Dagur - 12.09.1973, Blaðsíða 5

Dagur - 12.09.1973, Blaðsíða 5
4 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og óbyrgðarmaður: ERIINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Bjömssonar hi. Atvinnuleikhús LEIKFÉLAG AKUREYRAR hefur starfað í meira en hálfan sjötta ára- tug, og á sérstæðan menningarþátt í sögu bæjarins á þessum tíma. Það hefur þroskað fjölmarga einstakl- inga, sem stundað hafa leiklistina, en jafnframt veitt bæjarbúum ótald- ar ánægjustundir. Leikhúsin hafa víða um heim og um aldir flutt fólk- inu boðskap andans manna og jafn- framt gleðileiki. Leiklistin hefur að vísu risið og hnigið, átt sína miklu álirifatíma og öldudali, en þó víðast verið áhrifaþáttur menningarlífsins. Fólk hefur ætíð þurft brauð og leiki, það vissu valdhafamir og reyndu að veita þegnunum þessar nauðsynjar, Kirkjan tók leiklistina einnig snemma í þjónustu sína til að auðga trúarlegar athafnir sínar. Listin er margþætt og ekki er allt list, sem svo er kallað og engin list- grein nær til allra. En hver listgrein, til dæmis sönglist, málaralist eða leik list, sem snertir einhvern streng í brjósti hins almenna borgara og veldur geðhrifum, er máttug og skapandi. Leikfélag Akureyrar hefur unnið að því í fjögur ár, að gera leikhús bæjarins að atvinnuleikliúsi. Hið opinbera, bæði bær og ríki, hefur gefið hughyndinni byr undir vængi, og eru nú í fyrsta sinn, í upphafi þessa leikárs, 8 leikarar ráðnir til starfa við leikhúsið á Akureyri. Þar með hefst nýr kapituli í sögu Leikfél. Akureyrar og væntanlega einnig í leiklistarlífi bæjarbúa. Forráðamenn félagsins, leikararnir og aðrir starfs- menn þess, sem nú hafa fengið aukið svigrúm til starfa, munu eflaust ætla sér stærri hlut en fyrr, og leikhús- gestir munu nú einnig gera meiri kröfur. Fer vel á því, að þetta tvennt fari saman. Leikhús Akureyringa er nær sjö áratuga gamalt timburhús, sem hlot- ið hefur nokkrar viðgerðir og hefur þjónað sínu hlutverki með sóma. En tími er til þess kominn, að undirbúa staðarval og byggingu nýs leikhúss, atvinnuleikhúss, svo framarlega að hin nýja stefna í leikhúsmálum sé í samræmi við óskir hinna almennu borgara. Á síðari árum hefur þróazt grósku- mikið leiklistarlíf í höfuðborg lands- ins, þar sem Þjóðleikhúsið og Leik- félag -Reykjavíkur halda listgrein inni hátt á lofti og við ótrúlega að- sókn. f höfuðstað Norðurlands er margt góðra leikara og hefur svo verið um áraraðir. Þröngur fjárhag- ur hefur komið í veg fyrir það, að hinir ágætu hæfileikar nytu sín til fulls. Mætti það vera liðin tíð. □ Grænlenzkur vinabær heimsóffur (Framhald af blaðsíðu 8) ig eru verzlanir einstaklinga. Danska verzlunin er fyrsta flokks, deildaskipt með kjör- búðafyrirkomulagi með fyrsta flokks vörum og miklu vöru- úrvali. Aðrar verzlanir eru einnig góðar, svo að margir staðir á íslandi mættu þakka fyrir jafn góða verzlunarþjón- ustu. í Narssak er ársgamalt sjúkra hús, sem ég vildi að einhverjir íslendingar, sem kunnáttu hafa á þeim málum sæju og skoðuðu. Gæti sjúkrahús af þessari gerð eflaust vérið hagkvæmt hér á landi. f því voru 18 sjúkrarúm, skurðstofa og allri nauðsynlegri grundvallaraðstöðu vel fyrir- komið og glæsilegt hús á allan hátt. Geysistór barna- og unglinga- skóli er í byggingu. Er auðséð á öllu, að þarna er verið að byggja upp grundvallaraðstöðu menningarsamfélags. Á leiðinni frá Narssak inn á flugvöllinn, sem farið er á bát, komum við á þrjá bóndabæi. En landbúnaðurinn á Grænlandi byggist á sauðfénu, sem ættað er frá íslandi. Kúabúskapur mun enginn vera og ég saknaði mjólkurinnar. Þá eru þar einn- ig hestar. Fyrst komum við á lítið býli. Ekki er þar bryggja, enda myndi ísinn líklega brjóta hana, en hins vegar hefur nátt- úran séð fyrir klettum, sem auð velt er að leggjast að. Við vor- um leidd heim að íbúðarhúsinu, sem er úr timbri, og í stofu var okkur boðið sérríglas, kaffi og meðlæti, þar með kleinur. Hreinlætið og snyrtimennskan var þarna eins og alls staðar annars staðar, bæði úti og inni. Bóndinn á 300 ær. Ég held að aðaltilgangurinn með heimsókn inni hafi verið að sýna okkur bæjarlækinn. Hann fellur rétt við túngarðinn og er fallhæð hentug til virkjunar. En virkjun er draumur bóndans, og hann vissi, að íslendingar hafa marg- ir virkjað bæjarlæki sína. Hann hafði sent dönskum yfirvöldum fyrirspurnir um þetta mál, en ekki fengið mjög fullkomnar upplýsingar, en þó ógnvekjandi kostnaðartölur. Okkur sýndist auðvelt að virkja lækinn og nú Jiurfum við að láta þennan bónda njóta góðs af reynslu okkar í virkjun bæjarlækja, hvernig sem við förum nú að því. Féð gengur sjálfala og fellur í hörðum vetrum. Heyskapur er lítill, túnblettir nokkrir nálægt bæ, en þarna er treyst á úti- ganginn. Á næsta bæ var búið stærra og átti bóndi 800 ær og er bóndinn formaður græn- lenzka búnaðarsambandsins. Þar er stærra tún og þrjár dráttarvélar sáum við. íbúðar- húsið var stórt og myndarlegt timburhús. Heimilið er sam- bærilegt við það bezta sem ég þekki í íslenzkri sveit. Kökurn- ar með kaffinu voru sams konar og við fáum hér heima. Afurða- verðið til bændanna hafði hækk að en bónda þótti það þó of lágt. Bændur semja um það beint við ríkisvaldið. Þegar við lýstum fyrir honum okkar kerfi í verðlagningu búvara, leizt honum betur á það. Bændur selja dilkana á fæti og verðið er talsvert minna en íslenzkir bændur fá. Móttökurnar voru alveg frábærar. í Brattahlíð er eiginlega sveitaþorp, sem stendur gegnt Narsassúakflugvelli fyrir botni Eiríksfjarðar. Þar skoðuðum við, undir leiðsögn vinar okkar Eiríks rauða, sem komið hefur hingað til lands og heimsótt okkur, rústir af mannvirkjum hinnar fornu íslendingabyggð- ar á Grænlandi. En óþarft er að segja nánar frá þeim. En mann- vistarleifar, bæði bústaðir og kirkjur, eru hinar merkilegustu fornminjar. Og á klettavegg er minnismerki um þetta fólk. Hjá einum af bræðrum Eiríks rauða var okkur boðinn matur og var þar allt gert á svo stór- myndarlegan hátt, að ég held að aðrir myndu tæplega gera betur. Byggðin á Grænlandi er að mörgu leyti áþekk byggðinni hér á Norðurlandi. Grænlend- ingar eru um 36 þúsund talsins, en hér á Norðurlandi eru um 33 þúsund manns. Grænlending ar búa dreift eins og við. Fyrir miðri byggð vesturstrandarinn- ar er höfuðstaðurinn Godtháb, og þjónar sama hlutverki og Akureyri Norðurlandi. í Godt- háb eru um 8 þúsund manns. Síðan er Holseinsborg með um 4 þúsund manns og svo Narssak og aðrir álíka og minni. Innan- landssamgöngur eru ákaflega erfiðar og dýrar og er nær ógerningur að leggja vegi. Sam- göngur eru því á sjó og í lofti. Strandferðaskipið Diskó sáum við og er það ágætt skip. Og svo er innanlandsflug rekið með þyrlum. Þessar samgöngur eru reknar með ríflegum styrkjum frá Dönum. Við urðum vör við það á Grænlandi, í vinabæ okkar, að fólkið bindur talsverðar vonir við samstarf við okkur á Akur- eyri. Við komum auðvitað á engan hátt í staðinn fyrir Dan- ina, en þeir vita, að við höfum merkilega og erfiða þróun í okkar málum að baki, sem er framundan hjá þeim. Grænlend ingar standa á tímamótum í þessu efni og gera sér það sjálfir vel ljóst. Þeir ganga margir með 50 mílna merkið í barminum og binda vonir við samstarf íslend- inga, Norðmanna, Færeyinga og Grænlendinga á sviði fiskveiða og landhelgi. Ég held að Grænlendingar hafi notið frábærs stuðnings frá danska ríkinu, samanber sjúkra hús og skóla og margt fleira. En Grænlendingar geta ekki lært af Dönum á sama hátt og af íslendingum, Norðmönnum og Færeyingum. En það er þó ekki rétta leiðin að senda héðan eða frá Noregi sérfræðinga til Grænlands, en við þurfum miklu fremur að taka á móti þeim Grænlendingum, sem hingað vilja koma og kynna þeim sem allra bezt okkar mál- efni, ef þau gætu orðið þessum nágrönnum okkar í vestrinu að einhverju gagni. Menntuðu, ungu fólki fjölgar ört í Græn- landi á síðustu árum og það skammast sín ekki lengur fyrir að vera Grænlendingar. í Kaup mannahöfn gengur það gjarn- an í sínum eigin þjóðbúningi, daglega, og er stolt af landi sínu og kynflokki. Þetta unga fólk er reiðubúið að takast á við hin mörgu og stórkostlegu vandamál sín. Margir vilja koma til íslands og kynnast staðháttum, m. a. hittum við ungan mann, sem stundar land- búnaðamám í Danmörku, sem vill hingað koma, skarpan mann, sem veit hvað hann vill og svo er um ýmsa fleiri, sem við hittum. íslendingum ætti að vera það bæði ljúft og skylt að greiða götu þeirra manna og kvenna, sem hingað vilja koma þessara erinda. Ég sá og kynntist allt öðru Grænlandi, en því sem ég hafði í ímyndun minni áður en ég fór. Við höfum lesið margar bækur frá Grænlandi og gert okkur hinar furðulegustu hugmyndir um land og fólk, alveg gagn- stæðar veruleikanum. Okkar hugmyndir um þetta nágranna- land okkar eru sennilega jafn fráleitar þeim hugmyndum, sem ýmsar þjóðir gera sér af okkur og okkar landi og við viljum gjarnan leiðrétta. Við vorum heppin með veður. Alla dagana var logn og sólskin, heitt á daginn en svalt um nætur. í fáum orðum sagt, er Græn- land framúrskarandi fallegt land, hreinasta ferðamanna- paradís, og þarna býr fólk í menningarsamfélagi, fólk, sem hefur margt reynt á liðnum öld- um, eins og við, en stendur nú á tímamótum mikils framfara- skeiðs. Það vill sjálft taka við meiri stjórn eigin mála en það hefur nú og er fullfært um það. Vinabæjarsamband Narssak og Akureyrar er mjög sögulegt. Þetta eru fyrstu tengsl opin- berra aðila á íslandi og Græn- landi og þetta mun vera fyrsta opinbera heimsókn íslendinga til Grænlands. Ég vona að þessi tengsl Akureyrar og Narssak sé upphaf náinna samskipta og samvinnu íslendinga og Græn- lendinga báðum þjóðunum til gagns. Fjarlægðin á milli okkar hefur verið miklu meiri en þörf er á og er mál til komið að hún minnki. Blaðið þakkar Bjarna Einars- syni bæjarstjóra fyrir ágæta frásögn og mikinn fróðleik af fornum slóðum íslendinga- byggðar á Vestur-Grænlandi. Fasfeignir til sölu Einbýlishús við Byggðaveg. . Einbýlishús við Hamarstíg. Einbýlishus í smíðum í Gerðahverfi II. Raðhús í smíðum í Gerðaihyerfi II. 2ja herbergja íbúð við Ægisgötu. 3ja herbergja íbúð við Munkaþverárstræti. 4ra berbergja íbúð við Haínarstræti. Einbýlishús við Ægisgötu. 4ia herbergja íbúð við Liekjargötu. EASTEIGNASALAN H.F., GLERÁRGÖTU 20. - SÍMI 2-18-78. OPIÐ MILLI KL. 5 OG 7. Sfarf skólahjúkrunarkonu við Glerárskólann er laust til umsóknar nú þegar. Gert er ráð fyrir að starfið miðist við einn þriðja til hélming af fullu starfi. Laun samkvæmt kjarasamningi starfsmanna Ak- ureyrarbæjar. Upplýsingar veitir skólastjóri Glerárskólans. Umsóknir sendist bæjarstjóra fyrir 20. september næstkomandi. Akureyri, 10. september 1973. FRÆÐSLURÁÐ AKUREYRAR. NÝ VERZLUN NÝJAR VÖRUR REYNIÐ VIÐSKIPTIN í GLÆSILEGRI VERZLUN. Vefnaðarvörudeild HAFNARSTRÆTI 95, II. HÆÐ. - SÍMI 21400. Styðja tillögur f u n d u r „Sameiginlegur stjórna allra Framsóknarfélaga í Norður-Þingeyjarsýslu, hald- inn á Þórshöfn 10. september 1973, lýsir fyllsta stuðningi við íramkomna tillögu Ólafs Jó- hannessonar forsætisráðherra, um stjórnmálaslit við Breta, verði um frekari ásiglingar af þeirra hálfu á íslenzku varð- skipin að ræða. Þá leggur fund- urinn jafnframt til, að ríkis- stjórnin taki til alvarlegrar athugunar, hvort ekki beri að kalla sendiherra íslands hjá NATO þegar heim.“ □ ÍSliÍIÍiÍÍœK: Datsun 1200 1973. Af sérstökum ástæðum er til sölu Datsun 1200 árg. ’73, ekin 8.000 km. Er í ábyrgð fram í febrúar 1974. Uppl. í síma 2-18-29. Til sölu Volkswagen árg. 1963. Uppl. í síma 1-21-90. Til sölu Mercury Comet 1972, Citroen D Special 1972. BÍLASALAN h. f., Strandgötu 53, sími 2-16-66. V.W. árg. 1963 er til sölu í mjög góðu ásig- komulagi ásamt ýmsum varahlutum. Uppl. í Helgamagrastr. 43, niðri, eftir kl. 7 á kvöldin. Til sölu Volkswagen fastback árg. 1970, ek- inn 43 þús. km. Uppl. í síma 1-20-21 eftir kl. 6 á kvöldin. V.W. 1600 TL Last- back árg. 1971 til sölu. Birkir Fanndal, Laxárvirkjun. Til sölu Cortína árg. 1970. Skipti á ódýrari bifreið koma til greina. Uppl. í sírna 1-11-67 milli 1 og 5 e. h. Til sölu Land Rover dísel ’71, Mustang ’66 og fleiri bílar. BÍLAKAUP, sími 2-16-05. Toyota bifreið A-1249 árg. ’72 ekin 14.000 km. er til sölu. Uppl. í síma 1-26-77 eða Eiðsvallagötu 6. zy l[ 31 :i ii u i y im UMSJÓN: EINAR HELGASQN YFIRBURÐASIGUR ÍBV GEGN ÍBA VONIR Akureyringa um að hljóta þriðja sætið í 1. deild urðu að engu, er liðið beið mik- ið afhroð í viðureigninni við frískt lið Vestmannaeyinga á laugardaginn. Strax í upphafi leiksins varð ljóst að hverju stefndi. Vestmannaeyingar voru til muna fljótari og hreyfanlegri heldur en heimamenn, og unnu yfirburðasigur 6—1. Fyrsta mark leiksins skoraði Tómas Pálsson er hann komst FRÁ N. L. F. A. ÍBÚAR Akureyrar og nágrenn- is! Nú þarf félagið að taka til á nýjan leik við fjársöfnun í byggingarsjóðinn. Byrjunin er hlutavelta, sem verður í Alþýðu húsinu n. k. sunnudag svo sem auglýst er á öðrum stað í blað- inu. Nýtt happdrætti er í gangi og verða miðar á boðstólum fram eftir hausti. Vonumst eftir góðum stuðningi við þetta hvoru tveggja. Brýn þörf er á nýjum félagsmönnum því marg ar hendur vinna létt verk. Með fyrirfram þökk. Stjórn N.L.F.A. HRÚTASÝNINGAR í NORÐUR-ÞING. Gunnarsstöðum, 11. september. í gær var haldin héraðssýning á hrútum í Norður-Þingeyjar- sýslu. Sýningin var haldin að afloknum hreppasýningum, sem fóru fram í fjórum hreppum sýslunnar. Héraðssýningin var haldin í tvennu lagi sitt hvoru megin Jökulsár, en sú á er varnarlína sauðfjárveikivarna. Að vestan var sýningin hald- in í Grásíðu í Kelduhverfi, en að austan í Laxárdal í Þistil- firði. Mættir voru á sýningunni 28 hrútar, eða einn fyrir hverj- ar 1000 vetrarfóðraðar kindur í hverjum hreppi. Þessir hrútar dæmdust þannig, að 10 hlutu fyrstu heiðursverðlaun, 9 fyrstu verðlaun A og 9 fyrstu verðlaun B. Bezti hrútur sýningarinnar var Lalli Vigfúsar Guðbjörns- sonar á Syðra-Álandi í Þistil- firði og hlaut hann 90 stig. Hann hlaut einnig Þorsteins- hrútinn, farandgrip, sem nú var veittur í fyrsta sinn. Auk þess hlaut Lalli peningaverðlaun. Annar bezti hrúturinn var Smári Þorgeirs Þórarinssonar í Grísíðu í Kelduhverfi og þriðji bezti hrúturinn var Hlyni og eru eigendur hans Óli og Gunn- ar Halldórssynir á Gunnars- stöðum. Dómarar á sýningunni voru ráðunautarnir Sveinn Hall- grímsson, Ólafur Vagnsson og Grímur B. Jónsson. Ó. H. Geymslan verður opnuð 17. septomber n. k. og verður opin milli kl. 17—18,30 mánudaga til •föstudaga. Vinsamlegast greiðið leyfisgjaldið á bæjarskrif- stofunum fyrir 1. október. GARÐYRKJUSTJÓRI. inn úr þunglamalegri vörn ÍBA. Fyrr í leiknum komst hann í svipað færi, en mistókst í það skiptið. Næstu tvö mörk skor- aði svo Haraldur Júlíusson með skalla, einkar falleg mörk, sem Árni markvörður réði ekki við. Ef til vill hefði hann getað kom- izt út í sendingarnar áður en Haraldur náði að skalla, en von laust var fyrir hann að verja skallaboltana. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleiknum, enda held ég að áhangendum ÍBA-liðsins hafi fundizt komið nóg. Vestmannaeyingar höfðu töglin og hagldirnar allan hálf- leikinn, aðeins var spurning um það, hve mörg mörk þeir skor- uðu. Eyjamenn léku undan vindi fyrri hálfleikinn, og bjugg ust margir við straumhvörfum í seinni hálfleik, en reyndin varð önnur. Nákvæmlega sama sagan endurtók sig í seinni hálf- leiknum, ÍBV hafði sömu yfir- burðina og þeir höfðu haft í fyrri hálfleik og bættu við öðr- um þremur mörkum, öll skoruð af Erni Óskarssyni með hörku skotum, sem mjög erfitt var að verja. Akureyringar skoruðu eitt mark í hálfleiknum, fengu vítaspyrnu á ÍBV, sem Sigbjörn skoraði úr. Páll markvörður varði skot Sigbjarnar, sem var fremur lélegt, en einhver varn- armaður, líklega markvörður- inn, mun hafa brotið af sér og spyrnan var endurtekin. í seinna skiptið skoraði Sigbjörn örugglega, enda fór Páll mark- vörður erindisleysu í öfugt horn. Lið ÍBV lék vel að þessu sinni og verðskuldaði stórsigur. Styrk ur þeirra lá fyrst og fremst í Grænfóðurkökur (hafra- bygg), nokkur tonn til sölu. Kjartan Magnússon, Mógili, sími 2-15-70. Vegna flutninga er til sölu sem nýr ísskápur. Uppl. í síma 2-19-00. Til sölu fjárgrindur. Uppl. í síma 2-12-65. KÝR til sölu. Uppl. í síma 1-17-00. TAPAÐ Konan sem fann 5.000 krónu seðilinn framan við Bautann í s. 1. viku, er beðin að gefa sig frám í síma 1-14-97. Tapaður er svartflekk- óttur köttur. Einkenni, litill svartur blettur á hægri kinn. Þeir sem yrðu kattarins varir, vinsamlegast hringi í síma 1-16-38. dugnaði og hreyfanleika. Sam- leikur þeirra var oft léttur og skemmtilegur, og upp úr hon- um sköpuðust oft fjölmörg tæki færi. Beztu menn liðsins voru: Ólafur Sigurvinsson bakvörður, Haraldur Júlíusson, sem er einkar laginn en yfirlætislaus leikmaður og Örn Óskarsson, snöggur og fljótur leikmaður, sem er sívinnandi. Skotin hans eru með ólíkindum föst og erfið öllum markvörðum. ÍBA-liðið var sem skuggi af sjálfu sér að þessu sinni. Þeir virtust algjörlega áhugalausir fyrir leiknum, eða getur verið að slegið hafi verið slöku við æfingar að undanförnu? Ólík- legt má það telja, þar sem liðið er á förum til útlanda um miðj- an mánuðinn og hyggst leika að minnsta kosti einn leik í förinni. Aðeins einn leikmaður í liðinu barðist vel, Gunnar Austfjörð, sem sjaldan bregst. Þegar þetta er skrifað, er stað an í íslandsmótinu þannig, að Keflvíkingar eru orðnir íslands meistarar þótt þeir eigi einn leik óleikinn. Breiðablik er fall- ið í 2. deild og Víkingur hefur unnið sæti þeirra. Þróttur, Nes- kaupstað fellur úr 2. deild í 3., en ekki er ljóst hvaða lið kemur upp í þeirra stað. Akureyringar hafa hlotið 10 stig eftir 13 leiki, eiga eftir leik við KR, sem hefur tveimur stig- um minna og er í næst neðsta sæti í 1. deildinni. □ ÆFINGAR I SKÍÐAMANNA UM þessar mundir eru að hefj- ast æfingar fyrir skíðamenn á vegum Skíðaráðs Akureyrar. Æft verður á þriðjudögum og fimmtudögum á íþróttavellin- um. Kl. 18.00 eru æfingar fyrir 15 ára og yngri, en kl. 19.00 fyrir 16 ára og eldri. Þjálfari er Viðar Garðarsson. Gunnar Óskarsson sigraði NÚ ER lokið firmakeppninni í knattspyrnu, sem staðið hefur yfir að undanförnu. Alls tóku 10 lið þátt í keppninni, sem var með útsláttarfyrirkomulagi. Lið, sem tapað hafði tveimur leikj- um féll úr keppninni. Sigurvegari að þessu sinni varð lið Gunnars Óskarssonar byggingameistara, sem sigraði lið Akureyrarbæjar með fjórum mörkum gegn þremur í fram- lengdum úrslitaleik, sem fram fór sl. sunnudag. Lið Gunnars sigraði einnig í fyrra. Q ÞOR ALmeistari í j knattspyrnu m.fl. ÞÓR sigraði KA í knattspyrnu m.fl. í Akureyrarmóti sl. mið- vikudagskvöld með þremur mörkum gegn engu. Sigurinn var verðskuldaður, en byggðist ef til vill á því, að Árni Stefáns- son lék ekki í marki KA sökum meiðsla. Allur leikur KA var heldur máttlítill, og lítil sem engin ógnun í honum. Þórsarar voru ákveðnari í leik sínum og það var fyrst og fremst það, sem gerði gæfumuninn. Q

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.