Dagur - 06.12.1972, Side 1

Dagur - 06.12.1972, Side 1
Nú harðnar í ári í UPPLYSINGAR Björns Brynj- ólfssonar hjá Vegagerðinni í gær voru svohljóðandi: Ástandið er bölvað, snjór og meiri snjór, hríð og á sumum stöðum stórhríð, svo að erfitt er að halda vegum opnum fyrir bifreiðaumferð. Við opnuðum leiðina til Húsa víkur í gærkveldi, en sú leið var orðin mjög erfið, einkum vegna mikilla snjóa í Dals- mynni, Ljósavatnsskarði og Kinn, og sjálfsagt er allt orðið ófært í dag. Þá var í gær opn- aður Dalvíkurvegur og var það auðvelt. Sá vegur er enn fær í dag, enda tveir heflar væntan- legir þaðan í dag og munu þeir lagfæra eftir þörfum. Ætlunin var að hreinsa Múlaveginn í dag, en hætt var við það vegna óveðurs. í dag er verið að hiálpa bílum yfir Oxnadalsheiði, en yfir hana fóru síðast bílar á laugardaginn. Sitja fyrir svörum BÆJARFULLTRÚAR Fram- sóknar sitja fyrir svörum í fé- lagsheimilinu, Hafnarstræti 90, klukkan 5—7 í dag, miðviku- dag. □ Við byrjuðum að moka með ýtu í gær og opnuðum veginn að Bakkaseli, en ýtumenn héldu svo til baka niður að Engimýri. í morgun var svo sendur hefill vestur. Eru nú þessi tæki notuð til að komast vestur yfir heið- ina, en fyrir heiðina, en fyrir hádegi kom hefill að vestan, að Sesseljubúð. Reynt var að safna bílum saman til þess að þeir yrðu sem mest samferða. Síðan munu snjómoksturstækin bíða vestur á heiði eitthvað fram- eftir deginum og aðstoða eftir þörfum bíla, sem að vestan koma og eru á leið hingað. Q Hrafnagilsskóli á Reykáreyrum. (Ljósm.: E. D.) Nýtt menntasetur á Hrafnagili ÞRJÚ menntasetur, hin fyrstu, sem byggð eru samkvæmt nýj- um skólakostnaðarlögum, eru í byggingu og þegar tekin í notk- un. Þau eru á Hrafnagili í Eyja- firði, Stórutjörnum í Ljósavatns skarði og Hafralæk í Aðaldal, S.-Þing. Á sunnudaginn fór fram vígsla fyrsta áfanga Hrafnagils- skólans að viðstöddu fjölmenni. FRA LÖGREGLUNNIÁ AIÍUREYRI NÚ MUN jólabaksturinn fram- undan, og einhverjir óþekktir fóru í eggjatínslu um helgina. Komu þeir í Grænhól og Blómsturvelli, þar sem hænur verpa, brutust inn og stálu eggj um, m. a. tíu kílóum í Grænhól. Þá stal einhver eða einhverjix 1,5x4 tommu plönkum frá Kon- ráði Árnasyni á Oseyri, og er timbur þetta allmikils virði. Þjófarnir hafa ekki enn náðzt, hvorki eggja- eða timburþjófar. Um síðustu helgi gistu 16 í húsakynnum lögreglunnar, og er af sem áður var þegar fanga- geymslur stóðu mannlausar mánuðum saman að kalla mátti og þeirra virtist lítil þörf. □ Byggingaframkvæmdir við skólann hófust í júní 1969 og hefur verið unnið látlaust síðan, undir stjórn Sveins Jónssonar byggingameistara frá Kálfs- skinni. Fyrsta áfanga fram- kvæmda er lokið, og er í honum heimavist fyrir 80 nemendur og mötuneytisaðstaða fyrir allt að 200 nemendur, tvær kénnara- íbúðir, ein einstaklingsíbúð, ráðskonuíbúð og íbúð fyrir starfsstúlkur og er þetta allt undir sama þaki. Þá hafa í sér- stöku húsi verið byggðar 5 kennslustofur fyrir 130 nemend ur, en að auki er þar vinnu- aðstaða og rannsóknarstofa fyr- ir eðlisfræðikennslu. Stærð heimavistarhússins er 920 fermetrar eða 6670 rúm- metrar, en stærð kennsluhús- næðisins er 631 ferm. eða 2335 rúmmetrar. Samtals eru þetta 9005 rúmmetrar. Tvær bækur effir Erling Davíðsscn rifstjóra SVOHLJÓÐANDI fréttatil- kynning hefur blaðinu borizt frá bókaútgáfunni Skjaldborg s.f. á Akureyri: JÓI NORSKI. „Þessa dagana eru að koma í bókabúðir tvær bækur eítir Erling Davíðsson ritstjóra Dags á Akureyri. Heita þær Jói norski — á selveiðum með Norð mönnum, og Aldnir hafa orðið. Það er bókaútgáfan Fagra- hlíð (Jóhannes Óli Sæmunds- son), sem gefur út bókina Jóa norska, en þar er um að ræða frásagnir Jóhanns Daníels Bald vinssonar vélstjóra á Skaga- strönd, en hann fór sextán sel- veiðiferðir á norskum selföng- urum víða um norðlæg höf og lenti þar í mörgum ævintýrum, en einnig í landi. Frásagnir Jó- hanns eru tæpitungulausar og meðferð höfundar á þann veg, að bókin er í senn skemmtileg og fróðleg. ALDNIR HAFA ORÐÍÐ. Síðari bókin heitir Aldnir hafa orðið og er fyrsta bók Skjaldborgar í nýjum bókar- flokki. Mestan hluta bókarinn- ar hefur Erlingur Davíðsson skráð, samkvæmt viðtölum við sjö kunna Akureyringa. En þeir eru: Sesselja Eldjárn, Kristján Nói Kristjánsson bátasmiður, Jón Rögnvaldsson frá Fífilgerði, Sæmundur G. Jóhannesson rit- stjóri, Ólafur Tryggvason frá Hamraborgum, Guðmundur Blöndal fulltrúi skattstjóra og Ragnheiður O. Björnsson kaup- kona. Segir í bókinni frá ævi- atriðum viðmælenda, umhverfi, störfum og hugarheimi á fyrri skeiðum ævi þeirra. Hefur mjög verið spurt um þessa bók, eftir að það v'arð kunnugt, að hennar væri von og einnig um Jóa norska, sem kaflar voru lesnir úr í útvarpi í sumar. í bókinni Aldnir hafa orðið, fer saman frásagnagleði viðmæl endanna, sem allir hafa frá mörgu og mjög ólíku að segja, og landskunn efnismeðferð höf- undar í viðtölum við fólk úr öllum stéttum þjóðfélagsins.“ HAFA A AfXVBW M m» Myndin e>r af bókarkápum þessara bóka. Kostnaður við þessar bygg- ingar er, ásamt vatnsveitu, hita- veitu og lóðarframkvæmdum, 78 milljónir króna. Þar af greið- ir ríkið 65%. Að skólabyggingunni standa fjórir hreppar: Hrafnagilshrepp ur, Saurbæjarhreppur, Önguls- staðahreppur og Svalbarðs- strandarhreppur. Skólinn er hit aður með laugarvatni, sem þó er naumast nægilega heitt í miklum frostum og var kyndi- stöð byggð til að skerpa hitann þegar kaldast er. Borað var eft- ir heitu vatni án árangurs, en laugar voru þar áður; Hrafnagilsskóli tók til starfa 20. október 1971. Nemendur skólans eru 90 talsins, 52 piltar og 38 stúlkur, allir í heimavist en fara heim um helgar og dvelja þar þrjár nætur. Skólinn er þriggja vetra skóli eftir barnapróf. Skólastjóri er Sig- urður Aðalgeirsson. Með hon- um starfa bessir kennarar: Stefán Aðalsteinsson, Angantýr Hjálmarsson, Gunnar Jónsson, Emelía Baldursdóttir og Hanna Salómonsdóttir. auk tveggja stundakennara. Ráðskona er Svandís Hannesdóttir. Vígsluathöfn skólans hófst á þriðja tímanum á sunnudaginn. Jón Hjálmarsson ritari bygg- inganefndar bauð gesti vel- komna og stjórnaði samkom- unni, séra Bjartmar Kristjáns- son flutti hugvekju, telpnakor söng undir stjórn frú Sigríðar Schiöth og stjórnaði hún einnig almennum söng. Þá flutti Krist- inn Sigmundsson, sem er for- maður bygginganefndar, ræðu, Magnús Torfi Olafsson mennta- málaráðherra flutti ávarp, enn- fremur Jón Heiðar Kristinsson formaður skólanefndar og að lokum Sigurður Aðalgeirsson skólastjóri, Eftir þetta skoðuðu gestir skólahúsin en síðan var öllum boðið til kaffidrykkju í Laugar- borg. Þar lýsti Sveinn Jónsson byggingum' en Hreinn Ketils- son gjaldkeri bygginganefndar fjármálum stofnunarinnar. Aðr- ir, sem þarna tóku til máls, voru alþingismennirnar Stefán Valgeirsson og Magnús Jóns- son, Edda Eiríksdúttir, Laufey Sigurðardóttir, Guðmundur Þór Pálsson, Helgi Elíasson, Sigríð- ur Einarsdóttir, sem tilkynnti gjöf f-rá Kvenfélagasambandinu, Angantýr Hjálmarsson, er fyrir hönd kennara færði skólanum Gullna hliðið og íslandsklukk- una á segulböndum, Sigurður Jósefsson og að síðustu Sigurð- ur Aðalgeirsson skólastjóri. Hrafnagilsskóli á Reykár- grundum er að verða myndar- legt skólasetur. Hús öll virðast vönduð, björt, rúmgóð og hlý. Þar vantar sundlaug og fim- leikasal og sitthvað fleira, en þar er nú þegar sú aðstaða kom in, er veitt getur dreifbýlisfólki á nokkru svæði hina dýrmætu fræðslu og hamlað á móti því misrétti til menntunar, sem enn ríkir í landinu. Til hamingju með myndarleg- an áfanga af menntasetrinu nýja á Hrafnagili. □ Sigurður Aðalgeirsson, skólastjóri. Kristinn Sigmundsson, Coruiaóur bygginganefndar.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.