Dagur - 24.01.1973, Síða 8

Dagur - 24.01.1973, Síða 8
8 Soi'iía frær.ka lætur ræningjana-þvó sér uni iæturna. lVlyntíin er tekin á æfingu. (Ljósm.: Páll) Kardemommubærinn senn frumsýndur SMATT & STORT NÆSTKOMANDI sunnudag þann 28. janúar frumsýnir Leik félag Akureyrar hið alkunna og vinsæla barnaleikrit Karde- mommubæinn eftir Torbjörn Egner. Æfingar hófust í desember og köma tuttugu og átta manns fram í leiknum í ýmsum gerv- um, þar má sjá asna, talandi kameldýr, hunda og ketti, að ógleymdu ljóni ræningjanna. Ræningjana þrjá leika þeir Gestur Einar Jónasson, Þráinn Karlsson og Viðar Eggertsson. Marinó Þorsteinsson leikur Bastían bæjarfógeta og Soffíu frænku leikur Sigurveig Jóns- dóttir. Börnin Kamillu og Tomma leika Hjördís Nanna Jónasdótt- ir og Nökkvi Bragason. Reynir Jónsson stjórnar hljómsveit Kardemommubæjar og Þráinn Karlsson gerði leiktjöld. Leik- stjóri er Magnús Jónsson. Kardemommubærinn hefur tvívegis verið sýndur í Þjóð- leikhúsinu og naut þar geysi- mikilla vinsælda sem kunnugt er. Þó eru lögin úr leiknum alþekkt úr útvarpi og af hljóm- plötunni og er það heppilegt, Dauðaslys á Akureyri GUNNAR KARLSSON, Helga- magrastræti 46, lézt af slysför- um árdegis á mánudaginn, tæp- lega fimmtugur að aldri. Hann var viðgerðarmaður Mennta- skólans á Akureyri og var að gera við þakglugga á háu heimavistarhúsi skólans, er hann féll til jarðar og var þegar örendur. □ ÞRÁTT fyrir það, að veiðidög- um Akureyrartogaranna hafi fjölgað um rúmlega 200 á síð- asta ári miðað við 1971, þá jókst heildarafli togaranna ekki nema um 458 lestir. Að þessu við- bættu má líka benda á það, að Akureyrartogurunum fjölgaði urn einn á árinu, en það er skut- togarinn Sólbakur, sem hóf veið ar í marzmánuði. Heildarafli Akureyrartogar- anna fimm varð 11.823 lestir á árinu .á móti 11.360 lestum á ár- inu árður. Veiðidagar árið 1972 urðu 1296, en 1971 voru þeir 1017. Afli á hvern einstakan veiðidag minnkaði mikið, eða úr 11.180 kg á dag í 9.123 kg. Sá togari, því ætlast er til að áhorfendur taki undir í fjöldasöng. Á síðastliðnu ári sýndi L. A. leikritið Dýrin í Hálsaskógi eft- ir sama höfund og var það vel Gunnarsstöðum í Þistilfirði 22. janúar. Engar fréttir eru góðar fréttir og sannast það á okkur. Tíðin er svo frábærlega góð, að það er viðstöðulaust unnið að byggingum. Síðan um áramótin er búið að byggja tvo hús- grunna á Þórshöfn undir tilbúin hús, sem þangað verða flutt. En Þórshafnarhreppur hefur pant- að fimm slík og eiga þau að koma með mánaðar millibili, það fyrsta á að afhendast hinn 1. febrúar. Það er Húsiðjan í Reykjavík, sem framleiðir hús- Sauðárkrókur 22. janúar. f gær var haldinn hér á Sauðárkróki almennur stjórnmálafundur í Framsóknarhúsinu og mættu þar á annað hundrað manns. Frummælendur voru Olafur Jó- hannesson forsætisráðherra og Björn Pálsson alþingismaður. Menn eru mjög ánægðir með þennan fund, og ráðherrann lét viðurkenningarorð falla um myndarlega árshátíð ykkar á Akureyri. Þorrablótin eru ekki hafin hér enná, nema í Fljótum. Fljótamenn voru fyrstir til og héldu sitt þorrablót á Ketilási. Þar var á þriðja hundrað manns og má það heita fjölmenni, þar sem aflaði bezt hvern veiðidag var skuttogarinn Sólbakur, en hann fékk að meðaltali 10.2 tonn á dag. Á síðasta ári fóru Akureyrar- togararnir átta söluferðir, en árið áður voru þær ekki nema fimm. í þessum átta söluferðum lönduðu togararnir 949 tonnum í erlendum hiifnum, þannig að þeir hafa landað 10.800 tonnum á Akui'eyri. . Útgerðarfélag Akureyringá flutti út 2.305 tonn .af freðfiski á árinu, og er það 370 tonnum minna en- árið 1971. Aftur á móti jókst saltfiskútflutningur- inn um 140 tonn, og saltfisk- birgðir um áramót voru talsvert meiri en árið áður. □ sótt sýning og er ekki að efa að börnin munu skemmta sér vel við að kynnast fólki, dýrum og ræningjum í Kardemommubæ. (Frá Leikfélagi Akureyrar) in. Svo held ég, að búið sé að steypa grunna hinna þriggja húsanna. Og í gærkveldi sá ég, er ég fór um Þórshöfn, að búið var að grafa þar fyrir íbúðar- húsi, sem kaupfélagsstjóri ætlar að byggja. Féð er látið út dag hvern f gær voru menn frá Vega- gerðinni að athuga vegarstæði yfir Öxarfjarðarheiði og víðar og væntanlegt vegarstæði milli austur- og vesturhluta sýslunn- ar, að segja má. Þeir mældu og merktu í sumar og voru nú að sem fremur er nú fámennt talið í Fljótum. Þorrablót Fljótá- manna eru rómuð fyrir myndar skap. Fyrir skömmu kom upp grun- ur um hrossaþjófnað á Ökrum. Fimm hross hurfu af túninu og þótti hvarf þeirra með ólíkind- um. Nú eru þessi hross öll kom- in í leitirnar og var þeim aldrei stolið. Já, menn voru að gera sér allskonar hugmyndir um hrossahvarfið. G. Ó. AFMÆLISFUNDUR BÆNDAKLÚBBSINS hefur verið ákveðinn miðviku- daginn 31. þ. m. á Hótel KEA og hefst hann kl. 9 um kvöldið. Er ráðgert, að sá fundur verði meira skemmtifundur en fræðslufundur, en fræðslufund- ur með tilliti til þess, að í þess- um mánuði eru liðin 25 ár síðan þessi sérkennilegi félagsskapur hóf starfsemi sína. Eðvarð Sigurgeirsson sýnir á fundinum kvikmyndir, sem hann hefur tekið í héraðinu. Einnig verða sýndar nokkrar skuggamyndir og í sambapdi við það verður myndagetraun. Margir klúbbfélagar munu rifja upp sitthvað af því, sem fram hefur komið á fyrri fundum, ýmist í lausu eða bundnu máli. Kaffidrykkja verður eins og venjulega. Þess er vænst að konur sem karlar mæti á fundinum. Q BYRJAÐ AÐ TEMJA Hestaniannafélagið Léttfeti á Sauðárkróki hefur enn komið tamningastöð á laggirnar. Eru hrossin þar 26 og til húsa í end-1 urbyggðu Sýslumannshesthúsi þar á staðnum, og eru þau á aldrinum 4—7 vetra. Tamninga- menn eru Sigurjón Gestsson og Ingimar Pálsson. Það kostar 4 þús. kr. á- mánuði fyrir hrossið á tanmingastöðinni, eða 8 þús. krónur, miðað við venjulega tveggja mánaða tamningu. Sam- kvæmt umsögn fréttaritara blaðsins á Sauðárkróki, fæst nú enginn ótaminn foli, sem ein- hverja von getur gefið, fyrir minna en 30 þúsund krónur. En hámarksverði eru lítil takmörk sett á þeim vcttvangi. í síðasta tölublaði Dags er auglýsing um væntanlega tamningastöð á Höskuldsstöðum í Eyjafirði. FRÉTTABLAÐ KEA Snemma í þessum mánuði kom út fyrsta fréttablað KEA, ætlað starfsfólki þess í hinum ýmsu greinum, svo og fjölmiðlum. Þessi útgáfa hefur lengi verið í undirbúningi og oft til hennar vitnað þegar Dagur hef- ur leitað frétta. Loks er svo athuga snjóalögin á jeppum og snjósleðum. En á því vegar- stæði, sem þeim þykir helzt koma til greina, er nálega eng- inn snjór. En sá vegur á að liggja úr Öxarfirði í Þistilfjörð. Rætt hefur verið um fleiri leið- ir, svo sem að hann liggi skammt sunnan við Kópasker, þvert yfir Sléttuna, dálítið fyrir sunnan Raufarhöfn. Á þeirri leið er erfitt að ná í ofaníburð. En það vegarstæði, sem vega- gerðarmönnum leizt bezt á í fyrra, en ekki er búið að gera ákvörðun um, er nægur ofaní- burður. Sá vegur lægi upp úr Axarfirðinum, eins og nú, upp sunnan við Þverárhyrnu og þar norður á hraunin og norður að eyðibýlinu Hrauntanga, en síð- an í Sandskarð, sem er norðan við Helgafellshnjúkinn. En núna er vegurinn sunnan í Helgafellinu, yfir háfjallgarð- inn. Síðan kæmi þessi vegur á Hálsaveg, rétt sunnan við Stóra Viðarvatn. Menn eru að blóta þorra. Vopnfirðingar og Bakkfirðingar blótuðu á laugardaginn, sitt í hvoru lagi, og á Þórshöfn verð- ur þorra blótað á sunnudaginn og taka Þórshafnarbúar og íbúar sveitanna í kring þátt í því. Ég sat blót Dakkfirðinga á laugardaginn og mun sitja Þórs hafnarblótið á sunnudaginn, og mun það mega kallast að kross- blóta, ef maður stundar þetta viku eftir viku. Ó. H. fyrsta tölublaðið komið út. Um- sjónarmaður er Gunnlaugur P. Kristinsson og ábyrgðarmaður Valur Arnþórsson. Ritið heitir KEA-fréttir og er kannski hægt að segja, að mjór sé mikils vísir, því að þetta fyrsta blað er lítið og fréttir af skornum skammti. Fréttaþjónusta KEA hefur ver- ið í lágmarki og er það enn, eins og lokað land þegar leitað er eftir fréttum, og er það félaginu sjálfu mestur skaði. Um þetta hefur Dagur oft kvartað, en án mikils árangurs. En þótt farið sé af stað án yfirlætis í þessum nýju KEA-fréttum, má e. t. v. búast við meiru síðar. LANDHELGISSTRÍÐ 1 BRETLANDI Fyrir skönunu samþýkktu brezkir útgerðarmenn að skora á yfirvöld þar í landi, að senda ekki lierskip á íslandsmið til verndar brezkum landhelgis- brjótum. Töldu þeir það ekki annarra hugsmunum þjóna en íslendingum, enda lítið hægt að veiða undir herskipavernd, væntanlega minnugir fyrri land helgisdeilu. í síðustu viku kom annað hljóð úr horni, frá brezkum tog araskipstjórum á íslandsmiðum. Þeir samþykktu að kref jast her- skipaverndar og það tafarlaust, annars færu þeir af miðunum og héldu heirn síðdegis á föstu- dag. Brezka stjómin lofaði þá að senda þeim dráttarbát, óvopn aðan, en með margskonar út- búnaði, og sjómenn héldu áfram að veiða. GÓÐUR ÞORRAMATUR Bautinn sendi ]>eim, er þetta ritar, þorraniat á sunnudaginn, handa tveimur, vel um búinn í trogi. Þetta rgyndist þinn kjarn- bezti undirstöðumatur fyrir fjóra, saman settur af 16 teg. og er verðið 360 kr. á mann. I fréttatilkynningu, sem blað- inu hefur borizt frá Bautanum, segir, að þessi þorramatur sé framreiddur í tveggja, fjögurra og átta manna trogum, til neyzlu á staðnum eða til heim- sendingar eftir pöntun. Hér er auðvitað mjög handhæg og skemmtileg tilbreyting fyrir heimili, ennfremur tilvalið fyrir félög og klúbba, sem halda vilja veizlu á þorra, að fá þennan ágæta mat tilbúinn upp í hend- urnar við sanngjörnu verði. SKRÝTINN MATSEÐILL Troginu góða frá Bautanum fylgdi prentaður matseðill, nokkuð sérstæður. Á honum eru meðal annars þessir réttir: Suro Bringokolli de Animale, Brenndo Hauses de Rolla, Confecto (lafo Milli Foto), Hacarles (Multo Fýlo), Flesko Nokotino (A la Krabbe), Brauð Bruno (Vindo), o. s. frv. En livað sem nöfntinum líður, var maturinn góður, og það er nú fyrir mestu. Álitlegur þorramatur í trogmn. Alli Akureyrarlogaranna Óli Halldórsson krossblófar Þorra Fjölmennur stjórnmálafundur

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.