Dagur - 12.09.1973, Blaðsíða 1
Konia fogararnir í næsfu viku?
GÍSLI Konráðsson hjá Útgerð-
arfélagi Akureyringa h.f. tjáði
blaðinu eftirfarandi á mánudag-
inn:
Við bíðum eftir því að togar-
arnir tveir, sem búið er að
TRILLUBÁTUR
KOM í STAÐ
VARÐSKIPS
KJÖRDÆMISÞING Framsókn-
armanna í Norðurlandskjör-
dæmi vestra var haldið á Húna-
völlum á laugardaginn og hófst
það klukkan 10 árdegis. Um 70
fulltrúar sóttu þingið. Ólafur
Jóhannesson forsætisráðherra
var gestur fundarins og flutti
langa og ítarlega ræðu um
stjórnmálaviðhorfið. Ennfremur
flutti Elías Snæland Jónsson
formaður SUF ávarp.
Stjórn Kjördæmissambands-
ins skipa: Guttormur Óskars-
son formaður og með honum í
stjórn Sigurður Líndal, Lækja-
móti, Gunnar Sæmundsson,
Hrútatungu, Pétur Sigurðsson,
Skeggjastöðum, Jón Bjarnason,
Ási, Haraldur Hermannsson,
Yztamói, Úlfar Sveinsson, Ing-
veldarstöðum, Bjarni M. Þor-
steinsson, Siglufirði og Skafti
Guðmundsson, Siglufirði.
Það bar við á fimmtudaginn,
að kært var til lögreglunnar á
Sauðárkróki yfir ólöglegum
veiðum innarlgea á Skagafirði.
Kári Steinþórsson lögreglu-
þjónn, Karl Hólm og Lárus Run
ólfsson hafnsögumaður fóru á
trillubáti út með Reykjaströnd-
inni og komu að Blátindi SK 88
í landhelgi á fimmta tímanum
og var hann þá nýbyrjaður að
hífa. Er þar skemmst af að
segja, að löggæzlumennirnir
fóru um borð í bátinn og fóru
með hann til hafnar. Dómur
hefur gengið í málinu og var
sektin ákveðin 35 þús. krónur
auk sakarkostnaðar og afli og
veiðarfæri gerð upptæk.
Þykir þetta vel að verki stað-
ið, og þar sem ekkert skip Land
helgisgæzlunnar var nálægt var
ekki um aðrar aðgerðir að velja.
Löggæzlumenn á Sauðárkróki
gerðu einnig tilraun til að taka
Berghildi SI, þar sem hún var
að ólöglegum veiðum á föstu-
daginn. Báturinn komst undan.
Framangreindar upplýsingar
éru frá formanni Kjördæmis-
sambandsins og lögreglunni á
Sauðárkróki. □
kaupa, verði afhentir í Færeyj-
um. Það gæti orðið um næstu
helgi. Kaupin hafa farið fram
og tilskilin leyfi færeyskra yfir-
valda um sölu skipanna úr
landi fengin. Verið er að út-
búa skipin til formlegrar af-
hendingar og ganga frá ýmsu
varðandi kaupin.
Fyrir nokkru síðan fóru tveir
skipstjórar, Áki Stefánsson og
Halldór Hallgrímsson, og vél-
stjórarnir Eysteinn Bjarnason
og Valur Finnsson, frá Ú. A. til
Færeyja og þangað munum við
svo senda áhafnir þegar skipin
verða tilbúin.
Skip þessi heita Svalbakur og
Sléttbakur. Eftir heimkomuna
verður vinnsluplássi breytt, þar
sem áður fór fram flökun og
pökkun, en verður nú aðgerðar-
pláss. □
G. P. K. tók þessa mynd í nýju Vefnaðarvörudeil dinni.
VEFNAÐARVÖRUDEILD KEAI NYJU HU5NÆÐI
ÞRIDJUDAGINN 11. septem-
ber var 2. hæð nýbyggingar
KEA við Hafnarstræti 95 tekin
í notkun. Er hér um að ræða
um það bil 500 fermetra hús-
næði, sem Vefnaðarvörudeild
KEA hefir flutt í, en í fyrra
húsnæði deildarinnar mun hluti
af Járn- og glervörudeild flytja
innan skamms.
Með þessu er stórt skref stig-
ið í þeirri skipulagsbreytingu,
sem KEA tilkynnti um sl. ára-
mót, þ. e. að stefnt skyldi að
sameiningu Vefnaðarvörudeild-
ar, Skódeildar, Herradeildar og
Járn- og glervörudeildar í eitt
vöruhús.
Hið nýja húsnæði Vefnaðar-
vörudeildar er mjög vistlegt,
rúmgott og hið smekklegasta í
VETRARSTARF LA HAFIÐ
Á FUNDI með fréttamönnum á
Hótel Varðborg á laugardaginn,
skýrði Jón Kristinsson formað-
ur Leikfélags Akureyrar og
Magnús Jónsson leikhússtjóri
frá verkefnum félagsins á næsta
leikári og fer fréttatilkynning
L. A. hér á eftir:
Vetrarstarf Leikfélags Akur-
eyrar er að hefjast um þessar
mundir. í fyrsta sinn í sögu fé-
lagsins tekur nú til starfa fast-
ráðinn hópur leikara, en þeir
eru átta: Þórhalla Þorsteins-
dóttir, Sigurveig Jónsdóttir, Þór
hildur Þorleifsdóttir, Saga Jóns-
dóttir, Þráinn Karlsson, Arnar
Jónsson, Aðalsteinn Bergdal og
Gestur Einar Jónasson.
Fyrsta verkefni L. A. í vetur
er Don Juan eftir Moliere. Leik
félag Akureyrar vill með vali
þessa verkefnis bæði minnast
300 ára ártíðar þessa fræga
gamanleikjahöfundar og hefja
leikárið með bráðskemmtileg-
um gamanleik. Don Juan hefur
ekki verið leikinn fyrr á Islandi
Um miðjan nóvember hefjast
æfingar á leikritinu Haninn
háttprúði eftir Sean O’Casey.
Þýðinguna gerði Þorleifur
Hauksson, en leikritið hefur
ekki verið áður sýnt hérlendis.
Enskur leikstjóri, David Scott,
kemur til landsins til að setja
leikinn á við.
Áformað er að sýna þrjú önn-
ur verkefni á leikárinu og bind-
ur félagið vonir við að íslenzkir
höfundar bregðist vel við aug-
lýsingu L. A., sem birt var í
blöðum í vor, en þar var aug-
lýst eftir samvinnu við höfund
í því skyni að koma nýju ís-
lenzku leikriti á svið. Skilafrest
ur á drögum að leikritum eða
greinargerð um fyrirhugað verk
er til 1. október.
Um næstu mánaðamót hefst
leiklistarnámskeið félagsins. □
a
fé!l irm helgina
FYRSTA frostnóttin á haustinu
var um síðustu helgi, á sunnu-
dagsnóttina. Féll þá víðast
kartöflugras í görðum, þó mis-
jai'nlega mikið.
Kartöflur spruttu seint í ár
vegna langvarandi kulda á fyrri
hluta vaxtarskeiðsins, en síðan
vel og mun uppskera orðin
sæmileg eða jafnvel allgóð þar
sem hún er bezt, en annars stað-
ar er hún undir meðallagi.
í sumar voru settir niður 800
pokar af nokkrum völdum teg-
undum í Öngulsstaðahreppi,
Svalbarðsstrandarhreppi og
Grýtubakkahreppi, og er rækt-
un þessi svonefnd stofnrækt,
þ. e. útsæðisrækt fyrir Græn-
metisverzlun landbúnaðarins og
er undir eftirliti jurtasjúkdóma
fræðings. Þykir útsæði af Norð-
urlandi heilbrigðara en sunn-
lenzkt og þess vegna er stofn-
ræktin hér. Framleiðendurnir
fá nokkru hærra verð fyrir
vöru sína en aðrir, en þurfa að
halda útsæðinu óblönduðu og
hlýta þeim reglum öðrum, er
þeim eru settar. □
Á SIGLUFIRÐI er nú komin
hin indæla og kyrra hausttíð,
sem þar er oft um þetta leyti.
Framkvæmdir eru miklar en
ýmsar þeirra verða síðbúnir. Af
þeim má nefna gatnagerð og er
verið að undirbúa Suðurgötu og
Hverfisgötu undir varanlegt slit
lag, sem væntanlega verður lagt
á næsta sumar.
Hlutafélagið Þormóður rammi
er nú að vinna við fyrsta áfanga
mikilla bygginga og er þar
byrjað að steypa. Er byggt á lóð
gömlu Rauðku og fleiri nærliggj
andi lóðum, sem bærinn átti og
Þormóður rammi á nú. Er þetta
geysileg framkvæmd. Eru fyrst
byggðar frystigeymslur, en
þarna á að rísa mikil útgerðar-
stöð og fiskiðja. En þessar tvær
framkvæmdir krefjast mikils
starfs og fjármagns. Þá er verið
að fullgera nokkrar íbúðir frá í
fyrra og verið að bygg'ja ný hús.
í Barnaskóla Siglufjarðar eru
300 börn á aldrinum 6—12 ára.
Skólastjóri er Jóhann Þorvalds-
son, sem tekur við því starfi af
Hlöðver Sigurðssyni, sem ósk-
aði að láta af störfum sakir
aldurs. Kennarar eru tíu fast-
ráðnir og þrír stundakennarar.
Nýtt stálskip, Stálvík að
nafni, 500 lesta skuttogari frá
Stálvík, er kominn til Siglu-
fjarðar og fer hann á veiðar
einhvern næsta dag. Skipstjóri
er Friðrik Einarsson og fyrsti
vélstjóri Agnar Þór Haraldsson
og áhöfnin öll siglfirzk.
alla staði. Innréttingarnar voru
keyptar hjá sænska samvinnu-
sambandinu í Stokkhólmi, en
innréttingar af þessari gerð
hafa gefið mjög góða raun í
Svíþjóð og fleiri löndum.
Gólfteppasala KEA, sem áður
var í þröngu húsnæði í kjallara
Hafnarstrætis 93 (Herradeild),
hefir nú fengið rýmri aðstöðu í
hinni nýju verzlun og getur því
boðið viðskiptavinum sínum
upp á fjölbreyttara og aðgengi-
legra úrval gólfteppa en áður.
Ymsar aðrar nýjungar er að
finna í hinni nýju Vefnaðarvöru
deild, svo sem „torgið“, sem er
sérlega útbúinn staður fyrir til-
búinn fatnað, og „glugginn“,
þar sem hægt er að virða fyrir
sér prufur að fjölda glugga-
tjaldategunda í því ástandi, sem
slíkir hlutir sjást venjulegast.
í Vefnaðarvörudeild starfa nú
9 manns, auk deildarstjórans
Kára Johansen. Vöruhússtjóri
er Björn Baldursson. □
BANASLYS
FIMMTÁN ára piltur, Svavar
Gunnþórsson, Skarðshlíð 13,
Akureyri, lézt í dráttarvélaslysi
á Gásum sl. fimmtudagskvöld,
er liann var að hjálpa bræðrum
sínum þar við bústörfin. Q
Sijcmmálasctmbandi slitið?
Á RÍKISSTJÓKNARFUNDI árdegis í gær, þriðjudag, var
samþykkt, að brezku ríkisstjórninni verði tilkynnt, að ef
lierskip hennar og dráttarbátar haldi áfram ásiglingum á
íslenzk skip, sjái íslenzka ríkisstjórnin sig tilneydda að
krefjast slita stjórnmálasamskipta landanna. Þannig, að
sendiráði Breta í Reykjavík verði lokað og starfslið þess
kvatt heim.
Þá lagði ríkisstjórnin svo fyrir flugumferðarstjóm í gær-
morgun, að stöðvað verði nú þegar samband við brezku
Nimrod-þoturnar.
Ólafur Jóliannesson lýsti því yfir, að ríkisstjórnarfundi
Ioknum, að samþykktir þessar hefðu verið gerðar samhljóða
í ríkisstjórninni. Eins og nú er komið málum, er það á valdi
Brctanna að varðveita stjórnmálasambandið eða rjúfa það.