Dagur - 22.11.1972, Side 6
6
I.O.O.F. Rb, 2, 12222118V2
I.O.O.F. 2 = 15411248% =
□ RÚN 597211227 — 1 Frl '. '
AKUREYR ARKIRKJA: Mess-
að verður n. k. sunnudag kl.
i 2 e. h. Sálmar: 2 — 35 — 208
| — 369 — 363. — B. S.
MESSAÐ í Lögmannshlíðar-
1 kirkju n. k. sunnudag kl. 2
S e. h. Sálmar úr Ungu kirkj-
j unni nr. 51 — 5 — 61 — 21 —
46. Unglingar aðstoða í mess-
unni. Bílferð úr Glerárhverfi
kl. 1.30 með viðkomu hjá
| gamla barnaskólanum. Mess-
; an er sérstaklega ætluð böm-
S um, en allir yngri sem eldri
velkomnir.
LAUGALANDSPRESTAKALL
Messað í Kaupangi n- k.
sunnudag kl. 13. Fimmtíu ára
1 afmæli kirkjunnar minnzt. '
BRÚÐHJÓN: Hinn 18. nóvem-
ber voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju ung-
frú Svandís Stefánsdóttir af-
greiðslustúlka og Númi Frið-
riksson húsasmiður. Heimili
þeirra verður að Skarðshlíð
11 F, Akureyri.
ORÐ LÍFSINS. Þetta er vilji
föður míns: að hver sem sér
soninn og trúir (treystir) á
hann hafi eilíft líf. (Jóh. 6.
1 40.). Guð heitir engum eilífu
lífi nema þeim, sem trúa
, (festa traust sitt) á Drottinn
Jesúm. — Sæm. G. Jóhannes-
son.
I.O.G.T. stúkan Isafold-Fjall-
konan nr. 1. Fundur í félags-
' heimili templara, Varðborg,
fimmtudaginn 30. þ. m. kl.
8.30 e. h. Vígsla nýliða, venju-
leg fundarstörf. Eftir fund
verða sýndar myndir frá
Noregi. — Æ.t.
SJÓNARHÆÐ. Almenn sam-
I koma n. k. sunnudag kl. 17.
j Sunnudagaskóli kl. 13.30.
[ ; Unglingafundur n. k. laugar- .
| dag kl. 17. Verið hjartanlega •
j velkomin.
FUNDUR í Æskulýðsr
félagi Akureyrar-
kirkju, drengjadeild,
fimmtudaginn 23. nóv.
h. — Stjórnin.
KVENFÉLAGH) FRAMTÍÐIN
heldur muna- og kökubazar
sunnudaginn 3. des. kl. 3 e. h.
að Hótel- KEA. Munirnir
verða til' sýnis í verzluninni
Augsýn, Strandgötu 7, um
. - næstu helgi.
KÖKUBAZAR. Hjúkrunarkon-
ur á Akureyri halda köku-
bazar sunnudaginn 26. nóv.
“' að HoteFKEA kl. 3 e. h. Fáið
SAMKOMA votta Jehóva að
i Þingvallastræti 14, II hæð:
Opinber fyrirlestur: Eru frá-
sagnir Biblíunnar um sköp-
, unina og flóðið raunveruleiki
| eða skáldskapur?, sunnudag-
, inn 26. nóvember kl. 16.00.
1 Allir velkomnir.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
; Sunnudaginn 26. nóv. Sunnu-
I dagaskóli kl. 11 f. h. Öll börn
velkomin. Samkoma kl. 8.30
i e. h. Ræðumaður Bjarni Guð-
I leifsson. Allir hjartanlega vel-
i komnir.
; ykkur gott með kaffinu og
stýðjið samtímis gott málefni.
BAZAR. Köku- og munasala
verður að Hótel Varðborg
sunnudaginn 26. nóv. kl. 4
e. h. Þeir sem ætla að gefa
kökur eða muni komi þeim í
Varðborg kl. 1 e. h. sama dag.
•— Stúkan ísafold.
FRÁ SJÁLFSBJÖRG.
Fjórða og síðasta spila-
kvöldið fyrir jól verður
í Varðborg í kvöld, mið-
vikudag, kl. 8.30. Mætið
stundvíslega. — Nefndin.
FERMINGARBÖRN, sem eiga
I að fermast í Lögmannshlíðar-
kirkju næsta vor, eru beðin
! að mæta til viðtals í gamla
j barnaskólanum, sem hér seg-
! ir: Til séra Péturs Sigurgeirs-
sonar kl. 4.30 e. h. í dag, mið-
mikudag, og til séra Birgis
Snæbjörnssonar k .14.30 e. h.
á morgun, fimmtudag.
FRÁ Blindravinafélagi íslands.
Dregið hefur verið í happ-
drætti félagsins. Vinnings-
númer sem upp kom er 31353.
Vinningurinn er steriofónn
eða segulband. Upplýsinga
má leita í síma 11330.
SJÚKRALIÐAR og sjúkraliða-
ncmar. Fundur verður mið-
vikudaginn 22. nóv. kl. 20.30
að Þingvallastræti 14. Mætið
vel.
InÍkomið}
Mikið úrval af
Hliðartöskum , j
Handtöskum i
j Innkaupatöskum
Samkvæmistöskum og
Seðlaveskjum.
f Verðið ótrúlega lágt.
JMA RKAÐURINN
SLYSAVARNA FÉLAGS-
KONUR. Jólafundirnir verða
í Alþýðuhúsinu föstudaginn
1. des. Fyrir börnin kl. 4 e. h.
og eru börn allra félags-
kvenna velkomin. — Félags-
fundurinn hefst kl. 8.30 e. h.
Mörg mál þarf að ræða og
afgreiða. Síðan mun frú Hjör-
dís Stefánsdóttir koma á fund
inn og fræða félagssystur sín-
ar um eitthvað skemmtilegt
og fróðlegt varðandi jólaund-
irbúning. Konur eru því vin-
samlegast beðnar að taka
með sér kaffi og áhöld, en
munu fá eitthvað gott á disk-
ana með kaffinu. Skemmti-
nefndin mun svo taka við
stjórn.
FRÁ Þýzk-íslenzka félaginu á
Akureyri. Kvikmyndasýning
verður í Hótel Varðborg, litla
sal, föstudaginn 24. þ. m. kl.
8.30 e. h. Sýndar verða falleg-
ar þýzkar myndir. Aðgangur
ókeypis. — Stjórnin.
GJÖF til Mæðrastyrksnefndar
Akureyrar kr. 20.035, sem er
ágóði af hlutaveltu er stúlkur
í 7. bekk Glerárskóla, Akur-
eyri, héldu nýlega. Nefndin
færir þessum framtakssömu
stúlkum innilegar þakkir og
einnig öllum öðrum, er veittu
þeim lið.
GJAFIR til heilsuhælis Náttúru
lækningafélagsins. frá N. N.
1 áheit kr. 5.000, frá velunnara
kr. 5.000, kr. 1.000 gjöf frá
Kristbjörgu Júlíusdóttur,
1 Hafnarstræti 104, Akureyri.
1 — Kærar þakkir. — Anna
Oddsdóttir gjaldkeri. ,
I.O.G.T. St. Brynja nr. 99 held-
ur fund í Varðborg, félags-
heimili templara, mánudag-
inn 27. nóv. n. k. Skemmti-
1 atriði. Venjuleg fundarstörf.
— Æ.t.
LIONSKLUBBUR
WWfk AKUREYRAR
SSáss Fundur í Sjálfstæðishús
inu fimmtudaginn 23.
nóv. kl. 12.
FRÁ Mæðrastyrksnefnd. Að
þessu sinni munu skátar ekki
ganga í hús til þess að safna
fyrir nefndina. Hins vegar
skal bæjarbúum vinsamlega
bent á, að á flestum vinnu-
stöðum í bænum munu söfn-
unarlistar liggja frammi.
Nefndin hefur aðsetur í
íþróttavallarhúsinu og verður
tekið þar á móti fatnaði, enn-
fremur verður fatnaður sótt-
ur heim ef óskað er. Opið
verður 4.—7. desember kl.
20—23, sími 21588.
Pedegree barnavagn til
sölu.
Uppl. í síma 2-13-86
eftir kl. 7.
Til sölu HONDA 450
árg. 1966.
Uppl. í síma 1-26-59
milli kl. 7 og 8 e. h.
Til sölu 95 stk. hænu-
ungar (5 mánaða).
Uppl. í síma 1-13-95
á daginn.
LAUFABRAUÐ til
sölu.
Hringið í síma 2-18-68.
Guðný.
Radionette útvarpsfónn
til sölu.
Uppl. í síma 1-18-23.
Nýr brúðarkjóll til sölu.
Uppl. í síma 1-27-55
eftir kl. 18.
Góður barnavagn til
sölu.
Uppl. í síma 2-12-70.
Gamalt kirkjuorgel til
sölu, þarfnast litillar
viðgerðar.
Uppl. í síma 1-22-85.
Ný, sem ónotuð, Singer
prjónavél til sölu.
Uppl. í síma 1-23-52.
KÖKU- og munabazar verður
haldinn í Strandgötu 9 (Kaup
fél. verkamanna) laugardag-
inn 25. nóv. kl. 3 síðdegis.
Sjáið útstillingu á föstudags-
kvöld. — Félag Geysiskvenna
MINNINGARSPJÖLD kvenfé-
lagsins Hlífar. Öllum ágóða
varið til fegrunar við bama-
heimilið Pálmholt. Spjöldin
fást í Bókabúðinni Huld og
hjá Laufeyju Sigurðardóttur,
Hlíðargötu 3.
Volkswagen sendiferða-
bíll árg. ’61 sem þarfn-
ast viðgerðar er til sölu.
Uppl. hjá Þorsteini á
Baug.
TAPAÐ
Gleraugu hafa tapazt.
Finnandi hringi í síma
1-13-83.
- Ellefu alda afmæli
GÓÐAR VÖRUR
GOTT VÉRÐ
Ný sending
KARLMANNA-
SKÓR
•#>
SÍMI 21400
SKÓDEILD
(Framhald af blaðsíðu 4)
vofir í framtíðinni yfir
hætta, sem enginn veit hvort
afstýrt verður. Margur ótt-
ast, að ofvöxtur stórborgar-
innar við Faxaflóa leggi ís-
land í eyði að meira eða
minna leyti, og hið ábyrgðar
lausa hjal lærðra manna í
sumum þáttum daglegs máls
í Ríkisútvarpinu og víðar,
þar Sem fram kemur lítils-
virðing á svonefndri hrein-
tungustefnu og talið fávís-
legt að ræða um að gera
mun á réttu máli og röngu,
er alvarlegt tímanna tákn,
því að þar liöggva þeir, sem
hlífa skildu. □
HERBERGI til leigu í
Stekkjargerði 6.
Herbergi óskast til leigu
strax.
Uppl. veitir Örn Ragn-
arsson, sími 1-10-55.
Ungan mann frá Mar-
okkó vantar herbergi.
Uppl. á herbergi 16,
Hótel Varðborg,
sími 1-26-00.
Menntaskólastúlka ósk-
ar eftir tveim herbergj-
um og aðgang að eld-
húsi.
Uppl. í síma 1-21-69
fyrir kl. 2 á daginn.
Sonur okkar
SIGURÐUR ÞORKELL JÓNSSON.
lézt í Svíþjóð þann 3. nóvetnber s. 1.
Jarðarförin hefur farið fram.
F. h. eiginkonu, barna tengdaforeldra, systkina
og annarra vandamanna.
Guðrún Sigurðardóttir og
Jón Sigtryggson.
Innilegar þakkir til allra þeirra er auðsýndu okk-
ur samúð og vinarhug við andlát og útför
GUÐMUNDAR TRYGGVASONAR
Sólvöllum 3, Akureyri.
Einnig þökkum við starfsfólki Fjórðungssjúlkra-
hússins á.Akureyri góða umönnun í veikindum
hans.
Bríet ísleifsdótfir,
Hólmfríður Guðmundsdóttir, Gunnar Lúðvíkss.,
Guðmundur Viðar Gunnarsson,
Bryndís Gunnarsdóttir, Bjarni Jónsson
og dóttir.