Dagur - 17.05.1972, Qupperneq 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Sírnar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Verðsiöðvun og
verðbólga
„FYRRVERANDI ríkisstjóm, við-
reisnarstjórnin svonefnda, brá á sér-
stakt ráð sér til lífsbjargar fyrir
tvennar síðustu kosningar,“ sagði
Einar Ágústsson utanríkisráðherra í
útvarpsumræðunum sl. föstudag.
„Ráð þetta var verðstöðvun,“ sagði
ráðherrann og niælti síðan m. a. á
þessa leið:
Verðstöðvun leysir engan vanda í
efnahagsmálum, en skýtur honum á
frest. Notagildi verðstöðvunar er því
aðeins fólgin í því ráðrúmi, sem gefst
til undirbúnings raunhæfra aðgerða.
Sé tíminn ekki til þess notaður, kem-
ur vandinn aftur til sögunnar og þá
mun verri viðureignar. Dæmin
sanna, að þá skellur yfir alda verð-
bólgu og verðhækkunar, rétt eins og
þegar sprengd er flóðgátt í stíflu.
Fyrri verðstöðvun viðreisnarstjómar-
innar, sem í gildi var 15. nóv. 1966
til 30. okt. 1967, leysti aðeins einn
vanda þeirrar ríkisstjórnar, sem sé
þann, að halda velli í kosningunum
1967. Bragðið heppnaðist í það sinn.
En á næstu tveim mánuðum eftir að
þeirri verðstöðvun lauk, hækkaði
framfærsluvísitalan um 21 stig og
síðan um 19 stig á árinu 1968.
Þegar kosningar nálguðust á ný
eftir fjögur ár, greip satna ríkisstjóm
til hins sama ráðs. Ný verðstöðvun
var boðuð. Sú verðstöðvun tók gildi
1. nóv. 1970 og skyldi gilda til 31.
ágúst 1971. Þannig átti á nýjan leik
að slá þann kosningavíxil, er duga
myndi til áframhaldandi lífdaga. En
í þetta sinn létu landsmenn ekki
blekkjast, eins og 1967. Stjórnin féll
og á hana verður ekki framar kallað
til raunhæfrar ábyrgðar. En fylgjan
hennar er enn á meðal vor. Núver-
andi ríkisstjórn og landsmenn allir
verða að glíma við þann vanda, sem
fráfarandi ríkisstjóm skildi eftir
óleystan, sem sé þann, að nú, eftir lok
verðstöðvunartímabilsins rís sú alda
verðbólgu og verðhækkana, sem sum-
part varð til á meðan á verðstöðvun-
inni stóð, en sumpart var fyrir hendi
áður en verðstöðvunin tók gildi.
Þessu til staðfestingu vitnaði ráð-
lierra í vitnisburð formanns Félags
íslenzkra iðnrekenda, Gunnars J.
Friðrikssonar, um þetta efni, sem
mikla athygli hefur vakið. O
Arsþing Héraðssambands S-Þingeyinga
DAGANA 29. og 30. apríl 1972
var 59. ársþing Héraðssambands
Suður-Þingeyinga haldið í barna
skólanum að Stórutjörnum, í
boði ungmennafélagsins Bjarma
Formaður HSÞ, Óskar Ágústs
son, Laugum, setti þingið með
ávarpi. Á fundinum var lögð
fram prentuð Starfsskýrsla HSÞ
1971, og auk þess fjölrituð
Skýrsla um íþróttastarfsemi
HSÞ 1971. Verður nú getið
helztu atriða úr skýrslum þess-
um:
Félagar í HSÞ eru nú um ára-
mót 1029 í 12 félögum. Eitt félag
gekk í sambandið á fundinum,
íþróttafélagið Eilífur, Mývatns-
sveit. Á vegum HSÞ störfuðu
lengri eða skemmri tíma 8
- íþróttake'nnarar. Haldið var
sumarbúðanámskeið. Eins og
undanfarandi ár tók HSÞ þátt í
bindindismóti í Vaglaskógi um
verzlunarmannahelgina ásamt
félagssamtökum úr Eyjafjarðar-
sýslu og Akureyri. íþróttir voru
mikið stundaðar innan HSÞ og
verður nú getið þess helzta:
íþróttafólk HSÞ tók þátt í um
80 íþróttamótum og voru þátt-
takendur í þeim 1064. Alls voru
iðkaðar 14 íþróttagreinar á sam-
bandssvæðinu með um 1450
iðkendum. Frjálsíþróttafólk
HSÞ tók þátt í 21 íþróttamóti,
10 innan héraðs og 11 utan hér-
aðs, og voru þátttakendur um
260. Sett voru 6 héraðsmet.
Sendir voru um 30 keppendur á
landsmót TJMFÍ, ennfremur
voru sendir keppendur á Norð-
urlandsmeistaramót í frjálsum
íþróttum og unglingakeppni
FRÍ. Keppni við UMSE, auk
fleiri móta. Glíma var iðkuð hér
af 25 mönnum og tóku þeir þátt
í 5 mótum, 3 innan héraðs og 2
utan héraðs, m. a. tóku þeir þátt
í Landsflokkaglímunni og Sveita
glímu GLÍ, sem haldin var að
Laugum. Skíðaíþróttin er mest
stunduð á Húsavík og iðka hana
um 135 karlar og konur. Iþrótta-
félagið Völsungur sá um fram-
kvæmd Unglingameistaramóts
íslands á skíðum 1971 og voru
skráðir keppendur 123, þar af
frá HSÞ 27, auk þess tók Völs-
ungur þátt í 9 skíðamótum utan
héraðs. Knattspyrna var stund-
uð með mesta móti á sambands-
svæðinu. Haldið var héraðsmót
í knattspyrnu í tveimur flokk-
um, auk þess tóku Völsungar
þátt í mörgum leikjum á árinu,
m. a. urðu þeir íslandsmeistarar
í 3. deild. Handknattleikur er
ekkert iðkaður nema á Húsavík
af íf. Völsungi. Léku þeir um
30 leiki á árinu, m. a. urðu þeir
íslandsmeistarar í 2. deild??
kvenna innanhúss. Sund er
mjög lítið stundað á sambands-
svæðinu, haldið var 1 sundmót
og ennfremur sendir keppendur
á Norðurlandsmeistaramót í
sundi og á landsmótið. Golf-
klúbbur Húsavíkur sendi 2 kepp
endur á Golfmót íslands á Akur
eyri.
KVEÐJUORÐ
KRISTJÁN bakari var hann
nefndur og fór þá ekki milli
mála við hvern var átt. Hann
var Þingeyingur að ætt og upp-
runa, fæddur á Kraunastöðum í
varð því langlífur, andaðist 29.
Aðaldal 7. nóvember 1886, og
apríl sl. meira en hálf níræður.
Foreldrar hans voru hjónin Jón
Jónatansson og Guðrún Jóns-
dóttir.
Kristján Jónsson nam bakara
iðn á Akureyri og stundaði þá
iðn sína til æviloka og varð
fyrirtæki hans, Brauðgerð
Kristjáns Jónssonar, snemma
þekkt og er enn, en er nú í hönd
um Snorra sonar hans.
1 Kristján kvæntist árið 1920,
Elísu Ragúelsdóttur, ættaðri frá
ísafirði. Hún andaðist fyrir nær
tveim áratugum. Börn þeirra
eru: Matthea, gift Jónasi Þor-
steinssyni skipstjóra, Snorri,
bakarameistari, ekkjumaður, og
Þórunn, gift Eiríki Eylands verk
fræðingi.
Kristján Jónsson bakari var
sérstæður maður og vakti eftir-
tekt. Hann var bæði hár og
þrekinn og þróttlegur, ómyrkur
í máli, hrjúfur stundum en fram
úrskarandi raungóður og þá
rausnarmaður og munu margir
minnast þess með þakklátum
Mikið var unnið að land-
græðslu á vegum félaganna.
Alls mun hafa verið dreift um
2.5 tonnum af fræi og um 27
tonnum af áburði. Eitt félag
sýndi sjónleik á árinu, dansnám
skeið voru haldin í nokkrum fé-
lögum, ennfremur var bridge og
skák nokkuð stundað.
Stjórn Héraðssambands Suð-
ur Þingeyinga skipar nú: Oskar
Ágústsson, Laugum, formaður,
Vilhjálmur Pálsson.Húsavík,
varaformaður, Sigurður Jóns-
son, Yztafelli, ritari, Arngrímur,
Geirsson, Laugum, gjaldkeri og
Indriði Ketilsson, Ytrafjalli,
meðstjórnandi. Q
huga. Hann hafði yndi af bú-
skap, var hestamaður, veiði-
andi. Með honum er genginn
maður löngum og náttúruunn-
einn af þekktustu góðborgurum
bæjarfélagsins og þess manns-
ins, sem lengri búsetu hafði í
höfuðstað Norðurlands en flest-
ir eða allir aðrir samtíðarmenn.
Við Kristján hittumst stund-
um á götu og stöku sinnum leit
hann inn á skrifstofur Dags,
kátur, segjandi sögur og atvik
frá liðinni tíð, lífsþyrstur maður
lengi en hjartahlýr og trúr
vinum sínum og hugsjónum til
æviloka.
E. D.
Kristján Jónsson bakarameistari
Karlakórinn Geysir heldur samsöng
UM næstu helgi munu hinir ár-
legu samsöngvar Karlakórsins
Geysis verða í Nýja-Bíói á Akur
eyri.
Söngstjóri kórsins nú eins og
áður er hinn kunni píanóleikari
Philip Jenkins. Kórinn telur nú
44 starfandi félaga og hafa
æfingar verið reglulega tvisvar
í viku í vetur. Hús kórsins, Lón,
var í vetur leigt Akureyrarbæ
til æskulýðsstarfsemi. Æfinga-
aðstaða fékkst frá áramótum í
Menntaskólanum en þar mun
kórinn oft áður hafa fengið inni
til æfinga áður en hann eignað-
ist eigið húsnæði.
Að þessu sinni eru bæði ný
og gömul lög á söngskrá. Af inn
lendum höfundum laga má
nefna Karl O. Runólfsson, Sig-
fús Einarsson, Sveinbjörn Svein
björnsson og Björgvin Guð-
mundsson.
Á þessu ári er Geysir búinn
að starfa í 50 ár. í tilefni af þess-
um tímamótum var leitað til
Kristjáns frá Djúpalæk um gerð
afmælisljóðs. Við ljóð þetta
gerði síðan dr. Páll ísólfsson tón
skáld lag. Á samsöngvum kórs-
ins nú verður þetta lag og ljóð
frumflutt, en það hlaut nafnið
„Söngur Geysismanna“.
Einnig verður nú í fyrsta sinn
hér á landi flutt tónaljóðið
UKKO — upphaf eldsins eftir
Jean Síbelíus. Hann samdi þetta
verk í tilefni af opnun Þjóðleik-
hússins í Helsinki árið 1902.
Einsöng í þessu lagi syngur Guð
mundur Jónsson óperusöngvari,
en hann mun einnig syngja
nokkur lög á þessum samsöngv-
um kórsins. Undirleik í laginu
UKKO annast, ásamt söng-
stjórn, Philip Jenkins. Aðrir ein
söngvarar eru þeir Sigurður
Svanbergsson og Jóhann Kon-
ráðsson. Undirleikari er Kári
Gestsson.
Eins og áður er sagt er þetta
50. starfsár kórsins. Stofndagur
er skráður 20. okt. 1922. Á kom-
andi hausti mun kórinn minnast
þeirra tímamóta með afrwælis-
samsöng.
Að þessu sinni mun kórinn
syngja í Nýja-Bíói föstudaginn
19. maí kl. 21.00 og laugardaginn
20. maí kl. 17.00 og 21.00. Á ann-
an í hvítasunnu syngur kórinn
svo í Miðgarði í Skagafirði kl.
15.00.
Styrktarfélögum kórsins skal
á það bent, að hægt er að fá mið
um skipt í Bókval, þar sem mið-
ar verða seldir. Einnig verða
seldir miðar við innganginn.
(Fréttatilkynning)
- Hækkun fjárlaga
var 5,3 milljarðar
(Framhald af blaðsíðu 1)
vegna almenna tryggingakerfis-
ins og kostnaður við löggæzlu,
og er á þessum lið ekki að ræða
um aukin útgjöld hjá stjórnsýsl-
unni í heild heldur tilfærslu
innan hennar. Þessir tveir liðir
gera 3.500 milljónir króna. Er
þá eftir 1800 millj. kr. hækkun,
sem er hin raunverulega út-
gjaldahækkun, samkvæmt
ákvörðun núverandi ríkis-
stjórnar.
Helmingur af þessum 1800
milljónum fara til aukinna verk
legra framkvæmda og atvinnu-
mála. Hinn helmingurinn er að
uppistöðu til framlag til aukinna
trygginga og reksturs ríkisins.
hér á Akureyri í vetur. Búning-
ar og förðun eru að þessu sinni
með skrípilslegra móti og mun
það hugsað til að auka áhrif
verksins, en -gerir það óraun-
verulegra með þessum hætti.
Leikmyndir gerði Ivan Török
og hefur hann áður komið við
sögu, bæði sunnan fjalla og
norðan.
Leikfélag Akureýrar er nú 55
ára og hefur á ýmsu oltið um
starfsemi þess. Óhætt mun þó
að setja, að bæjarbúar eigi því
margt að þakka gegn um árin
og 142 verkefni félagsins hafa
skemmt Akureyringum marga
Stund og L. A. mun gera það
lengi ennþá.
Stjórn Leikfélags Akureyrar
skipa nú: Jón Kristinsson for-
maður, Gúðmundur Magnússon,
Þráinn Karlsson, og frúrnar Sig-
urveig Jónsdóttir og Guðlaug
Hermannsdóttir. E. D.
Guðlaug llermannsdóttir í hlutverki Ljónu. (Ljósmyndast. Páls)
SIROMPLEIKUR
Á ÞESSU vori verður ekki þver-
fótað fyrir Halldóri Laxness í
íslenzkum bókmenntum, einnig
leikbókmenntum. Hið sjötuga
skáld gnæfir - hátt í samtíman-
um, er töframaður máls og stíls,
háðskur, djarfur, frjáls og óút-
reiknanlegur. Leikhús höfuð-
borgarinnar fylltust af Laxnesi
þegar sjötugsafmæli hans, 23.
apríl sl., nálgaðist, en þar ber
hæst „Sjálfstætt fólk.“
Hér norður á Akureyri tók
Leikfélagið Strompleikinn til
meðferðar og frumsýndi hann á
laugardagskvöldið og aftur
næsta kvöld. En félagið hafði
áður sýnt tvö leikrit sama höf-
undar, íslandsklukkuna 1960 og
Dúfnaveizluna 1968.
Af átján manna hópi leikara í
Strompleiknum ber fyrst og
fremst að nefna Guðlaugu Her-
mannsdóttur, sem leikur Ljónu,
verðandi óperusöngkonu, upp-
hafna, unga konu. Kristjana
Jónsdóttir leikur móðurina og
eru þessar mæðgur, úr sveit
komnar í þéttbýlið, ekkert
venjulegar frá hendi höfundar
né í meðferð þessara góðu leik-
ara. Maðurinn á tréfætinum,
kúnsner Hansen, er leikinn af
Júlíusi Oddssyni, sem kemur
hverju orði fullkomlega til skila.
Jóhann Ögmundsson leikur
söngprófessor, eða mann, sem
læst vera það, létt og liðlega.
Hans konu, útlenda, leikur Sig-
urveig Jónsdóttir, en Saga Jóns-
dóttir leikur útflytjendafrúna
og standa báðar fyrir sínu.
Lamba af Norðfirði, eða millj-
ónamæringinn, leikur Þráinn
Karlsson óþvingað og eðlilega.
ÖIl þessi hlutverk tel ég vel,
jafnvel mjög vel af hendi leyst.
Aðrir leikarar eru: Aðalsteinn
Bergdal, Gestur Einar Jónasson,
Helga Thorberg, Helga Sigurðar
dóttir, Steinunn Sigurðardóttir,
Sigurður Ingi Kristjánsson, Jón-
steinn Aðalsteinsson, Kjartan
Ólafsson, Guðmundur Lárusson,
Steinar Þorsteinsson og Níels
Gíslason.
Leikstjóri er María Kristjáns-
dóttir og sviðsetti hún leik
Menntaskólanema „Minkana"
mmmmm
GÓÐAR VÖRUR
GOTT VERÐ
Hvítbotnaðir
GÚMMÍSKÓR
á drengi
SÍMI 21400
SKODEILD
Vil kaupa notaða hey-
byssu driftengda, eða
dísselmótor, ekki minni
en 10 ha. Helzt Hatz eða
Amstrong.
Hannes Sigurðsson,
Hlíðarenda Bárðardal,
sími um Fosshól.
\7il kaupa lítið notað
reiðhjól.
Uppl. í síma 2-14-35.
Norðurlandaferðin
VEGNA forfalla eru nokkur
sæti laus í þessa ferð og eru
þeir sem áhuga hafa beðnir að
snúa sér sem fyrst til skrifstofu
samtakanna, Hafnarstræti 90,
Akureyri, sími 21180. En þar
eru veittar allar upplýsingar
varðandi ferðalagið, og hægt að
fá prentaða ferðalýsingu.
Ferðanefnd.
Brpjar Ánaniasson
KVEÐJUORÐ
FREGNIN um að Binni væri
dáinn, kom eins og reiðarslag.
Við senr þekktum hann gátum
varla trúað því, að svo misk-
unnarlaust væri skorið á lífs-
þráð þessa unga manns. Daginn
áður hafði hann verið fullur lífs-
gleði og starfsorku, en nú var
hann „dáinn horfin harma-
fregn.“ Við dauða Brynjars var
eins og dimm regnský hefði
dregið fyrir sólu þennan bjarta
vordag.
Brynjar vann störf sín á haf-
inu. Hann var duglegur, ósér-
hlífinn og hlýtur þaðan þau um-
mæli starfsbræðra sinna, að
hafa verið ágætur sjómaður og
félagi. Hann var búinn að
ákveða að fara næsta vetur í
Stýrimannaskólann, því hugur
hans beindist að sjónum.
Brynjar Ananíasson var fædd
ur 1953, sonur Brynhildar Þor-
leifsdóttur og Ananíasar Berg-
sveinssonar, og var hann 4. í
röðinni af 7 systkinum.
Með þessum línum vottum við
foreldrum og systkinum Brynj-
ars heitins innilega samúð og
minnumst orða skáldsins, að
eigi er svo svart yfir sorgar-
ranni að eigi geti birt fyrir eilífa
trú.
I K. G,
Barnavagn til sölu.
Uppl. í síma 2-16-98.
Fjölær blóm og sumar-
blónr til sölu milli kl.
5,30 — 8,30 síðdegis.
Gísli Guðmann Skarði,
Hamragerði 11.
Til sölu lítill Ignis ís-
skápur, Radionette sjón-
varpstæki og Pernal
þvottavél.
Uppl. í síma 1-20-23
eftir kl. 16.
Til sölu ný Ijós sumarföt
(ónotuð) á hávaxin
mann. Keypt úti á
Spáni, verð kr. 7,000.
Sími 1-23-91.
Til sölu sjálfvirk sauma-
vél, verð kr. 3,500,00 og
góður barnavagn á kr.
5,000,00.
Selzt í Stekkjargerði 13.
Fjölærar plöntur til sölu
á Sólvöllum 9, frá og
með föstudeginum 19.
maí eftir kl. 8 á kvöldin.
Trillubátur til sölu.
Uppl. í sínra 2-13-57 kl.
6 til 8 á kvöldin.
Vel nreð farinn barna-
vagn til sölu.
Uppl. í síma 1-28-47.
Til sölu Silver Cross
barnakerra. Selzt ódýrt.
Uppl. í síma 1-27-63.
Bamavagn, burðarrúm
og karfa til sölu.
Uppl. í síma 1-25-99.
Herbergi óskast til lcigu
fyrir skólastúlku frá 25.
maí til 20. sept. Helzt á
brekkunni.
Uppl. í síma 3-21-21.
Eldri konu vantar 1—2
herb. og eldunaraðstöðu
nú þegar eða síðar.
Sími 2-12-05.
2—3 herbergja íbúð ósk-
ast til leigu, sem fyrst.
Uppl. í síma 1-11-40.
2—3 herberg ja íbúð verð-
ur til sölu í Hafnarstræti
23, miðhæð.
Uppl. í síma 1-18-96.
íbúð til sölu.
Ef þig vantar 3ja her-
lrergja íbúð, þá er ein til
sölu í Skarðshlíð 4.
Vil jir þú vita fleira um
hana — kanski ikaupa —
bringdu í síma 1-26-32,
milli kl. 6 og 8 e. li.
2—3 herbergja íbúð til
sölu að Brekkugötu 21,
iuppi að norðan.
Uppl. á staðnum 3 næstu
kvöld.
íbúð 2—3 herb. óskast til
leigu í 4 mánuði frá og
með 1. júní.
Fyrirfratngreiðsla ef ósk-
að er.
Uppl. í síma 1-23-80.
Herbergi ókast til leigu
strax eða um næstu mán-
aðarmót.
Uppl. í símum 1-12-04
og 1-27-44.
Hesfaunnendur
Hestamannafélagið Þjálfi S—Þing. heldur nám-
skeið í hlýðniþjá'lfun hesta frá 23/6 til 2/7 1972
að báðutn dögum meðtöldum.
Kennari verður Ásdís Þórsdóttir.
Þátttaka tilkynnist til SIGFÚSAR JÓNSSONAR
Einarsstöðum.
Fimleikasýning Barnaskóla
Ákureyrar
Fimmtudaginn lS.imaí kl. 8,30 e. h. sýna nemend-
ur leiikfimi í íþróttaskemmunni á Oddeyri.
Á annað Irundrað stúlkur úr 2. og 3. bekk (8 og 9
ára) sýna leiki og leikfimi á gólfi undir stjórn
Margrétar Rögnvaldsdóttúr.
Drengir úr eldri deildium skólans sýna áhalda-
leikfimi undir stjórn Kára Árnasonar.
Aðgangur fyrir fullorðna kr. 50, en fyrir börn
kr. 25.
SKÓLASTJÓRINN.
TIL SOLU
Ford Taunus I2m stati-
on árg. 1964 á mjög hag-
kværnu verði. Ennfrem-
ur Albín 10—12.
Uppl. í síma 95-52-80 og
95-51-62.
Hillman imp árg. 1966
til sölu. Hagstætt verð og
skilmálar.
Uppl. í síma 2-13-76 eftir
kl. 8 næstu kvöld.
Ford Fairlane árgerð ’66,
tveggja dyra, ekinn 68
þúsund mífur, til sölu.
Sími 2-16-75.
Til sölu Willys árg. ’46,
óökufær.
Uppl. í síma 2-16-71.
Til sölu Moskvitch árg.
1971 með fóðruðu mæla-
borði.
Gísli Árnason,
Laxárbakka
Mývatnssveit.
Opel Record árg. 1955
till sölu eða í skiptum.
Sími 1-24-05 eftir kl.
7 e. h.
Til sölu Skoda station
1202 árg. ’66 ekinn
32.000 km.
Uppl. í símum 1-10-59 og
1-15-02.
Til sölu mjög góður
V.W. árg. 1965.
Uppl. í síma 1-15-92
milli kl. 7—8 á kvöldin.
Till sölu er bifreiðin
A—1601 sem er Daf árg.
1965, sjálfskiptur. Ný
upptekinn og ný spraut-
aður. Mjög góður og lip-
ur bíll.
Uppl. í síma 2-18-39
eftir kl. 7,30 á kvöldin.
Saab 96 árg. 1971 til sölu
skipti á ódýrari bíl gætu
komið til greina.
Uppl. í síma 2-10-86
milli kl. 2 og 4.
Til sölu er Volksvagen
árg. ’53 í góðu lagi.
Uppl. í síma 1-28-68 til
kl. 6 á kvöldin, í síma
1-15-41 eftir kl. 6.
Get tekið stálpuð börn
til gæslu allan daginn. j
Uppl. í Fjólugötu 7.
Konur eldri og yngri. í
Munið trimmið á íþrótta
vellinum kl. 8 á íinnntu-
dagskvöld.
Trimmklúbburinn.