Dagur - 23.05.1973, Síða 1

Dagur - 23.05.1973, Síða 1
FILMUhúsio akureyri Skemmdarverk í Krossanesi YFIRLÖGREGLUÞJÓNNINN, Gísli Ólafsson, hafði eftirfar- andi að segja í gær, til viðbótar fréttum, áður fengnum og á öðrum stað birtum: Aðfararnótt síðasta laugar- dags var brotin rúða í verzlun- inni Höfn, en engu stolið. Sömu nótt var sprengd upp hurð í Vörusölunni, Hafnarstræti 104, en þar virtist heldur engu stol- ið. Um helgina var stolið út- varpstæki, Blaupunkt, úr vinnu vél bæjarins við Laugarhól. í morgun var tilkynnt um inn brot í Krossanesverksmiðju og voru þar unnin skemmdarverk. Opnað hafði verið fyrir krana á svartolíugeymi, svo að töluvert magn af olíu rann fram á planið og í fiskúrgang, sem þar beið bræðslu í verksmiðjunni. Enn- fremur rann nokkurt olíumagn í sjóinn. Verksmiðjan er án gæzlumanns um nætur. Lögreglan biður alla þá, sem gefið gætu upplýsingar um framangreind atriði, að láta hana vita. □ Nokkur óhreysti í ám og lömbum Ási í Vatnsdal 19. maí. Ágæt andi verk þarf að vinna. Þetta veður voru um miðjan maí en er mesti annatími ársins og nú er fremur kalt og frost á hverri nóttu. Fénaðarhöld eru víða sæmi- lega góð, en þó ber nokkuð á lambaláti á nokkrum bæjum í Þingi og er ástandið einna verst á Hnausum. Því miður virðist fátt til varnar þessum sjúkdómi og dýralæknar standa ráðalitlir gagnvart þessum vanda. Á öðr- um stöðum nokkrum, ber á óhreysti í lömbum, svo sem hér á bæ. Sumum batnar af meðala- gjöf en önnur drepast. Vegirnir eru nú orðnir þurr- ir, harðir og víða leiðinlegir. Annríki er alveg óskaplegt á þessum tíma, því að fólk er fremur fátt á bæjunum en ótelj- E:: Daguk kemur næst út miðvikudaginn 30. maí. e;i; margir leggja nótt við dag. Tamninganámákeið, það síð- asta að þessu sinni, stendur enn yfir á Blönduósi. Nóg er af hrossunum, en það er ekki nóg af góðum reiðhestaefnum hér hjá okkur, þótt þar séu undan- tekningar á. Þegar fækka þurfti fénu hér á árunum, var stóðinu hleypt upp, til framleiðslu á kjöti. Nú er þörf á allt öðru sjónarmiði og eru kynbætur, er miðast við nýjan tíma, alveg nauðsynlegar. G. J. Sólbakur, nýjasti togari Akureyringa. (Ljósm.: E. D.) Erfiður rekstur hjá Úfgerðarfélaginu AÐALFUNDUR Útgerðarfélags Akureyringa h.f. var haldinn mánudaginn 21. maí. Rekstur fyrirtækisins var erfiður árið 1972. Aðal rekstursreikningur sýnir hlala að upphæð 20.574 millj. kr. Hagnaður varð á Sval- bak, 350 þús. kr., Hraðfrysti- FRA LOGREGLUNNI Á AKUREYRI HINN 13. maí var döðlum stolið úr vöruhúsi KEA á Oddeyri, þar sem áður var plastfram- leiðsla. En óvarlega var farið með þá vöru og fannst hún hér og þar, m. a. á GlerárgötU, og virtust þjófarnir þá hafa verið á leið norður úr bænum. Um síðustu helgi var þarna aftur brotist inn og þá stolið pökkuðum molasykri — og nú var haldið í aðra átt, fram Eyja- fjörð að vestanverðu. Var látinn einn pakki eða tveir á hvern brúsapall, allt fram á fremsta bæ. Mjólkurbílstjórar komu með þessa sykurpakka í bæinn, því bændur vildu ekkert með þá hafa. □ Brezkar herflugvélar fá ekki lendingarleyfi á flugvöllum hér BRETUM hefur verið tilkynnt, að engum brezkum herflugvél- um verði leyft að lenda á ís- landi, hvorki á Keflavíkurflug- velli né annars staðar, frá og með síðasta sunnudegi, en ákvörðun þessi var tekin kvöld- inu áður. □ 32 þjóðir færðu út landhelgi Á RÁÐGJAFARÞINGI Evrópuráðs í Strassborg á fimrntu- dag, flutti Einar Ágústsson utanríkisráðherra ræðu, sem miklar umræður spunnust af, og fjallaði hann þar um Iand- helgismálið. Talsmaður Breta á ráðstefnunni, þingmaðurinn Hugh Rossi, hafði þar uppi söniu liótanir og fslendingar eru vanir að heyra frá brczkum stjórnvöldum. Ábyrgðin væri öll í höndum íslendinga, ef þeir tækju brezkan togara, yrði herskipum beitt. í svarræðu Einars sagði hann meðal annars: „Við erum ekki þeir einu, sem liafa fært út i'iskveiðitakmörkin. 32 þjóðir liafa tekið sér fiskveiðilögsögu umfram tólf mílur og átta jiessara ríkja gerðu það á árinu 1972. Enginn hefur liaft neitt við það að athuga, — einungis okkar ráðstafanir.“ Wichman, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hefur lýst því yfir, að Svíar telji íslcndinga liafa á rcttu að stauda í landhelgis- deilunni, og myndu þar af leiðandi styðja kröfur íslendiuga í fiskveiðimálum á hafréttarráðstefuunni í Chile. Það cr sérstök ástæða fyrir íslendinga að fagna þessari yfirlýsingu sænska utanríkisráðlierrans. □ tm húsinu 2.404 millj. kr., skreiðar- verkuninni 1.650 millj. kr. og á saltfiskverkun 1.213 millj. kr. Halli varð á Kaldbak, 2.075 millj. kr., Harðbak 2.380 millj. kr., Sléttbak 1.341 millj. kr. og Sólbak 20.352 millj. kr. Afskrift ir 17.981 millj. kr., þar af vegna Sólbaks 12.014 millj. kr. Afli togaranna var sem hér segir: Kaldbakur 2.259 tonn, Svalbakur 2.667 tonn, Harðbak- ur 1.842 tonn, Sléttbakur 2:513 tonn og Sólbakur 2.540 tonn, eða alls 11.823 tonn á móti 11.370 tonnum árið 1971. Afli á veiðidag var nú 9.123 kg á móti 11.180 kg árið áður. Landað var á Akureyri 10.874 tonnum, en erlendis 949 tonn- um. Harðbakur var í 20 ára flokkunarviðgerð á árinu og tafðist því í þrjá mánuði á árinu. Aðalframleiðsla var: Freðfisk ur til útflutnings 2.829 tonn, verkaður og óverkaður saltfisk- ur 337 tonn, skreið var ekki teljandi. Úrgangur til Krossa- nesverksmiðju var 5.958 tönn. í vinnulaun til landverka- fólks var greitt 72.920 millj. kr. og til sjómanna 74.333 millj. kr., eða samtals 147.254 mlllj. kr. Greitt var fyrir ýmsar vörur og þjónustu til fyrirtækja hér í bæ 92 milljónir króna. Skýrt var frá því, að frestun yrði á afgreiðslu tveggja togara frá Spáni, og er nú áætlaður afgreiðslutími í febrúar og september 1975. Stjórn fyrirtækisins var end- urkjörin. Hana skipa: Jakob Frímannsson, Sigurður Óli Brynjólfsson, Tryggvi Helga- son, Kristján P. Guðmundsson og Steindór Jónsson. Framkvæmdastjórar eru Gísli Konráðsson og Vilhelm Þor- steinsson. □ Skemmtiferð til ÁKVEÐIN er skemmtiferð til Grímseyjar á vegum Kjör- dæmissambands Framsóknar- manna í Norðurlandskjördæmi eystra. Farið verður að morgni dags hinn 16. júní með Drang. Komið verður við í Hrísey. í Grímsey gefst mönnum kost ur á að sjá sigið í fuglabjarg og eyjan verður skoðuð eftir því sem tími vinnst til, undir leið- sögn heimamanna. Kaffiveiting ar verða í félagsheimilinu. Allir þeir, sem áhuga hafa á þessari ferð, geta fengið upp- lýsingar og pantað far í síma 21180, klukkan 2—6 e. h. Q FYRIR einni viku, miðvikudag- inn 16. maí, settu brezku togara sjómennirnir á íslandsmiðum ríkisstjórn sinni úrslitakosti: Þeir myndu hætta veiðum í landhelgi íslands, ef þeir fengju ekki herskipavernd brezka flot- ans við veiðar sínar innan 50 mílna markanna. Myndu þeir sigla út fyrir 50 mílna mörkin klukkan 4 næsta morgun, fimmtudag, að óbreyttu ástandi. Engin svör bérust frá brezkum yfirvöldum þá þegar og sigldu togararnir þá út fyrir, 46 að tölu, með hótunum um heim- ferð eða þeir sæktu á önnur SAGA „ÞORSKASTRÍÐSINS“ ENÐURVAKIN mið. Þeir höfðu gefizt upp fyrir islenzku Landhelgisgæzlunni. Þegar svo var komið, að tog- arasjómenn voru samtaka um að setja stjórn sína upp að vegg, snerust útgerðarmenn togar- anna á sveif með þeim, en þeir hafa ekki óskað herskipavernd- ar, og ríkisstjórnin beygði sig fyrir þessum kröfum. Brezki sendiherrann í Reykja vík afhenti forsætisráðherra, Ólafi Jóhannessyni, yfirlýsingu frá togaraeigendum og á föstu- daginn barst tilkynning þess efnis, að brezka utanríkisráðu- neytinu, að brezkir togarar hafi snúið við og haldið á íslands- mið, enda hafi þeir fengið lof- orð um vernd brezkra herskipa innan 50 mílna markanna við ísland. Sem ástæður fyrir af- skiptum herskipa, eru nefnd eftirfarandi atriði: Ef íslenzk varðskip geri eitt- hvað sem stofnað gæti lífi brezkra sjómanna í hættu. Ef einhver sá atburður gerðist ian- an fiskveiðimarkanna, sem að mati brezku stjórnarinnar gæti réttlætt afskipti herskipanna, og ef einhver sá atburður yrði, sem brezki fiskiðnaðurinn teldi að krefðist afskipta herskipa. Á laugardaginn ákvað brezka stjórnin að senda brezka sjó- herinn á íslandsmið, inn í land- helgi íslendinga, til þess að verja landhelgisbrjóta, og til- kynnti sjávarútvegsráðherrann, Joseph Godber, þessa ákvörðun og kom ákvörðunin mjög á óvart, vegna fyrri ummæla hans tveirn dögum áður, þar (Framhald á blaðsíðu 4)

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.