Dagur - 24.01.1973, Qupperneq 8
8
Soi'iía frær.ka lætur ræningjana-þvó sér uni iæturna. lVlyntíin er tekin á æfingu. (Ljósm.: Páll)
Kardemommubærinn senn frumsýndur
SMATT & STORT
NÆSTKOMANDI sunnudag
þann 28. janúar frumsýnir Leik
félag Akureyrar hið alkunna og
vinsæla barnaleikrit Karde-
mommubæinn eftir Torbjörn
Egner.
Æfingar hófust í desember og
köma tuttugu og átta manns
fram í leiknum í ýmsum gerv-
um, þar má sjá asna, talandi
kameldýr, hunda og ketti, að
ógleymdu ljóni ræningjanna.
Ræningjana þrjá leika þeir
Gestur Einar Jónasson, Þráinn
Karlsson og Viðar Eggertsson.
Marinó Þorsteinsson leikur
Bastían bæjarfógeta og Soffíu
frænku leikur Sigurveig Jóns-
dóttir.
Börnin Kamillu og Tomma
leika Hjördís Nanna Jónasdótt-
ir og Nökkvi Bragason. Reynir
Jónsson stjórnar hljómsveit
Kardemommubæjar og Þráinn
Karlsson gerði leiktjöld. Leik-
stjóri er Magnús Jónsson.
Kardemommubærinn hefur
tvívegis verið sýndur í Þjóð-
leikhúsinu og naut þar geysi-
mikilla vinsælda sem kunnugt
er. Þó eru lögin úr leiknum
alþekkt úr útvarpi og af hljóm-
plötunni og er það heppilegt,
Dauðaslys á Akureyri
GUNNAR KARLSSON, Helga-
magrastræti 46, lézt af slysför-
um árdegis á mánudaginn, tæp-
lega fimmtugur að aldri. Hann
var viðgerðarmaður Mennta-
skólans á Akureyri og var að
gera við þakglugga á háu
heimavistarhúsi skólans, er
hann féll til jarðar og var þegar
örendur. □
ÞRÁTT fyrir það, að veiðidög-
um Akureyrartogaranna hafi
fjölgað um rúmlega 200 á síð-
asta ári miðað við 1971, þá jókst
heildarafli togaranna ekki nema
um 458 lestir. Að þessu við-
bættu má líka benda á það, að
Akureyrartogurunum fjölgaði
urn einn á árinu, en það er skut-
togarinn Sólbakur, sem hóf veið
ar í marzmánuði.
Heildarafli Akureyrartogar-
anna fimm varð 11.823 lestir á
árinu .á móti 11.360 lestum á ár-
inu árður.
Veiðidagar árið 1972 urðu
1296, en 1971 voru þeir 1017.
Afli á hvern einstakan veiðidag
minnkaði mikið, eða úr 11.180
kg á dag í 9.123 kg. Sá togari,
því ætlast er til að áhorfendur
taki undir í fjöldasöng.
Á síðastliðnu ári sýndi L. A.
leikritið Dýrin í Hálsaskógi eft-
ir sama höfund og var það vel
Gunnarsstöðum í Þistilfirði 22.
janúar. Engar fréttir eru góðar
fréttir og sannast það á okkur.
Tíðin er svo frábærlega góð, að
það er viðstöðulaust unnið að
byggingum. Síðan um áramótin
er búið að byggja tvo hús-
grunna á Þórshöfn undir tilbúin
hús, sem þangað verða flutt. En
Þórshafnarhreppur hefur pant-
að fimm slík og eiga þau að
koma með mánaðar millibili,
það fyrsta á að afhendast hinn
1. febrúar. Það er Húsiðjan í
Reykjavík, sem framleiðir hús-
Sauðárkrókur 22. janúar. f gær
var haldinn hér á Sauðárkróki
almennur stjórnmálafundur í
Framsóknarhúsinu og mættu
þar á annað hundrað manns.
Frummælendur voru Olafur Jó-
hannesson forsætisráðherra og
Björn Pálsson alþingismaður.
Menn eru mjög ánægðir með
þennan fund, og ráðherrann lét
viðurkenningarorð falla um
myndarlega árshátíð ykkar á
Akureyri.
Þorrablótin eru ekki hafin
hér enná, nema í Fljótum.
Fljótamenn voru fyrstir til og
héldu sitt þorrablót á Ketilási.
Þar var á þriðja hundrað manns
og má það heita fjölmenni, þar
sem aflaði bezt hvern veiðidag
var skuttogarinn Sólbakur, en
hann fékk að meðaltali 10.2
tonn á dag.
Á síðasta ári fóru Akureyrar-
togararnir átta söluferðir, en
árið áður voru þær ekki nema
fimm. í þessum átta söluferðum
lönduðu togararnir 949 tonnum
í erlendum hiifnum, þannig að
þeir hafa landað 10.800 tonnum
á Akui'eyri.
. Útgerðarfélag Akureyringá
flutti út 2.305 tonn .af freðfiski
á árinu, og er það 370 tonnum
minna en- árið 1971. Aftur á
móti jókst saltfiskútflutningur-
inn um 140 tonn, og saltfisk-
birgðir um áramót voru talsvert
meiri en árið áður. □
sótt sýning og er ekki að efa að
börnin munu skemmta sér vel
við að kynnast fólki, dýrum og
ræningjum í Kardemommubæ.
(Frá Leikfélagi Akureyrar)
in. Svo held ég, að búið sé að
steypa grunna hinna þriggja
húsanna. Og í gærkveldi sá ég,
er ég fór um Þórshöfn, að búið
var að grafa þar fyrir íbúðar-
húsi, sem kaupfélagsstjóri ætlar
að byggja.
Féð er látið út dag hvern
f gær voru menn frá Vega-
gerðinni að athuga vegarstæði
yfir Öxarfjarðarheiði og víðar
og væntanlegt vegarstæði milli
austur- og vesturhluta sýslunn-
ar, að segja má. Þeir mældu og
merktu í sumar og voru nú að
sem fremur er nú fámennt talið
í Fljótum. Þorrablót Fljótá-
manna eru rómuð fyrir myndar
skap.
Fyrir skömmu kom upp grun-
ur um hrossaþjófnað á Ökrum.
Fimm hross hurfu af túninu og
þótti hvarf þeirra með ólíkind-
um. Nú eru þessi hross öll kom-
in í leitirnar og var þeim aldrei
stolið. Já, menn voru að gera
sér allskonar hugmyndir um
hrossahvarfið. G. Ó.
AFMÆLISFUNDUR
BÆNDAKLÚBBSINS
hefur verið ákveðinn miðviku-
daginn 31. þ. m. á Hótel KEA og
hefst hann kl. 9 um kvöldið. Er
ráðgert, að sá fundur verði
meira skemmtifundur en
fræðslufundur, en fræðslufund-
ur með tilliti til þess, að í þess-
um mánuði eru liðin 25 ár síðan
þessi sérkennilegi félagsskapur
hóf starfsemi sína.
Eðvarð Sigurgeirsson sýnir á
fundinum kvikmyndir, sem
hann hefur tekið í héraðinu.
Einnig verða sýndar nokkrar
skuggamyndir og í sambapdi
við það verður myndagetraun.
Margir klúbbfélagar munu rifja
upp sitthvað af því, sem fram
hefur komið á fyrri fundum,
ýmist í lausu eða bundnu máli.
Kaffidrykkja verður eins og
venjulega.
Þess er vænst að konur sem
karlar mæti á fundinum. Q
BYRJAÐ AÐ TEMJA
Hestaniannafélagið Léttfeti á
Sauðárkróki hefur enn komið
tamningastöð á laggirnar. Eru
hrossin þar 26 og til húsa í end-1
urbyggðu Sýslumannshesthúsi
þar á staðnum, og eru þau á
aldrinum 4—7 vetra. Tamninga-
menn eru Sigurjón Gestsson og
Ingimar Pálsson. Það kostar 4
þús. kr. á- mánuði fyrir hrossið
á tanmingastöðinni, eða 8 þús.
krónur, miðað við venjulega
tveggja mánaða tamningu. Sam-
kvæmt umsögn fréttaritara
blaðsins á Sauðárkróki, fæst nú
enginn ótaminn foli, sem ein-
hverja von getur gefið, fyrir
minna en 30 þúsund krónur. En
hámarksverði eru lítil takmörk
sett á þeim vcttvangi. í síðasta
tölublaði Dags er auglýsing um
væntanlega tamningastöð á
Höskuldsstöðum í Eyjafirði.
FRÉTTABLAÐ KEA
Snemma í þessum mánuði kom
út fyrsta fréttablað KEA, ætlað
starfsfólki þess í hinum ýmsu
greinum, svo og fjölmiðlum.
Þessi útgáfa hefur lengi verið
í undirbúningi og oft til
hennar vitnað þegar Dagur hef-
ur leitað frétta. Loks er svo
athuga snjóalögin á jeppum og
snjósleðum. En á því vegar-
stæði, sem þeim þykir helzt
koma til greina, er nálega eng-
inn snjór. En sá vegur á að
liggja úr Öxarfirði í Þistilfjörð.
Rætt hefur verið um fleiri leið-
ir, svo sem að hann liggi
skammt sunnan við Kópasker,
þvert yfir Sléttuna, dálítið fyrir
sunnan Raufarhöfn. Á þeirri
leið er erfitt að ná í ofaníburð.
En það vegarstæði, sem vega-
gerðarmönnum leizt bezt á í
fyrra, en ekki er búið að gera
ákvörðun um, er nægur ofaní-
burður. Sá vegur lægi upp úr
Axarfirðinum, eins og nú, upp
sunnan við Þverárhyrnu og þar
norður á hraunin og norður að
eyðibýlinu Hrauntanga, en síð-
an í Sandskarð, sem er norðan
við Helgafellshnjúkinn. En
núna er vegurinn sunnan í
Helgafellinu, yfir háfjallgarð-
inn. Síðan kæmi þessi vegur á
Hálsaveg, rétt sunnan við Stóra
Viðarvatn.
Menn eru að blóta þorra.
Vopnfirðingar og Bakkfirðingar
blótuðu á laugardaginn, sitt í
hvoru lagi, og á Þórshöfn verð-
ur þorra blótað á sunnudaginn
og taka Þórshafnarbúar og
íbúar sveitanna í kring þátt í
því. Ég sat blót Dakkfirðinga á
laugardaginn og mun sitja Þórs
hafnarblótið á sunnudaginn, og
mun það mega kallast að kross-
blóta, ef maður stundar þetta
viku eftir viku. Ó. H.
fyrsta tölublaðið komið út. Um-
sjónarmaður er Gunnlaugur P.
Kristinsson og ábyrgðarmaður
Valur Arnþórsson. Ritið heitir
KEA-fréttir og er kannski hægt
að segja, að mjór sé mikils vísir,
því að þetta fyrsta blað er lítið
og fréttir af skornum skammti.
Fréttaþjónusta KEA hefur ver-
ið í lágmarki og er það enn, eins
og lokað land þegar leitað er
eftir fréttum, og er það félaginu
sjálfu mestur skaði. Um þetta
hefur Dagur oft kvartað, en án
mikils árangurs. En þótt farið
sé af stað án yfirlætis í þessum
nýju KEA-fréttum, má e. t. v.
búast við meiru síðar.
LANDHELGISSTRÍÐ
1 BRETLANDI
Fyrir skönunu samþýkktu
brezkir útgerðarmenn að skora
á yfirvöld þar í landi, að senda
ekki lierskip á íslandsmið til
verndar brezkum landhelgis-
brjótum. Töldu þeir það ekki
annarra hugsmunum þjóna en
íslendingum, enda lítið hægt að
veiða undir herskipavernd,
væntanlega minnugir fyrri land
helgisdeilu.
í síðustu viku kom annað
hljóð úr horni, frá brezkum tog
araskipstjórum á íslandsmiðum.
Þeir samþykktu að kref jast her-
skipaverndar og það tafarlaust,
annars færu þeir af miðunum
og héldu heirn síðdegis á föstu-
dag. Brezka stjómin lofaði þá
að senda þeim dráttarbát, óvopn
aðan, en með margskonar út-
búnaði, og sjómenn héldu áfram
að veiða.
GÓÐUR ÞORRAMATUR
Bautinn sendi ]>eim, er þetta
ritar, þorraniat á sunnudaginn,
handa tveimur, vel um búinn í
trogi. Þetta rgyndist þinn kjarn-
bezti undirstöðumatur fyrir
fjóra, saman settur af 16 teg. og
er verðið 360 kr. á mann.
I fréttatilkynningu, sem blað-
inu hefur borizt frá Bautanum,
segir, að þessi þorramatur sé
framreiddur í tveggja, fjögurra
og átta manna trogum, til
neyzlu á staðnum eða til heim-
sendingar eftir pöntun. Hér er
auðvitað mjög handhæg og
skemmtileg tilbreyting fyrir
heimili, ennfremur tilvalið fyrir
félög og klúbba, sem halda vilja
veizlu á þorra, að fá þennan
ágæta mat tilbúinn upp í hend-
urnar við sanngjörnu verði.
SKRÝTINN MATSEÐILL
Troginu góða frá Bautanum
fylgdi prentaður matseðill,
nokkuð sérstæður. Á honum
eru meðal annars þessir réttir:
Suro Bringokolli de Animale,
Brenndo Hauses de Rolla,
Confecto (lafo Milli Foto),
Hacarles (Multo Fýlo), Flesko
Nokotino (A la Krabbe), Brauð
Bruno (Vindo), o. s. frv.
En livað sem nöfntinum líður,
var maturinn góður, og það er
nú fyrir mestu.
Álitlegur þorramatur í trogmn.
Alli Akureyrarlogaranna
Óli Halldórsson krossblófar Þorra
Fjölmennur stjórnmálafundur