Dagur - 28.06.1972, Qupperneq 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Simar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Samvinnusfarfið
SÍÐAN fyrsta kaupfélag landsins var
stofnað á Norðurlandi fyrir 90 árum
og Samband íslenzkra samvinnu-
félaga fyrir 70 árum, og fram á þenn-
an dag, hefur samvinnustarfið í land
inu verið meginþáttur í mótun við-
skipta- og athafnalífs í þjóðfélaginu.
Það hefur borið ríkulegri ávöxt en
aðrar félagsmálahreyfingar, er til
landsins hafa borizt.
Samvinnumenn minntust þessara
merku tímamóta með sérstökmn
hátíðafundi Sambandsins í Reykja-
vík dagana 21.—23. júní. Þar kom
meðal annars fram, að hinn fjölþætti
rekstur Sambandsins og félaganna
innan þess, 47 að tölu með 33.444
félagsmönnum, gekk í heild vel á
síðasta ári. Sem dæmi um liinn mikla
þátt samvinnumaiina í viðskiptalíf-
inu, má nefna að heildai'velta Sam-
bandsins nam 6.4 milljörðum króna,
og sambandsfélaganna 8.7 milljörð
um, og hafði í krónutölu aukizt um
20% frá fyrra ári. Þegar fyrsta kaup-
félag landsins var stofnað í Þingeyjar
þingi, bjuggu 94% þjóðarinnar í
sveitum. Starfsemi félagsins og allra
þeirra, sem stofnuð voru á næstu árr
um og áratugum, var miðuð við
verzlunarþjónustu við bændur, bæði
útvegun erlendrar vöru og sölu bú-
vara. Þetta tvíþætta verksvið hefur
öðru fremur mótað samvinnustarfið
hér á landi fram á þennan dag, og
gefist vel. Brátt stækkuðu samvinnu-
menn verksvið sitt og beindist það
að verulegu leyti að fullvinnslu
landbúnaðai'vara og síðar sjávarvara.
Eru Sambandsverksmiðjurnar hér á
Akureyri nærtælct dæmi um þetta og
um leið hina mikilvægu uppbygg-
ingu kaupstaðarins á sviði iðnaðar.
Allt samvinnustarf í landinu er
„til vegna mannsins sjálfs, fyrir hann
og velferð lians. Ytra tákn samvinnu-
starfsins er ekki tilgangur í sjálfu
sér, heldur tæki til að móta mann-
félagið, þannig að það verði betra
mannfélag að búa í og starfa í fyrir
fólkið í landinu, og stuðli jafnframt
að mannbótum,“ eins og Ólafur Jó-
hannesson, forsætisráðherra komst
að orði í ávarpi sínu á afmælisfund-
inum. Samvinnuhugsjónin er víð-
feðma og stefnir að jafnrétti, frelsi
og félagsþroska, og í framkvæmd er
hún mótuð af fyllsta lýðræði. Eins
og samvinnustarfið hefur orðið lyfti-
stöng í lífsbaráttu fjöldans, getur
]>að í vaxandi mæli orðið sameining-
arafl og sáttatákn í þjóðfélaginu. En
á því er vaxandi þörf á tímum stétta-
skiptingar og liarðrar stjómmála-
baráttu. □
K J Ö R DÆMIS S A M B A N D
Framsóknarmanna í Norður-
landskjördæmi eystra efndi til
hópferðar til nágrannalandanna
dagana 8.—22. júní sl. Mun
þetta vera fyrsta ferðin, sem
kjördæmissamtök flokksins
efna til, a. m. k. utan Reykja-
víkur.
Þorgeir Jakobsson frá Brúum
kom fyrstur inn á skrifstofu
Dags, þeirra manna, sem í þess-
ari för voru, að ferð lokinni og
notaði blaðið tækifærið til að
leggja fyrir hann nokkrar spurn
iíígár um ferðalagið. En alls
tóku um eitt hundrað manns
þátt í ferð þessari og var flogið
fr.á Akureyri til Kaupmanna-
' . háfnar, án millilendingar. Ferð-
ast var um Danmörku, Svíþjóð
og Noreg, en síðan flogið heim
frá Bergen. Flugvélin var frá
danska flugfélaginu Sterling,
sem prestur einn stofnaði á sín-
um tíma, og rekur enn með
' úiíklúm dugnaði. Fararstjórar
vorif þau Jóna Hansen og Ingi
Tryggvason .
Var þetta skcmmtileg ferð?
Já, mjög skemmtileg og það
mun einróma álit allra, sem í
hópnum voru og einnig var hún
mjög fróðleg. Þarna blasti
margt við, sem við höfum áður
lesið um en ekki séð, og varð
þetta nú að lifandi raunveru-
leika. En þessi för var fyrsta
utanför margra í hópnum.
Þarna sýndust mér bæði ung-
ir og gamlir?
Sá elzti var nær 75 ára og var
það Sigfús Hallgrímsson á Ytra-
Hóli í Öngulsstaðahreppi og
hafði gamanyrði á reiðum hönd
um. En yngsti ferðafélaginn var
Guðbjörg Árnadóttir, Akureyri,
sem er um 14 ára. Var því ald-
ursmunur þess yngsta og elzta
rúmlega sextíu ár. En þessi
unga stúlka var þarna ásamt
foreldrum sínum. Með i för
voru þrjár systur, úr Svarfaðar-
dal ættaðar, Jónmundsdætur
frá Hrappsstöðum. Hafði ein
þeirra áður unnið við hjúkrun-
arstörf í Noregi og var því öðr-
um kunnugri á þeim slóðum og
kom það sér vel. Hún tók í fyrra
þátt í hjólreiðakeppni þar ytra
og varð önnur. Ekki lögðu aðrir
sveatabæir til fleiri þátttakend-
ur en Hrappsstaðir.
Drykkjuskapur sennilega í
hófi í þessari ferð?
Hann var enginn. Ég sá aldrei
ölvaðan mann eða vínflösku í
ferðinni. Á fyrsta hótelinu, sem
við gistum á í Höfn í fimm
nætur, en það reka bræður
tveir og heitir Hotel Absason,
fengum við fremur gott orð.
Bræður þessir létu svo um mælt
við fararstjóra okkar er við fór-
um þaðan, að þetta væri fyrsti
hópur íslendinga, sem hjá þeim
hefði gist og enginn verið ölvað-
ur fyrsta kvöldið. Og þetta hélzt
alla ferðina og er talið sjaldgæft
í hópferðum.
Margt hefur borið fyrir auga?
Við sáum fornar hallir kon-
unga íslands og Danmerkur og
kistur þeirra í Hróarskeldudóm
kirkju. Ekki urðum við nú bein
línis snortnir af því, vegna þess
að við þekkjum bakhlið sög-
unnar. En víst undruðumst við
listaverk frá 13.—15. öld, lítið
skemmd í hinum miklu höllum,
gerð af Spánverjum. Þá fór
mörgum eins og þegar Þór kom
til Útgarða-Loka, að þeir settu
höfuðið aftur á bak til að sjá.
Safn Thorvaldsen og önnur
listaverk, og bústaður H. C.
Andersens, skoðuðu menn með
athygli og ánægju, enda t. d.
mörg ævintýri Andersens enn í
barnsminni. Danmörk er einn
gróðurreitur, vaxin nytjagróðri
flgæt hópferfi til Norðurlanda
og skógum. En nú er svo kom-
ið, að hinn upprunalegi gróður
á Jótlandsheiðum er nær alveg
horfinn, en varðveittur á einum
stað til þess að menn geti séð
hina fyrri ásýnd landsins. Þótti
það fásinna, að friða þann reit.
Nú eru menn sammála um, að
rétt hafi verið gert. Borgirnar,
flugvellirnir og vegirnir teygja
sig í allar áttir um hið gróður-
sæla land, og koma mér í hug
orð Óttars Indriðasonar, er
hann mælti fyrir sex árum, er
við vorum á ferð í Bandaríkjun-
um: Þessar borgir eru eins og
krabbamein í eðlilegu umhverfi
náttúrunnar.
Fluguð þið svo til Svíþjóðar?
Nei, við fórum á bílferju frá
Friðrikshöfn á Jótlandi til
Gautaborgar í Svíþjóð. En í
Gautaborg gistum við tvær næt
ur. Skoðuðum við borgina og
sigldum um Gautelfi, heimsótt-
um skóla einn í Kungelv, og er
skólinn lýðháskóli fyrir öll Norð
urlönd. Skólastjóri er nú íslend
ingurinn Magnús Gíslason, í for
föllum, og veitti hann okkur
góðar viðtökur, var hann fróður
og stundin með honum var hin
ágætasta. Virtist mér skóli þessi
merkileg og einstæð stofnun,
þar sem reynt er að sameina
menn frá Norðurlöndunum.
Á síðasta degi ferðarinnar
hittum við annan ágætan íslend
ing í Bergen, Tryggva Gíslason
lektor, sem fylgdi okkur um
Bergen og var leiðsögumaður
okkar meiri hluta dagsins. Nut-
um við þar bæði mikils fróð-
leiks og ágætrar samfylgdar.
Gerðuð þið ykkur dagamun
17. júní?
Þann dag fórum við frá Gauta
borg um Svíþjóð, yfir landa-
mærin til Noregs og alla leið
til Oslóborgar. I leiðinni skoð-
uðum við skipastigann við Troll
hetten og sáum skip fara þar
upp. Landslag og umhverfi í
Suður-Svíþjóð er allt annað en
í Danmörku. Þarna gægist forn
bergið út úr hverri hæð, sem þó
eru flestar skógi klæddar. En
ræktarlöndin eru á milli þess-
ara hæða. En allt er gróðri vaf-
ið. Undravert, hve skógurinn
getur tyllt sér í brattar hlíðar
og vaxið þar. Til Oslóborgar
komum við síðdegis og það
sama kvöld var farið í veitinga-
hús, sem heitir Frognaseteren,
sem er bygging í fornum stíl,
bjálkahús með allskonar fom-
um munum á veggjum til
skreytingar. Þar var keyptur
kvöldverður og var það í raun-
inni eina sameiginlega máltíð
ferðarinnar. Þar voru ræður
fluttar og ættjarðarsöngvar
sungnir. Ræðurnar fluttu Stefán
Valgeirsson alþingismaður og
fararstjórinn Ingi Tryggvason á
Kárhóli og mæltist þeim vel,
ennfremur tóku nokkrir aðrir
til máls.
Var nokkuð ort?
Oðru hverju heyrðust vísur
kveðnar í bílunum, en ekki mun
sá kveðskapur hafa verið al-
mennur. Stefán Valgeirsson
gerði þá uppástungu, að senda
rimaða kveðju heim til íslands
í tilefni dagsins. Mun það þó
hafa fallið niður. Hins vegar var
lesin upp vísa, er fram kom í
einum bílnum og ég hafði sett
saman. Hún er þannig:
Litum Noregs fornu fjöll
og frjóar lendur Svía.
Sendum heim til íslands öll
ástarkveðju hlýja.
Hvað um uppsveitir Noregs?
Mér fannst, er við vorum á
ferðinni í uppsveitum Noregs,
að fjöllin myndu lítið hafa
breytt um svip síðan jökullinn
skildi við landið fyrir 12—15
þúsund árum, að öðru leyti en
því, að gróðurinn hefur þakið
allt nema efstu tindana. Því að
þótt þar séu ár og fossar, er
bergið svo hart, að árnar hafa
mjög lítið unnið á því og ekki
að jafnaði gert sér djúp árgljúf-
ur, eins og hér á landi. En svo
hefur mannshöndin komið til og
breytt talsvert miklu á síðustu
tveim öldum. Eitt undrunarefni
okkar voru vegirnir, hve góðir
þeir eru þrátt fyrir erfiða að-
stöðu í vegalagningu. Þarna eru
malbikaðir eða olíubornir vegir
um allar byggðir, vegurinn víða
skorinn inn í fjöllin og í gegn
um þau á marga vegu. Frá
nefndu fjallahóteli og til Bergen
munum við hafa farið í gegn
um jarðgöng, sem samanlögð
munu vera um 10 kílómetrar.
En lengstu göngin voru 5.2 km.
Við virtum fyrir okkur smábú-
skapinn og undruðumst hve
Norðmenn eru nýtnir á hvern
þann blett, sem unnt er að
rækta. Við surna túnblettina
voru háir grjótgarðar, sem
sýndu, hve mikið hefur þurft að
taka upp af grjótinu til þess að
rækta. Geitur og sauðfé sáum
við víða og á sumum stöðum
sáum við nokkur kúabú. Hey-
skapur var byrjaður og heyið
víða sett á hesjur. Þetta þótti
íslenzkum bændum heldur sein
leg þurrkunaraðferð og höfðu
orð á því.
Hvað er þér nú eftirminni-
Iegast?
Mér þótti mjög gaman að sjá
fomu skipin, sem grafin voru
upp úr Hróarskeldufirði og ver-
ið er að setja saman með ærn-
um kostnaði á safni, sem er þar
Frá Tækniskóla íslands
Skólaárið 72 - 73 er áætluð þessi
starfsemi:
1. Undirbúningsdeild
2. Raungreinadeild
3. Fyrsta námsár af þrein í rafmagns-, reksturs-,
skipa- og véltæknifræði (tvö síðustu árin oft-
ast við danska tæknifræðiskóla.
4. 3ja ára nám í byggingatæknifræði (eftir raun-
greinadeild) — til ‘lokapróis.
Til athugunar er að starfrækja ef næg
þátttaka fæst:
5. Raftæknadeild, 2ja ára framhaldsmepntun fyr-
ir iðnaðarmenn í rafmagnsgreinum. Fyrra ár-
ið fari þessir nemendur í undirbúninsdeild
tækniskóla í Reykjavík, á Akureyri eða á ísa-
firði, en síðara árið í sérhæft nám.
Því miður skrifaði ég ekki
niður vísur þær, sem til urðu
og ég heyrði, svo að þetta sýnis-
horn verður að nægja. En meðal
þeirra, sem létu fjúka í kviðling
um var t. d. Stefán Valgeirsson,
Erlingur Jóhannsson, áður í
Byrgi, Ingi Tryggvason, Sigfús
Hallgrímsson og auk þess
heyrði maður vísur, sem ég vissi
ekki um höfunda að.
Þorgeir Jakobsson.
Margt hefur verið að sjá hjá
frændmn okkar í Noregi?
Margt mjög markvert. Og
með þessari ferðatilhögun var
stígandi í ferðalaginu. Við ókum
frá Osló upp í hálendi Noregs
og gistum í fjallahóteli, sem er
um 1000 metra yfir sjó, rétt hjá
Rjukan-verksmiðjunum. Þar er
mikil virkjun og framleiðsla á
þungu vatni. Þetta fjallahótel er
nýlegt og er byggt bæði fyrir
skíðamenn og sumargesti.
Þarna er ákaflega fagurt um að
litast, en gróðurinn er minni þar
uppi, þó er dálítið af trjágróðri
í meira en eitt þús. metra hæð.
Á einu fjallavatninu var ísa að
leysa, enda fremur köld veðr-
átta á þessurn slóðum í vor.
Á Akureyri er áætlað að starfrækja oindirbúnings-
deild og raungreinadeild.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar hjá Jóni
Sigurgeirssyni sími 1-12—74 og Aðalgeir l'álssyni
sími 2-10-93. Unisóknarfrestur til 15/7.
SKÓLASTJÓRI.
nærri. Þetta eru samskonar
skip og landnámsmennirnir
sigldu á til íslands fyrir 1100
árum og eins. og þau skip voru,
sem Eiríkur rauði og Leifur
heppni sigldu á til Grænland
og Ameríku. En skip þau, sem
upp voru grafin úr sjó, var
sökkt þarna til að verjast ásókn
víkinga frá Noregi um árið 1000,
því að þau lokuðu firðinum er
þeim hafði verið sökkt. Síðan
hafa þau legið á sjávarbotnin-
um þar til nú fyrir fáum árum,
að firðinum var lokað, sjónum
dælt burt og voru þá skip þessi
Greni í
Þórðarstaðaskógi
NÝLEGA var greni unnið í
Þórðarstaðaskógi í Fnjóskadal,
en oftast er lagt í það. Annað
greni fannst ofan við Stein-
kirkju í sömu sveit. Ármann frá
Vatnsleysu aðstoðaði með
minkahundum sínum við að ná
hvolpunum. □
Sumarbúðir U. M. S. E.
UNGMENNASAMBAND Eyja-
fjarðar stendur fyrir tveimur
sumarbúðanámskeiðum í sum-
ar, að Laugalandi í Öngulsstaða
hreppi. Hið fyrra hófst í gær og
er fullskipað. Síðara námskeið-
ið, sem ætlað er börnum 8, 9 og
10 ára, hefst 4. júlí n. k. og er
enn hægt að bætanokkrum þátt
takendum á það. □
ATHUGIÐ!
Hjá okkur er bílaúrval-
ið. Nú er rétti tíminn til
að kaupa og selja. Verzl-
ið þar sem kjörin eru
Ijezt. Elzta bílasala á
Norðurlandi.
★★★
Peugeot station árg. ’68
Citroen Ami 8 árg. ’70
Gortíim árg, *72
F-íat 850 árg. ’71
Volvo Amasqn árg. ’64
Volvo Duett árg. ’64
Volvo Amason ár°;. ’64
Opel Record árg. ’68
Taunus 17m árg. ’68
Taunus 20m xL árg. ’69
Opeí Commandor árg.
’68
Vo'h o Duett árg. ’63
Fíat sport árg. ’71
Skoda 1000 árg. ’69
Skoda 1000 árg. ’66
Cortína árg, '68
Sunbeam 1250 árg. ’71
Volvo 144 árg. ’67
Forti-Falkon 2ja dyra árg.
'67 sjálfskiptur, vökvast.
Ford Fal.kon íra dyra
árg. 67
Benz 250 SE árg. ’68
ný innlluttur
Bronco árg. ’6fi. í sérfl.
Brene&- á rg. ’öfir
Bronco árg. ’66
Taunus 20m station árg.
’68.
á þurru. Hér er um að ræða
skip, sem nefnd eru langskip og
knerrir, einnig ferjur, en alls
voru þarna fimm gerðir skipa.
í framhaldi þessa má bæta því
við, að við skoðuðum í Osló
skip nútíma víkinga Noregs,
Fram Nansens og Kontiki
Heyendals og var það ekki síður
merkilegt.
Nokkuð að lokum, Þorgeir?
Drepa má á það, að enn ger-
ast átök á Norðurlöndum, þótt
ekki fylgi mannvíg. Þegar við
ætluðum að fljúga frá Bergen
til íslands með flugvél frá flug-
félaginu Sterling, varð farar-
stjórinn að fá mann frá Osló til
afgreiðslu flugvélarinnar vegna
þess að neitað var um mann til
afgreiðslu í Bergen, þar sem
SAS mun mestu ráða. Einnig
urðum við vör við, að fólki úr
okkar hópi var neitað um af-
greiðslu á gistihúsi, þegar vitað
var, að það fólk ætlaði að fljúga
með vél frá Sterling. Þótti okk-
ur þetta hörð samkeppni.
Samferðafólki mínu þakka ég
góða viðkynningu og samskipti
öll á meðan á ferðinni stóð og
alveg sérstaklega fararstjórun-
um. Ennfremur þakka ég kjör-
dæmissambandinu fyrir það, að
efna til þessarar skemmtilegu
ferðar.
Blaðið þakkar svörin.
E. D.
B. N. auglýsir:
Peugeot 504 ’71
Peugeot 404 ’66
Sunbeam ’70 og ’71
Crysler 180 ’71
Benz 250 S ’68
Cortína ’64—’71
Vauxhall Víva ’70, ’71
Saab ’66, ’68
Citioen Amí 8 ’70
Taunus station ’69, ’70
Díesel og benzín jeppar
Benz 1413 ’66
Man ’68, ’71
Bílarnir seljast bezt hjá
okkur.
Bílasala
Norðurlands
SÍMI 2-12-13.
2ja herbergja íbúð ósk-
ast til leigu frá 1. okt.
Uppl. í síma 2-14-25.
3—4ra herbergja íbúð
óskast til leigu.
Uppl. í símurn 1-17-09
og 2-10-77.
Þriggja herbergja íbúð
óskast strax.
Sími 1-14-62.
ÖKUKENNSLA.
Gunnlaugur B. Ólafsson
sími 1-28-26.
Til sölu nýbólstrað sófa-
sett.
Uppl. í síma 2-10-92 á
fimmtudag.
Til sölu nýlegur radíó-
fónn.
Sími 1-16-26 á vinnutíma
Barnakerra til sölu.
Sími 2-18-17.
Til sölu stór Boch ís-
skápur og BTH þvotta-
vél.
Uppl. í síma 1-15-07
eftir kl. 4 e. h.
Til sölu Rafha eldavél,
stálþvottapottur og Mile
þvottavél.
Sími 1-23-53 eftir kl. 7
á kvöldin.
Til sölu með tækifæris-
verði sófasett og 2ja
manna svefnsófi.
Uppl. í síma 1-23-50.
Ath: Til sölu er vel með
farinn Gibson bassagítar
lítið notaður. Einnig
40w Selner magnari með
boxi.
Vægt verð.
Uppl. í síma 1-15-64.
Barnavagn til sölu,
kr. 2,500.
Uppl. í síma 1-20-15
eftir kl. 5 e. li.
Lítið notuð Fhar-sláttu-
þyrla til sölu. Selzt ódýrt
Tryggvi Ólafsson Gilsá,
sími um Saurbæ.
Nýlegur svefnbekkur til
sölu.
Uppl. í síma 1-17-22.
Til sölu vél í Taunus.
Sími 2-10-77.
Heyblásari til sölu ásamt
rörurn. Tækifærisverð
ef satnið er strax.
Uppl. lijá Valmundi
Kristjánssyni.
Til sölu og brottflutn-
ings er bogaskemma á
Gleráreyrum.
Uppl. hjá Stefáni Þórar-
inssyni Fjólugötu 20,
sími 1-19-49.
Heyvagn til sölu.
Uppl. í síma 1-20-25.
Átvinna
Viljum ráða stúlku til ritarastarfa.
asc
Vélritunarkunnátta og málakunnátta æski'leg.
Upplýsingar veitir Gunnlaugur P. Kristinsson,
en ekk í síma.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Frúar- og táningakjólar.
Regnkápúr og hattar í úrvali.
Síðbuxur, margar gerðir.
VERZLUN BERNHARÐS LAXDAL
Sími 1-13-96.
BIFREIÐAEIGENDUR!
BIFREIÐAVERKSTÆÐI!
ER GÆÐA
VARA
Hljóðkútar og púströr í:
Chevrolet, Opel, Vauxhall, Volvo,
Landrover, Willy’s, Cortina, Taunus,
Skoda, Dodge, Ford, Moskvich o. fl.
PÚSTRÖRAEFNI, SPENNUR, FESTINGAR,
KRÓMENDAR o. fl.
SENDUM GEGN KRÖFU
ÞÓRSHAMAR
VARAHLUTAVERZLUN.
SÍMI 1-27-00
Orlofsferð Iðju
verður 21. júlí n. k. Lagt verður af stað kl. 8 f. h.
frá Ferðaskrifstofunni, ekið yfir Kjöl að Hvera-
völlum, Hvítárnes óg Haukadal og gist þar.
2. dag ekið um Þjórsárdal, Býrfell, Þórisós og að j
Skógarskóla, þar gist.
3. dag farið í khk í Mýrdal, að Kirkjubæjar-
klaustri, Lómagnúp til baka í Skógarskóla.
4. dag ekið í Þórsmörk, um Fljótshlíð að Gaul-
verjabæ.
5. dag ekið að Láugarvatni, Þingvelli um Kalda- f
dal í Reykiholt.
6. idag heim.
Farið kóstar kr. 5,700.00, í því verði er morg-
ornverður, kvöldverður og gisting (pokapláss). Þar
sem nrjög erfitt er að útvega bifreiðir eru þeir
sem hug hafa á þessari sumarferð Iðju, beðnir að
tilkynna þátttöku sína á skrifstofu félagsins, sem
fyrst og ekki síðar en 12. júlí, stmi 1-15-44. Far- j
seðlar verða seldir 17. júlí kl. 2 til 6 e. h.
FERÐANEFNDIN.
Bikðrkeppni K. S. í.
1. FLOKKUR
í kvöld 27/6 kl. 20.30 leika K. A. og ÞÓR á
íþróttavellinum.