Dagur - 04.04.1973, Page 8

Dagur - 04.04.1973, Page 8
8 DAGUR . DAGUR . DAGUR Vér viljiun vckja athygli á auglýsingasíma okkar, sem cr 1-11-87 DAGUR . DAGUR . DAGUR ISDaguk ’J/r J Akureyri, miðvikudaginn 4. apríl 1973 FERM- INGAR- GJAFIR í MIKLU ÚRVALI INGVAR GISLASON alþingismaður: „ÞETTA MÁL SNERTIR EINUSTU FJOLSKYLDU Þingræða um grunnskólafrumvarpið HVERJA I SMATT & STORT Herra forseti. í þessum fáu orðum mínum mun ég eins og aðrir ræðumenn víkja að grunnskólafrumvarp- inu fyrst og fremst. Ekki svo að skilja, að frum- varpið um skólakerfi sé ekki mikilvægt, því að þar er að finna: 1) umgerð eða útlínur hins samræmda skólakerfis og 2) grundvallarákvæðin um skólaskyldu, sem nú er fyrirhugað að lengja um eitt ár. f fljótu bragði kem ég ekki auga á, að ástæða sé til athuga- semda um meginatriði skóla- kerfisfrumvarpsins, þar sem gert er ráð fyrir þremur stig- um hins samræmda og sam- fellda skólakerfis, þ. e. a. s. skyldunámsstigi, framhalds- skólastigi og háskólastigi. Þetta sýnist mjög eðlileg um- gerð. Hins vegar er ástæða til að minna á nauðsyn þess að ríg- skorða ekki menntunarmögu- leika fólks við þess háttar um- gerð. Jafnframt því, sem við fest- um í sessi samræmt og samfellt skólakerfi, þar sem eitt stigið tekur við af öðru, þá tel ég mikla nauðsyn þess, að Alþingi hafi opin augu fyrir fræðslu- starfsemi utan slíks kerfis. Ég nefni þá alveg sérstaklega: 1) óháða lýðskóla og 2) fræðslustofnanir í þágu fullorðinna. Eins og fram hefur komið eru frumvörp þessi að meginstofni og grundvallarhugsun hin sömu sem fyrrverandi menntamála- ráðherra lagði fyrir Alþingi á þinginu 1970—1971. Eðlilegt er, að þessi frumvörp fylgist að og séu rædd samtímis. Frumvörpin frá 1970 voru ávöxtur allumfangsmikils nefnd arstarfs undir formennsku ráðu neytisstjórans í menntamála- ráðuneytinu. Frumvörpin báru þá þegar með sér greinilega við- leitni til þess að aðlaga skóla- kerfið breyttum tíma, og það gat ekki dulizt, að höfundar Mývatnssveit 3. apríl. Um 20 stiga frost var hér í gærmorg- un, en veður hefur verið hið fegursta síðustu daga. ís mun allþykkur á vatninu. Dorgveiði ber lítinn árangur og mjög lít- ið veiðist í net. Sauðfjárrúningur stendur yfir og er að mestu lokið. Vetr- arrúningur var hér almennt tekinn upp 1965 og hefur hann géfið góða raun. Sorpi er nú ekið úr Mývatns- sveit til sorpeyðingarstöðvar- innar á Húsavik og er almenn ánægja með það. í sumar mun sorpinu ekið þangað vikulega. Afkoma Kísiliðjunnar batnaði verulega á síðasta ári og náðust frumvarpanna höfðu tileinkað sér viðhorf, sem mótazt höfðu á undanfÖrnum árum, um ýms- ar endurbætur og nýskipan skólamála. Því var það, að í Ingvar Gíslason. frumvarpi til laga um grunn- skóla voru ýmis mjög athyglis- verð nýmæli, sem skólamenn og áhugamenn um skólamál, höfðu ástæðu til að fagna. Ég nefni t. d. ákvæðin um ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu, skólarann- sóknir og efling skólabókasafna. Andmæli sveitafólks. En almennt veittu menn meiri athygli öðrum ákvæðum grunnskólafrumvarpsins. í fyrsta lagi lengingu skóla- skyldu um eitt ár. í öðru lagi lengingu árlegs starfstíma skólanna. Um þessi atriði öðrum fremur var rætt manna á meðal og olli talsverðum deilum. Þessar breytingar, lenging skólaskyldu og lenging árlegs starfstíma skólanna, snertu í raun fyrst og fremst sveitafólk- ið í landinu og íbúa missa smærri þorpa, — þ. e. fólkið í hinum dreifðu byggðum í sveit og við sjó. í öllum stærri þétt- býlisstöðum mátti segja, að skólaganga barna og unglinga væri í reynd 9 ár, þ. e. frá 7—16 'því nær fullar afskirftir eða um 40 jfnillj, kiii Áætlað framleiðslu magn á "þéssu ári er 23 þús. feonn. Samkv'-æmt þeirri áætlun á -relýstúrinh að skila hagnaði á þes?tt ;.ájri. Eftir tvo mánuði er ætlunin að setja upp hreinsi- tæki í verksmiðjunni, er Jón Þórðársorr r JReykjalundi hefur fundið upp. Um 50 manns vinna hjá Kísiliðjunni. Nýlega var úthlutað hér lóð undir hús Pósts og síma, sem byggt verður í Reykjahlíðar- hverfinu og fljótlega byrjað á. í nýsnævinu hefur talsvert orðið vart við minkaslóðir. Minkabanar eru á kreiki síð- ustu dagana. J. I. ára, og skólaárið var nokkuð langt og samfellt. í sveitum og þorpum horfði málið öðru vísi við. Skólaganga barna þar var að vísu eitthvað misjöfn, en miklu fleiri hættu námi við 14 —15 ára aldur en var í kaup- stöðum, og árlegur skólatími hvers barns var oft aðeins brot af því, sem gerðist í kaupstaða- skólum. Þannig var mikill mun- ur á skólagöngu sveitabarna og kaupstaðabarna, hvað raunveru lega skólasetu snerti. Frumvarpið um grunnskóla frá 1970 gekk mjög ákveðið út frá því sjónarmiði, að þessum skólagöngumismun skyldi eytt þannig, að öll börn, hvort sem væri í sveit eða kaupstað, skyldu vera í skóla jafnlengi. I frumvarpinu var ákveðið stefnt að því að lengja skólagöngu sveitabarna og gera hana jafna því sem þegar var orðið í kaup- stöðum. — Mismunandi skóla- ganga eftir búsetu skyldi hverfa. — En í Ijós kom, að þessi af- dráttarlausa stefna átti andbyr að mæta. Þessi andbyr kom frá sveita- fólkinu sjálfu. Það var ekki andstaða gegn þeirri lýðræðislegu grundvallar hugsun frumvarpsins, að að- staða til skólagöngu yrði jöfn- uð. Undir þá stefnu munu allir taka. En sveitafólkið benti á (Framhald á blaðsíðu 5) FEIMNISMÁL Það er engu líkara en það sé hálfgert feimnismál að ræða jarðhitavirkjun. Hér á Norður- landi eru nokkur háhitasvæði, sem bíða virkjunar. Og þótt við eigum ekki jarðhitavirkjunar- sérfræðinga á borð við jarðfræð inga og vatnsvirkjunarmenn, er unnt að kaupa erlenda kunn- áttu, sem á vantar, frá þeim þjóðum sem um alllangan tíma hafa notið raforku frá harðhita- svæðum og lengst hafa komizt í því efni. Sovétmenn, ítalir og fleiri þjóðir myndu geta veitt okkur þessa þjónustu. MÖGULEIKARNIR VIRÐAST OF MARGIR Ætla mætti, að virkjanlegar ár á Norðurlandi séu alltof margar til þess að auðvelt sé að velja eina eða fleiri til virkjunar. Ætla mætti, að háhitasvæðin norðlenzku séu einnig of mörg og öflug til þess að hagkvæmni þeirra til orkuframleiðslu liggi fyrir, í samanburði við fallvötn- in. Norðlendingar eru nú þegar í raforkuliungri, með alla þessa möguleika vítt og breitt um landsfjórðunginn. Þeir virðast í svo mikilli andlegri lægð, að þeir festa helzt augun við disel- mótora til raforkuframleiðslunn ar, eða treysta á hálendislínu írá Sigölduvirkjun. ORKA OG VARAORKA Samtenging raforkuvera lands- ins er það, sem koma skal. En verður biðin ekki of löng fyrir okkur? Eigum við ekki að leggja áherzlu á t. d. gufuvirkj- un, sem virðist geta gefið skjót- ustu lausnina? Sú lausn kynni einnig að verða framtíðarlausn orkumála, en auk þess hið nauð synlega varaafl hér nyrðra, á meðan langar raflínur yfir há- lendi landsins eru ekki tryggari en þær eru. TAKA LÆGRA TILBOÐINU Til þessa hafa landeigendur, er veiðirétt eiga í ám og vötnum, jafnan tekið hæstu tilboðunum, er þeir hafa gefið föl við fé þau eftirsóttu lífsins gæði, að veiða fisk á stöng, og þykir eng um mikið. Nú eru hins vegar bændur þeir í Laxárdal og Mý- vatnssveit, sem ekki vildu láta söltkva sér undir vatn og töldu Miðkvíslarstíflu bezt hand- leikna með sprengiefni, að leigja Laxá hina fögru við lægra gjaldi en þeim bauðst hjá öðrum aðilum. EINGÖNGU VEITT Á FLUGU Það eru Ármenn, nýstofnað veiðifélag, sem munu taka á þessa á leigu, og ætla að inn- leiða veiðar á flugu eingöngu í þeim ám, sem þeir koma til með að ráða yfir, og lækka leiguna verulega, til félagsmanna sinna. Bæði þessi atriði eru eftir tektarverð. Svæði það, er hér um ræðir í Laxá, er frá virkjun og allt til Mývatns. Þar veiðist feitur urriði, en stefnt er að því að þessi hluti Laxár verði Iax- gengur, svo sem neðri hluti ár- innar er nú. Grásleppan og skákin sfunduð Hrísey 3. apríl. Ég beitti í morg- un hálfan bala og legg í nótt. Fiskurinn, sem nú veiðist er ágætur, en mætti vera mun meira af honum. Það veiðist jöfnum höndum í net og á línu og bátarnir fá 2.3—3 tonn. Svo er grásleppuveiðin hafin. Verð á grásleppuhrognunum er talið muni verða 15---16 þús. kr. fyrir tunnuna. En í hverja tunnu þurfa hrogn úr 130 grá- sleppum. Þetta háa verð gefur vonir um góðar tekjur ef sæmi- lega veiðist. Vinna er svona nokkurn veg- inn nægileg og senn kemur Snæ fellið til okkar með fisk, en það er á veiðum. Við teflum dálítið okkur til dægrastyttingar, bæði börn og fullorðnir. Dálitlir skaflar komu nú um helgina og okkur finnst fremur kalt ennþá. En hitt vitum við, að senn hlýnar í veðri og snjór- inn lætur undan síga. S. F. ÁÆTLUNARFERÐUM FJÖLGAÐ SAMKVÆMT vetraráætlun innanlandsflugs F. í. var gert ráð fyrir 17 ferðum í viku milli Reykjavíkur og Akureyrar. Nú hefur verið ákveðið að fjölga um eina ferð, þannig að 18 ferð- ir verði á viku milli þessara staða. Ferðin, sem nú bætist við er á miðvikudagskvöldum. — Verða þá morgunferðir og kvöldferðir alla daga vikunnar, og miðdegisferðir á mánudög- um, miðvikudögum, föstudög- um og sunnudögum. Q Frétfabréf úr Mývatnssveitinni Sigurveig Jónsdóttir sem Halla og Þráinn Karlsson sem Eyvindur í sjónleiknum Fjalla-Eyvindur, sem Leikfélag Akureyrar sýnir um þessar mundir. (Ljósmyndastofa Páls)

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.