Dagur - 27.09.1972, Blaðsíða 2

Dagur - 27.09.1972, Blaðsíða 2
2 Ársficndur Hafnarcambandsins á Akureyri ÞRIÐJI ársfundur Hafnarsam- bands sveitarfélaga var haldinn á Akureyri föstudaginn 15. þ.m. Á fundinum voru mættir 41 fulltrúi af 50, sem áttu rétt til fundarsetu, en aðildarhafnir s'ambandsins eru 41. Meðal gesta á fundinum voru fulltrúar frá hafnasamböndum á Norðurlöndum og fulltrúar frá samgönguráðuneytinu, Hafnamálastofnuninni, Fram- kvæmdastofnun ríkisins, Fjórð- ungssambandi Norðlendinga og Akureyrarbæ, svo og foi'maður fjárveitinganefndar Alþingis. Á fundinum var upplýst, að samgönguráðuneytið hefði fall- izt á tillögu sambandsins að samræmdri gjaldskrá fyrir hafnirnar. Á fundinum var lögð fram greinargerð um ýmsar skýrslur varðandi samgöngumál, sem unnar hafa verið á undanföm- um árum á vegum hins opin- bera. í greinargerðinni er tekið sérstakt tillit til strandflutninga og hlutverks hafnanna. Jafn- Ályktun AÐALFUNDUR Nemendasam- bands Samvinnuskólans, hald- inn í Hamragörðum, laugardag- inn 9. september, 1972, lýsir yfir samstöðu með þeim nem- endum úr Kennaraskóla ís- lands, sem meinað var um inn- göngu í Háskóla íslands nú í haust. Aðafundurinn hvetur jafn- framt nemendur úr Samvinnu- skólanum að styðja kröftuglega haráttu forráðamanna Sam- vinnuskólans fyrir því, að nem- endur úr Samvinnuskólanum geti innritast í Háskóla íslands. Reykjavík, 9. sept. 1972. Nemendasamband Samvinnuskólans. YIL KAUPA BÍL. Ungur iðnaðarmaður vill kaupa notaðan bíl, má vera 4—8 ára, vel með farinn. Æskilegt að útborgun sé ekki mikil. Góð trygging. Vinsamlega leggið nafn yðar inn á afgreiðslu blaðsins. framt er gerð grein fyrir ýms- um upplýsingum um vöruflutn- inga á landi, á sjó og í lofti. Ársfundurinn samþykkti að halda áfram þessari könnun, sem er undirstaða þess, að hægt verði að meta hlutverk hafn- anna í samgöngumálum. Upp- lýst var á fundinum, að unnið væri að könnun annarra þátta þessara mála á vegum sam- gönguráðuneytisins. Taldi fund urinn nauðsynlegt, að náin sam vinna væri milli ráðuneytisins og Hafnasambandsins varðandi kannanir þessar. Á fundinum var fjallað um frumvarp til hafnálaga, sem lagt .var frám á síðasta Alþingi. Ólafur Steinar Valdimarsson, skrifstofustjóri í samgönguráðii neytinu, gerði gréin fyrir efni ffumvarpsins. Fundurinn fagn- aði frumvarpinu og taldi það spor í rétta átt. Stjóm sam- bandsins hafði fjallað um frum varpið og lagði fyrir fundinn nokkrar breytingartillögur við það, m. a. varðandi landshafnir, styrkhæfni hafnarmannvirkja og skipulag Hafnamálastofnun- ar ríkisins. Voru tillögur þessar samþykktar á fundinum. Ennfremur var samþykkt til- laga um, að hafnabótasjóður (Framhald af blaðsíðu 8) menn hafa samið við íslenzk stjórnvöld um nokkrar undan- þágur og viðurkenna um leið islenzka lögsögu að 50 mílna mörkunum. Harka Bretanna, ofbeldi þeirra, kúgunarhótanir og end- urtekin lögbrot á íslandsmiðum mætir nú meiri einhug hinnar fámennu þjóðar, er þetta land byggir, en nokkru sinni fyrr. Sá einhugur og rétturinn til að lifa, mun að lokum sigursæll. Þróun landhelgismálsins þess ar fyrstu vikur eftir útfærsl- una, hefur verið okkur fremur hagstæð. Það er í raun og veru ekki nema einn aðili, sem í verki neytir ofbeldis gegn út- færslu íslenzku landhelginnar og það eru Bretar, og hafa þeir þegar hlotið mikla skömm af. Tilboði um sáttaviðræður í Bonn og samninga í landhelgis- deilunni, á milli Breta og V.- Þjóðverja annars vegar og ís- lendinga hins vegar, höfnuðu íslendingar algerlega og minntu um leið á, að svör þessara þjóða við síðasta tilboði íslenzkra bæti tjón, sem hafnasjóðir verða fyrir og ekki fást bætt að fullu með öðrum hætti vegna ákvæða Siglingalaganna. í stjórn Hafnasambands sveit arfélaga til næsta árs voru kosn ir: Gunnar B. Guðmundsson, Reykjavík, Alexander Stefáns- son, Ólafsvík, Pétur Bjarnason, Akureyri, Gylfi ísaksson, Akra nesi og Sigurður Hjaltason, Höfn, Hornafirði. □ MYNDARLEG GJÖF NÝLEGA barst fjáröflunar- nefnd Kvenfélagsins Vöku, Dal vík, preningagjöf að upphæð 100 þúsund krónur. Gjöf þessi er gefin af Páli Hallgrímssyni, verkamanni í Bergþórshvoli á Dalvík, til minningar um for- eldra hans, hjónin Pálínu Páls- dóttur og Hallgrím Kristjáns- son. Nefndin sendir Páli innilegar þakkir fyrir þessa stórhöfðing- legu gjöf. Einnig sendir nefndin þakkir þeim mörgu Dalvíking- um og Svarfdælingum, sem veitt hafa aðstoð til fjáröflunar í elliheimilissjóð félagsins. En það sem af er þessu ári, hafa, auk þessa, safnazt röskar 100 þúsund kr. □ stjórnvalda, væri enn ósvarað. En íslendingar munu hafa íslenzka ríkisstjórnin hefur nú tekið einn hvalveiðibátinn, Hval 9., leigunámi til gæzlu- starfa á miðunum og verður það skip tilbúið innan fárra daga. Síðan á dögum fyrri út- færslu, 1. sept. 1958 og hinna illræmdu ofbeldisaðgerða Breta þá, hefur orðið mikil stefnu- breyting í heiminum. Fjölmörg ríki, svo sem í Afríku og S.- Ameríku, hafa lýst fyrir stuðn- ingi við baráttu íslendinga við útfærslu fiskveiðilögsögunnar og hefur tíminn að því leyti unnið með okkur. Mun það óefað koma glöggt fram á vænt anlegri hafréttarráðstefnu, sem halda á 1974. Um síðustu helgi tóku fær- eyskir iðnaðarmenn þá ákvörð- un að neita viðgerðum á brezk- um togurum, sem sannanlega hafa veitt innan 50 mílnanna við fsland. Má segja, að þar eiga íslendingar „hauka í horni“ þar sem Færeyingar eru. □ - Fimmtíu mílurnar Eldridansaklúbburinn heldur dansleik í Al- þýðuhúsinu, laugardag- inn 80. sept., húsið opn- að kl. 20 fyrir miðasölu, hl jómsveitin Hunang leikur fyrir dansi. Stjórnin. Barnagæsla óskast í Glerárhverfi háifan eða allan daginn. (4ra ára drengur). Uppl. í síma 1-13-17, eftir kl. 7 e.h. FORELDRAR athugið! 10 gerðir af barnavögnum og kerrum, BARNA BURÐARRÚM, BARNA KERRUPOKAR BARNA BÍLSTÓLAR, nýjar gerðir, BARNA PLASTSTÓLAR, 2 gerðir, BARNA PLASTHÆGINDI, KOPPAR, BARNA GÖNGUGRINDUR, BARNA LEIKGRINDUR BARNARÓLUR. ALLT FYRIR YNGSTU KYNSLÓÐINA PÓSTSENDUM. BRYNJÓLFUR SVEINSSON HF. Búsfólpi h. f. liefur fyrirliggjandi eftirtaldar fóður- einingar: A hlanda á kr. 9.800 pr. tonn B hlanda 4% feit á kr. 10.700 pr. tonn Bygghlanda á kr. 9.500 pr. tonn Valsað bygg á kr. 8.500 pr. tonn Sólo á kr. 11.300 pr. tonn Brúnkál (kálfafóður) á kr. 13.400 pr. tonn Steinefnablöndur Rauð kalkauðug á kr. 1.450 pr. 100 kg. Ewomin á kr. 4.400 pr. 100 kg. Gul fosfórauðug á kr. 1.800 pr. 100 kg. Afgreiðslusíminn er 2-12-20. BÚSTÓLPI H. F. Nýkomið! KJÓLAEFNI VETRARBÓMULL VEFNAÐARVÖRUDEILD Kvikmyndavél Til sölu er 8 mm kvikmyndatökm él og sýningar- vél, báðar vélarnar eru lítið notaðar 02; eins 02 nýjar. Mjög hagstætt verð. Upplýsingar gefur GEIR EGILSSON, Þórunnarstræti 133, sími 2-14-49. Afvinna UNGLINGSPILTUR ÓSKAST. Brauðgerð KR. JÓNSSONAR. Næstkomandi sunnudag 1. okt. er berklavarnar- dagurinn. Blöð og merki dagsins. verða seld, merkin eru númeruð og vinriingur er ferð fyrir tvo til Costa del Sol Dansleikir verða haldnir á laugardags- og sunnu- dagskvöld í Sjálfstæðishúsinu. BERKLAVÖRN.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.