Dagur - 10.05.1972, Qupperneq 1
Góður bændaklúbbsfundur
Á MÁNUDAGINN var bænda-
klúbbsfundur haldinn á Hótel
KEA á Akureyri. Sóttu hann
um 40 manns. Fundarstjóri var
Birgir Þórðarson .
Frummælandi var Bragi Ólafs
son Líndal fóðurfræðingur og
sagði hann m. a. frá fóðurtil-
raunum á mjólkurkúm, sem
gerðar voru á Galtalæk á Akur-
eyri 1970 og 1971. Einkum var
þar gerður samanburður á gras-
kögglum og erlendu kjarnfóðri,
ásamt venjulegri töðu. Saman-
burður þessi leiddi í ljós, að
mjög hámjólka kýr þyrftu kjarn
fóður, en heykögglar gætu að
mestu komið í stað innflutts
kjarnfóðurs á öðrum tímum. Þá
sagði ræðumaður frá tilraunum
í kálfauppeldi hjá Búfjárræktar
stöðinni á Lundi, sem enn er
ekki lokið, en þær eru taldar
hinar merkilegustu.
Umræður voru miklar á
fundinum. Q
Veðurblíða og almenn bjarlsýni
í VIÐTALI við Sigurð Jónsson
á Efralóni, Langanesi, á mánu-
daginn kom m. a. fram, að nú
munu flestir bændur þar eystra
eiga heyfirningar, gagnstætt því
sem var á mörgum nýliðnum
harðinda- og grasleysisárum. Og
nú eru tún græn og samkvæmt
gömlu mati kominn eða að
verða kominn sauðgróður í út-
haga. Er því full ástæða til al-
mennrar bjartsýni á þessu vori,
enda leikur veðurblíðan við
fólk og fénað.
Fiskafli hefur verið fremur
lélegur á Þórshöfn nema grá-
sleppuafli, sem hefur verið
mikill. Er þar því góð atvinna
um þessar mundir.
Lionsklúbbur Þórshafnar hóf
starf í vetur. Nýlega komu svo
þangað félagar úr hreyfingunni
bæði frá Vopnafirði og Húsavík
og höfðu ágætt hóf. Við það
tækifæri var Lionsklúbbur Þórs
hafnar formlega stofnaður, sam-
kvæmt stofnskrá slíkra.
Verkalýðsfélag Þórshafnar
hélt í vetur nokkrar góðar kvöld
vökur með heimafengnu efni að
öllu leyti. Þá er verið að æfa
söng og sitthvað gera menn sér
til sameiginlegrar ánægju.
Vegir eru sæmilegir, nema
helzt Hálsavegur, sem þó er að
skána, en er þó vart fær nema
jeppum ennþá. Versti kafli leið-
arinnar frá Þórshöfn til Akur-
eyrar er á austanverðri Vaðla-
heiði. □
Óskar Stefánsson heitir hann, Þingeyingur og dvelur í Skjaldárvík. í tómstundum, sem nú gef-
ast margar, stundar hann ritstörf og kópelur þessar veturgömlu ær sínar, sem hann á þar.
(Ljósm.: E. D.)
FRAMKVÆMDAÁÆTLUNIN Á ÞESSU ÁRI
Hækkun frá fyrra ári 1244 milljónir króna
HEILD ARF J ÁRHÆÐ fram-
kvæmdaáætlunar fyrir þetta ár
nemur 2 milljörðum og 22 millj.
kr., en heildarfjárhæð áætlun-
Frá Kaupfélagi Skagfirðinga
AÐALFUNDUR Kaupfélags
Skagfirðinga var haldinn 27. og
28. apríl á Sauðárkróki. Kaup-
félagsstjóri er Sveinn Guð-
mundsson. Formaður kaup-
félagsstjórnar er Tobías Sigur-
jónsson í Geldingaholti og mun
hann elzti stjórnarformaður
kaupfélaga hér á landi, hefur
verið stjórnarformaður síðan
1938 eða 1939. Fundarstjóri var
FRÁ LÖCRECLUMI
UM HELGINA voru nokkrir
menn settir í fangageymslur
vegna ölvunar á almannafæri.
En undanfarna daga hefur verið
fremur viðburðalítið á vettvangi
lögreglunnar í bænum, og nú
hefur innbrotum linnt, í bráðina
að minnsta kosti. Þrír smá-
árekstrar urðu.
Krani einn er notaður var við
Slippstöðina, valt á hliðina og
skemmdist eitthvað. Stjórnandi
þans mun eitthvað hafa meiðzt,
en þó ekki alvarlega. □
FIEILDARAFLINN
HEILDARAFLI landsmanna
fyrstu þrjá mánuði ársins varð
alls 482.121 lest, og er það rúm-
um 98 þús. tonnum meira en
fyrstu þrjá mánuðina 1971, en
þá var hann 383.790 lestir. Það
sem kemur aflanum svona mik-
ið upp á við, er hinn mikli loðnu
afli í vetur.
Heildarbolfiskaflinn var á
þessu tímabili 180.774 tonn, á
móti 176.492 þús. tonnum í
fyrra. Rækjuaflinn var 2371 lest,
en var fyrstu þrjá mánuðina í
fyrra 3273 lestir. □
að þessu sinni Gísli Magnússon
í Eyhildarholti.
Sveinn Gu'ðmundsson,
kaupfélagsstjóri.
Heildarvelta Kaupfélags Skag
firðinga var 604 millj. kr. á liðnu
ári og var aukningin 32%. Arð-
greiðslur námu 11.5 millj. kr.,
sem úthlutað var til félags-
manna í reikninga og stofnsjóð,
varasjóð, lagt til menningarmála
og fleira.
í Kaupfélagi Skagfirðinga eru
13 félagsdeildir og eru félags-
menn 1350 talsins. Fastráðnir
starfsmenn eru 121. Helztu
starfsgreinar fyrir utan almenna
verzlun, er mjólkursamlag, slát-
ur- og frystihús, bifreiða- og
vélaverkstæði, trésmíðaverk-
stæði og kjötvinnsla.
Kaupfélagsstjórinn, sem átti
sextugsafmæli um sama leyti og
aðalfundurinn var haldinn, var
heiðraður af samtökunum og
honum færðar margar góðar
gjafir. □
arinnar í fyrra nam 778 milljón-
um kr., og er hér um 160%
hækkun að krónutölu að ræða,
en miðað við almenna verð-
hækkun fjármunamyndunar
milli áranna er hækkunin allt
að 130%. að raungildi.
Kemur þetta fram í skýrslu
fjármálaráðherra um fram-
kvæmda- og fjáröflunaráætlun
þess opinbera fyrir þetta ár, sem
lögð var fram á Alþingi á föstu-
daginn. Segir í skýrslunni, að
þessi samanburður hafi þó litla
raunhæfa þýðingu, þar sem
áætlunin sjálf nái ekki yfir
nema hluta lánsfjáröflunar til
opinberra framkvæmda og fjár-
festingarlánasjóða. Áætlunin
sjálf nemi nú mun meiri hluta
af þessari heild, eða 56% á móti
30% í fyrra árs áætlun, eða 27%
í reynd árið 1971. Heildarláns-
fjáröflunin muni samkvæmt
áætlun hækka um 25% frá
reynd fyrra árs. Eða úr 2.887
milljónum kr. í 3.605 milljónir
króna. — Að vísu má búast við,
að einhverjar lántökur eigi eftir
að koma til skila síðar á árinu,
sbr. hækkun á síðasta ári úr
2.572 millj. kr. samkvæmt áætl-
un í 2.887 milljónir króna, segir
(Framhald á blaðsíðu 5)
Skarðasf hópur gæðin
UNDANFARNIR tveir dagar,
laugardagur og sunnudagur,
hafa verið þeir hlýjustu á þess-
um árstíma, sem maður man eft-
ir, sagði Guttormur Oskarsson
á Sauðárkróki í símtali á mánu-
daginn. Við vorum margir á
hestbaki á laugardaginn, fórum
og drukkum kaffi í samkomu-
húsinu í Melsgili hjá Reynistað.
En þangað fara hestamenn eina
læjerstjóraskipfi í Húsavíkurkaupstað
BÆJARSTJ OR ASKIPTI hafa
nú orðið í Húsavíkurkaupstað.
Björn Friðfinnsson, sem verið
hefur þar bæjarstjóri allmörg
undanfarin ár, hefur nú tekið
við starfi hjá Kísiliðjunni í Mý-
vatnssveit. Nýr bæjarstjóri er
Haukur Harðargon frá Svartár-
koti í Bárðardal og ræddi blaðið
við hann um stund á mánudag-
inn.
Allgóður þorskafli hefur verið
á Húsavík að undanförnu, bæði
á færi og línu. Þessi góðu afla-
brögð hafa skapað mikla at-
vinnu í landi og svo mikla að
örðugt getur reynzt að fá vinnu-
kraft til fyrirhugaðra fram-
kvæmda í landi. Ennfremur er
grásleppuveiði mjög góð, en
sennilega er nú búið að afla
þeirra grásleppuhrogna, sem
samið hefur verið um sölu á að
þessu sinni.
Af helztu framkvæmdum á
Húsavík er fyrst að nefna bygg-
ingu nýs gagnfræðaskólahúss,
sem væntanlega verður tilbúið
í haust. Þá er félagsheimilið
nýja og hótelið ennþá í bygg-
ingu. Þá er verið að byggja nýj-
an bæjarstjórabústað. En eftir-
tektarverðasla framkvæmdin og
sú, sem margir sveitarstjórnar-
menn víða um land bíða eftir að
frétta af, en það er bygging nýrr
ar sorpeyðingarstöðvar. Stöð
þessi er sænsk og á að kosta
3—4 milljónir króna. Byrjað er
á þessu verki og var raunar í
fyrrasumar og vonandi kemst
hún í gagnið nú í sumar.
Og enn má nefna til fram-
kvæmda á staðnum, að Fjalar
er að byggja nýtt trésmíðaverk-
stæði og Varði h.f. er að reisa
steypustöð.
í sumar er fyrii'hugað að
byggja mikið af íbúðum, sagði
bæjarstjórinn að lokum. □
ferð og komum þar margir sam-
an, og þar koma einnig hesta-
menn úr Stíganda, framan úr
sveitinni. Það var 15 stiga hiti
og logn, alveg einstakt veður.
Við teljum, að gæðingar séu
til, eins og löngum áður í Skaga
firði og hafa þó margir góðir
hestar verið seldir á erlendan
markað og hefur hópur góðhest-
anna því skarðazt nokkuð. Það
er alltaf verið að selja hesta úr
landi og verðið liefur farið
hækkandi, að því er manni
skilst, en kaupendur eru vand-
látari en áður var, og vilja ekki
ótamin hross.
Hegranesið landaði á föstudag
inn 111 tonnum af góðum fiski
og hefur skipinu gengið vel og
svo virðist, að hver veiðiferð sé
nokkuð aflaviss.
Atvinna er mikil og góð hér á
staðnum um þessar mundir,
veður blíð. Vatnsveita kaupstað
arins er stærsta viðfangsefnið í
sumar, mikið fyrirtæki. Hins
vegar verður ekki byggt mjög
mikið að íbúðarhúsum í sumar,
en vinna við þau mörgu hús,
sem byrjað var á í fyrrasuniar,
verður mjög mikil á þessu ári,
sagði Guttormur að lokum. Q