukkur á opin-
berum stöðum í Sovétríkjunum
stjórnast af sjálfvirku útvarps-
kerfi, Sevena, sem rannsóknar-
sé tímabært og nauðsynlegt að
hafa sem víðast um byggðir
landsins starfandi sérstaka um-
boðs- og aðstoðarmenn lækna,
sem fólk gæti leitað til í neyðar-
tilfellum og í sambandi við ýmis
minni húttar erindi, þegar ekki
þjálfaðir í slysahjálp, umönnun
næst til læknis, og væru þeir
sjúkra, umsjón með lyfjabirgð-
um, lyfjaafgreiðslu o. s. frv.
Skal í þessu sambandi athugað,
hvort ekki sé líklegt, að nýta
megi starfskrafta ljósmæðra
framar því sem nú er á sviði
heilbrigðisþjónustu. — Efna
skal sem fyrst til sérstakra nám
skeiða fyrir það fólk, sem veld-
ist til slíkra starfa sem hér um
ræðir.“
Hjúkrunarfólk í hverri sveit?
Af hálfu flutningsmanna hafði
Ingvar Gíslason framsögu fyrir
tillögu þessari, er hún kom til
umræðu í þinginu. Sagði hann
í ræðu sinni, að þó að ekki bæri
að líta á þessa tillögu sem
„lausn“ á læknavandamálinu,
þá væri það skoðun flutnings-
stofnun úraiðnaðarins í Moskvu
liefur búið til. Öll sjálfvirk úr,
sem búin eru þar til gerðum
móttakara, ná merkjunum, sem
kerfið sendir út. Fara leiðrétt-
ingarnar fram 24 sinnum á sólar
liring, ef þeirra er þörf. Hugsan-
leg skekkja í útreikningi
sovézka meðaltímans er nú 1
sekúnda á 30 þúsund árum. Síð-
ar mun verða liægt að láta sjálf
virka útvarpsmerkjakerfið ná
til allra klukkna í landmu, líka
armbandsúra. — APN
HÚSREGLUR í LÓNI
1. í þessu liúsi er TILLITS-
SEMI og KURTEISI í háveg-
uni höfð.
2. Hér fer enginn inn á
ÓHREINUM ÚTISKÓM.
3. Ilér hefur enginn ÁFENGA
DRYKKI um hönd.
4. Meðferð tóbaks er talin
óæskileg. Þeir, er ánetjaðir
eru tóbaksnotkun sýna þá
sjálfsögðu tillitssemi að hafa
slíkt ekki um hönd hér, nema
sem minnst, og þá í samræmi
við þær leiðbeiningar, sem
ákveðnar og kynntar verða
hverju sinni.
5. Hér sýna allir NAFNSKÍR-
TEINI hvenær sem um slíkt
er beðið.
6. Ef svo illa tekst til, að EIN-
HVER VIRÐI EKKI, EINS
OG TIL ER ÆTLAST,
OFANRITAÐAR LEIÐBEIN
INGAR, þá fórrtar sá hinn
sami um leið rétti sínum til
að dvelja á þessum stað um
lengri eða skemmri tíma, eft-
ir ákvörðun og mati umsjón-
armanns. — Húsnefnd.
MARGT FURÐULEGT
Margt furðulegt skeður í veröld
inni. Nixon borðar með prjón-
um og þylur spaitmæli Maos for
manns á „fundi aldarinnar“ í
Kína. Hér á landi fer væntan-
lega fram „skákeinvígi aldar-
innar“, fyrri eða síðari hluti, en
hinn hlutann fær Belgrad. fs-
lenzkur háskólarektor sýndi þá
dirfsku í okkar mikla efnis-
hyggjulandi, að standa fyrir um
ræðuin um „hvað sé hinum meg
in“ og fékk marga til að hugsa.
Þetta er „sjónvarpsþáttur vetr-
arins“ sagði hrifinn sjónvarps-
eigandi, sem sat við tæki sitt
það kvöld.' Hér norður á Akur-
eyri springa blóm út í görðum,
en langt suður í álfu kom átta
metra djúpur snjór.
manna, að það væri til mikilla
bóta á heilbrigðisþjónustunni,
ef þjálfaðir væru til þjónustu í
hverri sveit eða því sem næst
sérstakir hjúkrunarmenn, sem
fólk gæti leitað til í neyðartil-
fellum, ekki sízt þegar slys bæri
að höndum og langt væri að
leita læknis. í því fælist mikið
öryggi og myndi mjög létta storf
héraðslækna, ef þeir hefðu sér
til fulltingis þjálfað hjúkrunar-
lið sem víðast í byggðum lands-
(Fi'amhald á blaðsíðu 5)
Akureyrartogararnir
HARÐBAKUR landaði í heima-
höfn á miðvikudaginn um 100
tonnum, og var það fyrsta
heimalöndunin síðan fyrir jól.
Kaldbakur landaði álíka fisk-
magni á fimmtudaginn.
Sléttbakur er á veiðum.
Svalbakur er á heimleið úr
söluferð.
Sólbakur er enn í heimahöfn
en fer sennilega á veiðar á
morgun, sunnudag, Q
KVÖLDVÖKUR MEÐ HEIMAUNNU EFl
Tún lallegri en í maílok
Alhyglisverð lillaga Ingvars og Vilhjálms