Dagur - 04.05.1972, Blaðsíða 1

Dagur - 04.05.1972, Blaðsíða 1
Veiðidagurinn seldur á 22 þús. DAGUR hefur stundum birt upplýsingar um hina hækkandi leigu á góðum laxám hér á landi. En veiðiréttindin í beztu laxám landsins eru nú seld við enn hækkuðu verði, svo háu, að mörgum mun finnast þau að- eins fyrir þá ríku. Fjölmiðlar hafa frá því sagt, að veiðileyfið fyrir eina stöng í Norðurá í Borgarfirði fyrir hvern dag hafi verið selt á 22 þúsund krónur, en í Grímsá á 17.500 krónur. Leyfi fyrir 40 veiðidaga í þessum ám hafa ver- ið seld útlendingum á 15.3 milljónir króna. Það er Stang- veiðifélag Reykjavíkur, sem fyrst tók árnar á leigu hjá bænd um og endurselur síðan veiði- leyfin. Er þetta enn ein sönnun þess, að laxár með sæmilegri veiðiaðstöðu eru dýrmætar og verða dýrmætari með hverju ári sem líður. □ SKAKEINVIGIÐ VERDUR HÁÐI REYKJAViK FÓLKI hefur gefizt þess kostur að fylgjast með undirbúningi skákeinvígis þeirra Spasskýs og Fischers og hefur á ýmsu oltið. Síðast þegar þessi mál voru rædd hér í blaðinu þótti sýnt, að síðari hluti skákeinvígisins færi fram í Reykjavík en fyrri Reiðhross í tveim flugvélum FLUGVÉL, búin til gripaflutn- inga, hefur staðið á Akureyrar- flugvelli. Hún átti að leggja af stað til Noregs með 46 reiðhross innanborðs kl. 6 í morgun, fimmtudag, ef allt hefur farið samkvæmt áætlun, Önnur ílutningaflugvél mun snemma í fyrramálið, föstudag, leggja af stað til Þýzkalands með annan hóp, er telur 44 reið- hross. Útflutningur þessi er á veg- um SÍS. í gær var verið að vigta hrossin og merkja þau, skrásetja og útbúa pappíra. Reiðhross þessi eru öll tamin 4—8 vetra og fyrir þau fæst hærra verð en áður þótti við- unandi, en aftur á móti eru gerð ar meiri kröfur til hrossanna, og er þetta án efa rétt þróun í útflutningi hrossa. □ Einn keimir þá annarr fer Dalvík 2. maí. Um nýliðin mán- aðamót lét Daníel Á. Daníelsson héraðslæknir á Dalvík af störf- um sökum aldurs, eftir 28 ára þjónustu. Við starfi hans hefur þegar tekið ungur læknir og heitir hann Eggert Briem, áður á Hofsósi. Til tíðinda má það teljast hve ágæt grásleppuveiðin hefur ver- ið hér, og á minni báta reyta menn öðru hverju dálítið af fiski bæði á línu og handfæri. Hins vegar er afli togbátanna ennþá lélegur, svo sem verið hefur um langt skeið. Fyrir kuldakastið voru tún farin að grænka í Svarfaðardal og stöku bóndi var farinn að láta út kýr sínar . J. H. hlutinn í Belgrad og átti hann að hefjast 22 júní. Fischer neit- aði að tefla í Reykjavík og síðan gengu klögumálin á víxl. Nú hefur forseti Alþjóða skák sambandsins farið þess á leit, að einvígið allt fari fram hér á landi. Er það nú ákveðið, ef óvæntir atburðir hindra það ekki. Ennfremur hefur það ver- ið ákveðið, að ef annar kepp- andinn neitar þessari ákvörðun, verður hann sviftur réttindum sínum til þátttöku í einvíginu um heimsmeistaratitilinn í skák. DAGUR kemur næst út á laugardaginn, 6. maí. Hrísey 2. maí. Gott er blessað veðrið, logn á sjóinn og fagurt um að litast, þótt of lítið fiskist og okkur vanti það hráefni alveg tilfinnanlega. Snæfellið landaði hér fyrir helgina 23 tonnum og er það mikil bót, svo ÞESSI stúlka heitir Bergljót, er 11 ára og á heima í Rauðumýri 14. Fólk kemur margra erinda á skrifstofur Dags. Bergljót mælti, er hún kom inn og hafði heilsað: Mig langar til að koma orðsend- ingu í Dag. Síðan sagði hún efn- islega á þessa leið: Það voru tveir þrestir hjá okkur og voru að búa sér til hreiður, en nú er bara annar eftir, því að það eru Nokkrir fundarinenn á leið til hádegisverðar í boði Mjólkursamlagsins. (Ljósm.: E. D.) YFiR 20 MILLJ. LTR. INNLEGG Eyfirðingar framleiða feitustu mjólkina AÐALFUNDUR Mjólkursam- lags KEA var haldinn í Sam- komuhúsinu á Akureyri fimmtaudaginn 27. apríi sl. og hófst kl. 10.30 árdegis. Fundinn setti formaður félags stjórnar, Brynjólfur Sveinsson, en fundarstjórar voru kjörnir þeir Sveinn Jónsson, Kálfskinni og Jón Hjálmarsson, Villinga- dal. Ritarar fundarins voru kjörnir þeir Haraldur Hannes- son, Víðigerði og Halldór Jóns- son, Jarðbrú. langt sem það nær. Grásleppu- veiðin er hins vegar mjög góð og bætir það úr skák. Kvenfélagskonur hér í Hrísey héldu hinn virðulegasta dans- leik á sunnudaginn og var dans- inn þó ekki nema eitt skemmti- atriði af mörgum. Þær höfðu kabarett og tókst vel. Fimm sungu, þrjár léku og fjórar þó og svo sýndu þær að auki lát- bragðsleik, lásu upp og gerðu enn fleira til skemmtunar. Ekki er rjúpan komin og er þó hennar tími kominn. Sakna ég hennar mikið og svo munu margir gera, því að hér í eynni er hún ákaflega gæf og gengur um í húsagörðum, þiggur jafn- vel að ganga að mat með frænd- um sínum, heimahænsnunum. Þetta er rólegt og þægilegt líf, ekki vantar það, og þegar úr rætist með þorskaflann verður það þó enn betra S. F. lítilli stúlku svo margir kettir í hverfinu, sem drepa fugla, og ég hef bara séð tvo ketti með bjöllur. Ég ætla að biðja fólk að setja bjöll- ur á kettina sína svo að fuglarn- ir geti varast þá. Já, þetta var bæði fallega hugsað og fram sett af einlæg- um áhuga og alvöru. Þakka þér fyrir, litla stúlka, og vonandi lesa margir orðsendinguna þína og verða við bæn þinni. □ Fundarmenn voru um 200 að tölu. Mjólkursamlagsstjóri, Vern- harður Sveinsson, flutti ýtar- lega skýrslu Um rekstur sam- lagsins á árinu 1971 og las reikn inga þess. Innlagt mjólkurmagn var 20.373.750 ltr. og hafði auk- izt frá fyrra ári um 120.300 ltr. INNFLUTNINGSDEILD Sam- bandsins hefur nýlega gefið út 32 blaðsíðna handbók, sem nefnd -hefur verið „Steinefnin og búféð“. Gísli Kristjánsson ritstjóri hefur skrifað og tekið saman efnið í þennan bækling, sem eins og nafnið gefur til kynna, fjallar um steinefnaþörf og notkun þeirra. Það er von þeirra, sem að þessu standa, að bændur fái þarna haldgóðar upp lýsingar um þennan mikilvæga þátt í fóðurgjöfinni. Á sl. ári gaf Innflutningsdeild út mjög vandaða handbók með upplýsingum og leiðbeiningum um fóður og fóðrun sem send var öllum bændum á landinu og má segja að þessi nýja handbók HJÁ BÆNDUM eða 0.59%. Fitumagn mjólkur- innar var að meðaltali 4.274%. Mjólkurframleiðendur voru 412 og var tala þeirra óbreytt frá fyrra ári. Meðalinnlegg á mjólk- urframleiðanda var 49.450 ltr. Af móttekinni mjólk var 18.5% selt sem neyzlumjólk en 81.5% fór til framleiðslu á ýmsum m j ólkurvörum. Á árinu var framleitt: 485.000 kg. smjör. 626.000 kg. ostur, af ýmsum tegundum. 45,000 kg. mysuostur og mys ingur. 197.000 kg. skyr. 183.000 kg. þurrmjólk og undanrennuduft. 100.000 kg. kasein. Reikningsyfirlit ársins sýndi að reksturs- og sölukostnaður hafði orðið 401 eyrir á ltr. Fram- leiðendum var greitt mánaðar- lega samtals kr. 12.04.37 á ltr. Ýmis sjóðagjöld námu 29.43 aur- um á ltr. en eftirstöðvar til út- (Framhald á blaðsíðu 5) Næsti bændafundur verður haldinn mánudaginn 8. maí kl. 9 e. h. á Hótel KEA. Frummælandi verður Bragi Lín dal fóðurfræðingur og ræðir hann um uppeldi kálfa og fóðr- un mjólkurkúa á graskögglum. um steinefnin sé framhald á þeirri stefnu forráðamanna deildarinnar að fóðurinnflytj- endur beri að stuðla að upplýs- ingaþjónustu við bændur. Q Akureyrartogarar KALDBAKUR landaði 118 tonnum 18. apríl. Svalbakur landaði 24. apríl 216 tonnum. Harðbakur landaði 156 tonn- um 27. apríl. Sléttbakur landaði 21. apríl 162 tonnum. Þessir togarar allir eru nú á veiðum. Sólbakur landaði 181 tonni 2. maí. Q

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.