Dagur - 22.11.1972, Síða 2

Dagur - 22.11.1972, Síða 2
8 Við skákborðin á Hótel KEA. (Ljósm.: V. St.) LOKIÐ er sex umferðum í Haustmóti Skákfélags Akureyr ar. í meistaraflokki er Júlíus Bogason efstur meS 51-2 vinn- ing, í öðru og þriðja sæti eru þeir Hrafn Arnarson og Guð- mundur Búason með 414 vinn- ing. i í I. flokki er Bjarki Bragason efstur með 6 vinninga, í öðru sæti er Jóhann Sigurðsson með 4 vinninga og eina skák óteflda og í þriðja sæti er Ævar Ragn- arsson með 314 vinning og eina skák óteflda. Keppni er lokið í unglinga- flokki. Þar sigraði Árni Jósteins son, hlaut hann 1014 vinning, í öðru sæti varð Albert Ragnars- son með 10 vinninga og í þriðja sæti varð Baldvin Þorláksson með 9 vinninga. Skáksveit Utvegsbankans í Reykjavík kom til Akureyrar um síðastliðna helgi og keppti við Skákfélag Akureyrar. Kapp FENGU HÁLFAN SKAÐANN LOKIÐ er nú málaferlum, sem staðið hafa undanfarin ár vegna skemmda sem urðu á bryggj- unni í Hrísey er Goðafoss gróf undan henni árið 1967, með þeim afleiðingum, að sandur rann úr uppfyllingu í bryggju- haus. Málinu lyktaði á þá lund, að tjónið fékkst bætt að hálfu þannig að Eimskipafélaginu var gert að greiða Hríseyjarhreppi rúmar 700 þúsund krónur í skaðabætur. Hæstiréttur taldi í dómi sínum, að hafnaryfirvöld hefðu vanrækt að hafa tiltækar glöggar skýrslur um dýpi í höfn inni og sjá um, að skipum, sem þangað sigldu væri nægilega leiðbeint um aðstæður. Q skákir á 10 borðum fóru fram á laugardaginn og lauk þeim með sigfi Akú'réýrlriga, 6 vinningum gegn 4. Á sunnudaginn fór fram hraðskákkeppni milli sömu aðila á 10 borð.um: og sigruðu SAGA og sögusvið frumkristn- innar hefur fró fornu fari búið yfir því kyrrláta seiðmagni, sem naumast á sér nokkra hlið- stæðu í annálum mannkynsins. Nöfn og atburðir þessara fjar- lægu helgislóða hafa svifið yfir vöggum sextíu kynslóða og orð- ið þeim í miklu ríkari mæli en frá verði greint sú staðreynd úr heimi barnshugans, sem lengst hefur staðið af sér ævistorma og efasemdir. í fylgd með Jesú er nafnið á nýrri bók, sem kömin er út hjá Almenna bókafélaginu, en eins og segir í undirtitli hefur hún að geyma „leiðsögn um Nýja testamentið í máli og mynd- um“. Bókin er í stóru broti, en myndir eru um það bil 180 tals- ins, flestar í mörgum litum, og eru þar á meðal 87 heilsíðulit- myndir. Hefur brezkur ritstjóri, David Alexander, valið mynd- irnar og sett við. þær skýringar, en sr. Magnús Guðjónsson hef- ur snúið texta hans á íslenzku. Þá má sérstaklega geta þess, að tilvitnanir í þrjú fyrstu guð- spjöllin og Postulasöguna eru sóttar í nýja og óprentaða biblíuþýðingu Hins íslenzka biblíufélags, og mun mörgum þykja forvitnilegt að kynnast þeim. í inngangsorðum, sem herra biskupinn, dr. Sigurbjörn Ein- arsson, hefur skrifað lætur hann svo um mælt, að hér sé komin út „fögur bók og hand- Akureyringar þar einnig, hlutu 12814 vinning gegn 71%. Meðal liðsmanna Útvegsbankans voru þeir Björn Þorsteinsson, Gunn- ar Gunnarsson og Bragi Björns son. Q hæg, sem er vel til þess fallin að örva menn við lestur Nýja testamentisins. Þær skýringar, sem myndunum fylgja, og hinar beinu tilvitnanir, miða að því, að þau spor á ferli mannkyns, sem hafa orðið öðrum dýpri og áhrifameiri, verði skýrari í huga lesandans, hin helga saga verði nálægari staðreynd, bæði sem atburðarás í mannheimi liðins tíma og sem veruleiki eilífs uppruna og gildis.“ Mic- hael Green háskólakennari í Nottingham, áréttar í öðrum formála það markmið bókar- innar „að gæða raunveruleik- ann lífi“, og kveður myndirnar valdar með það í huga. „Mynd- in af gröfinni frá fyrstu öld ásamt steininum fræðir okkur og snertir meira en mynd af kirkjunni, sem samkvæmt erfi- kenningunni er reist þar, sem Jesús var grafinn. Mynd róm- verska steinblaðsins, þar sem Jesús stóð ákærður frammi fyr- ir Pílatusi, hefur verið álitin heppilegri í þessum sérstaka til- gangi heldur en t. d. mynd, sem sýnir okkur staði krossgöng- unnar.“ í fylgd með Jesú er mjög vönduð bók að öllum frógangi, enda óvenjufögur eins og efni hennar hæfir. Prentstofa G. Benediktssonar hefur sett text- ann, en að öðru leyti er bókin gerð í Bretlandi og kemur hún út á Norðurlöndum öllum og víðar á þessu hausti. □ I fylgd með Jesú DYRAVERND M. Þ. skrifar eftirfarandi: • Mér hefur verið tjáð, að ýmsu í sambandi við dýrin, sé ábóta- vant hér á Akureyri. Kanínur eru víða og sæta misjafnri að- búð. Kona á Oddeyri hefur horft á drengi henda þeim á milli sín og hrekkja þær á ýmsa vegu. Og ekki eru þær allar vel haldnar hvað fóðrun snertir. Á meðan ég var í sveit átti ég og börnin mín þessar meinlausu skepnur, sem voru okkur til ánægju. En þeim var látið líða éins vel og hægt var, og voru ekki lokaðar í kassa. Fullorðið fólk á ekki að leyfa börnum sín- ,um að eiga dýr nema að fyllstu tillitssemi sé gætt í meðferð þeirra. Dýrin hafa sínar tilfinn- ingar, eins og fólkið. Nú er víst ekkert dýraverndunarfélag til í bænum. Þar er þó verkefni, sem vert væri að sinna. Fyrirgefðu svo hrafnasparkið. Þakka þér fyrir Dag. Guð launar fyrir hrafninn og kannski líka fyrir mig. GÓÐAR MJÓLKURUMBÚÐIR Eiríkur Sveinsson, háls-, nef- og eyrnalæknir, sem hér er byrjaður að starfa sem sérfræð- ingur, leit á mánudaginn inn á skrifstofur Dags. Hann sagði: Ég er sérstaklega ánægður yfir því, að Mjólkursamlag KEA skipti á mjólkurumbúðum á þann veg, sem raun ber vitni og tók þær beztu mjólkurum- búðir, sem völ er á, Tetrapack, sem ég er vanur frá Svíþjóð. Þessar umbúðir eru sérstaklega snyrtilegar svo að þær sóma sér vel á borði, í staðinn fyrir mjólkurkönnur. Þær eru einnig sterkar og svo þægilegar, að jafnvel börnin handleika þær án slysa og þær leka ekki, og ennfremur rúmast þær mjög vel í kæliskápnum. Ég hef hvergi séð, að fólk væri að þakka þessar ágætu umbúðir, en grunur minn er sá, að ekki myndi kyrrt liggja, ef að eitt- hvað verr hefði til tekizt. □ Grásleppuhrcgnin 9.381 tunna f ÁR framleiddu 224 saltendur grásleppuhrogn til útflutnings, og í ár var flutt út 9.381 tunna af þessa árs framleiðslu og 332 tunnur af framleiðslu ársins 1971. Á sl. ári reyndust 306 salt- endur hafa framleitt grásleppu- hrogn til útflutnings og þá voru alls fluttar út 11.244 tunnur. Er nú ljóst að árið 1972 er hið fjórða í röðinni að því er við- víkur framleiðslu og útflutningi saltaðra grásleppuhrogna. í fréttabréfi Fiskmats ríkisins skrifar Jón Þ. Ólafsson um grá- sleppuútflutninginn og segir þar að telja megi víst að öll hrogn af framleiðslu ársins 1972 séu nú farin úr landi. Ástæðuna fyrir minni framleiðslu og út- flutningi nú en í fyrra segir hann fyrst og fremst vera þá, að V.-Þjóðverjar, er hér hafa keypt um og yfir 50% af heildar útflutningi landsins, heldu að sér höndum og keyptu engin hrogn fyrr en kornið var undir lok veiðitímabilsins. Þar eð vit- að var í upphafi veiðanna að V.-Þjóðverjar væru mjög tregir til hrognakaupa héðan í ár, að því er sagt var vegna hækkunar er nam 15 Bandaríkjadölum á hverja tunnu, og eins af því að óvenjulega miklar birgðir voru í þarlendum verksmiðjum. frá fyrra ári, varð þetta til þess að margir lögðu ekki út í hrogn- kelsaútgerð vegna hins ótrygga markaðsástands. Þá kemur fram í gréin Jóns, að við útflutningsffiát. oj* gerla- rannsóknir á árinu hafi' 50 tunnur verið dæmdar frá vegna meintra skemmda. Svo og segir hann, að til þessa hafi 43 tunn- um af framleiðslu ársins 1972 verið hafnað af erlendum kaup- endum vegna meintra skemmda. Q Skip Lðndhelgisgæslunnar í UMRÆÐUM á Alþingi, þegar Ólafur Jóhannesson forsætisráð herra flutti tillögu til þings- ályktunar um eflingu Landhelg- isgæzlunnar, kom meðal annars þetta fram um núverandi skipa- kost hennar: Yngsta og stærsta skipið er Ægir, sem byggður er 1968, 927 brúttórúmlestir og með 19 mílna ganghraða. Óðinn, byggð- ur 1969, 882 brúttórúmlestir og talinn hafa 18 mílna ganghraða. í þriðja lagi er svo Þór, byggð- ur 1951, 693 brúttósmálestir og með 17 mílna ganghraða, en þar við er þá þess að geta, að á Þór hefur farið fram gagngerð við- gerð á sl. sumri, sem hann er nýkominn úr, eins og menn vita. Svo er það fjórða, Árvak- ur, byggður 1962, 381 brúttó- rúmlest og ganghraði talinn 13 mílur. Albert, byggður 1957, 201 brúttórúmlest, ganghraði talinn 12 mílur. Svo er leigu- skipið Týr, sem keypt er 1952 og er 631 brúttórúmlest og talið hafa ganghraða 14 sjómílur. □ Iþróttakennarar Akureyri Munið fræðslufundinn, sem hefst í íþróttahús- inu við Laugargötu kl. 9 f. h. á föstudaginn, 24. nóvember. Á fundinum mæta: Þorsteinn Einarsson íþrótta- fulltrúi, Guðmundur Harðarson sundþjálfari og dr. Ingimar Jónsson. ÍÞRÓTTAFULLTRtJI. Nú er rétti tíminn til að sauma Höfum kjólaefni í tugatali, kápuefni, buxnatere- line, bómularsatín, nylonvelur, náttfataflónel, einlitt og smáköflótt tereline dúkadamask 160 cm br., sængurveradamask hvítt og mislitt, lakaefni hvítt og litað. SÍMI 1-28-52.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.