Dagur - 21.06.1972, Blaðsíða 5

Dagur - 21.06.1972, Blaðsíða 5
4 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. FYRR 0G NÖ ÞJ ÓÐARST OLT Islendinga vajr löngum áberandi. Jafnvel á þeim niðurlægingartímum, er þjóðin galt afhroð í mannslífum vegna hungúrs, glataði hún ekki sjálfsvirðingunni og liinni andlegu reisn sinni. Vits- munir, hreysti og háttvísi voru hinir lýsandi vitar. Með iðkun andlegra viðfangsefna, svo sem með ritun bóka, lestri, ljóðagerð og sagnalist var þjóðin að bæta sér upp ein- angrun, umkomuleysi og veialdlega fátækt sína, jafnvel að breiða yfir liana. Nú er öldin önnur því að tvær kyn slóðir liafa nú lifað í landinu, án þess að þekkja sult nema af sögunni. Og menntunarhungrið alkunna er einn- ig mettað, svo sem 750 stúdentar, út- skrifaðir á þessu vori, bera meðal annars vitni um. Þjóðin hefur búið ört vaxandi velmegun á síðustu ára- tugum, einkum síðan fullveldið var stofnað fyrir 28 árum og framfarir á fjölmörgum sviðum hafa aukizt með risaskrefum og margir eiga digra sjóði í bönkum. Lýðveldisins er um land allt minnzt 17. júní og Jóns Sigurðssonar forseta, sem með lífi sínu og starfi varð frelsistákn þjóðar- innar. En þess ber þá jafnframt að minnast, að forfeðurnir, kynslóð fram af kynslóð, varðveittu tunguna og söguna, hin andlegu vopnin. En við lifum ekki lengur í heimi sagna því að frelsið og fullveldið lagði okkur óteljandi möguleika í hendur, sem beina huganum að verk efnum framtíðarinnar. Forfeður okk ar um aldir þroskuðu með sér ýmis- konar manndyggðir, sem urðu rót- fastar, metnar öðru meira og urðu mestur styrkur fátækrar þjóðar. Við höfum hins vegar leyft okkur að taka upp nýja siði og að meta and leg og veraldleg verðmæti á annan hátt en áður var. Við þurfum ekki lengur að breiða yfir fátæktina með því að drýgja andlegar dáðir, og þær virðast hafa fallið í áliti. Hins vegar finna margir hvöt hjá sér til þess á síðustu tímum, að breiða yfir hina andlegu fátækt sína með harðviði og gólfteppum, hylja lífsleiða og ham- ingjuskort með áfengi og eiturlyfj- um. Á minningardegi Jóns Sigurðsson- ar forseta og lýðveldisins, og á sigur- degi hinna „hvítu kolla“, er skylt að leiða liugann að því, hvort hið nýja mat okkar á andlegum og veraldleg- um verðmætum leiðir okkur á veg hamingjunnar, hvort við höfum ver- ið of fljót að kasta liinum fornu dyggðum, hvort við erum að leggja rétta mynt inn í sjóði framtíðar- Tvö SÍÐASTA Búnaðarþing ákvað að fá innflutt sæði úr holdanaut um af Gallowaykyni frá Bret- landi, til þess að ná meiri væn- leik sláturgripa. En hér þarf meira að gera. Búnaðarþing og Búnaðarfélag íslands þurfa að beita sér fyrir því að komið fjárkyn 7. Innflutningur á sæði á ekki að valda sjúkdómshættu. 8. Ég tel sterkar líkur á því, að þetta sé merkilegra mál, en um holdanautin. Þau eru ekki æskileg nema í snjóléttum sveit um, þar sem hægt er að beita þeim á veturna — með allri gát. JÓN H. ÞORBERGSSON: verði upp í landinu nýju sauð- fjárkyni til sláturfjárbóta. Þetta 'ér'Kægt á auðveldan hátt, með því að fá innflutt sæði úr Boder Leicester hrútum og hreinrækta fyrsta liðs kynblendinga út af þeim og innlendum ám. Þannig “gétur'hið nýja sauðfjárkyn orð- ið til. Border Leicester féð varð til um 1770 á þennan hátt með ein- blendingsræktun. Með því að hreinrækta fyrsta liðs kynblend inga tveggja ólíkra fjárkynja — hrúta af Dishleykyni og ær af Teeswaterkyni, langullað fé. Þessi fjárkyn eru nú horfin. Ut í þetta fer ég ekki frekar, þótt ég hafi um það langt mál í bók sem heitir Sheep, Breeds and Management (London 1908). Svo sem áður segir ér Border Leicester féð orðið til með ein- blendingsrækt og mörg fleiri fjárkyn. Kynblöndun til að fá verðmeiri sláturlömb viðgengst víðsvegar um lönd. Rökfærsla mín í-þessu máli er í sem fæst- um orðum þessi: 1. Border Leicester féð er mest notað til blöndunar, í fram leiðslu sláturdilka, vegna þess hvað það er hraust, afurðasamt, kynsterkt og bráðþroska. Bretar nota hrúta af því kyni til að fá sláturdilka undan Svarthöfða- ám og Cheviotám, sem eru fjall- fjárkyn. 2. Nota ætti langræktaðar þingeyskar ær við stofnræktun nýja fjárkynsins. 3. Fyrsta liðs kynblendingarn- ir yrðu mjög líkir í föðurkyn, stórír, drifhvítir á ull og kollótt- ir, þótt mæðurnar væru hyrnd- ar. í vaxtarlagi yrðu þeir líkir föðurkyninu, jafnvaxnir með sléttan herðakamp, breitt bak og miklar malir, sem okkar dilka vantar svo mjög og gang- limir kjötmeiri. 4. Af þessu fyrsta liðs hrein- ræktaða fé, á svo að nota hrúta handa þeim ám, sem gefa eiga sláturlömb, til þess að fá vænni dilka — sem ekki mundi bregð- ast — bæði á skrokk og gæru og betri vöru, kjötið meira og ekki laus fita í því og betri söluvara. Gærur af þessum dilkum — !4 af útlendu blóði — tel ég mjög líklegt að yrðu jafn gjaldgengar til sams konar nota og á sams konar markað og dilkagærur okkar eru nú. Eftir því sem ég man. Sjá síðar. 5. Á þennan hátt gætu og mundu bændur græða áriega milljónir, án aukins tilkostn- aðar. 6. Við í stjórn Búnaðarsam- bands S.-Þingeyjarsýslu eða Hallgrímur heitinn bróðir minn, gerði þessa tilraun. Nefndi hann þetta einblendingsfé þingskota- kyn. Taldi það, ýmsra hluta vegna, henta okkur betur en Border Leicester féð. Ærnar nýja fjárins reyndust stálþrifn- ar, mjólkurlagnar og hraustar. Dilkar undan fyrsta liðs hrútum og heimaám, reyndust ótrúlega vænir. Ég nefni ekki tölur í því sambandi. Nýjar tilraunir eiga að leiða þær í ljós. 9. Ai þessu nýja fjárkyni þurfa svo að vera bú víðsvegar um land sem seldu bændum hrúta til framleiðslu sláturdilka. Ailt undir eftirliti Búnaðar- félags íslands. 10. Ég er þess fullviss að bændur mundu yfirleitt skilja það, að hér yrði að fara eftir föstum reglum. Sérrækta heima Jón H. Þorbergsson. féð og sérrækta nýja kynið. Það er undirstaðan fyrir því að fá vænni sláturdilka. Ég hefi oftar en einu sinni sent Búnaðarþingi erindi um þetta mál, en það hefir ekkert gert í þessu merkilega máli. Verður þao að teljast miður far- ið, ekki vakað nógu vel yfir þessu mikla hagsmunamáli bænda, sem ég fullyrði að það er. Hér er ekki talað út í bláinn. Það er búið að gera hér tilraun, sem reyndist mjög jákvæð. Hér er ekki um annað holda- fjárkyn að ræða en Border Leicester. Onnur eru of snoð- uiluð og illa lit eða of grófgerð og ekki eins fjölhæf. Bretar hafa myndað nýtt fjárkyn með hrein ræktun fyrsta liðs kynblendinga af Border Leicester hrútum og Cheviotám. Nefna þeir þetta fé Havbreed. Telja það betur henta við minni skilyrði. Ég vil taka það fram, að fyrir margra ára áróður okkar Hall- gríms heitins bróður, fengum við í nafni Búnaðarsambandsins hér, leyfi landsstjórnarinnar til að gera tilraunir með útlenda féð. Landssjóður lagði til stofn- kostnaðinn en Hallgrímur bróð- ir minn keypti féð í Bretlandi sumarið 1932, hafði tilraunirnar og fjárbúið og lét það bera sig. Þetta fé tók ekki mæðiveikina, en lenti þá allt í niðurskurðin- um. Með tímanum verður það al- gengara hér í landi sem víða er- lendis, að bændur láti förgunar- dilka sína á ræktað land, lengri eða skemmri tíma fyrir slátrun. Það er hagnaðarmál og mikil undirstaða þess, að hægt sé að hafa miklu fleira sauðfé í land- inu en úthagi og afréttir duga því til fullra þrifa dilkunum — þetta mál þarf athugunar með. Bezt er að fitunarlandið sé tún, hafragras, síðsprottið og út- hagi með, svo að haldist gott bragð að kjötinu, sem er mikið markaðsskilyrði. Mikið fóður- kál spillir mjög bragðinu. Blend ingsdilkar mundu, rpeð þessum hætti, taka miklu meiri fram- förum en önnur lömb. Okkar sauðfé er í eðli sínu seinþroska fjallafé, þess vegna þurfum við að koma hinum bráða þroska láglandsfjárins í okkar sláturfé. Þetta er algengt hjá öðrum þjóð um. í Hjaltlandi er líffjá’rstofn- inn hinn sami og hér í landi, en féð þar mun smávaxnara en hér — fénu þar aldrei gefið fóður svo að teljandi sé. Þar fá bænd- ur langtum hærra verð fyrir kynblendingsdilkana og þá líka vegna þess að þeir taka miklu meiri framförum, er þeir koma á ræktað land, undir slátrun. Bændur á Bretlandi kaupa lömb in af Hjaltlendingum að haust- inu og setja þau á ræktað land fyrir slátdrun. Svo sem áður getur, er ekki á þessu stigi málsins, hægt að nefna gildandi tölur um meiri vænleika sláturdilka með þeirri aðferð, er hér um ræðir, enda grípa skilyrðin þar inn í. Þegar ég hafði Border Leicester hrút, voru kynblendingar með á þriðja kg. meira kjöt og hátt í kg. merii gæru. En hér er léleg- ur sumarhagi, og ég gerði ekk- ert til að mismuna mæðrum þeirra í gjöf. í landgæðasveitum var munurinn miklu meiri. Ég tel ekki fjarri lagi, eins og nú horfir, að ef notaðir væru hálf- blóðshrútar, mundu dilkar und- an þeim gera, á blóðvelli, minnst 300 kr. meira en heimalömb. Annars eiga tilraunir að segja til um þetta. Bændur þurfa að vaka yfir þessu máli og knýja á um fram- kvæmdir. 15. marz 1972. Mikiii söngur og góð tónlist Sundkeppniii - - 200 mef ra Egilsstöðum 19. júní. Hátíða- höldin hér á Egilsstöðum voru að þessu sinni haldin innanhúss að mestu, í Valaskjálf. Veður var þurrt en kuldaþræsingur og snjóaði í fjöll. Tónlistarfélagið annaðist' undirbúning hátíða- haldanna en hátíðaræðuna flutti Vilhjálmur Hjálmarsson alþing- ismaður. Tónkórinn söng og lúðrasveitin lék. Úti voru leikir og knattspyrnukeppni. Um kvöldið var dansleikur. Allt fór fram með friðí og spekt og virð- ist ekki hafa sannazt sú fullyrð- ing eins „menningarvita“ syðra, að hið mikla þéttbýli þár, skap- aði siðmannlegt og ménningar- legt mannlíf fremur éri" smærri staðirnir. En fréttir af 17. júní hátíðahöldunum í Réykjavík gefa tiléfni íiTað minna á þetta nú. Samband norðlénzkra karla- kóra, 250—300 söngmenn, heim- - Ný heyverkunaraðferð reynd (Framhald af blaðsíðu 1) um að ræða heymjöl eða hey- köggla þótt hráefnið sé hið sama, heldur sérstaka verkun heys, sem væntanlega má nota að öllu leyti í stað heys, sem verkað er með öðrum hætti. Kostir þessarar heyverkunar munu þeir helztir, að unnt er að heyja í hvaða veðráttu sem er, heykökurnar taka mjög lítið rúm í hlöðu og er auðveldara að gefa þær en hey úr stáli. Bú- peningur getur notfært sér fleiri fóðureiningar í dagsfóðrinu en með heygjöf og á það að geta sparað tilsvarandi aðkeypt kjarnfóður. Þá er talið, að um þriðjungi fleiri fóðureiningar fáist af hverjum hektara lands með þessari aðferð en öðrum. Byggist það á minna efnatapi - Skólaslit Menntaskólans á Ák. (Framhald af blaðsíðu 8) valið af kennurum og nemend- um, starfaði í fyrsta sinn, og þótti sú skipan reynast vel. Þá var einnig í fyrsta sinn ráðinn aðstoðarskólastjóri, Jón Árni Jónsson. Auk þess sem hann annaðist mikinn hluta hinna daglegu starfa, fór hann með alla stjórn skólans í október- mánuði og annaðist undirbún- ing vetrarstarfsins í veikinda- forföllum skólameistara. Nýlega barst skólanum 30.000.00 króna gjöf frá Huldu SMÁTT & STÓRT (Framhald af blaðsíðu 8) gætisiðnaði, sem hneykslaði margan en sennilcga er ekki mjög óhollt í maga, saurgerlam- ir í akureyrskum' ísiðnaði og ferðalög landsmanna til meng- aðra baðstranda á suðlægum slóðum, eru allt undantekning- ar, en þó nægilega glögg dæmi um það, að alltaf verða menn að halda vöku sinni, einnig hér, í Iandi hins tæra lofts og hreina vatns. MARGT AÐ SJÁ Heimskt er heimaalið barn, og heimskir vilja menn ekki vera. Ferðalög eru vel til þess fallin að víkka sjóndeildarliringinn. Bækur eru einnig vel til þess fallnar, ferðir á söfn, viðræður við fróða menn o. s. frv. Akur- eyringar hafa eflaust flestir skoðað sín eigin söfn, svo sem náttúrugripasafn, minjasafn, amtsbókasafn og ennfremur hafa þeir komið í liús skáldanna, Davíðs, Matthíasar og Nonna. Margt er að sjá á þessum stöð- um og margir koma um langan veg þeirra erinda. FLEIRA ER AÐ SJÁ En fleira er að sjá en söfn og safnhús. Við örlitla athugun fyr- ir fáum dögum, kom í ljós, að fullorðið fólk í bæ og héraði hefur mjög vanrækt að fylgjast með iðnframleiðslu á Akureyri. Það liefur fæst litið inn í verk- smiðjur KEA og SÍS, í Iirað- frystihúsið, niðursuðuna eða stórsmiðjur, sem kenndar eru við tré og járn, naumast kynnt sér þá staði, sem framleiða mjólluir- og kjötvörur. Og því miður láta bændur hjá líða að kynna sér ræktunartilraunir, sem hér eru þó framkvæmdar í liöfuðstað Norðurlands. Á. Stefánsdóttur í minningar- sjóð Stefáns Stefánssonar, skóla meistara, en Hulda á 60 ára gagnfræðongsafmæli á þessu ári. Á þeim 6 árum, sem Steindór Steindórsson hefir veitt M. A. forstöðu, hefir hann brautskráð 696 stúdenta. Að loknu máli skólameistara flutti Olafur Jónsson, læknir, kveðjur frá 40 ára stúdentum. Þeir sendu gjöf í minningarsjóð Sigurðar Guðmundssonar, skóla meistara. Heillaskeyti barst frá 30 ára stúdentum. Fyrir 25 ára stúdenta talaði Hannes Haf- stein, fulltrúi. Þeir gáfu mál- verk af dr. Kristni Guðmunds- syni, fyrrum kennara við M. A. um mörg ár. Dr. Kristinn af- hjúpaði myndina sjálfur og flutti nokkur ávarps- og þakkar- orð. Af hálfu tíu ára stúdenta talaði Hreinn Pálsson, lögfræð- ingur, en þeir gáfu tæki til tungumálakennslu, segulbands- og heyrnartæki ósamt stjórn- borði. Valdimar Gunnarsson, menntaskólakennari, talaði af hálfu 5 ára stúdenta, sem gáfu veggklukku til varðveizlu í skólastofu í minningu Stein- gríms Blöndals, sem var inspec- tor scholae og forustumaður í félagsmálum, en lézt fyrir tveim ur árum. Hermann Stefánsson, yfir- kennari, ávarpaði Steindór Stein dórsson, skólameistara, og flutti honum þakkir af hálfu kennara M. A. Að lokum flutti Steindór Steindórsson ræðu. Q með þessari verkun heys. Enn- fremur er aðferðin mjög vinnu- sparandi. Ráðgert er, að bændur greiði krónur 3.50 fyrir hvern heyhest, verkaðan í þessari nýju verksmiðju. Hér háfa verið taldir margir augljósir kostir nýrrar heyverk- unaraðferðar, ef allt fer a'ð ósk- um í framkvæmd. Þess er þó að geta, að ekki er um að ræða kjarnfóðurframleiðslu, heldur vel verkað hey, eða gróffóður. Þá liggur það auðvitað ekki ljóst fyrir, hver kostnaðurinn raunverulega verður, að til- raunasumri loknu. Þá krefst verksmiðjan mikils samfellds lands, því að langir flutningar heys að verksmiðjunni eru dýr- ir. Verksmiðjan hefur að þessu leyti sínar takmarkanir við ís- lenzka aðstöðu, víðast hvar. Vel má hugsa sér' sameign bænda og samvinnurekstur á verksmiðjunni, þar sem ræktar- lönd eru mikil og tún samliggj- andi. En naumast hentár hún þó 'til viðbótar venjulegum hey- skapartækjúm, sem nú eru al- gengust. Til þess er hún of dýr í innkaupi og rekstri. En hvort hún getur komið í staðinn fyrir ■núvérándi heyskapartæki, er annað mál, og væri þá um gjör- byltingu í heyskap og heyverk- un að ræðá. Og i .fljótu bragði sýnist það hagkvæmt, fyrir þá, sem nú hefðu um það að velja, að kaupa sér öll algeng hey- skapartækí ásamt heygeymslum og heyverkunartækjum í hlöðu, svo sem súgþurrkun, að velja sér fremur heykökuverksmiðju, ef hún reynist eins vel og af er látið. Hins vegar virðist það miklu hæpnara, að slík verk- smiðja eigi .rétt á sér til við- bótar því, sem fyrir er. En í því máli verður reynslan úr að skera og ‘mikilvægt er, að það verður gert nú í sumar, Q sótti okkur um fyrri helgi og þótti sú heimsókn góð og var enda óvenjuleg. Hefur aldrei áður verið svo fjölmennur hóp- ur söngmanna hér. Um þessa helgi heimsótti okk- ur svo Karlakór Reykjavíkur og söng einnig í Valaskjálf, en fór að því búnu til Neskaupstaðar og söng þar: Er þetta mikil söng- hrina, sú mesta hér um slóðir og var tekið með fögnuði. Til viðbótar hinum mikla og góða söng kemur svo Sinfoníu- hljómsveit íslands hingað um næstu helgi. Veraldarvafstrið er hreint með mesta móti og atvinna bæði mikil og góð. Á þetta við bæði um byggingaframkvæmdir, vega MINNI HAGNAÐUR Ytri-Nýpum 19. júní. Rudda- veðrið, sem hér hefur verið í Vopnafirði, er að ganga niður. Nokkuð snjóaði í háfjöll. Tún eru vel sprottin og mun víða skammt til sláttar, eða strax og veður verður heyskap hagstætt. Aðalfundur Kaupfélags Vopn- firðinga var nýlega haldinn. Rekstursafkoman varð lakari en í fyrra og skilaði starfsemin litlum hagnaði. Kaupfélagsstjóri er Halldór Halldórsson. Af for- mannsstarfi í kaupfélagsstjórn lét Friðrik Sigurjónsson, Ytri- Hlíð, að eigin ósk, en í hans stað var kosinn Sigurjón Frið- riksson, sama stað. Aðrir stjórn armenn eru Kjartan Björnsson símastjóri og Þórður Pálsson, Refstað. Þ. Þ. ÁSKORUN AÐALFUNDUR Bílstjórafélags Akureyrar, haldinn í Þingvalla- stræti 14, mánudaginn 12. júní 1972, beinir þeir tilmælum til bæjarstjórnar Akureyrar, að hún hefjist þegar handa við upp setningu umferðarljósa við gatnamót Glerárgötu og Tryggvabrautar, og Strandgötu og Glerárgötu, þar sem sam- þykktir liggja fyrir frá umferð- arnefnd og bæjarstjórn um þetta efni. Ennfremur beinir fundurinn þeim tilmælum til viðkomandi aðila, a ðnotað verði ferska vatn til vökvunar gatna í bænum í staðinn fyrir sjó, sem tekinn mun vera á miður heppilegum stað. Q framkvæmdir og svo er Lagar- fossvirkjun að auki. Vegagerðin er komin í gang með öll sín tól og tæki, enda meira fé lagt til vegaframkvæmda en áður, eink um sunnan Reyðarfjarðar. Þá er byrjað á jarðgöngunum í Oddsskarði. Brúaframkvæmdir verða verulegar og stærsta brú- in verður byggð á Gilsá á Jökul dal og var hennar mikil þörf. Verður það mikið mannvirki, í fyrra áætlað 18 millj. kr. mann- virki, 60—80 metra löng brú. Þegar skólum lauk, fóru menn að búa sig undir móttöku ferða- manna og eru þegar nokkrir hópar komnir. Heyskapur mun hefjast þegar þurrkur kemur, en ennþá er hvergi byrjað að slá. 1 dag verður hér haldinn aðal fundur Stangveiðifélags íslands. En Stangveiðifélag Reykjavíkur tók á leigu vatnasvæði Jökulsár og Lagarfljóts og sleppti miklu af seiðum í árnar í fyrra og nú í ár mun verða sleppt í þær 400 þús. seiðum. Er nú mjög aðkall- andi, að laxastiginn við Lagar- foss verði sem fyrst fullgerður, svo að árangur verði sem fyrst af hinni miklu fiskirækt á þessu vatnasvæði. Fyrrum var laxa- stigi byggður við Lagarfoss, en smíði hans mun hafa mistekizt, því að hann hefur ekki komið að notum. V. S. SUNDKEPPNI Norðurlandanna er nú með nokkuð öðru sniði en verið hefur. Nú má hver og einn synda einu sinni á dag, allan keppnistímann (apríl—okt.), og reiknast allt til keppninnar. Keppnin, ásamt góða veðrinu, hefur valdið mjög mikilli að- sókn til sundstaðanna. Þetta er gleðilegt. Sundið er vissulega ' íþrótt, sem vert er að iðka, iþrótt, sem gerir fólkið hrein- legra, hraustle'gra' ‘glaðpra, þeg- ar rétt er að farið. Aðstaða Akúr eyringa til sunds er ágéet^ enda aðsóknin eftir þyþ f. d. þréfafcP' aðist aðsókn í'apríl, nþðað við . sama tíma 1971’. En 200 metra sundkeppniij verður erfið í framkvæmd, við' svo mikla aðsókn í ekki stærri laug. Vegna þrengsla er öR'nær' ómögulegt að synda 200 metr-- ana, og til þess áð fylgjast með hverjum keppenda þyrfti, stýjj-. aukið starfslið. En því hefur — yfirleitt — verið treyzt, áð fólk tæki ekki kvittun fyrir ógreiddri skuld — bæði ekki um miða (þátttökukvittun) í afgreiðsl- unni, nema sæmilega væri lokið við 200 metrana hverju sinni. En bæði vegna ókunnugleika um reglur fyrir keppnina og vegna barnaskapar (lítið synd börn halda að þau hafi lokið þessu), vill eitthvað út af bera um full- komin skil. Sundsamband ís- Háfíffðfundur og afmælisgefraun f TILEFNI af 70 ára afmæli Sambands íslenzkra samvinnu- félaga og 90 ára afmæli elzta kaupfélagsins, verður aðalfund- ur SÍS haldinn hátíðlegur með ýmsum hætti í Reykjavík síðar í vikunni. En í kaupfélögum landsins og m. a. hér á Akureyri hefst í dag afmælisgetraun kaupfélaganna og lýkur henni 24. júní. Get- raunaseðlar fást hér á Akureyri í úti'oúum Nýlenduvörudeildar, Herradeild, Vefnaðarvörudeild, Kjötbúð og í útibúum KEA við Eyjafjörð. Þeir eru afhentir um leið og viðskiptavinir gera upp hjá gjaldkera í búðunum og þeim þarf að skila á sama stað útfylltum. Hver búð veitir verð- laun, og auk þess eru veitt myndarleg heildarverðlaun. Sjá nánar í auglýsingu á öðr- um stað í blaðinu. Q Mikið vðtn og gotf valn Sauðárkróki 19. júní. Hegranes- ið var að koma hingað með 100 tonn til löndunar. Framkvæmdir við hina nýju vatnsveitu Sauðárkróks eru hafnar. Borað var með góðum Golfkennari fil Ákureyrar MIKILL áhugi er nú ríkjandi hjá Golfklúbbi Akureyrar. Nokkrar keppnir hafa verið haldnar og hefur ágætur árang- ur náðzt. í síðustu viku var golf völlurinn að Jaðri tekinn í notk un þetta árið og lítur hann mjög vel út. Ákveðið hefur ver- ið að fá golfkennara til Akur- Akiíreyringar ósigraðir heima AKUREYRINGAR léku við ís- fitðinga í. 2, deild sl. fimmtudag á ísafirði og lauk leiknum með sigri Akureyringa, sem skoruðu 7 mörk gegn 1. SI’. rnánudagskvöld léku svo Akureyringar við 1. deildarlið Vals á Akureyrarvelli og sigr- urðu þeir Valsliðið með 1 marki gegn engu. Akureyringar áttu meira í leiknum og sanngjarnari úrslit hefðu verið 3:1 fyrir Akur eyringa. Völsungar á Húsavík léku við Þrótt úr Reykjávík: á Húsavík- urvelli sl. föstudag og varð jafn- tefli í þeim leik, 1:1. N. k. laugardag leika á Akur- eyrarvelli ÍBA og FH og hefst leikurinn kl. 4. Þessi leikur er einn hinn þýðingarmesti, sem Akureyringar leika í 2. deild, því FH-liðið er talið mjög gott um þessar mundir og er trúlega hættulegasti mótherji Akureyr- inga í 2. deild. N. k. sunnudag kl, 2 fer fram leikur í Bikarkeppni KSÍ, 2. fl., á Akureyrarvelli og er það lið FH sem mætir ÍBA-liðinu. Q eyrar og kemur Þorvaldur Ás- geirsson á föstudaginn kemur 23. þ. m. og kennir til þriðju- dags 27. Kennslan fer fram á tímanum frá kl. 10.30 f. h. til 22.30 e. h. Þorvaldur mun kenna hópum og einstaklingum fyrir mjög vægt gjald. Byrjendur vill hann helzt fá 3 saman, en þá sem lengra eru á veg komnir í einkatíma. Golfíþróttin hefur átt mjög vaxandi fylgi að fagna hér á landi undanfarin ár, enda er íþróttin holl og skemmtileg. Þetta tækifæri, sem nú gefst til að hefja iðkun þessarar íþróttar, ættu því sem flestir að nota. Það skal tekið fram, að öll áhöld til kennslunnar útveg- ar Golfklúbbur Akureyrar og Þorvaldur Ásgeirsson golf- kennari. Allar nánari upplýsingar gef- ur Arnar Einarsson, starfsmaður Golfklúbbsins að Jaðri, frá kl. 1 til 5 næstu daga. (Fréttatilkynning) árangri eftir köldu vatni í Veðramótslandi og fékkst þar bæði gott vatn og nægilega mik ið vatn, sem nú verður leitt um kaupstaðinn. En vatnatakan er 3—4 km. frá kaUpstaðnum. Hestamenn héraðsins láta að sér kveða, svo sem vera ber, og undirbúa nú fjórðungsmótið á Vindheimamelum, sem haldið verður 7.—9. júlí. í athugun eru gatnagerða- framkvæmdir með aðstoð mal- bikunarstöðvarinnar á Akur- eyri. G. I. Aðalfundur SUNN AÐALFUNDUR Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi (SUNN) verður að þessu sinni á Hólum í Hjaltadal, dagana 1. —2. júlí. Til umræðu verður m. a. stefnuskrá samtakanna og drög að náttúruminjaskrá fyrir Norð- urland. Vonir standa til að Ey- steinn Jónsson formaður Nátt- úruverndarráðs geti mætt á fundinum, og Hjörleifur Gutt- ormsson mun segja frá Stokk- hólmsráðstefnunni. Síðari daginn verður fræðslu- fundur um jarðveg á íslandi, myndun hans og gerð, en þar flytur dr. Þorleifur Einarsson jarðfræðingur aðalerindið. Síð- degis verður farið út í eyjar. Ollum er heimil þátttaka í fundinum. Q lands hefði gjarnan mátt kynm . betur reglurnar t. d. með því ac' senda til sundstaða spjöld, með helztu fyrirsögn og hvatningu. Eitt spjald hef ég séð, og það ei með hættulegri villu: að hvei: og einn megi synda svo ofí sen: hann vill! Enda heyrði ég eftir einum höfuðstaðarbúa, þegar um 70 dagar voru liðnir ai: keppnistíma, að hann væri bú- inn að fá 140 miða! Hann hafði bara farið milli sundlauga og synt tvisvar—þrisvar á dag og alltaf fengið miða. Til þess að tryggja betur frani gang keppninnar hér vill sund- nefndin reyna að bæta að nokkru aðstöðuna og auka eftir. litið. Sundlauginni verður eitthvað skipt til keppninnar og annarra sundiðkana og leika. Vissir tím • ar dagsins skulu öðrum fremur ætlaðir þeim, sem synda vilj;: 200 metrana. Sundlaugin er opnuð, á með ■ an á þessari sundkeppni stend- ur, kl. 7 að morgni, virka daga og er fyrsti tíminn aðallega ætl • aður fullorðnu fólki og þá ma gera ráð fyrir þolanlegri aðStöðu til keppni. Kl. 8—11 er laugir. öllum opin. Kl. 11—13 er oft, góður tími til keppni, börn frek • ar heima um hádegið, en þeirr; tími er aftur — og allra — kl. 1! i —16. Kl. 16—18 skal ætlaður ful. orðnu fólki, konum og körlurr;, m. a. þeim, sem illa treysta séi, þegar þrengsli eru mikil. Verður þá fylgst með og leiðbeint í san:. bandi við 200 metrana. Annars er ágætur sértím:1. kvenna, 14—100 ára, á fimmtu ■ dögum eftir kl. 19. Þá er jafnve kennt sund ef óskað er. Kl. 20—21.15 er sundlaugn öllum opin, þeim sem eru 10 arr og eldri. Á sunnudögum er laug; in opin kl. 8—11.15 og fyrst:; tíminn ekki ætlaður börnum. Foreldrar ættu ekki að leyft ósyndum börnum — eða þvi næ.: ósyndum — að fara í laugina, nema í öruggri fylgd. í síðustu keppni syntu uir. 2500 Akureyringar, nú þega: hafa 3200 synt þennan sprett. Útlitið er gott, en margir eru eftir. Áfram nú! F. h. sundnefndar, i Jónas frá „BrekkrakoviT Akureyrartogararnír KALDBAKUR landaði á mánu* daginn og þriðjudaginn, um 160 tonnum. Svalbakur landaði 15. júni, 222 tonnum. Harðbakur landaði 13. júni, 172 tonnum. Sléttbakur landaði 11. júni, 186 tonnum. Sólbakur landar væntaniega nú um miðja vikuna. Q T A P A Ð Þann 10/6 tapaðist peysa í bænum, grænbrún og heimaprjónuð á 8 ára. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 1-23-5L Kvenarmbandsúr. Fiundist hefur kvenarm- bandsúr. Réttur eigandi vitji þess á afgreiðslu blaðsins.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.