Dagur - 04.05.1972, Side 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Simar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Frentverk Odds Björnssonar b.f.
Kröfuspjöld framtíðarinnar
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, lektör;
flutti aðalræðuna á Ráðhústorgi á
Akifreyri 1. maí. Hann hóf mál sitt
á því að segja, að á þessum hátíðis-
degi væri vert að minnast þeirrar
upphaflegu baráttu, sérstaklega í til-
efni af 75 ára afmæli verkalýðsfélag-
anna á Akureyri, þegar fámennur
hópur forystumanna þeirra var hædd
ur fyrir að stofna verkalýðsfélögin og
neitað um rétt til að semja um kjör
og neitað um að beita skæðasta vopni
sínu, og þegar fjölda verkafólks var
meinuð þátttaka í kosningum vegna
fátæktar og þjóðfélagsstöðu þeirra.
En þá þurfti kjark til að fylkja sér
undir fána verkalýðsfélaganna 1.
maí, er ganga verkalýðsins var farin
í andstöðu við öll hin ráðandi öfl.
En sú mynd, sem blasir við okkur
á okkar dögum, sagði ræðumaður, er
öll önnur. Nii værí verkalýðshreyf-
ingin orðin f jölmennasta félagsmála-
hreyfing á íslandi, sterkasta samtaka-
aflið meðal þjóðarinnar, viðurkennd
ur aðili að margháttuðum samning-
um og hún væri fær um að halda
upp á 1. maí með allri þjóðinni, því
að sá dagur væri löghelgaður hátíðis-
dagur. Þrátt fyrir þetta biði verka-
lýðshreyfingarinnar mikið hlutverk,
því að hún stæði að ýmsu leyti á tíma
mótum. Væri því vert að svipast um
og festa augu á þeim málum, er hún
muni í framtíðinni þurfa að beita
sér fyrir. Síðan nefndi ræðumaður
nokkur atriði, er væntanlega yrðu
borin á kröfuspjöldum framtíðar-
innar, því að ekki væri nægilegt að
hafa aðeins kosningarétt á fjögurra
ára fresti, því að upp væri risin í
landi fjöldi stofnana og fyrirtækja,
sem á fjölþættan liátt hefði meiri
áhrif á líf fólksins, en ákvarðanir Al-
þingis og bæjarstjórna. Á sama liátt
og verkalýðurinn hefði barizt fyrir
ákvörðunum Alþingis og sveitar-
stjóma, myndi hann í framtíðinni
krefjast aðildar að stjóm þessara
valdamiklu stofnana og fyrirtækja.
í öllum skólum, fyrirtækjum og
stofnunum myndi fólkið krefjast
réttar til þátttöku í stjórn og ákvörð-
unum, því að án þess yrði lýðræðið
aðeins leikur að formum.
Og enn sagði ræðumaður, að sú
hætta blasti við, að þjóðin myndi á
næstu árum skiptast í tvo hópa: íbúa
höfuðborgarsvæðisins, sem búa
myndu við forréttindi á öllum svið-
um í atvinnu, menntunar- og menn-
ingaraðstöðu. Yrði þetta látið líðast,
væri meiri ójöfnuði boðið heim
en áður hefði þekkzt í landinu. Það
væri J>ví hlutverk verkalýðshrevfing-
arinnar um land allt, að snúa þessari
þróun við. □
Fj árhagsáætlun bæjarsjóðs samþykkt í gær
r
Sigurður Oli Brynjólfsson svarar spurningum Dags uin áætlunina
FJÁRHAGSÁÆTLUN bæjar-
sjóðs Akureyrarkaupstaðar fyr-
ir árið 1972 var til síðari um-
ræðu á bæjarstjórnarfundi á
þriðjudaginn. En gerð fjárhags-
áætlunarinnar hafði seinkað
verulega vegna skattalagabreyt-
inga á Alþingi.
Niðurstöðutölur hinnar nýju
áætlunar eru um 264 millj. kr.
á hvora hlið.
Aðaltekjur bæjarsjóðs ár
hvert eru hin álögðu útsvör,
sem nú.eru áætluð samtals 128.4
milljónir króna og fasteigna-
skatturinn er áætlaður 46.5
milljónir króna. Gefst bæjar-
búum þeim, sem að jafnaði
gleðjast yfir því að leggja eitt-
hvað ,af mörkum til sameigin-
legra þarfa, enn á ný tækifæri
tiF að greiða álögð gjöld sín, en
aðrir munu að venju kvíða gjald
' seðlunum frá bæjaryfirvöldun-
um. En hvernig sem þessir hóp-
ar skiptast, má telja víst, að um-
ræður um álagða skatta verði
kærkomið umræðuefni manna 1
í sambandi við afgreiðslu
þessa stórmáls hjá bæjarstjórn-
inni á þriðjudaginn, sneri blað-
ið sér til Sigurðar Óla Brynjólfs
sonar bæjarfulltrúa og lagði
fyrir hann nokkrar spurningar,
varðandi hina nýju fjárhags-
áætlun.
Verða tckjustofnar fullnýttir?
Við samnir.gu fjárhagsáætlun
arinnar má heita að tekjuheim-
ildarákvæði, samkvæmt tekju-
stofnalögunum, verði fullnýtt.
Þar með er notuð heimild til
50% álags á fasteignaskatt og
að miklar líkur eru á því, að
notað verði 10% álagsheimild á
útsvör, þ. e. að þau verði 11%
af brúttótekjum. En til þess
þarf samþykki ráðherra. Helztu
undantekningar eru, að ekki
verða lögð útsvör á ellilaun,
örorkustyrk, slysa-, ekkju- og
makabætur né heldur mæðra-
laun og bamalífeyri. Og líklega
mun niðurjöfnunarnefnd taka
eitthvert tillit til sérstakra
ástæðna, eins og verið hefur.
Nú er heimilt að fella niður
fasteignaskatt af nýjum íbúð-
UK?-
Þessi heimild er ekki notuð
hér, 'enda væri það sýndar-
menrjska á meðan gatnagerðar-
gjöld á ibúðum eru notuð sem
tekjustofnar. Ég veit ekki hvort
það kæmi sér nokkuð betur fyr-
ir fólk, að gatnagerðargjöld
væru 20—30 þúsund kr. hærri á
íbúð en nú er, og sleppa í stað-
inn við að greiða fasteignaskatta
í eitt eða tvö ár. En um undan-
þágur almennt, vil ég minna á,
að tryggingakerfið er og á að
vera notað til að bæta úr og
jafna aðstöðumun, þannig, að
undanþágur eru ekki jafn nauð-
synlegar og áður.
Hafa nýju tekjustofnalög sveit
arfélaga í för með sér auknar
álögur á Akureyringa?
í rauninni hafa þau engin
bein áhrif í þá átt og er það í
valdi bæjarstjórnar hverjar
álögurnar eru hverju sinni, upp
að hámarkinu. Á undanförnum
árum hafa möguleikar bæjarins
til frjálsra athafna sífellt versn-
að, vegna þess að álagsheimildir
voru fullnýttar að undanskyldu
því, að bæjarstjórn treysti sér
ekki til að vera með álag á lög-
boðinn útsvarsskala (mátti vera
allt að 20% álag) vegna saman-
burðar við önnur sveitarfélög
þótt þess hefði verið þörf. Þetta
leiddi til þess, að nauðsynlegum
framkvæmdum var skotið á
frest ár eftir ár, og fjármagn
skorti til að geta staðið við
skuldbindingar bæjarsjóðs,
vegna stuðnings við atvinnuupp
bygginguna í bænum. Hér á ég
einkum við stuðning við Slipp-
stöðina h.f. og vegna endurnýj-
unar togaraflotans.
En nú, er sýnt þótti, að flest
hin stærri sveitarfélög myndu
nota sér fullar álagsheimildir,
taldi bæjarstjórn Akureyrar
rétt að stíga það skref einnig,
þar sem svo mörg óleyst verk-
efni bíða. Það er í rauninni þessi
breyting, sem gefur bæjarstjórn
aukið svigrúm en ekki sjálf
tekjustofnalögin.
Sigurður Óli Brynjólfsson.
Hverjar eru lielztu breytingar
frá fyrri árum?
Utsvörin eru nú lögð á sam-
kvæmt nýjum lögum, sem kunn
ugt er, og fasteignaskattar verða
miklu stærri liður í tekjuöflun
bæjarsjóðs en áður, einnig sam-
kvæmt hinum nýju lögum. Hins
vegar falla niður framlög til al-
mannatrygginga og sjúkratrygg
inga að hálfu, ennfremur allur
lögreglukostnaður. Skiptir þetta
tugum milljóna króna fyrir
bæjarsjóð Akureyrar.
Að þessu sinni er varið meira
fé til stærri og minni fram-
kvæmda en áður. Stærstu upp-
hæðirnar, sem kallaðar eru
framkvæmdafé, fara til gatna og
í Framkvæmdasjóð bæjarins,
sem er að nokkru aðgreindur
frá bæjarsjóði og stendur m. a.
undir skuldbindingum bæjar-
sjóðs vegna Slippstöðvarinnar
h.f., togarakaupa og leitar að
heitu vatni.
Það er rætt um ósamræmi í
tillöguflutningi Framsóknar-
manna í sveitarstjómum hér og
í höfuðborginni?
Á réttmæti þess mismunar
legg ég engan dóm, því að ég
þekki ekki nægilega til málefna
höfuðborgarinnar. En tillögu-
flutningur byggist að sjálfsögðu
á aðstæðum á hverjum stað og
ég held að allir viti, að aðstæð-
ur hér á Akureyri eru ekki þær
sömu og í Reykjavík og borgar-
stjórnarmeirihlutinn syðra hef-
ur áreiðanlega aðrar ástæður til
sinna ákvarðana en við. En á
undanförnum árum hafa borgar
yfirvöldin í Reykjavík gefið af-
slátt frá almennum útsvarsskala
og því má telja ólíklegt, að þeir
hafi ýtt jafn miklu á undan sér
af óleystum verkefnum og við
höfum orðið að gera. En þótt ég
segi þetta, er áreiðanlega hægt
að gera margt gagnlegt fyrir
þessar auknu ráðstöfunartekjur
höfuðborgarinnar. En um þarf-
ir, bæði þar og hér, má deila.
Nokkuð að lokum, Sigurður
Óli?
í mínum augum er spurningin
um, hvort nýta eigi tekjustofna-
heimild til fulls eða ekki, spurn-
ing um það, hvort við viljum
bæta sameiginlega aðstöðu í
bænum okkar, fegra hann og
einnig prýða eða hvort við ráð-
stöfum þeirri upphæð til eigin
FÆREYSKIR
BADMINTONMENN
Á LAUGARDAGINN kemur
hingað til bæjarins hópur
badmintonleikara frá Færeyj-
um, ellefu leikmenn, ásamt
nokkrum öðrum Færeyingum.
Badmintonmennirnir leika við
Akureyringa sama dag í íþrótta-
skemmunni kl. 2 e. h. Mun heim
sókn þessi sérstaklega kærkom-
in og væntanlega boðar þetta
auknar íþróttaheimsóknir og
kynnisferðir milli landanna. □
•t
©
4
-t
©
©
Sendum félögum okkar
og allri alþýðu
baráttukveðjur 1. maí.
SJÓMANNASAMBAND ÍSLANDS.
Spá Dags
SPÁMAÐUR okkar
í 18. leikviku er Jón
Sigfússon prentari í
POB.
Spámaður okkar
úr síðustu leikviku,
Óli Guðmarsson,
hafði 5 leiki rétta.
Urslit úr síðustu
leikviku: 2-x-l —
1-1-x — x-1-2 —
1-2-x.
Lelkir 6. og 7. maí 1972 1 X 2
Þróttur — Fram 1 7
i.B.H. — Í.B.K.2 49
i.A. — Breiðablik2 /
Arsenal — Leeds3 1
Celtic — Rangers/Hibs4 /
Randers — Vejle* ... /
B 1901 — A.G.F.5 /
B 1903 — Hvidovre5 T
Frem — Köge5 T
B 1909 — Brönshöj5 ■■ X
Silkeborg — Svendborg0 Át
Álborg — Slagelse0 /
nota. Sjálfur tel ég hið fyrra
réttmætt og svo mun vera um
þorra manna. Það sézt bezt á
undirtekturn manna við safn-
anir til stuðnings við nauðsyn-
leg verkefni, sem eru á vegum
almannasamtaka, svo sem í
líknar- og menningarmálum.
Svo má á það líta, að kröfur
okkar um auknar athafnir ríkis-
valdsins, bæði hér og víða um
land, verða að líkum með því
bezt studdar, að sýna í verki, að
við viljum sjálf leggja nokkuð
af mörkum til að bæta sameigin
lega þjónustu og framfarir, seg-
ir Sigurður Óli Brynjólfsson að
lokum og þakkar blaðið svör
hans. □
0
4-
f
0
4
<■
0
i
f
0
4
T
I
f
0
Köku- og munabazar
heldur Skúgræktaiifélag
Tjarnargerðis á Hótel
K. E. A. sunnudaginn 7.
maí kl. 3 e. h.
Skógræktarfélag
Tjarnargerðis.
Verð fjarverandi maí-
mánuð. Sjúkrasamlags-
sjúklingar mínir vinsam-
legast snúi sér til Lækn-
ingastofu Sjúkrasamlags
Akureyrar, Ráðhústorgi.
Jón Níelsson, læknir.
Húsbvggendur athugið.
Leitið tilboða í raflögn-
ina. Rafverk framkvæm-
ir verkið fljótt og vel.
Önnunjst viðgerðir á
heimilistækjum og hvers-
konar rafvélum. Sækjum
ef óskað er.
Fljót afgreiðsla.
RAFVERK,
Strandgötu 23.
Reglusamur maður get-
ur fengið leigit herbergi
og fæði á sama stað. Á
góðum stað í miðbænum
Ennfremur til sölu á
sama stað notuð, góð
þvottavél. Selzt ódýrt.
Uppl. í síma 1-27 11
eftir kl. 6.
11—13 ára stúlka óskast
til að gæta 2 drengja í
sumar eða aMan dag-
inn.
Uppl. í síma 2-18-80,
eftir kl. 7 á kvöldin.
12—13 ára stúlka óskast
til barnagæslu.
Sími 2 15-10 eftir kl. 7 á
kvöldin.
Stúlka með stúdents-
próf óskar eítir skrif-
stofuvinnu frá 1. júlí.
Véhitunarkunnátta.
Tilboð leggist inn á af-
greiðslu Dags fyrir 1.
júní merkt Skrifstofu-
vinna.
Óska eftir 12—13 ára
stúlku í surtiar.
Sími 1-29-57.
Vantar 1—2 smiði nú
þegar.
Gunnlaugur Jóhannsson
Álfabyggð 14,
sími 1-14-79.
Tvær ungar stúlkur utan
af landi óska eftir vinnu
í sumar.
Margt kemur til greina.
Uppl. í síma (92) 74-83.
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8)
seni í færi er, og það um varp-
tímann. Slíkt gera ekki aðrir en
fantar. Bændur eiga að kæra
slíkt athæfi .skilyrðislaust og
venja illa siðaða menn af þess-
um Ijóta leik. Hreppstjórar og
aðrir löggæzlumcnn þurfa að
standa hér vel á verði og betur
en tíðkazt hefur. — '
FLEIRI SEKIR
En það eru fleiri byssuglaðir en
kaupstaðabúar, og gera sér ekki
allir grein fyrir því, að ekki má
fremja afbrot á eigin landi frem-
ur en annarsstaðar. Fugladráp
og eggjarán er gamall löstur og
er ntál að linni.
Qr}' í v.W'
Dórólhea Þórðardófiir
Fædtl 6. maí 1882. Dáin 23. apríl 1972.
DÓROTHEA Þórðardóttir, Þór-
unnarstræti 106, Akureyri, var
jarðsungin frá Akureyrarkirkju
í gær, 3. maí.
Hún fæddist í Syðra-Garðs-
horni í Svarfaðardal 6. maí 1882
og voru foreldrar hennar Guð-
rún Björnsdóttir og Þórður
Jónsson bóndi á Steindyrum.
Dóróthea giftist Árna Jóns-
syni frá Sökku árið 1907 og
bjuggu þau á Þverá í Svarfaðar-
dal þar til hann andaðist árið
1924. Börn þeirra hjóna voru:
Lovísa, gift og búsett á Akur-
eyri, Jón Magnús, dáinn 1962,
Elín, gift á ísafirði og Sigurveig,
gift og búsett á Akureyri.
Dóróthea fluttist til Akureyr-
ar 1930 og átti þar heima til
dauðadags, 23. apríl sl. Hún var
greind og viljasterk, sívinnandi
og vökul skapgerðarkona, er
hélt fullri reisn sinni þar til yfir
lauk. □
- Aðalfimdur . .
(Framhald af blaðsíðu 1)
borgunar námu 391 eyri á .ltr.,
en af þeirri upphæð var greidd-
ur 31 eyrir í stofnsjóð framleið-
enda. Heildarverð fyrir innlagða
mjólk varð þannig kr. 16.24.8 á
ltr.
Á fundinum flutti Valur Arn-
þórsson framkvæmdastjóri KEA
ýtarlegt erindi um horfur og
möguleika fyrir að hægt yrði að
halda áfram byggingu hinnar
nýju mjólkurstöðvar, en það
væri mikið fjárhagslegt átak.
Samþykkt var á fundinum álykt
un, sem framkvæmdastjóri lagði
fram frá stjórn KEA og samlags
ráði, um að reynt skyldi nú þeg-
ar að útvega fjármagn og hefja
síðan byggingaframkvæmdir að
nýju við mjólkurstöðina á næsta
ári.
Ennfremur ræddi fram-
kvæmdastjóri um möguleika
fyrir að hafin yrði undirbúning-
ur að flutningi mjólkur í tank-
bílum frá framleiðendum til
mjólkurstöðvarinnar og um
margþættan undirbúning, sem
gera þyrfti í því sambandi.
Fundarmenn ræddu þessi mál
af miklum áhuga og að lokum
var samþykkt tillaga til breyt-
inga á núverandi reglugerð
mjólkursamlagsins varðandi
mjólkurflutningana.
r
Ufdregin skuldabréf
Hinn 3. maí 1972 framkvæmdi notarius publicus
í Akureyrarkaupstað útdrátt á 9]/o% skuldabréfa-
láni til byggingar elliheimila á Akureyri og í
Skjaldarvík teknu 1969, og. voru eftirtalin bréf
dregin út:
Litra A nr.
3, 4, 6, 7, 8, 16, 23, 32, 36, 49, 58, 63, 64, 74, 82,
83, 86, 89, 97.
Litra B nr.
2, 3, 7, 14, 22, 25, 31, 40, 46, 64, 68, 77, 80, 83,
85, 87, 96, 100, 135, 150, 151, 157, 167, 168, 173,
178, 179, 187, 188, 190, 197, 201, 206, 212, 214,
216, 218, 219, 221, 233, 240, 242, 244, 246, 255,
256, 258, 260, 266, 278, 296, 299.
Litra C nr.
4, 5, 6, 7, 8, 10, 13, 14, 21, 22, 59, 67, 69, 71, 72,
74, 92, 97, 102, 114, 116, 134, 135, 136, 139, 140,
148, 150, 153, 155, 164, 226, 236, 238, 239, 241,
247, 251, 255, 279, 281, 285, 291, 295, 305, 325,
366, 373, 379, 383, 384, 393, 394, 395, 399, 401,
408, 417, 423, 424, 426, 429, 431, 437, 440, 443,
454, 455, 467, 470, 476, 478, 482, 508, 512, 513.
515, 518, 519, 521, 525, 527, 531, 533, 535, 536,
538, 543, 546, 548, 556, 562, 572, 578, 580, 582,
600, 610, 615, 617, 619, 634, 637, 640, 642, 644,
650, 660, 661, 677, 684, 685, 686, 688, 693, 694,
696, 700, 705, 708, 709, 722, 725, 742, 743, 745,
748, 752, 754, 755, 757, 764, 765, 767, 769, 770,
771, 778. 377, 526.
Gjalddagi útdreginna bréfa er 1. október 1972
og fer innlausn þeirra fram á bæjarskrifstofunni
á Akureyri.
Akureyri, 3. maí 1972.
RJARNI EINARSSON.
Aðalfundur
Glerárdeildar K. E. A. verður haldinn í barna-
skóla Glerárþorps fimmtudaginn 4. þ.m. k>l. 20.30.
DAGSKRÁ:
Kjör fulltrúa á aðalfund Kaupfélags Eyfirðinga.
Venjuleg aðalfundarstörf.
DEILDARSTJÓRINN.
GOTT VERÐ
ERUM AÐ
TAKA UPP
sérlega fallegar
KVENTÖFLUR
SÍMI 21400
SKÓDEILD
Barnagæzla
Störf 7 gæslukvenna við barnaleikvelli Akureyrar-
bæjar er 'laus til umsóknar.
Umsækjendur þurfa að vera fullra 18 ára og fúsir
að sækja 20 tíma kvöldnámskeið samhliða vinnu
fyrstu vikurnar.
Skriflegar umsóknir, merktar „BARNALEIK-
VELLIR,“ leggist inn á skrifstofur bæjarins fyrir
9. maí.
Að.eins verður liaft samband við þær konur, sem
ráðnarvérða.
Nánari upplýsingar gefur Einar Hallgrínrsson í
síma 1-28-94.
LEIKV ALLAN EIN'D.
Einar Bjarnason próíessor
flytur erindi á Hótel K. E. A. (niðri) UM FjRF-
INGJA SÉRA HALLDÓRS Á GRUND í EVJA-
FIRÐI, LOFSSONAR OG NIÐJA ÞEIRRA,
fimmtudaginn 4. maí n.k. Hefst erindið kl. 20.30.
Allir áhugamenn um söguleg fræði velkomnir.
STJÓRN SÖGUFÉLAGS EYFIRÐINGA.
ATYINNA!
Okkur vantar duglega stúlku í salinn, sem fyrst.
Upplýsingar hjá hótelstjóra.
HÓTEL AKUREYRI.
Atvinna
Karlmaður óskast til starfa á Vistheimilinu Sól-
'borg.
Upplýsingar hjá forstöðukonu í síma 2-14-54,
milli kl. 11 og 12.
TIL SÖLU:
Stórt einbýlishús við Brekkugötu. Geta verið tvær
íbúðir.
Einbýlishús við Eiðsvallagötu, 5 herb. Bílskúr.
Ennfremur lítil einbýlis'hús í Glerárþorpi og Inn-
bænum, hús með tvemur íbúðum og 2—6 herb. j
íbúðir.
RAGNAR STEINBERGSSON, Hrl.
Geislagötu 5, Akureyri, viðtalstími 5—7 e. h.
mánudaga—föstudaga og kl. 10—12 f. h. laugard.
Sölustjóri Kristinn Stcinsson, byggingameistari. I
Símar 1-17-82 á skiifstofu, 1-25-36 og 1-14-59
hema.
•)
DANSSÝNING j
f)
Heiðar Ástvaldsson og Edda Pálsdóttir sýna ýmsa *
t)
dansa n.k. föstudags- laugardags- og sunnudags- J
c
kvöld. J
SJÁFSTÆÐISHÚSIÐi
O