Dagur - 22.03.1972, Blaðsíða 4
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.L
Ábyrgir menn
í SÍÐUSTU VIKU lauk mikilli oría-
hríð á Alþingi í sambandi við skatta-
og tekjustofnalög. í þeim umræðum
var margt sagt, sem várpar ljósi á
grundvallarstefnur stjómmálaflokk-
anna. í efri deild lýsti fyrrverandi
fjármálaráðherra því yfir, f. h. Sjálf-
stæðisflokksins, að þeir Sjálfstæðis.-
menn bæru enga ábyrgð á 5500 millj.
kr. hækkun fjárlaga. Aldrei hefur
það þótt traustvekjandi, er menn
lýsa því yfir, að þeir séu ekki ábyrgir
gerða sinna, því að erfitt verður það
fyrir M. J. að sanna það fyrir þjóð-
inni, að ekkert af hækkunum f járlag-
anna megi iekja til ákvarðana „við-
reisnar“-stjórnarinnar. Var það ekki
M. J., sem samdi við starfsmenn rík-
isins, en launaliður samkvæmt þeim
samningi, ásamt vísitöluliækkun,
hækkuðu f járlög um 963.5 millj. kr.?
Samkvæmt ákvörðun á síðasta ári
„viðreisnar“ hækkuðu framlög til
tryggingakerfisins fjárlögin um 573
millj. kr. og vegna samþykkta ann-
arra laga á sama tíma hækkuðu f jár-
lögin um 620 milljónir. Vera má, að
flokkur M. J. beri ekki ábyrgð á því,
sem hann gerir rétt fyrir kosningar,
eða á að skilja orð hans svo? Eða
ætlar M. J. að neita því, að þessar
2156 millj. kr. hækkun fjárlaga sé
bein áhrif frá stjórnartíð Sjálfstæðis-
manna? Eru J>ó enn ótaldar óbeinar
hækkanir fjárlaga, sem frá verðbólg-
unni stafa.
Hitt er svo annað mál, að }>að er
ekki á ábyrgð Sjálfstæðismanna,
heldur núverandi stjórnarflokka, að
ríkissjóður liefur nú tekið á sig ýms-f
ar greiðslur, sem á sveitarfélögunum
hvíldu áður. Er sú hækkun um 1296
millj. kr., sem ]>ó eru ekki auknar
álögur, heldur tilfærslur, sem gerðarj
eru að ósk sveitarfélaganna. Þessi ósk
var fyrir löngu fram borin en náði
aldrei eyrum „viðreisnar“ eða fór inn
um annað eyrað og út um liitt. Og
fjárlögin hækkuðu meira en þetta,
því að stjórnarflokkarnir töldu rétt
að hækka greiðslur trygginganna, en
sá liður hækkaði fjárlögin um 530
millj. kr., og til félagsmála og margs-
konar framkvæmda hækka framlög
um 780 milljónir króna. En }>essar
liækkanir eru vegna ákvarðana nú-
verandi stjórnar, enda ekki að skapi
stjórnarandstæðinga, ]>ví að þeir
skrifa um „veizluborð“, „ábyrgðar-
leysi“ í sambandi við hækkaðar bæt-
ur trygginganna. □
BúnaSðrsamband Eyjafjarðar 40 ára
Formaður þess, Ármann Dalmannsson, svarar
nú nokkrum spurningum blaðsins
BÚNAÐARSAMBAND Eyja-
fjarðar er 40 ára nú í vetur.
Aðalfundur þess hófst á Hótel
KEA árdegis á fimmtudaginn.
í tilefni af afmælinu átti blað-
ið viðræður við stjórnarformann
inn, Ármann Dalmannsson, og
lagði fyrir hann nokkrar spurn-
ingar.
Hvenær var sambandið stofn-
að og hver voru tildrög þess?
Ræktunarsamband Norður-
lands var búnaðarsamband fyr-
ir allan Norðlendingafjórðung,
þar til sérstök búnaðarsambönd
voru stofnuð fyrir hvert hérað,
en þau voru stofnuð á árunum
1927—1932.
B.S.E. var stofnað síðast
þeirra 16. jan. 1932 og hefur því
nýlega náð fertugsaldri. Átta
búnaðarfélög stóðu að stofnun
þess og fljótlega bættust fleiri
við. Flest hafa þau verið 17, en
eru nú ekki starfandi nema 14.
. Hverjir skipuðu fyrstu stjórn
sambandsins?
Ólafur Jónsson, framkvæmda
stjóri, formaður, Jakob Karls-
son, afgreiðslumaður, gjaldkeri
og Sigurður E. Hlíðar, ritari.
Ólafur var formaður sam-
bandsins til 1954, en ég hef ver-
ið það frá þeim tíma. I
■Hverjir eru nú í stjórninni?
Auk mín eru það Eggert
Dav'íðsS'on á Möðruvöllum,
Sveinn Jónsson í Ytra-Kálfs-
skinni og samkvæmt lagabreyt-
ingu, sem gerð var á aðalfundi
1970, var bætt tveimur við í
stjórnina 1971. Voru þá kosnir í
.3 stjórnina Arnsteinn Stefánsson
| í Stóra-Dunhaga og Sigurgeir
j Garðarssón á Staðarhóli. Eru
i þessir fimm í stjórninni nú.
| Hver eru og hafa verið helztu
Íviðfangsefni búnaðarsambands-
ins?
Samkvæmt Jarðræktarlögun-
um og lögum Búnaðarfélags ís-
(J lands eru búnaðarsamböndun-
í um í landinu falin ákveðin verk
j Frá Bridgeíélagi Ak.
3 NÚ stendur yfir hjá Bridge-
i félagi Akureyrar 4ra umferða
j sveitahraðkeppni. Staðan eftir
1 2 umferðir er þessi:
stig
j 1. Sv. Mikaels Jónssonar 1200
2. — Halldórs Helgas. 1136
3. — Harðar Steinbergss. 1131
i 4. — Guðm. Guðlaugss. 1114
5. — Guðjóns Jónssonar 1100
6. — Páls Pálssonar 1099
7. — Sveinbjörns Sig. 1081
8. — Gunnars Berg 1030
9. — Þórarins B. Jónss. 1023
10. — Tómasar Sigurj.s. 1003
11. — Hauks Arnþórss. 963
efni. Þau hafa í sinni þjónustu
héraðsráðunauta, sem annast
þessi störf og eru jafnframt leið-
beinendur bænda við bústörfin.
Mælingar jarðabóta, undirbún-
ingur og umsjón búfjársýninga,
val líflamba, taka jarðvegssýna
PAÍ<-
Ármann Dalmannsson.
o. fl. er meðal hinna'áflegu við-
fangsefna, sem ráðunautarnir
vinna að.
Hverjir eru ráðunautar sam-
bandsins nú?
B.S.E. hefur nú þrjá ráðu-
nauta í föstu starfi. Ævarr Hjart
arson er jarðræktarráðunautur
þess, Ólafur G. Vagnsson sauð-
fjárræktarráðunautur og Stefán
Þórðarson vélaráðunautur. —
Ráðunautamir hafa skrifstofu í
byggingu Búvélaverkstæðinu á
Óseyri utan við Glerá.
B.S.E. kýs tvo fulltrúa á Bún-
aðarþing. Fulltrúar þess nú eru
hreppstjórarnir Hjörtur E. Þór-
arinsson á Tjörn og Stefán Hall-
dórsson á Hlöðum.
Stofnaði ekki B.S.E. Búvéla-
verkstæðið?
Jú, en síðar var stofnað hluta-
félag um það og ræktunarsam-
böndin gerðust þá meðeigendur.
Einnig á KEA hlut í því og
nokkrir einstaklingar.
Hvaða verkefni eru framund-
an auk hinna árlegu viðfangs-
efna?
Eins og fundargerð þessa aðal
fundar sýnir, eru niðurstöður
fjárhagsáætlunar fyrir þetta ár
2.350.000.00 kr. En utan við þá
áætlun hefur verið ákveðið að
fá frá Danmörku færanlega hey
kökuverksmiðju til þess að
gera tilraunir með hér í Eyja-
firði. Er verksmiðjan fengin
með þeim fyrirvara, að henni
má skila aftur næsta haust, ef
ekki sýnist líkur fyrir, að hún
komi hér a ðnotum. Fást vænt-
anlega einhverjir styrkir til
þessara framkvæmda.
Er nokkuð sérstakt gert í til-
efni af fertugsafmælinu?
Nei. Það hefur ekki verið
stofnað til afmæhshófs eða þ.u.l.
En á aðalfundi sambandsins
1966 var samþykkt að fela
stjórninni að athuga möguleika
á útgáfu byggðasögu sýslunnar
og hefja undirbúning að söfnun
gagna til þess. Síðan hefur
stjórnin unnið að þessu máli og
var áætlun gerð um að láta ritið
koma út á þessu ári og minnast
tímamótanna á þann hátt. Ritið
verður í tveimur bindum og er
nú langt komið að setja annað
bindið. Verður e. t. v. síðar hægt
að segja nánar frá þessari vænt-
anlegu útgáfu.
Saga sambandsins verður rak-
in í byggðasögunni, svo að hér
verða því efni ekki gerð nánari
skil að sinni.
Þakkar blaðið Ármanni fyrir
viðtalið og ber fram árnaðar-
óskir, Búnaðarsambandi Eyja-
fjarðar til handa. □
Prestur í Ólafsf jörð
SÉRA Úlfur Guðmundsson hef-
ur nýlokið guðfræðiprófi og
hefur verið settur prestur í
Ólafsfirði. Er hann nýkominn
þangað. Séra Úlfur er Reykvík-
ingur. □
Jerm
FERMINGARSKEYTI KFUM OG K.
Fallegar gerðir .
AFGREIÐSLA:
Véla og Raftækjasalan h.f. Glerárgötu 6,
Kristniboðshúsið Zion,
Opið frá kl. 10 f. h. til 5 e. h.
Upplýsingasími 1-28-67.
Allur ágóði rennur til sumarbúðanna að
Hólavatni.
Meðalárangur er 1080 stig. —
Spilað er í Landsbankasalnum á
þriðjudagskvöldum. □
Frá Skákfélagi Ak.
SKÁKÞINGI Norðurlands er
nú nýlokið.
Þátttakendur voru alls 17, þar
af 10 í meistaraflokki og 7 í I.
flokki.
Skákmeistari Norðurlands
1972 varð Halldór Jónsson,
hlaut 7% v., en í 2.—3. sæti
urðu Hrafn Arnarson og Haf-
steinn Ágústsson með 6 v. hvor.
í I. flokki varð Haki Jóhannes
son efstur með 6 v., og í 2.—3.
sæti Ásgeir Jónsson og Bjarki
Bragason með 4 v. hvor.
Ákveðið hefur verið að fresta
Hraðskákmóti Norðurlands
fram yfir páska. □
EFTIR miklar for-
tölur fengum við
Arnar Andrésson
leikmann með 2.
deildarliði KA í
handknattleik, sem
spámann í 12. leik-
viku. Hann fær frek
ar erfiðan seðil til
meðferðar, því frek-
ar jöfn lið lenda
saman á þessum
seðli.
Síðasti spámaður
okkar, Páll Þorgeirs
son, hafði 6 leiki
rétta.
En rétt getrauna-
röð úr síðustu leik-
viku er þannig: 1-1-1
— x-l-x — 1-1-x —
x-1-1. Sem sagt eng-
Laikir 2S. marz 1972 1 X 2
Chelsea — West Ham X
Everton — Wolyos \
Laeds — Arsenal l ■
Leicester -r- Ipswich l % < i'AV
Manch. Utd. — C. Palace i
Newcastle — Mani City %
Nott'm For. — Coventry K
South'pton — Liverpool °l
Stoke — Derby /
Tottenham — Shetf. Utd. X
W.B.A. — Huddersfield |
Pre8ton — Q.P.R. ><
FERMINGARBÖRN
Fermingarbörn á pálmasunnu-
dag kl. 10.30 f. h.
DRENGIR:
Árni Arason, Lækjargötu 14
Ásbjörn Árni Valgeirsson,
Byggðavegi 90
Pétur Axel Valgeirsson,
Byggðavegi 90
Bragi Egilsson, Oddeyrargötu 38
Guðmundur Stefán Svanlaugs-
son, Eyrarvegi 10
Gunnar Gíslason, Bjarkarstíg 5
Gylfi Gunnarsson, Sólvöllum 17
Heimir Ingvason, Greni-
völlum 14
Hilmar Baldvinsson, Reyni-
völlum 8
Hjörtur Georg Gíslason, Hamra-
gerði 18
Ingólfur Hreiðarsson, Skarðs-
hlíð 10 B
Ingvar Þóroddsson, Byggða-
vegi 140 A ,
Jónas Gissurarson, Brekku-
götu 1
Kristján Jón Guðjónsson,
Hafnarstræti 47 ♦
Kristján Þór Sigfússon, Skóla-
stíg 9
Konráð Jón Birgisson, Hlíðar-
götu 9
Ottó Þormar, Hamragerði 8
Ólafur Björgvin Guðmundsson,
Hafnarstræti 9
Páll Jóhannesson, Þverholti 7
Sigmundur Einar Ófeigsson,
Helgamagrastræti 32
Stefán Geir Pálsson, Greni-
völlum 14
Tryggvi Sverrisson, Þórunnar-
stræti 125
Valgeir Hörður Guðmundsson,
Eyrarlandsvegi 19
Þorsteinn Gunnarsson, Systra-
seli við Þórunnarstræti
Örn Þórðarson, Stafholti 14
STÚLKUR:
Edda Sigrún Friðgeirsdóttir,
Hamragerði 22
Edda Björk Kristinsdóttir,
Skarðshlíð 13 C
Elísabet Magnúsdóttir, Ránar-
götu 5
Ellen Sverrisdóttir, Hamra-
gerði 27
Erla Hrönn Jónsdóttir, Hrafna-
gilsstræti 21
Elsa Pálmey Pálmadóttir,
Gi-enivöllum 28
Fjóla Egedía Sverrisdóttir,
Ránargötu 6
Guðbjörg Inga Jósefsdóttir,
Vanabyggð 7
Guðný Aðalsteinsdóttir,
Hamarsstíg 4
Guðrún Elva Arngrímsdóttir,
Byggðavegi 146
Guðrún Inga Sigurðardóttir,
Austurbyggð 12
Guðrún Ásgerður Steingríms-
dóttir, Kringlumýri 31
Halla Thorarensen, Ásgarði 1
Hanna Halldóra Karlsdóttir,
Ránargötu 1
Inga Katrín Vestmann, Skarðs-
hlíð 5 -
Kolbrún Tómasdóttir, Skarðs-
hlíð 7
María Jóhannesdóttir, Gránu-
félagsgötu 41 A
Ragna Haraldsdóttir, Byggða-
vegi 101 F
Sigríður María Bragadóttir,
Suðurbyggð 25
Sigríður Ragnarsdóttir, Hrafna-
gilsstræti 27
Sólveig Dorothea Guðmunds-
dóttir, Kotárgerði 26
Sólveig Bára Sævarsdóttir,
Goðabyggð 18
Þórunn Marsilía Lárusdóttir,
Goðabyggð 10
Ferniingarbörn á pálmasunnu-
dag kl. 1.30 í Akureyrarkirkju.
STÚLKUR:
Anna Margrét Pétursdóttir,
Þrastalundi
Bergdís Kristinsdóttir, Ása-
byggð 16
Erna Jóhannsdóttir, Ásabyggð 6
Guðríður Sveinarsdóttir, Ægis-
götu 13
Guðrún Þóra Björnsdóttir, Sól-
völlum 19
Guðrún Sigurðardóttir, Gránu-
félagsgötu 4
Gullveig Ósk Kristinsdóttir,
Aðalstræti 23
Helga Sigurlaug Aðalgeirsdóttir,
Stórholti 6
Ingibjörg Baldursdóttir,
Hamarsstíg 29
Kristín Sigvaldadóttir, Víði-
mýri 2
Margrét Þorvaldsdóttir, Vana-
byggð5
Sigríður Þórisdóttir, Byggða-
vegi 121
Sigrún Bjarnadóttir, Ásabyggð 7
Theódóra Kolbrún Valgarðs-
dóttir, Ásvegi 22
DRENGIR:
Árni Finnsson, Þórunnarstr. 130
Guðmundur Sigtryggsson, Víði-
-mýri 9
Hannes Elvar Hartmarinsson,
Hafnarstræti 88
Helgi Rúnar Jónsson, Kambs-
mýri 2 ' ~
Ingi Bjarnar Guðmundsson,
Löngumýri 28
Jón Eiður Jónsson, Helgamagra-
stræti 19
Jón Þórisson, Strandgötu 29
Kristján Jónsson, Byggða-
vegi 125
Magnús Steinar Magnússon,
Víðimýri 13
Magnús Þorvaldsson, Vana-
byggð 5
Stefán Arnaldsson, Víðimýri 12
Svavar Sigurður Gunnþórsson,
Skarðshlíð 13 F
Sveinn Eyjólfur Benediktsson,
Skarðshlíð 21
Unnar Þór Lárusson, Hrafna-
gilsstræti 39
Vilhelm Jónsson, Norður-
byggð 1 C
Þorkell Björnsson, Lyngholti 4
reytt
ÁKVEÐIÐ ER, að meistara-
flokkur Þórs í handknattleik
fari í keppnisför til Danmerkur
í næsta mánuði. Af því tilefni
efnir handknattleiksdeild Þórs
til fjölbreytts íþróttamóts til
styrktar ferðasjóði deildarinnar.
Hafa KA-félagar komið til hjálp
ar og munu keppa við Þór í
ýmsum greinum íþrótta ásamt
fleirum. Tilhögun verður sem
hér segir:
Laugardag kl. 15.00:
Handknattleikur, meistarafl.
KA — Þór.
Borðtennissýning.
Innanhússknattspyrna, 6 lið
keppa frá KA, Þór og ÍMA.
Sunnudagur kl. 13.30:
Körfuknattleikur, meistarafl.
KA — Þór,
l Innanhússknattspyrna, úrslit.
Handknattleikur, 3. flokkur
KA — Þór.
Ástæða er til að hvetja vel-
unnara Þórs og aðra áhuga-
menn um íþróttir að fjölmehna
í íþróttaskemmuna um helgina.
Ilandknattleiksxleild Þórs.
SMÁTT & STÖRT
(Framhald af blaðsíðu 8)
AÐ HLÍFA ÞEIM RÍKU
Lárus Jónsson lagði það til mála
á Alþingi, að fyrir þörfum ríkis-
sjóðs yrði séð nieð því að hækka
óbeina skatta. Það leynir sér
ckki með hverjum þessi þing-
niaður finnur til. Með óbeinum
sköttum leggjast byrðarnar
þyngra á allan almenning og eft
ir því þyngra, sem fjölskyldurn-
ar eru stærri. Lárusi rennur
blóðið til skyldunnar. Hann vill
viðhalda „viðreisnar“-stefnunni
og létta byrðar hinna ríku í
þjóðfélaginu á kostnað þeirra
fátæku, með því að neyzlan sé
skattlögð.
SKATTUR AF KOSSUM
OG FLEIRU
Þingmaður einn í New York-
ríki hefur flutt um það frum-
varp á bandaríska þinginu, að
eiginmenn greiði skatt af ástar-
atlotum við eiginkonur sínar.
Verðskrá þingmannsins um
þetta efni er á þcssa lcið: Fyrir
koss greiði hann einn dollar,
fyrir strokur greiði hann fimm
dollara, mjög innileg atlot tíu
dollara og fyrir afganginn greiði
hann tuttugu og fimm dollara.
Ekki er talið, að frumvarp þetta
fái mikinn stuðning.
HVENÆR FÁUM VIÐ
PLASTPOKANA?
Nokkur ár eru liðin síðan það
mál var á dagskrá á Akureyri,
að nota plastpoka í staðinn fyr-
ir sorptunnurnar, og var þeirri
breytingu talið ýmislegt tíl
gildis, fram yfir það, sem nú er.
Samkvæmt áætlunum áttu þessi
skipti að hafa farið fram fyrir
löngu, en engin merki eru sjáan
leg um breytinguna. En líkast
að starfsmenn bæjarins, sem um
þetta áttu að fjalla, hafi þvælzt
hver fyrir öðruni. Bendir þó
tala verkmenntaðra manna í
- Alþjóðadagur . . .
(Framhald af blaðsíðu 8)
hafa félagið til að þoka áhuga-
og nauðsynjamálum fatlaðra
áfram á liðnum árum og við
treystum því, að við njótum
áframhaldandi stuðnings til
þeirra átaka og mikilvægu fram
kvæmda, sem nú eru framund-
an hjá félaginu.
19. marz 1972.
' Fyrir hönd Sjálfsbjargar,
félags fatlaðra á Akureyri
Heiðrún Steingrímsdóttir.
w ■
störfum hjá bænuni, sem alltaf
fer hækkandi, ekki til þess, að
þar vanti starfslið. Hlýtur skýr-
ingin að vera deyfð. Öðru
hverju er verið að hringja tíl
blaðsins og spyrjast fyrir um
þetta niál. Þeir svari því, sem
um eiga að fjalla.
KOFA-VANDAMÁLIÐ
Bæjarstjórnarmenn og eigend-
ur hrossa og kinda hér á Akur-
eyri heyja látlausan skæruhern-
að. Hesthúsin og kindakofarnir
eiga að flytjast úr þéttbýlinu en
engendur húsdýranna nota sauð
þráa og spyrna við fótum. f
þessu efni hafa handaupprétt-
ingar hjá bæjarfulltrúunum og
hinar skjalfestu samþykktir
stundum reynzt marklausar,
þar sem þeim hefur ekki verið
fylgt eftir, en um það veltur á
ýmsu. Nú eiga senn margir
kofa-eigendur að hverfa með
hafurtask sitt, byggingar og fén-
að sinn, fyrir ákveðinn dag, rétt
einu sinni. Hlýtur það mál að
hafa framgang, og hvort sem
ýmsum einstaklingum kemur
það betur eða verr. En nú telja
margir, að bæjaryfirvöldin hafi
ekki á reiðum höndum stað fyr-
ir þá eigendur hrossa, sem burt
verða flæmdir, og þarf úr því
að bæta samtímis.
- Aðalfundur B. S. E.
(Framhald af blaðsiðu 8)
að söfnun heimilda og undir-
búningi útgáfunnar síðustu þrjú
ár.
Skýrslur ráðunautanna sýndu,
að nokkuð meira hafði verið
unnið að jarðabótum 1971 en
árið áður og að byggingafram-
kvæmdir höfðu verið með mesta
móti á sambandssvæðinu. Mikið
af jarðvegssýnum var tekið til
rannsóknar á Rannsóknarstofu
Norðurlands. Einnig voru hey-
sýni rannsökuð fyrir bændur.
Veðurfar var óvenjulega hag-
stætt sl. ár og heyfengur því
mikill. Hefur þar af leiðandi orð
ið mun meiri fjölgun búfjár nú
til vetrarfóðrunar en var síð-
ustu ár þar áður.
Úr stjórn B.S.E. áttu að ganga
Sveinn Jónsson, Ytra-Kálfs-
skinni og Sigurgeir Garðarsson,
Staðarhóli. Voru þeir báðir end-
urkosnir til næstu þriggja ára.
Aðrir í stjórninni eru: Ár-
mann Dalmannsson, Akureyri,
formaður, Arnsteinn Stefáns-
son, Stóra-Dunhaga og Eggert
Davíðsson, Möðruvöllum. □
Gagnlegar
fermingargjafir.
old
3. manna.
Ódýru svefnpokarnir
Verð aðeins kr. 1450.00
Vindsængur
Bakpokar 3 gerðir.
Nor.skir og íslenzkir.
Picknic
töskur.
Allur skíðaútbúnaður
GREIÐSLUSKILMÁLAR.
BRYNJÓLFUR SVEINSSON HF.
NýkomiÖ!
VIÐTÆKI með straumbreyti.
HÁRÞURRKUR „Ronson“ 3 gerðir.
Rafmagnshárgreiður „Remington"
RAFMAGNSHÁRGREIÐUR „Remington“
RAFMAGNSRAKVÉLAR margar gerðir.
HÁRKLIPPUR „Pilips“
JÁRN- OG GLERVÖRUDEILD
Iðnaðarmenn - Verkstæði
MILLERS FALLS borvélar og fleiri rafmagns-
handverkfæri. á sérstaklega hagstæðu verði.
Takmarkaðar birgðir.
Munið varahluta- og viðgerðarþjónustuna, J>að
borgar sig.
RÁFTÆKNI - Ingvi R. Jóhannsson
Geislagötu 1 Akureyri. — Sími 1-12-23.
Buff? Sfeikfur fiskur? Ekki þó einhver nyr réltur? - ESa eru það bara
þessar venjulegu bollur?
Það skiptir ekki höfuðmáli. Allf þetfa geiur verið hnossgæti, ef það
er mafreiff á réftan háft með rétlum efnum.
Gleðjið fjölskylduna með reglulegu góðgæfi. Reynið GULA BANDIÐ,
það gefur mafnum lokkandi útlif og Ijúffengf brágð.
GULA
BANDIÐ
- einnig eftirsótt
í alían bakstur
IGNIS þvoffavélar
Verð aðeins kr. 26.200.00
ÁBYRGÐ OG ÞJÓNUSTA.
RAFTÆKNI - Ingvi R. Jóhannsson
Geislagötu 1 Akureyri. — Sími 1-12-23.