Dagur - 23.05.1973, Síða 1
FILMUhúsio akureyri
Skemmdarverk í Krossanesi
YFIRLÖGREGLUÞJÓNNINN,
Gísli Ólafsson, hafði eftirfar-
andi að segja í gær, til viðbótar
fréttum, áður fengnum og á
öðrum stað birtum:
Aðfararnótt síðasta laugar-
dags var brotin rúða í verzlun-
inni Höfn, en engu stolið. Sömu
nótt var sprengd upp hurð í
Vörusölunni, Hafnarstræti 104,
en þar virtist heldur engu stol-
ið. Um helgina var stolið út-
varpstæki, Blaupunkt, úr vinnu
vél bæjarins við Laugarhól.
í morgun var tilkynnt um inn
brot í Krossanesverksmiðju og
voru þar unnin skemmdarverk.
Opnað hafði verið fyrir krana á
svartolíugeymi, svo að töluvert
magn af olíu rann fram á planið
og í fiskúrgang, sem þar beið
bræðslu í verksmiðjunni. Enn-
fremur rann nokkurt olíumagn
í sjóinn. Verksmiðjan er án
gæzlumanns um nætur.
Lögreglan biður alla þá, sem
gefið gætu upplýsingar um
framangreind atriði, að láta
hana vita. □
Nokkur óhreysti í ám og lömbum
Ási í Vatnsdal 19. maí. Ágæt andi verk þarf að vinna. Þetta
veður voru um miðjan maí en er mesti annatími ársins og
nú er fremur kalt og frost á
hverri nóttu.
Fénaðarhöld eru víða sæmi-
lega góð, en þó ber nokkuð á
lambaláti á nokkrum bæjum í
Þingi og er ástandið einna verst
á Hnausum. Því miður virðist
fátt til varnar þessum sjúkdómi
og dýralæknar standa ráðalitlir
gagnvart þessum vanda. Á öðr-
um stöðum nokkrum, ber á
óhreysti í lömbum, svo sem hér
á bæ. Sumum batnar af meðala-
gjöf en önnur drepast.
Vegirnir eru nú orðnir þurr-
ir, harðir og víða leiðinlegir.
Annríki er alveg óskaplegt á
þessum tíma, því að fólk er
fremur fátt á bæjunum en ótelj-
E::
Daguk
kemur næst út miðvikudaginn
30. maí.
e;i;
margir leggja nótt við dag.
Tamninganámákeið, það síð-
asta að þessu sinni, stendur enn
yfir á Blönduósi. Nóg er af
hrossunum, en það er ekki nóg
af góðum reiðhestaefnum hér
hjá okkur, þótt þar séu undan-
tekningar á. Þegar fækka þurfti
fénu hér á árunum, var stóðinu
hleypt upp, til framleiðslu á
kjöti. Nú er þörf á allt öðru
sjónarmiði og eru kynbætur, er
miðast við nýjan tíma, alveg
nauðsynlegar. G. J.
Sólbakur, nýjasti togari Akureyringa.
(Ljósm.: E. D.)
Erfiður rekstur hjá Úfgerðarfélaginu
AÐALFUNDUR Útgerðarfélags
Akureyringa h.f. var haldinn
mánudaginn 21. maí. Rekstur
fyrirtækisins var erfiður árið
1972. Aðal rekstursreikningur
sýnir hlala að upphæð 20.574
millj. kr. Hagnaður varð á Sval-
bak, 350 þús. kr., Hraðfrysti-
FRA LOGREGLUNNI
Á AKUREYRI
HINN 13. maí var döðlum stolið
úr vöruhúsi KEA á Oddeyri,
þar sem áður var plastfram-
leiðsla. En óvarlega var farið
með þá vöru og fannst hún hér
og þar, m. a. á GlerárgötU, og
virtust þjófarnir þá hafa verið
á leið norður úr bænum.
Um síðustu helgi var þarna
aftur brotist inn og þá stolið
pökkuðum molasykri — og nú
var haldið í aðra átt, fram Eyja-
fjörð að vestanverðu. Var látinn
einn pakki eða tveir á hvern
brúsapall, allt fram á fremsta
bæ. Mjólkurbílstjórar komu
með þessa sykurpakka í bæinn,
því bændur vildu ekkert með
þá hafa. □
Brezkar herflugvélar
fá ekki lendingarleyfi
á flugvöllum hér
BRETUM hefur verið tilkynnt,
að engum brezkum herflugvél-
um verði leyft að lenda á ís-
landi, hvorki á Keflavíkurflug-
velli né annars staðar, frá og
með síðasta sunnudegi, en
ákvörðun þessi var tekin kvöld-
inu áður. □
32 þjóðir færðu út landhelgi
Á RÁÐGJAFARÞINGI Evrópuráðs í Strassborg á fimrntu-
dag, flutti Einar Ágústsson utanríkisráðherra ræðu, sem
miklar umræður spunnust af, og fjallaði hann þar um Iand-
helgismálið. Talsmaður Breta á ráðstefnunni, þingmaðurinn
Hugh Rossi, hafði þar uppi söniu liótanir og fslendingar eru
vanir að heyra frá brczkum stjórnvöldum. Ábyrgðin væri
öll í höndum íslendinga, ef þeir tækju brezkan togara, yrði
herskipum beitt.
í svarræðu Einars sagði hann meðal annars: „Við erum
ekki þeir einu, sem liafa fært út i'iskveiðitakmörkin. 32 þjóðir
liafa tekið sér fiskveiðilögsögu umfram tólf mílur og átta
jiessara ríkja gerðu það á árinu 1972. Enginn hefur liaft neitt
við það að athuga, — einungis okkar ráðstafanir.“
Wichman, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hefur lýst því yfir,
að Svíar telji íslcndinga liafa á rcttu að stauda í landhelgis-
deilunni, og myndu þar af leiðandi styðja kröfur íslendiuga
í fiskveiðimálum á hafréttarráðstefuunni í Chile.
Það cr sérstök ástæða fyrir íslendinga að fagna þessari
yfirlýsingu sænska utanríkisráðlierrans. □
tm
húsinu 2.404 millj. kr., skreiðar-
verkuninni 1.650 millj. kr. og
á saltfiskverkun 1.213 millj. kr.
Halli varð á Kaldbak, 2.075
millj. kr., Harðbak 2.380 millj.
kr., Sléttbak 1.341 millj. kr. og
Sólbak 20.352 millj. kr. Afskrift
ir 17.981 millj. kr., þar af vegna
Sólbaks 12.014 millj. kr.
Afli togaranna var sem hér
segir: Kaldbakur 2.259 tonn,
Svalbakur 2.667 tonn, Harðbak-
ur 1.842 tonn, Sléttbakur 2:513
tonn og Sólbakur 2.540 tonn,
eða alls 11.823 tonn á móti
11.370 tonnum árið 1971. Afli á
veiðidag var nú 9.123 kg á móti
11.180 kg árið áður.
Landað var á Akureyri 10.874
tonnum, en erlendis 949 tonn-
um. Harðbakur var í 20 ára
flokkunarviðgerð á árinu og
tafðist því í þrjá mánuði á
árinu.
Aðalframleiðsla var: Freðfisk
ur til útflutnings 2.829 tonn,
verkaður og óverkaður saltfisk-
ur 337 tonn, skreið var ekki
teljandi. Úrgangur til Krossa-
nesverksmiðju var 5.958 tönn.
í vinnulaun til landverka-
fólks var greitt 72.920 millj. kr.
og til sjómanna 74.333 millj. kr.,
eða samtals 147.254 mlllj. kr.
Greitt var fyrir ýmsar vörur og
þjónustu til fyrirtækja hér í bæ
92 milljónir króna.
Skýrt var frá því, að frestun
yrði á afgreiðslu tveggja togara
frá Spáni, og er nú áætlaður
afgreiðslutími í febrúar og
september 1975.
Stjórn fyrirtækisins var end-
urkjörin. Hana skipa: Jakob
Frímannsson, Sigurður Óli
Brynjólfsson, Tryggvi Helga-
son, Kristján P. Guðmundsson
og Steindór Jónsson.
Framkvæmdastjórar eru Gísli
Konráðsson og Vilhelm Þor-
steinsson. □
Skemmtiferð til
ÁKVEÐIN er skemmtiferð til
Grímseyjar á vegum Kjör-
dæmissambands Framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra. Farið verður að morgni
dags hinn 16. júní með Drang.
Komið verður við í Hrísey.
í Grímsey gefst mönnum kost
ur á að sjá sigið í fuglabjarg og
eyjan verður skoðuð eftir því
sem tími vinnst til, undir leið-
sögn heimamanna. Kaffiveiting
ar verða í félagsheimilinu.
Allir þeir, sem áhuga hafa á
þessari ferð, geta fengið upp-
lýsingar og pantað far í síma
21180, klukkan 2—6 e. h. Q
FYRIR einni viku, miðvikudag-
inn 16. maí, settu brezku togara
sjómennirnir á íslandsmiðum
ríkisstjórn sinni úrslitakosti:
Þeir myndu hætta veiðum í
landhelgi íslands, ef þeir fengju
ekki herskipavernd brezka flot-
ans við veiðar sínar innan 50
mílna markanna. Myndu þeir
sigla út fyrir 50 mílna mörkin
klukkan 4 næsta morgun,
fimmtudag, að óbreyttu ástandi.
Engin svör bérust frá brezkum
yfirvöldum þá þegar og sigldu
togararnir þá út fyrir, 46 að
tölu, með hótunum um heim-
ferð eða þeir sæktu á önnur
SAGA „ÞORSKASTRÍÐSINS“ ENÐURVAKIN
mið. Þeir höfðu gefizt upp fyrir
islenzku Landhelgisgæzlunni.
Þegar svo var komið, að tog-
arasjómenn voru samtaka um
að setja stjórn sína upp að vegg,
snerust útgerðarmenn togar-
anna á sveif með þeim, en þeir
hafa ekki óskað herskipavernd-
ar, og ríkisstjórnin beygði sig
fyrir þessum kröfum.
Brezki sendiherrann í Reykja
vík afhenti forsætisráðherra,
Ólafi Jóhannessyni, yfirlýsingu
frá togaraeigendum og á föstu-
daginn barst tilkynning þess
efnis, að brezka utanríkisráðu-
neytinu, að brezkir togarar hafi
snúið við og haldið á íslands-
mið, enda hafi þeir fengið lof-
orð um vernd brezkra herskipa
innan 50 mílna markanna við
ísland. Sem ástæður fyrir af-
skiptum herskipa, eru nefnd
eftirfarandi atriði:
Ef íslenzk varðskip geri eitt-
hvað sem stofnað gæti lífi
brezkra sjómanna í hættu. Ef
einhver sá atburður gerðist ian-
an fiskveiðimarkanna, sem að
mati brezku stjórnarinnar gæti
réttlætt afskipti herskipanna,
og ef einhver sá atburður yrði,
sem brezki fiskiðnaðurinn teldi
að krefðist afskipta herskipa.
Á laugardaginn ákvað brezka
stjórnin að senda brezka sjó-
herinn á íslandsmið, inn í land-
helgi íslendinga, til þess að
verja landhelgisbrjóta, og til-
kynnti sjávarútvegsráðherrann,
Joseph Godber, þessa ákvörðun
og kom ákvörðunin mjög á
óvart, vegna fyrri ummæla
hans tveirn dögum áður, þar
(Framhald á blaðsíðu 4)